Þjóðviljinn - 08.01.1987, Blaðsíða 13
Franskar
herþotur geröu í gær loftárásir á
líbýskar radarstöövar í Quadi
Doum, norður af þeirri línu
(„rauöa línan“) sem skiptirChad í
yfirráðasvæði stjórnar landsins
og Líbýu og skæruliða. í stuttorðri
tilkynningu franska varnamála-
ráðuneytisins í gær sagði að ár-
ásin hefði verið svar Frakka við
árásum Líbýu sunnan „rauðu lín-
unnar“ á sunnudaginn. Yfirvöld í
Chad lýstu því yfir að fjórir menn
hefðu látist í þeim árásum. Chir-
ac, forsætisráðherra Frakka lýsti
þeirri árás í gær sem „biti skor-
dýrs“. Herinn í Chad sem studdur
hefur verið af Frökkum, hefur að
undanförnu reynt að hrekja Líbý-
uher burt frá norðurhluta Chad
með aðstoð skæruliða sem áður
börðust gegn stjórnarhernum
með aðstoð Líbýumanna. Yfir-
völd í Chad hafa að undanförnu
þrýst mjög á Frakka að skerast í
leikinn með hernaðarmætti sín-
um. (febrúar á síðasta ári gerðu
Frakkar sprengjuárás á sama
staðinn og þeir réðust á í gær.
Um
það bil 2000 járnbrautastarfs-
menn í París sem nú eru í verk-
falli, komu saman til mótmæla-
fundar í miðborg Parísar í gær.
Verkfall þeirra hefur nú staðið í
þrjár vikur en Chirac forsætisráð-
herra segist hvergi hvika frá þeirri
ákvörðun að leyfa ekki meira en
þrjú prósent launahækkanir
meðal opinberra starfsmanna.
Um það bil helmingur járnbrauta-
samgangna landsins er nú la-
maður. Metro, neðanjarðarjárn-
brautakerfið í París, stöðvaðist
nær alveg í gær og starfsmenn
orkuvera héldu í gær áfram verk-
falli sínu sem hófst í fyrradag.
Skakki
turninn í Písa á Ítalíu fékk í gær
nokkuð óvenjulega „lyftingu". Þá
hengdi ítalskur textílframleið-
andi, Umberto Sala, 43,9 metra
langt bindi í ítölsku fánalitunum á
turninn. Sala telur þetta vera
lengsta bindi sem framleitt hefur
verið og vonast að sjálfsögðu
eftir að komast í Guinnes
heimsmetabókina. Þá ætlar
hann að endurtaka leikinn bráð-
lega, á frelsisstyttunni í New
York.
Hópur
argentínskra lögfræðinga til-
kynnti eftir síðustu helgi að þeir
muni í dag kæra um það bil 700
manns, sem flestir eru foringjar í
her landsins, fyrir brot á al-
mennum mannréttindum á því
átta ára tímabili sem herforingjar
fóru með völd í landinu.
Þessi tilkynning lögfræðing-
anna kemur í miðju flóði nýrra
ákæra á hendur valdamönnum
innan hersins um ofbeldi
gagnvart almennum borgurum.
Þann 22. frebrúar taka gildi í
landinu lög sem banna lögsókn á
hendur svo til öllum foringjum
innan hersins. Herinn varviðvöld
í Argentínu frá 1975 til 1983.
Fulltrúi lögfræðinganna sagði í
fyrradag að þessir 700 menn séu
flestir foringjar í hernum, einnig
óbreyttir borgarar og lögreglu-
menn. Hann sagði að lögfræð-
ingahópurinn myndi tilkynna
kærur sínar formlega á frétta-
mannafundi í dag. í borginni Ba-
hia Blanca í suðurhluta landsins
bar rikissakssóknari í gær fram
beiðni um að réttarhöld hæfust í
45 málum sem snerta meint
mannréttindabrot. Þar að auki
voru lögð þar fram 111 ákærur
sama eðlis á mánudaginn síð-
asta. Á tímum herforingjastjórnar
í landinu hurfu um 9000 manns
þegar stjórnvöld stóðu fyrir her-
ferð á hendur vinstrisinnuðum
skæruliðum.
ERLENDAR
FRÉTTIR
j INGÓLFUR /OCinCP
1HJÖRLEIFSSON K t U I C K
HEIMURINN
Víetnam/Kína
Barist á landamærum
Kínverjum og Víetnömum ber ekki saman um þær landamœraskœrur sem átt hafa sérstað
milliþeirra undanfarið. Hanoi útvarpið segir 500 kínverska hermenn hafa fallið á mánu-
daginn. Kínverjar segjast hafa verið búnir að fella 200 landamœraverði
Bangkok, Peking - Yfirvöld í
Kína og Víetnam kenndu í gær
hvort öðru um átök þau sem
fréttir hafa borist um að átt hafi
sér stað á landamærum ríkj-
anna. Þá tilkynntu kínversk
yfirvöld í gær að átök stæðu
enn milli landamæravarða ríkj-
anna.
Embættismenn í Peking sögðu
í gærmorgun að kínverskir landa-
mæraverðir hefðu gert „kröftug-
ar gagnárásir“ á víetnamskar her-
sveitir undanfarna daga. Síðar í
gærdag tilkynnti fréttastofan
Nýja Kína að kínverskir landa-
mæraverðir hefðu á mánu-
dagsmorguninn síðasta „eytt 200
víetnömskum hermönnum“. í
frétt frá víetnamska útvarpinu í
Hanoi sagði í fyrrakvöld að um
500 kínverskir hermenn hefðu
fallið fyrri byssum víetnamskra
hermanna og átökin hefðu staðið
stutt yfir. í frétt víetnamska út-
varpsins sagði að mannfallið
hefði orðið þegar kínverskar her-
sveitir reyndu að ná hæðum Víet-
nam megin landamæranna í Ha
Tuyen héraði. Talsmaður kín-
verska utanríkisráðuneytisins
sagði á fréttamannafundi í gær-
morgun að fréttir Hanoi útvarps-
ins væru uppspuni og leikurinn
væri til þess gerður að blekkja
alþyðu Víetnams og umheimsins.
A undanförnum árum hefur
komið nokkuð oft til átaka milli
landamærasveita ríkjanna, allt
frá því kínverskar hersveitir réð-
ust inn í sex landamærahéruð árið
1979. Þær árásir voru sagðar í
refsingarskyni fyrir innrás Víet-
nama í Kampútseu árið áður.
Sovétríkin/Afganistan
Leita tímasetningar
fyrir brottflutning nerja
Sovétstjórnin gafí gœr út tilkynningu þar sem segir að hún sé tilbúin að
setja tímasetningu á brottflutning sovéskra herja frá Afganistan
Moskvu - Sovétríkin tilkynntu í
gær að þau væru tilbúin að
setja tímasetningu á brott-
flutning sovéskra herja frá Af-
ganistan ef slíkt gæti orðið til
framdráttar tillögum Najbull-
ah, leiðtoga Afganistan, um
frið í landinu eftir rúmlega sjö
ára stríð.
í tilkynningu sovéskra yfir-
valda sem gefin var út í gær sagði
að Sovétstjórnin styddi að fullu
tilraunir Kabúlstjórnarinnar til
að ná sem fyrst samkomulagi um
deilumálin í Afganistan í gegnum
friðarviðræður sem Sameinuðu
Þjóðirnar standa fyrir. Sátta-
semjari Sameinuðu Þjóðanna er
Diego Cordovez. Þær viðræður
halda áfram 11. febrúar
næstkomandi.
Tilkynningin var birt af so-
vésku fréttastofunni Tass, í kjöl-
far heimsóknar utanríkisráð-
herra Sovétríkjanna, Edúard
Sjevardnadze, og utanríkismál-
aráðgjafa Sovétstjórnarinnar,
Anatólí Dobrínin til Afganistan.
í tilkynningunni voru allir hlutað-
eigandi í Afganistandeilunni
hvattir til að taka vopnahléshug-
myndina til alvarlegrar athugun-
ar.
Sovéskir herir hafa nú verið í Afganistan frá 1980 og er fjöldi sovéskra hermanna talinn vera rúmlega 100.0000
„Þeir sem ekki gera svo taka á
sig ábyrgð fyrir áframhaldandi
blóðbaði, fyrir áframhaldandi
þjáningum afgönsku þjóðarinnar
ásamt því að gera ástand alþjóða-
mála ótryggara. í viðtali við af-
gönsku fréttastofuna Bakhtar,
sagði Sjevardnadze að samningar
væru ekki aðeins undir því komn-
ir að sovéskir herir yfirgæfu
landið. Hann sagði að samningar
byggðust fyrst og fremst á því að
utanaðkomandi íhlutun í málefni
landsins yrði stöðvuð. Nefndi
hann þar sérstaklega Pakistan og
„önnur lönd“ og sagði að þau
fylgdu „viljandi eða óviljandi
bandarískrí útþenslustefnu sem
flækti enn frekar málin innan Af-
ganistans og í næsta nágrenni."
Diego Cordovez sem er
aðstoðar-aðalritari Sameinuðu
Þjóðanna hefur að undanförnu
staðið fyrir samningafundum
milli Afganistans og Pakistans.
Hann sagði í síðasta mánuði að
það eina sem stæði nú í vegi fyrir
því að samkomulag næðist væri
tímasetning á brottflutningi sov-
éskra herja frá Afganistan.
Tékkóslóvakía
Charta 77 með fréttamannafund
Prag - Yfirvöld íTékkóslóvakíu
gerðu í fyrrakvöld að nokkru
misheppnaða tilraun til að
koma í veg fyrir að
mannréttindasamtökin Charta
77 héldu fund með frétta-
mönnum.
Nokkrir talsmenn samtakanna
komust undan lögreglumönnum í
fyrrakvöld og ræddu við erlenda
fréttamenn í einkaíbúð. Lögregl-
an handtók hins vegar fimm fé-
laga hreyfingarinnar og hélt þeim
í nokkrar klukkustundir svo þeim
tækist ekki að vera viðstaddir
fréttamannafundinn. Á honum
voru kynntir nýir talsmenn
Charta 77 fyrir þetta ár og birt sex
síðna yfirlýsing.
í yfirlýsingunni var lýst vonum
um aukið lýðræði í landinu eftir
tæplega tíu ára tímabil pólitískrar
stöðnunar í kjölfar innrásar So-
vétríkjanna í landið. Á miðjum
fundinum fór rafmagn af íbúðinni
og var hún lýst upp með kertum
af jólatré sem var í íbúðinni.
Óeinkennisklæddir lögreglu-
menn athuguðu vegabréf frétta-
manna þegar þeir komu af fund-
inum.
Tékknesk yfirvöld hafa alla tíð
haft mikla gát á samtökunum
þrátt fyrir smæð þeirra og ein-
angrun í tékknesku samfélagi.
Tæplega tvö þúsund manns hafa
skrifað undir yfirlýsíngu samtak-
anna þar sem ríkisstjórn landsins
er hvött til þess að virða allar þær
skyldur sem innlend og alþjóðleg
lög setja þeim. Flestir þeirra sem
hafa undirritað eru menntamenn
og embættismenn sem voru rekn-
ir úr flokknum eftir að hið svo-
nefnda „Vor í Prag“ var liðið.
Bretland
Starfsmenn Rörsins í verkfall
Starfsmenn neðanjarðarjárnbrautanna í Lundúnum sem nefndareru
„The Tube“ ákváðu aðfara ísólarhringsverkfall nœsta sunnudag
Lundúnum - Starfsmenn neð-
anjarðarjárnbrautanna í Lund-
únum ákváðu í gær að fara í
sólarhrings verkfall þann 11.
janúar næstkomandi til að
leggja áherslu á kröfur sínar
um laun, atvinnutækifæri og
vinnuskilyrði.
Atkvæðahlutfallið á fundi
starfsmanna var næstum fimm á
móti einum með því að fara í sól-
arhringsverkfall. Neðanjarðar-
járnbrautirnar í Lundúnum sem
nefnast „Rörið“ (The Tube)
ganga eftir einu elsta neðanjarð-
arkerfi sinnar tegundar í heimin-
um. Starfsmenn þeirra eru um
12.500 talsins. Talsmaður stjórn-
ar neðanjarðarjárnbrautanna
hélt því fram í gær að ekki væri
um neinar deilur að ræða milli
starfsmanna og stjórnar og því
væri ekki nokkur ástæða til að
fara í verkfall.