Þjóðviljinn - 23.01.1987, Side 3
FRETTIR_________
Staðgreiðslukerfi skatta
Stefnt á 40% flatan skatt
Lokatillögur skattanefndarinnar aðfœðast. SigurðurB. Stefánsson: Verðumað kláraþettafyrir
mánaðamót. Einfaldara skattkerfi og auðveldara eftirlit
- Tillögurnar eru fyrst og
fremst tæknilegs eðlis og snúa
beint að framkvæmd mála, en
fjaila ekki nákvæmiega um álagn-
ingaprósentu eða krónutölu,
segir Sigurður B. Stefánsson hag-
fræðingur sem er formaður
þeirrar nefndar sem nú er að
leggja lokahönd á tillögur um
staðgreiðslukerfí skatta. í til-
lögum nefndarinnar sem nú eru
til umfjöllunar hjá ríkisstjórninni
er gengið út frá því að árið 1987
verði skattlaust ár en staðgreiðsla
skatta taki gildi um næstu ára-
mót.
Það var í nóvember sl. sem
fjármálaráðuneytið skipaði
starfshóp til að setja fram hug-
myndir um endurskoðun laga um
tekju- og eignaskatt, svo og um
skattlagningu fjármagnstekna og
um skattlagningu fyrirtækja.
Þegar hugmynd ASÍ að breyttu
skattafyrirkomulagi kom fram í
samningunum í desember og
jafnframt viljayfirlýsing
stjórnvalda um að greiða fyrir því
máli á þingi eftir áramót var
ákveðið að nefndin skyldi ein-
beita sér fyrst og fremst að því
verkefni.
í nefndinni sitja Skúli Eggert
Þórðarson skrifstofustjóri hjá
Ríkisskattstjóra, Indriði Þorláks-
son skrifstofustjóri í fjármála-
ráðuneytinu, Sveinn Jónsson lög-
giltur endurskoðandi og Sigurður
B. Stefánsson hagfræðingur, sem
er jafnframt formaður nefndar-
innar. Auk þessarra manna hafa
starfað með nefndinni þeir Garð-
ar Valdimarsson ríkisskattstjóri,
Lárus Ögmundsson deildarstjóri
í fjármálaráðuneytinu og Jón
Vestmannaeyjar
Verslunar-
menn bjart-
sýnir
Samningar verslunar-
manna og vinnuveitenda
ísjónmáli
Eitthvað virðist miða í samn-
ingaviðræðum Félags versl-
unarmanna í Vestmannacyjum,
Kaupfélagsins og Félags kaup-
sýslumanna í Vestmannaeyjum,
en vinnuveitendur hafa boðað
verslunarmenn á fund sinn nk.
laugardag þar sem þeir hyggjast
leggja fram tilboð byggt í grund-
vallaratriðum á síðustu kröfu-
gerð verslunarmanna sem lögð
var fram nýverið. Eins og kunn-
ugt er felldu verslunarmenn jóla-
föstusamningana svokölluðu.
Að sögn Ingimars Georgs-
sonar formanns Félags verslunar-
manna er í kröfugerðinni farið
framá 28 þúsund króna lágmarks-
laun og að laun starfsmanna með
námskeið að baki hækki um 1500
krónur í stað 1300 krónur eins og
aðalkjarasamningur ASÍ og VSI
gerir ráð fyrir. Þá er sett fram
krafan um það að starfsmenn eigi
rétt á því að fara á námskeið eftir
1 ár en samkvæmt aðalsamningi
verslunarmanna á starfsmaður
ekki rátt á námskeiði fyrr en eftir
6 ára starf. Loks setja verslunar-
menn fram kröfuna um að yfir-
vinnukaup verði 1% af mánaðar-
launum.
-K.Ól.
Guðmundsson deildarstjóri hjá
Ríksskattstjóra.
Að sögn Sigurðar B. Stefáns-
sonar hafa þessir menn starfað að
málinu af miklum krafti og gera
ráð fyrir að skila af sér hugmynd-
um sínum um framkvæmnd stað-
greiðslukerfis skatta í lok þessa
mánaðar sem drög að frumvarpi
sem hægt væri að leggja fram sem
fyrst. Þessar hugmyndir voru
kynntar fyrir stjórnarflokkunum
á miðvikudag en eftir er að fjalla
um þær og kynna stjórnarand-
stöðunni þær.
Skattlaust ár
Rökin fyrir því að árið í ár verði
skattlaust, segir Sigurður þau
helst að annað bæri of mikinn
keim af eftir á álagningu, að
leikreglunum væri breytt eftir á.
Sú hætta er alltaf fyrir hendi að
sjálfstæðir atvinnurekendur geti
skammtað sér há laun úr eigin
fyrirtækjum og sýnt fram á frá-
dráttarbært tap, þrátt fyrir að
árið 1986 verði skattlaust, þar
sem fyrirtæki skila ekki inn skatt-
uppgjörum fyrr en um mitt árið.
Til að koma í veg fyrir þessa
hættu sagði Sigurður að hugsan-
legt væri að taka upp reglu sem
Danir notuðu fyrir 15 árum og
felst í því að leggja skatt á tekjur
sem eru 20% hærri en árið áður
en kerfið var tekið upp.
Sumir ráðamenn, þar á meðal
fjármálaráðherra, hafa nefnt í
þessu sambandi að ekki bæri að
elta ólar við það þó launamenn
legðu harðar að sér en ella skatt-
lausa árið, og telja slíkt hag-
kvæmt fyrir þjóðarbúið.
Skattakort
Nefndin leggur til að skatta-
kort verði notuð við framkvæmd
greiðslna. Á kortunum kemur
fram nafn skattgreiðanda,
nafnnúmer, kennitölur, heimilis-
fang og fjölskylduaðstæður. í
kerfinu er skattafsláttur sem er
ákveðinn krónutala á hvern ein-
stakling og miðað er við að sú
upphæð verði millifæranleg á
milli maka. Sú tala er aðeins tek-
inn af skattinum en ekki útsvari.
Miðað er við að skattprósentan
verði aðeins ein og greidd á einn
stað. Skattstiginn hverfur því al-
veg. Síðan verður útsvarshlutinn
greiddur til sveitarfélaga og
skatturinn til ríkisins.
Nefndin telur mikilvægt að það
komi skýrt fram á öllum uppg-
jörsblöðum að hluti rennur til
ríkis og hluti til sveitarfélaga.
40% flatur skattur
Hvað varðar álagningarpró-
sentuna sjálfa sagði Sigurður að
lagt væri til að farið yrði nálægt
tillögu Björns Björnssonar, sem
fram kom í blaðagrein í nóvem-
ber og hljóðar upp á 40% flatan
skatt og 12.000 króna skattaf-
slætti á mánuði á einstakling.
Nefndin telur að tölurnar gætu þó
orðið eitthvað lægri en útreikn-
ingum er ekki að fullu lokið.
Flestir frádráttarliðir verða
annað hvort felldir niður eða
koma til eftiriáuppgjörs. Þeir
koma ekki inn í staðgreiðslukerf-
ið sjálft. Barnabætur og fjöl-
skyldubætur haldast inni á sama
hátt og áður en verða greiddar út
af tryggingakerfinu.
Að sögn Sigurðar hækkar
skattsstofninn töluvert við þessar
breytingar, skattkerfið einfaldast
og allt eftirlit verður auðveldara.
Sáralítil breyting
á skattbyrði
Ekki er ljóst hvort nefndin
VILBORG
DAVÍÐSDÓTTIR
Fréttaskýring
mun vinna að upphaflegu verk-
efni sínu um endurskoðun skatt-
lagningar á eignum og vaxtatekj-
um eftir að hún hefur skilað af sér
þessum tillögum og sagði Sigurð-
ur að slík skattlagning væri því
óbreytt í tillögunum og kæmi til
eftiráuppgjörs.
Nefndin telur að verði farið að
þessum tillögum breytist skatt-
byrði sáralítið fyrir þorra fólks.
Ljóst er að tíminn er naumur
og verulega mikil vinna er eftir að
því er lýtur að lagabreytingum.
Reiknivinna er langt komin að
sögn Sigurðar og taldi hann að
tilraunakeyrsla væri ekki hindrun
hvað þetta varðar. En telur hann
að nefndinni takist að ljúka verki
sínu fyrir mánaðamót? Svar hans
var stutt og skorinort: „Við bara
verðum.“ -vd.
Þorrí
hefst
ídag
í dag er bóndadagur og upphaf
þorra. Þá gerast íslendingar
gjarnan þjóðlegir í betra lagi og
leggja sér til munns þjóðlegan
mat, svo sem hákarl, hrútspunga,
súran hval, svið og slátur og koma
gjarnan margir saman og drekka
brennivín við.
Á þorranum hafa mörg
veitingahús á boðstólum þorra-
mat.Einnig er hann til sölu í
verslunum og þá bæði getur fólk
keypt sér bakka með margvíslegu
þjóðlegu góðgæti, eða þá ein-
stakar tegundir þessa góða
matar. -sá.
Sumir gátu ekki beðið eftir sjáltum
Bóndadeginum heldur tóku upp
þjóðlega matarsiði þegar í gær.
Mynd -Sig.
S-Þingeyjarsýsla
Fulhrirðisréttur
minnki ekki meir
Bœndafundur í Ydölum vill að komið verði stjórn á alla kjötfram-
leiðslu í landinu
Á fjölsóttum bændafundi sem
haldinn var að Ýdölum þann 15.
janúar sl. að tilhlutan stjórnar
Búnaðarsambands Suður-þing-
eyinga voru frummælendur þeir
Jón Helgason, landbúnaðarráð-
herra og Ingi Tryggvason, for-
maður Stéttarsambands bænda.
Fundurinn samþykkti ítarlegar
ályktanir þar sem bent var m.a. á
eftirfarandi:
- Aðlögunartími búhátta-
breytinga sé allt of skammur.
- Fullvirðisrétt einstaklinga
megi ekki minnka meir en orðið
er.
- Skorað er á stjórn Stéttar-
sambandsins að reyna til hins ítr-
asta að ná nú í vetur búvörusamn-
ingum við ríkið fyrir verðlagsárin
1988-89 og 1989-90 um fullt verð
fyrir sömu framleiðslu og síðasti
samningur gerir ráð fyrir.
- Leitað sé allra leiða til nýting-
ar og eflingar atvinnumöguleika
heima í héraði.
- Varað er við að breyta hlut-
falli einstakra svæða í heildar-
framleiðslu frá því, sem nú er.
- Framleiðslutakmarkanir
hafa þegar gengið of nærri af-
komu margra bænda og verði
framhald á förgun fullvirðisréttar
komi hluti hans til endurúthlut-
unar á viðkomandi svæði.
- Komið verði stjórn á alla
kjötframleiðslu í landinu.
- Áhersla verði lögð á vöruþró-
un og sölustarfsemi jafnt innan-
lands sem utan.
- Átalinn er seinagangur á
greiðslu afurðalána til afurða-
stöðvanna. Sá hluti umsaminnar
búvöruframleiðslu, sem ekki
selst á innanlandsmarkaði á
hverju verðlagsári, sé fluttur út.
-mhg
Föstudagur 23. janúar 1987 ÞJÓÐVIUINN - SÍÐA 3
Loðnan
60 þús. fra áramótum
Hœpið að takist að fylla kvótann
Eltingaleikurinn við loðnuna
stendur sem hæst og sagði Ást-
ráður Ingvarsson hjá Loðnu-
nefnd í gær að aflinn á þessari
vertíð væri kominn í 585500 lest-
ír.
í gærkvöldi hafði aðeins einn
bátur tilkynnt um afla, en það var
Keflvíkingur með 620 lestir.
Aflinn frá áramótum er því orð-
inn 60 þúsund lestir. Flotinn
heldur sig nú á svæðum 461 og
462 út af Berufirði.
-sá