Þjóðviljinn - 23.01.1987, Blaðsíða 8
Rætt við Ævar Jóhannesson
um áhrif lýsis á heilsufar fólks
VEISLUR -
SAMLVÆMI
Skútan h/f hefur nú opnað
glæsilegan sal, kjörinn fyrir
árshátíðar, veislur, fundi fé-
lagasamtaka og alls kyns
samkvæmi. Leggjum áherslu
á góðan mat og þjónustu.
SKÚTAN HF.
Dalshrauni 15, Hafnarfirði,
sími 51810 og 651810.
MARKAÐURINN
Grensásvegi 50
auglýsir:
HLJÓMTÆKI
Kassettutæki
Magnarar
Hátalarar
Ferðatæki
Litasjónvörp
frá kr. 7.000.'-
frá kr. 7.000,-
frá kr. 2.500,-
frá kr. 4.000,-
frá kr. 8.000.-
Hljómtækjaskápar
Bíltæki
Tölvur og fleira
SKÍÐAVÖRUR
Okkur vantar nú þegar í
sölu skíðavörur af flestum
stærðum og gerðum.
MARKAÐURINN
Grensásvegi 50
Sími 83350.
AMMA HAFÐI RETT FYRIR SER
Nokkru fyrir jól birtist hér í
biaðinu viðtal við Guðmund G.
Haraldsson, líftæknifræðing,
um rannsóknir þær á lýsi, sem
fram hafa farið á vegum Raun-
vísindastofnunar Háskólans
og Lýsis hf. Viðmælandi okkar
nú, um annan þátt þessa máls,
er Ævar Jóhannesson.
Ævar Jóhannesson, réðist til
starfa hjá Raunvísindastofnun
Háskólans í marsmánuði árið
1974. Til að byrja með vann hann
að ýmsum rannsóknum og efna-
greiningum en síðan við tækja-
könnun, uppfinningar og rann-
sóknarstörf. Hefur undanfarið
starfað í Heilsuhringnum, látið
heilbrigðis- og manneldismál
mjög til sín taka og skrifað mikið
um þau í ritið Hollefni og heilsu-
rækt.
Það er ekki óeðlilegt að rætt sé
við Ævar um lýsi sem hollustu-
efni þegar haft er í huga að hann
byrjaði fyrir mörgum árum að
skrifa um lýsi í sambandi við liða-
gigt og mun, að því er við best
vitum, vera sá fyrsti, sem það ger-
ir á íslandi. Og kemur þá fyrsta
spurningin, sem beint er til
Ævars:
- Mér er sagt að þú hafir skrif-
að grein um lækningaáhrif lýsis á
liðagigt löngu áður en almennt
var farið að ræða þau mál.
Hvernig uppgötvaðir þú þetta?
Gamla lækningabókin
- Ég fylgdist nokkuð vel með
skrifum um manneldis- og heilsu-
fræðileg málefni í erlendum tíma-
ritum. I einu slíku tímariti rakst
ég á viðtal við bandarískan mann,
Dale Alexander að nafni. Hann
lýsti þar þorskalýsi sem allt að því
óbrigðulu ráði við liðagigt, eftir
meira en 20 ára athugun. Ráðið
hafði hann fundið í gamalli lækn-
ingabók eftir bandarískan lækni
frá síðustu öld en bókina rakst
hann á í safni.
Síðar komst ég að því, í
gömlum heimildum og alþýðu-
lækningum, að þetta ráð var
einnig þekkt á ísiandi, en hafði
verið lítill gaumur gefinn. Ég
skrifaði um þetta grein, sem ég
nefndi: „Er til öruggt ráð við liða-
gigt?“ Hún birtist í tímaritinu
Hollefni og heilsurækt. Greinin
vakti verulega athygli og fljótlega
fóru mér að berast frásagnir af
fólki, sem taldi sig hafa læknast
með því að fara eftir þeim ráð-
leggingum, sem gefnar voru í
greininni.
Þetta, ásamt fleiru, varð til
þess, að ég fór að kynna mér nán-
ar mikilvægi fjölómettaðrar fitu í
fæði, en það leiddi mig inn á
rannsóknir á hormónum, sem
nefndir eru „prostaglandin“ en
þau og fleiri skyld efnasambönd
myndast úr fjölómettuðum fitum
og virðast gegna lykilhlutverki í
sambandi við fjölda sjúkdóma,
þ.á m. liðagigt, kransæðasjúk-
dóma, ofnæmi og ótal margt
fleira.
Mikilvægi
rétts mataræðis
- Heldurðu kannski að unnt sé
að sigrast á þessum sjúkdómum
með því að breyta um mataræði
eða taka inn eitthvert „töfralyf"
eins og t.d. lýsi eða kvöldvorrós-
arolíu, sem ég hef heyrt að þú
hafir einnig skrifað um?
- Þetta er nú e.t.v. ekki alveg
svona einfalt. Það er þó vitað aö
með mataræði er unnt að hafa
8 SfÐA — ÞJÖÐVILJINN Föstudagur 23. janúar 1987
áhrif á fitusýrusamsetningu lík-
amans og þá um leið hvaða prost-
aglandin myndast í mestum mæli.
Prostaglandin myndast úr a.m.k.
þremur mismunandi fitusýrum.
Einnig er vitað að prostaglandin
og skyld efnasambönd (oft nefnd
fitusýruhormónar), úr einni þess-
ara fitusýra, „arakidonsýru",
finnast í óeðlilega miklu magni í
tengslum við þá sjúkdóma, sem
ég nefndi áðan, t.d. liðagigt.
Flest liðagigtarmeðul verka
þannig að þau hindra á einhvern
hátt að þessir hormónar myndist.
Gallinn á þessum lyfjum, t.d.
asperin, er sá, að þau hindra
einnig að önnur nauðsynleg
prostaglandin myndist og valda
þannig margvíslegum hliðarverk-
unum.
Nú er vitað nægilega mikið í
þessum efnum til þess að hægt er
að ráðleggja fólki ákveðið mata-
ræði, sem miðar að því að draga
úr framleiðslu lfkamans á þessum
óheppilegu fitusýruhormónum
og reynslan hefur sýnt, að þetta
mataræði verkar á þessa sjúk-
dóma til góðs og getur stundum
læknað þá að fullu. Þar kemur
þorskalýsið inn í myndina og
leikur eitt stærsta hlutverkið.
Fitusýruferlið
Ég læt fylgja hér með skýring-
armynd af því hvernig fitusýru-
ferli gengur fyrir sig í mannslík-
amanum, en myndin er fengin úr
Hollefni og heilsurækt. Sýndar
eru tvær fitusýruraðir, Omega 3
röð og Omega 6 röð, en fitusýrur
úr þessum röðum eru allar fjöl-
ómettaðar og oft nefndar „ómiss-
andi fitusýrur", vegna þess að
líkaminn getur ekki búið þær til
heldur verður að fá þær í fæðu.
Ekki þurfum við þó að fá þær
allar þannig en nauðsynlegt er að
fá a.m.k. eina úr hverri röð og þá
er venjulega miðað við að nægi-
legt sé að fá alfa-linólensýru úr
Omega 3 röðinni og linólsýru úr
Omegaóröðinni. Líkaminnásvo
að búa hinar til úr þeim, eins og
örvarnar ár myndinni sýna.
Rannsóknir síðustu ára benda
þó til að ýmsir þættir í nútíma
mataræði kunni stundum að
trufla hvata þá, sem verka á þess-
ar umbreytingar þannig að
skortur verði á sumum þeim fitu-
sýrum, sem mynda mikilvæg
prostaglandin en aftur á móti sé
stundum of mikið af einni þessara
fitusýra þ.e. arakidonsýru og
fitusýruhormónum úr henni,
vegna þess að við fáum töluvert
magn hennarbeint úr kjötvörum.
E.P.A. og D.H.A.
í sjávardýrafitu er hinsvegar
lítið sem ekkert af þessari fitu-
sýru en töluvert magn tveggja
fjölómettaðra fitusýra, úr Omega
3 röðinni þ.e. eikosapentaens-
ýru, E.P.A. og dokósahektaens-
ýru, D.H.A. E.P.A. myndar
mikilvæga fitusýruhormóna, sem
koma í stað fitusýruhormóna, úr
arakidonsýru í líkamanum, en
virðast ekki tengjast sjúkdóms-
einkennum. D.H.A. myndar
sennilega einnig fitusýruhorm-
óna en ennþá er mjög lítið vitað
um eiginleika þeirra nema að
margt bendir til að D.H.A.
hindri á einhvern hátt svokallað-
an „hjartatitring", sem oft er or-
sök skyndidauða. E.P.A. eða
prostaglandin úr henni, er einnig
talin hindra myndun fitusýru-
hormóna úr arakidonsýru og
þannig beinlínis draga úr eða
koma í veg fyrir bólgusjúkdóma,
t.d. liðagigt, ásamt öðrum sjúk-
Flæðlrit af myndun prostaglandina
og skyldra efnasambanda úr fitusýrum
Omega 6 röð
r
Fæst úr brjóstamjólk,
kvöldvorrósarolíu, sól-
berjakjarnaolíu og e. t. v.
fl.
Prostaglandln röð 1
(mikilvægar verkanir).
Parfnast B-3 og C-víta-
míns, fólinsýru, o. fl.
Fæst einkum úr kjöt-
vörum
Thromboxanefni röð 2
Prostaglandln röð 2
Úr kaldpressuðum jurtaolium o. fl.
Afmettunarhvatl:
Þarlnast B-6, zinks, insulins o. fl.
Hindraöur af: transfitum, harö-
feiti, áfengi, veirusýkingum, jón-
andi geislum, og ýmsu fl.
Lengingarhvati:
þarfnast B-6
Afmettunarhvatl:
1
Omega 3 röð
Fæst úr lýsi og fiskmeti
Prostaglandln, throm-
boxan- og leukotrlnefni
röð 3 (góðar eða hlut-
lausar verkanir)
Lengri fitusýrukeðjur
Eikosa-pentaen-
sýra (EPA)
r
Dokosa-hexaen-
sýra (DHA)
Fæst úr lýsi og fiskmeti
Prostaglandln röð 4?
Myndun fitusýruhormóna úr arakidonsýru
Breytilegar verkamr. bæði slæmar og góðar
dómum, sem taldir eru tengjast
offramleiðslu efnasambanda úr
arakidonsýru. Einnig hefur verið
talað um mikilvægi E.P.A. og/
eða D.H.A. í tengslum við starf-
semi ónæmiskerfisins, t.d. í sam-
bandi við sjúkdóma eins og heila-
og mænusigg.
Margt það, sem hér hefur verið
sagt um É.P. A. og D.H.A. gildir
einnig um fitusýruna DGLA,
sem tilheyrir Ontega 6 fitusýru-
röðinni og er einnig forefni fyrir
fitusýruhormóna. Og þá komum
við inn á lækningamátt kvöld-
vorrósarolíunnar, sem ég ætla
ekki að ræða hér en aðeins benda
á, að það er engin tilviljun að
bæði þessi efni, lýsi og kvöldvor-
rósarolía, eru notuð gegn sömu
sjúkdómnunum með góðum ár-
angri.
Lesendur ættu að gaumgæfa
myndina sem fylgir hér með og
sjá hvernig fitusýrur og hormón-
ar, sem þar myndast, tengjast
þeirri heildarmynd, sem ég hef
hér reynt að bregða upp í sem
stystu máli.
Varist brasið
- Telurðu að þekking á hlut-
verki fitusýruhormónanna kunni
að leiða til þess að fólk, sem þjá-
ist af einhverjum þeirra sjúk-
dóma, sem þú nefndir, fái bót
nteina sinna?
- Já, ég álít að nú þegar sé
nægileg þekking fyrir hendi til að
ráðleggja öllum að taka eina mat-
skeið af lýsi á hverjunt morgni.
Einnig álít ég að fólk ætti að
draga úr kjötneyslu en borða í
þess stað rneiri fisk og grænmeti.
Sömuleiðis ætti að varast að nota
brasaðan mat og allar tilbúnar fit-
ur þar á nteðal smjörlíki, sem
inniheldur hátt hlutfall svokall-
aðra transfita, sem vitað er að
truflar starfsemi mikilvægs hvata,
sem breytir linolsýru og linolen-
sýru í nteira fjölómettaðar fitus-
ýrur í líkanta okkar. Ég fellst ekki
á sjónarmið sumra lækna og
manneldisfræðinga að hollara sé
að nota smjörlíki en srnjör fyrir
hjartasjúklinga. Þvert á móti. Þó
er sennilega allra best að draga úr
neyslu á hvorutveggja. Krans-
æðasjúkdómar urðu ekki heilsuf-
arslegt vandamál á íslandi fyrr en
eftir 1940. Á santa tíma hefur
smjörneysla sennilega fremur
dregist saman en aukist.
Við ættum helst að steikja úr
olífuolíu en hún þoiir hita betur
en fjölómettaðar jurtaolíur, sem
geta rnyndað hættuleg eiturefni
við mikla upphitun. Auk þess
hindrar olífuolían myndun arak-
idonsýru úr DGLA. eins og sést á
myndinni og dregur þannig úr
rnyndun óheppilegra fitusýru-
hormóna, líkt og EPA. Fjöló-
mettaðar jurtaolíur ætti að nota í
hrásaiöt og út á fisk, t.d. þistilol-
íu, þrúgukjarnaolíu, hveitikímol-
íu o.s.frv.
Noti fólk mikið af fjölómettuð-
um jurtaolíum eða lýsi ætti það
að taka E-vítamín og selen til að
hindra að hættuleg sindurefni
myndist í líkamanum, en full-
sannað er, að þau geta valdið
krabbanteini. Einnig er gott að
nota A- og C-vitamínauðugan
mat.
Áríðandi að
hraða rannsóknum
- Jæja, Ævar, það fer nú lík-
lega að líða að lokunt þessa
spjalls. Hvernig eigunt við^að slá í
það botninn?
- Ég ætla þá aðeins að benda
hér á stórmerkar rannsóknir dr.
Sigmundar Guðbjarnarsonar,
núverandi Háskólarektors, og
samstarfsmanna hans. Þær rann-
sóknir eru þekktar langt út fyrir
landsteinana og skipa dr. Sig-
mundi í fremstu röð vísinda-
manna á sviði rannsókna fituefna
í matvælum.
Lýsi hf. er nú að hefja fram-
leiöslu á afurð úr þorskalýsi m.a.
til útflutnings. Nýjar afurðir eru í
þróun og koma innan skamms á
markaðinn. Það, sem gera þarf
nú er að hraða eins og kostur er
rannsóknum, sem miða að því,
að hægt verði að búa til úr lýsi eða
öðrum sjávarafurðum verömæta
hollustuvöru í stað þess að láta
múkkann gæða sér á hráefninu.
Tíntinn er naumur þar eð við Is-
lendingar erum ekki þeir einu,
sem veiðunt fisk. Því er lífs-
spursmál að verða á undan þeim
með að komast inn á heimsmark-
aðinn, sem bíður í raun eftir að fá
þessar vörur.
Fé til rannsóknanna niá því
ekki skera við nögl heldur verður
að veita í þær öllu, sem til þarf,
svo þær gangi eins hratt og
snurðulaust og kostur er. Við
höfum hráefnið og færa vísinda-
menn. Verði rétt haldið á spilun-
um gæti útflutningur hollustua-
furða úr sjávardýrafitu orðið einn
stærsti liður í útflutningi okkar
áður en varir. Til að svo geti orð-
ið ntá ekkert til spara, enda mikið
að vinna.
Lesi einhverjir, sem stjórna
fjárveitingum til vísindarann-
sókna þessar línur, beini ég orð-
um ntínum sérstaklega til þeirra
og legg á það áherslu, að í þessu
efni gildir ekki gamla spakntælið,
að bókvitið verði ekki í askana
látið. v
- mhg.
Föstudagur 23. janúar 1987 ÞJÓÐVtUINN - SÍÐA 9
NYJUNG!
ViÐGERÐARÞJÓNUSTA
Á RAFTÆKJUM
Er bilað raftæki á heimilinu t.d.
brauðrist, hraðsuðuketill, kaffivél,
vöfflujárn, straujárn, rakvél, ryksuga,
lampi eða eitthvert ámóta tæki? Ef
svo er komdu með það í
viðgerðarbílinn og reyndu
þjónustuna
Viðgerðarbíll verður staðsettur við
eftirtaldar verslanir samkvæmt
tímatöflu
ÞRIÐJUDAGAR:
Grímsbær, Efstalandi 26
kl. 1030 til 1230
Verslunin Ásgelr, Tindasell 3
ki.ie^tins00
MIÐVIKUDAGAR:
Verslunin Árbæjarkjör, Rofabæ 9
kl. 1030 til 1230
Kaupgarður, Engihjalla8
kl. 16°°til 18°°
FIMMTUDAGAR:
Verslunin Kjötog fiskur,
Seljabraut54
kl. 1030 til 1230
Hólagarður, Lóuhólum 2-6
kl. 16°°til 1800
FÖSTUDAGAR:
Verslunin Breiðholtskjör,
Arnarbakka 4-6
kl. 1030til 1230
Fellagarðar, Eddufelli 7
kl.16°°til1900
ih
RAFTÆKJAVIÐGERÐIR
SÆVARS SÆMUNDSS0NAR
VERKSTÆÐI - VIDGERðXrBILL
ÁLFTAHÓLUM 4 - SÍMI 72604