Þjóðviljinn - 08.01.1987, Blaðsíða 3
■■ÖRFRÉTTIRh
, Knútur
Óskarsson
viðskiptafræöingur hefur verið
ráðinn framkvæmdastjóri Ferð-
askrifstofunnar Úrvals í stað Erl-
ings Aspelund sem sagði starfi
sínu lausu.
13 skipstjórar
12 flugliðar, 4 iðnaðarmenn og
26 stúdentar voru brautskráðir
frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja
nú fyrir áramótin. Yfir 800 nem-
endur stunda nú nám við
skólann í dagskóla, öldunga-
deild, starfsnámi og í námsflokk-
um. Skólinn átti 10 ára afmæli sl.
haust og framundan eru fram-
kvæmdir við viðbyggingu bók-
námshúss.
Hámarksverð
á steinolíu
er nú samkvæmt ákvörðun Verð-
lagsstofnunar 13.90 kr. hver lítri
seldur í tunnu, 15.60 kr. frá dælu
á bifreiðar og 18.80 kr. í smáílát.
FRETTIR
Syneta
Stóðst Gíbraltarreglur
Beiðni barst í fyrrakvöld til rétt því samkvæmt gögnum skrái skip sfn þar vegna þess að f London.
Líkkistuvinnustofu Eyvindar tollgæslunnar kom ekkert skip ■ ekki eru gerðar sömu kröfur um Þorvaldur saeði í samtali við
eiðni barst í fyrrakvöld til
Líkkistuvinnustofu Eyvindar
Árnasonar um að annast flutning
á líkum bresku skipverjanna fjög-
urra af Synetu. Þau verða því
send til London með flugi fljót-
lega en eftir er að ganga frá
formsatriðum.
Ekki er ljóst ennþá hvort lík
skipverjanna þriggja frá Græn-
höfðaeyjum verða flutt þangað
eða jörðuð á íslandi. Enn eru
ófundin lík tveggja Breta og
þriggja skipverja frá Grænhöfða-
eyjum.
Enska blaðið Today birti í gær
frétt þess efnis að Syneta hefði
tekið niðri á Héraðsflóa 1. des-
ember 1985. Að sögn Hermanns
Guðmundssonar hjá tollstjóra-
embættinu getur það varla verið
rétt því samkvæmt gögnum
tollgæslunnar kom ekkert skip
með þessu nafni til landsins 1985.
Syneta kom hins vegar til
Vestmannaeyja 23. október 1986
og til Neskaupstaðar 4. desember
1986. f höfninni þar tók hún lítil-
lega niðri en skemmdist ekkert.
Eigandi Synetu, Syndicate
Tankships Ltd. í London skráði
skipið á Gibraltar 1985, en skýrt
hefur verið frá því að 94 af 100
skipum sem nú eru skráð á Gi-
braltar, séu á svokölluðum svört-
um lista vegna þess að ýmsu sé
verulega ábótavant í öryggisbún-
aði.
Að sögn Páls Guðmundssonar
yfirmanns Skipaeftirlits ríkisins
er töluvert um að skipaeigendur
sem sækjast eftir „þægindafána"
skrái skip sfn þar vegna þess að
ekki eru gerðar sömu kröfur um
öryggisútbúnað og mönnun og
annars staðar.
Að sögn Páls og Sigurðar
Eiríkssonar sýslumanns á Eski-
firði hefur ekkert komið fram
sem bendir til þess að öryggismál
hafi verið í ólagi á Synetu og haf-
færnisskírteini er í lagi samkvæmt
reglum á Gibraltar.
Tankskipið Syneta var smíðað
1969 og var um 1200 tonn að
stærð. Það hefur verið í olíuflutn-
ingum í Evrópu og á Miðjarðar-
hafi undanfarin ár að sögn Þor-
valds Jónssonar skipamiðlara
sem sá um að útvega skipið til að
sækja lýsi til Eskifjarðar og
Vestmannaeyja. Útgerðaraðili
Synetu var Haggerstone Marines
í London.
Þorvaldur sagði í samtali við
Þjóðviljann að hann undraðist
mjög sögusagnir um kafbátaeftir-
lit og annað þvílíkt í tengslum við
slysið og kvaðst telja að mannleg
mistök hefðu valdið því. Hann
sagði að ástæðan fyrir töfinni á að
senda lík skipverjanna út væri
sú, að illa hefur gengið að ná sam-
bandi við ættingja á Grænhöfða-
eyjum og beðið væri eftir að þeir
létu í ljósi óskir sínar um hvað
gera skyldi.
Skipstjóri Synetu tók sér frí
áður en farið var í síðustu förina
og stýrimaður skipsins leysti
hann af. Auk hans voru tveir af-
leysingamenn ráðnir á skipið í Li-
verpool að sögn Þorvalds.
-vd.
Fiskiskipaflotinn liggur nú að stórum hluta bundinn við bryggju, verklítið orðið í fiskvinnsluhúsum og fiskbúðir víðast
tómar. Þessi mynd var tekin í Ólafsvík í vikunni þar sem bátaflotinn er allur bundinn við bryggju. Mynd -gg.
Verkfallsbrot
Lögleg en siðlaus
Andlegur
stuðningur
nefnist erindi sem Ævar R. Kvar-
an leikari, flytur á fræðslufundi
hjá Geðhjálp sem haldinn verður
á geðdeild Landsspítalans í kvöld
kl. 20.30.
Stjórnendur
ríkisstofnana
hafa stofnað með sér félag til að
efla kynni og vera tengiliður við
stjórnvöld varðandi gagnkvæm
málefni. Formaður félagsins er
Óli H. Þórðarson hjá Umferðar-
ráði en félagsmenn eru um 70.
Nikolaj
Kúdravtsév
fyrsti aðstoðarfiskimálaráðherra
Sovétríkjanna var endurkjörinn
formaður Félagsins Sovétríkin -
ísland á sjöttu ráðstefnu félags-
ins sem haldin var í Moskvu í des-
ember sl.
Á ríkisráðsfundi
á gamlársdag staðfesti forseti ís-
lands ýmsar stöðubreytingar í
ríkiskerfinu. Pétur G. Thorsteins-
son var skipaður sendiráðunaut-
ur í utanríkisþjónustunni, Sigurð-
ur Skúli Bergsson var skipaður
deildarstjóri í samgönguráðu-
neytinu, Stella Magnúsdóttir
skipuð deildarstjóri í heilbrigðis-
og tryggingamálaráðuneytinu,
og þeir Hermann Jóhannesson
og Runólfur Birgir Leifsson skip-
aðir deildarstjórar í menntamála-
ráðuneytinu.
Lítið hefur verið um verkfalls-
brot eftir að verkfall sjómanna
skall á að sögn Friðgeirs Jóhann-
essonar forsvarsmanns verkfalls-
vörslu þeirra.
„Auðvitað er líka um verkfalls-
brot að ræða í þeim tilfellum þeg-
ar skip fóru á veiðar til löndunar
erlendis eftir að verkfall var boð-
að. Það er verið að skjóta sér
undan verkföllum og þó að að-
gerðir þessar séu ekki lögbrot þá
eru þær siðferðilegt brot,“ sagði
Friðgeir. Þá sagði hann að í kom-
andi samningaviðræðum væri
stefnt að því að koma inn ákvæði
sem myndi verja sjómenn gegn
slíkum siðferðilegum brotum út-
gerðarinnar.
Friðgeir sagði að bátar undir 12
tonnum féllu ekki undir samn-
inga sjómanna og mættu þeir því
róa á meðan á verkfalli stæði.
Fram til 15. janúar mega bátar
undir 10 tonnum þó ekki róa sam-
kæmt reglugerð Sjávarútvegsins.
Fram að þeim tíma er því aðeins
11 tonna bátum heimilt að fara út
og bátum sem eru eingöngu með
eigendur um borð heimilt að róa.
-K.Ól.
Eiðsvík
Mengun
hverfandi
Okkar niðurstaða er sú að meng-
unarhætta vegna laxeldisstöðv-
anna í Eiðsvík sé hverfandi lítil,
sagði Snorri Páll Kjaran fram-
kvæmdastjóri verkfræðistofunn-
ar Vatnaskil í samtali við Þjóð-
vifjann í gær.
Vatnaskil gerði könnun á
mengunarhættu vegna stöðvanna
í Eiðsvík á vegum Reykjavíkur-
hafnar í samvinnu við Hollustu-
vernd, en Hannes Valdimarsson
aðstoðarhafnarstjóri hafði um-
sjón með verkinu. í skýrslu frá
verkfræðisstofunni segir að botn-
fall frá stöðvunum vegna fóðurs
sé hverfandi lítið, aðeins um 3-4
sentimetrar á ári, en þarna er
mikið dýpi. I skýrslunni er miðað
við 200 tonna framleiðslu á ári
hjá hverri stöð.
Einnig var mæld fosfór- og
köfnunarefnismyndun frá stöðv-
unum, en hún var mjög lítil að
sögn Snorra. Það kom jafnframt í
ljós að þarna verði hægt að
fullnægja súrefnisþörf 200 tonna
stöðva, og reyndist súrefnismagn
vera talsvert fyrir ofan norska
staðla.
Fjórum fyrirtækjum hefur ver-
ið úthlutað athafnasvæði í
Eiðsvík, en stöðvarnar hafa til
þessa ekki fengið starfsleyfi.
-gg
Framsókn
Finnsmenn ævareiöir
Steingrímur fórnar Finnifyrir Guðmund G. Málefni námsmanna
leiksoppur innanflokksátaka
Stuðningsmenn Finns Ingólfs-
sonar innan Framsóknar-
flokksins í Reykjavík og um
landið eru ævareiðir vegna út-
reiðarinnar sem Finnur hefur
fengið hjá Steingrími Hermanns-
syni í Lánasjóðsmálinu, og þykir
sá höggva er hlífa skyldi, þarsem
ungt fólk í flokknum taldi
Steingrím sér vinveittan.
Heimildarmönnum Þjóðviljans
innan Framsóknarflokksins þyk-
ir ljóst að aðfarir Steingríms
stjórnist af hollustu hans við Guð-
mund G. Þórarinsson í efsta sæti
Reykjavíkurlistans.
Finnur var settur út af sakra-
mentinu eftir að hafa lagt fram
eigin frumvarpsdrög um lánamál
sem Sverri Hermannssyni og öðr-
um Sjálfstæðismönnum þóttu
hagstæðari námsmönnum en
góðu hófi gegndi. Sverrir tók
málið sem kunnugt er upp á ríkis-
stjórnarfundi og fékk því fram-
gengt að Steingrimur Hermanns-
son hefur tekið sæti Finns í athug-
unarnefnd stjórnarflokkanna um
námslán.
í Morgunblaðsfrétt í gær var
Steingrímur sagður hafa „lýst
furðu sinni“ á vinnubrögðum
Finns á fundi í Keflavík. Finnur
lýsti því yfir eftir fund með for-
sætisráðherra að Steingrímur
hefði rangt eftir sér haft í blaðinu.
f Morgunblaðinu í gær kemur í
ljós eftir segulbandsupptöku að
Steingrímur hafði lýst „undrun
sinni“ á vinnubrögðum Finns.
Stuðningsmenn Finns, sem er
aðstoðarmaður sjávarútvegsráð-
herra og helsti vonarpeningur
ungra Framsóknarmanna, benda
á að enn hafi Finnur ekki verið
beðinn að taka annað sæti B-
listans í Reykiavík, þarsem hann
og Haraldur Ólafsson biðu hrak-
legan ósigur fyrir vel væddum
sveitum Guðmundar G. Þórar-
inssonar. Sé Steingrímur með því
að fórna Finni að þóknast Guð-
mundi G., losa hann við óþægi-
lega samkeppni á listanum og
opna leið til að koma konu í ann-
að sætið. í þessum átökum sé
lánasjóðsfrumvarpið og hags-
munir námsmanna síðan
leiksoppurinn.
-m
A
iS&J
Félagsmálastofnun
Kópavogs
Sambýli fyrir aldraða
Forstöðumaður - starfsfólk óskast
Fljótlega verður hafin starfsemi dvalarheimilis
fyrir 11-13 aldraða í vesturbæ Kópavogs.
Hér með er auglýst laus staða til umsóknar for-
stöðumanns heimilisins.
Nauðsynlegt er að viðkomandi hafi reynslu í
störfum á sviði þjónustu við aldraða.
Jafnframt eru lausar til umsóknar 3 stöður starfs-
fólks við sambýlið, hlutastörf koma til greina.
Gengið er út frá því að um vaktavinnu verði að
ræða.
Umsóknarfrestur er til 18. janúar n.k.
Umsóknareyðublöð liggja frammi hjá Félags-
málastofnun Kópavogs, Digranesvegi 12.
Nánari upplýsingar veitir undirritaður í síma
45700.
Félagsmálastjóri
Fimmtudagur 8. janúar 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3