Þjóðviljinn - 23.01.1987, Blaðsíða 2
r-SPURNÍNGIN^
Borðarðu þorra-
mat?
Guðlaug Sigurðardóttir,
setjari:
Nei, mér finnst hann vondur. Mér
finnst allur súrmatur vondur.
Pétur Kristbergsson,
eldvarnaeftirlitsmaður:
Já, mér fínnst hann alveg Ijúf-
fengur, ekki síst hákarlinn. Ég
borða þetta allt saman.
Vithelm Guðmundsson,
kennari:
Ja, ég borða sumt og annað ekki.
Ég borða t.d. sviðasultu og hval,
en hákarlinn snerti ég ekki.
Unnur Guðmundsdóttir,
nemi:
Nei, það geri ég ekki. Mér finnst
þorramatur vondur, nema hang-
ikjötið. Það get ég borðað.
Guðríður Hauksdóttir,
afgreiðslustúlka:
Já, allt nema súrmatinn. Mér líkar
hangikjöt, hákarl og þess háttar
ágætlega.
FRÉTTIR
Laxárdalsheiði
Samkomulag ólíklegt
Hagvirki og Vegagerð ríkisins setjast á sáttafundi
innan tíðar. Mikið ber á milli aðila
Stefnt er að því að halda sátta-
fund í deilu Hagvirkis og vega-
gerðarinnar, sem komið hefur
upp vegna vegaframkvæmda á
Laxárdalsheiði, í byrjun febrúar.
Kostnaður Hagvirkis fór langt
framyfir tilboð í verkið og sömu-
leiðis meira en 100% fram úr
kostnaðaráætlun vegagerðarinn-
ar. Hagvirkismenn segja ástæð-
una þá að útboðsgögn hafi verið
villandi og gera kröfu um bóta-
greiðslur upp á um 24 milljónir
króna, eins og kemur fram í svari
við fyrirspurn Skúla Alexanders-
sonar og Svavars Gestssonar um
þetta mál á þingi.
Vegagerðin er hins vegar alls
ekki reiðubúin að greiða slíkar
upphæðir, en talið er að hún sé
tilbúin að greiða Hagvirki rúm-
lega eina milljón króna umfram
það sem þegar hefur verið greitt
fyrir verkið.
Það eru því litlar líkur á að
samkomulag náist og allt bendir
til þess að gert verði út um málið
fyrir gerðardómi Verkfræðinga-
félags íslands.
-gg
Sinfóníuhljómsveitin
Stóraukin
aðsókn
Aðsókn að tónleikum Sinfóníu-
hljómsveitarinnar hefur aukist
verulega í vetur frá því scm verið
hefur. Sala áskriftarmiða jókst
um nær 17% á nýliðnu misseri og
sala lausamiða á einstaka tónleika
hefur verið mun meiri en undan-
farin ár.
M hefur verið mjög góð að-
sókn að aukatónleikum hljóm-
sveitarinnar, tvisvar húsfylli í
Hallgrímskirkju í desember og
uppselt var á Vínartónleika
sveitarinnar á Akureyri og í
Reykjavík nú í janúar.
Fyrir jól lék Sinfóníuhljóm-
sveitin vinsæl íslensk dægurlög
inn á hljómplötu og seldist platan
í um 12.500 eintökum og varð
næst söluhæsta platan hérlendis á
nýliðnu ári.
Fyrsta tónleikar á vormisseri
verða 5. febrúar en endurnýjun
áskriftarskírteina stendur nú yfir
og gildir forgangur fyrri handhafa
fram á mánudag.
Mikill fjörkippur er nú í starfi Sinfóníunnar og áheyrendur sjaldan verið fleiri en í vetur.
Borgarstjórn
Spurt um steypu
skemmdir
Borgarfulltrúar bíða nú svara
borgarstjóra við fyrirspurn-
um sem bornar voru fram á síð-
asta borgarstjórnarfundi um
steypuskemmdir í byggingum
borgarinnar. Niðurstöður athug-
ana sem gerðar hafa verið sýna að
mikið af þeirri steypu sem til sölu
hefur verið á höfuðborgarsvæð-
inu hefur ekki uppfyllt lágmarks-
skilyrði.
Það var Össur Skarphéðinsson
borgarfulltrúi Alþýðubandalags-
ins sem óskaði eftir upplýsingum
frá borgarstjóra um í hvaða
mannvirkjum borgarinnar sem
steypt hafa verið á sl. 15 árum
hafa komið fram steypuskemmd-
ir. Hvaðan sú steypa hafi verið
keypt og hvort kröfur hafi verið
gerðar um bótagreiðslur eða bæt-
ur fengist.
Við umræður um málið
gagnrýndi Davíð Oddsson borg-
arstjóri fulltrúa minnihlutans í
bygginganefnd fyrir að hafa
gagnrýnt byggingafulltrúa borg-
arinnar, en komið hefur í ljós að
býggingafulltrúinn hafði haft
vitneskju um að steypa sem keypt
var af Steypustöðinni hf. upp-
fyllti ekki lágmarksskilyrði, í
hálft ár áður en bygginganefnd
fékk upplýsingar um málið.
Frœðslustjóramálið
Mótmæli streyma inn
Fjöldi aðila mótmœlir brottvikningu Sturlu
Kristjánssonar
Mótmæli vegna brottvikningar
Sturlu Kristjánssonar úr
stafi fræsðlustjóra Norðurlands
eystra streyma nú inn á borð
menntamálaráðherra og fjöl-
miðla.
í gær bárust ályktanir frá
stjórnarfundum Kennarasam-
bands lslands, Hins íslenska
kennarafélags og Félags skóla-
stjóra og yfirkennara og hafa öll
þessi félög samþykkt að beina
þeim tilmælum til félagasmanna
að sækja ekki um stöðu fræðslu-
stjóra Norðurlands umdæmis ey-
stra að svo stöddu.
Meðal hinna mörgu sem fund-
að hafa um málið undanfarna
daga og mótmælt brottvikningu
Sturlu eru sálfræðingar á Norður-
landi eystra, stjórn sálfræðinga-
félagsins, starfsfólk á Fræðslu-
skrifstofum Norðurlands eystra,
Vesturlands, Vestfjarða og
Norðurlands vestra, stjórn Kenn-
arasambands Vesturlands, kenn-
arar í Síðuskóla á Akureyri og
Kvennalistinn. _V(j
2 SfÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 23. janúar 1987