Þjóðviljinn - 23.01.1987, Qupperneq 1
Föstudagur 23. janúar 1987 17. tölublað 52. árgangur
Borgarstjórinn
Lúxusvagn a þrjár milljónir
Á meðan Steingrímurfær nýjan bíl á 1,9 milljónir vill Davíð kadilják á 2,9 milljónir. Minnihlutinn íborgarstjórn: Davíð
fullsœmdur afl, 9 milljón króna bíl. Mismunurinn renni til Ferðaþjónustufatlaðra
Ferðaþjónusta fatlaðra vinnur
mjög þarft starf og þörfin fyrir
hana er alltaf að aukast, þannig
að þessu fé er mun betur varið í
þeirra sjóðum. Við teljum hins
vegar alveg réttlætanlegt út frá
hagkvæmnissjónarmiðum að
borgarstjóraembættið endurnýji
bflakost sinn,“ sagði Össur.
Þess má geta að eini embættis-
maður þjóðarinnar sem ekur um
á kadilják er forseti íslands.
Borgarstjóri mun því færa sig
nokkrum þrepum ofar í bfleign ef
til þess kemur að þriggja milljóna
kadiljákinn verði keyptur.
Þegar Þjóðviljinn fór í prentun
í gær voru afdrif tillögu minni-
hlutans ekki ljós.
-gg
Frœðsluráð og þingmenn vilja rannsókn
að er óhjákvæmilegt að þetta
mál verði tekið til frekari
meðferðar á alþingi þó þessari
umræðu nú sé lokið, sagði Svavar
Gestsson á alþingi í gær. Hann
talaði síðastur í scinni hálfleik
umræðna um „Sturlumálið“, sem
stóð i fjóra klukkutíma.
Einn þingmaður, Birgir ís-
leifur Gunnarsson lýsti afdráttar-
lausum stuðningi við aðgerðir
ráðherra og Guðrún Helgadóttir
sagði ljóst að þegar samvinna
gengi ekki milli fræðslustjóra og
ráðherra þá hlyti fræðslustjórinn
að víkja. Hins vegar væri hún
ekki að mæla aðferðum ráðherr-
ans bót, hann hefði átt að víkja
fræðslustjóra meðan kannað var
til hlítar hvort nauðsynleg sam-
vinna tækist.
Sverrir Hermannsson skýrði
frá því að hann myndi óska eftir
sérstakri fjárveitingu til að greiða
Sturlu Kristjánssyni jafngildi
þriggja mánaða launa en tók
skýrt fram að í því fælist ekki
nokkur viðurkenning á því að
hann hefði ekki staðið rétt að
brottrekstrinum. Hann manaði
norðanmenn enn til að stefna sér
fyrir dóm, en eins og fjölmargir
þingmenn bentu á, gera lögin ráð
fyrir að fjármálaráðherra, en
ekki menntamálaráðherra svari
til saka í slíku dómsmáli. Svavar
Gestsson benti á að innan tíðar
yrði menntamálaráðherra dreg-
inn fyrir æðsta dóm stjómmála-
manna: dóm kjósenda og hjá
honum kæmist hann ekki.
Sverrir Hermannsson tók hart
á þeim ummælum Þráins Þóris-
sonar formanns fræðsluráðs
nyrðra að hann hefði ekki farið
með rétt mál á alþingi á þriðjudag
þegar hann sakaði fræðslustjór-
ann um að hafa fyrir 6 árum tekið
í heimildarleysi á leigu húsnæði
undir fræðsluskrifstofuna.
Þráinn yrði að biðja sig afsök-
unar áður en hann tæki tillögum
frá honum. Ingvar Gislason sem
var menntamálaráðherra þegar
þetta gerðist, efaðist um að heim-
ildir hefði skort. Þær hefðu trú-
lega verið veittar í sinni ráðherr-
atíð en það þyrfti að rannsaka
eins og svo margt annað í þessu
máli. Ingvar mælti þó ekki með
því að skipuð yrði sérstök
rannsóknarnefnd að svo stöddu
eins og fræðsluráð hefur farið
fram á en hvatti ráðherrann sjálf-
an til að hafa frumkvæði að því að
þessum ófriði linni. Aðrir þing-
menn tóku ýmist undir kröfur um
rannsóknanefnd eða hvöttu
ráðherrann til að endurskoða
málið. -Ál/vd
Sjá bls. 5.
Staðgreiðslukerfi skatta
Lokatillögur að fæðast
Skiptar skoðanir eru um það
innan ríkisstjórnarinnar
hvort mögulegt verði að koma á
staðgreiðslukerfl á sköttum þcgar
um næstu áramót og að launa-
tekjur á þessu ári verði skatt-
lausar. Skattanefnd sem starfað
hefur á vegum fjármálaráðuneyt-
isins frá því í nóvember hefur lagt
fyrir stjórnina sínar fyrstu til-
lögur að tilhögun staðgreiðslu-
kerfls og stefnir að því að skila
fullmótuðum tillögum fyrir lok
þessa mánaðar.
- Það er ljóst að tíminn er
naumur og mikil vinna er eftir en
við bara verðum að klára þetta,
sagði Sigurður B. Stefánsson
hagfræðingur formaður skatta-
nefndarinnar.
í tillögum sínum gerir nefndin
m.a. ráð fyrir því að í stað-
greiðslukerfi verði aðeins ein
skattprósenta og einfaldur per-
sónuafsláttur en aðrir frádráttar-
liðir lagðir niður. Við þessar
breytingar mun skattstofninn
hækka verulega, en skattakerfið
einfaldast og allt eftirlit verður
auðveldara. Telur nefndin að
verði farið að tillögum sínum
muni skattbyrði breytast sáralítið
fyrir þorra fólks.
Sjá bls. 3.
Við í minnihlutanum teljum
mun meiri þörf á að efla Ferð-
aþjónustu fatlaðra en að kaupa
rándýran lúxusvagn undir botn-
inn á borgarstjóra, sagði Össur
Skarphéðinsson borgarfulltrúi í
samtali við Þjóðviljann í gær-
kvöldi, en hann mælti fyrir tillögu
minnihlutaflokkanna við af-
greiðslu fjárhagsáætlunar í gær
um að lækka fé til kaupa á bifreið
fyrir borgarstjóraembættið úr
2,9 milljónum króna í 1,9
milljónir.
Innkaupastofnun Reykjavík-
urborgar pantaði fyrir tveimur
mánuðum nýjan Cadillac Fleet-
wood 60 Special hjá Bflvangi.
Bfllinn var valinn af borgarstjóra
og vélamiðstöð borgarinnar og á
að kosta 2,9 milljónir króna. Að-
urnefnd gerð er nýjasta nýtt frá
General Motors og er reyndar
enn ekki hafin framleiðsla á
henni að sögn starfsmanns Bfl-
vangs, sem flytur vagninn inn.
Af þeim sökum gat Þjóðviljinn
ekki útvegað mynd af draumabíl
Davíðs í gær.
Nýja bflnum er ætlað að leysa
af um 3 ára gamlan Buick, sem
borgarstjóri hefur nú til umráða.
Minnihlutinn flutti tillögu um
að lækka fjárráð embættisins til
bifreiðakaupa um eina milljón,
sem skyldi verja til þess að efla
Ferðaþjónustu fatlaðra. Össur
sagði í gær að í ljósi þess að for-
sætisráðuneytið lætur nægja að
kaupa bfl fyrir forsætisráðherra á
1,9 milljónir með tollum, væri
borgarstjóri fullsæmdur af
sambærilegri bifreið.
„Allt annað getur ekki verið
annað en duttlungar og hégómi.
Hafskipsmálið
Ekkisakað
áður
Það hefur almennt ekki þótt
girða fyrír að ég gæti flutt mál
sem ríkissaksóknari fyrir dóm-
stólum þótt ég hafi komið við sögu
sem rannsóknarstjóri, sagði
Hallvarður Einvarðsson þegar
hann var spurður hvort honum
þætti eðlilegt að hann gegndi báð-
um þessum stöðum í Hafskips-
málinu.
Eins og fram kom í Þjóðviljan-
um í gær þá hafa Ragnar Kjart-
ansson fyrrum stjórnarformaður
Hafskips og lögfræðingur hans
Jón Magnússon gert kröfu um að
Hallvarður víki úr embætti ríkis-
saksóknara í Hafskipsmálinu
vegna vanhæfni. í því sambandi
vísa þeir til ákvæðis laga þar sem
kveðið er á um að ríkissaksóknari
víki sæti, þegar hann sé svo riðinn
við mál að hann mætti ekki gegna
dómarastörfum í því.
Hallvarður vildi ekkert tjá sig
frekar um málið og sagðist hon-
um ekki vera kunnugt um að
innan dómskerfisins sé verið að
leita að aðila utan ríkissaksókn-
araembættisins til þess að taka
yfir Hafskipsmálið, en fyrir því
hefur Þjóðviljinn öruggar heim-
'ldir- -K.ÓI.
Sturlumálið
Málinu er ekki lokið