Þjóðviljinn - 23.01.1987, Blaðsíða 12
UM HELGINA
MYNDLISTIN
Gallerí Svart á hvítu við Óðins-
torg opnarsýningu á málverkum
Halldórs Dungal á laugardag kl.
16.00. Halldór er fæddur 1957, og
hefur hann dvalið með hléum á
Spáni frá því að hann lauk námi við
Myndlista- og handíðaskóla ís-
lands. Sýningin er opin 14-18 alla
daga nema mánudaga.
Listasafn ASÍ við Grensásveg
opnar sýningu á málverkum Samú-
els Jóhannssonar á laugardag kl.
14.00. Samúel er sjálfmenntaður
myndlistarmaður, búsetturá Akur-
eyrí. Hann hefur áður haldið 3
einkasýningar og tekið þátt í mörg-
um samsýningum. Opið virka daga
16-20 og 14-20 um helgar. Sýning-
unnilýkur8.febrúar.
Norræna húsið sýnir silkiþrykk
eftir Andy Warhol í anddy rinu.
Myndirnar eru tilbrigði við 3 andlits-
myndiraf leikkonunni Ingrid Berg-
man. Opið 9-19 virka daga og 12-
19ásunnudögum.
Kjarvalsstaðir halda yfir-
litssýningu á íslenskri abstraktlist
frá 1920 til dagsins í dag á vegum
Menningarmálanefndar Reykjavík-
urborgar. Opið kl. 14-20.
Listasafn íslands sýnir nýkeypt
verk og eldri verk í eigu safnsins.
Opið þriðjudaga, fimmtudaga,
laugardaga og sunnudaga kl.
13.30-16.
Gallerí Borg sýnirgrafík, vatns-
litamyndir, krítarmyndir, keramík og
fleira eftir íslenska listamenn.
Gömlu meistararnir til sýnis og sölu
í kjallaranum. Opið á verslunartíma
frá kl. 10 og frá kl. 12 á mánu-
dögum.
Gallerí Langbrók við Bókhlöðu-
stíg sýnir vefnað, tauþrykk, mynd-
verk, fatnað og ýmiskonar listmuni.
Opið þriðjud. til föstud. 12-18 og
laugard. 11-14.
Nýlistasafnið Vatnsstíg 3B sýnir
myndireftir Eggert Pótursson. Ópið
virka daga frá 16-20 og 14-20 um
helgar.
Gallerí Grjót við Skólavörðustíg
sýnir verk eftir Steinunni Þórarins-
dóttur, Jónínu Guðnadóttur, Þor-
björgu Höskuldsdóttur, Ragnheiði
Jónsdóttur, Magnús Tómasson og
Örn Þorsteinsson. Opið 12-18 virka
daga.
Gallerí íslensk list, Vesturgötu
17, sýnir verk eftir þau Braga As-
geirsson, EinarG. Baldvinsson,
Einar Þorláksson, Guðmundu
Andrésdóttur, Hafstein Austmann,
Jóhannes Geir, Jóhannes Jóhann-
esson, Kristján Davíðsson, Kjartan
Guðjónsson, Vilhjálm Bergsson,
Valtý Pétursson og Guðmund
Benediktson. Opið 9-17 virka daga.
Slunkaríki á ísafirði sýnir collage-
myndir eftir Guðrúnu Kristjánsdótt-
ur. Myndirnar eru unnar úr hand-
unnum pappír. Opið alla daga frá
16-18til3.febrúar.
Konur í list kvenna nefnist
myndlistarsýning sem Kvenrétt-
Sýningum fer senn að Ijúka á hinni
vönduðu sýningu Leikfélags
Reykjavíkur á leikritinu Vegurinn til
Mekka eftir Athol Fugard í leikstjórn
Hallmars Sigurðssonar. Myndin
sýnir Sigríði Hagalín í aðalhlutverki
leiksins.
Útivistsunnudag kl. 13.00:
Álfsnes-Gunnunes. Léttganga.
Brottför frá BSÍ, bensínsölu. Verð
450.-, frítt f. börn m. fullorðnum.
Þorraferð og þorrablót Útivistar 23,-
25. jan. Gist í félagsheimilinu Brúar-
ási. Örfá sæti laus. Gullfossferð
verður 1. febr. Ársritið 1986 er kom-
iðút.
Ferðafélag íslands: sunnudag-
inn25.jan. Lækjarbotnar-
Hafravatn. ekið að Lækjarbotnum,
hjá Nátthagavatni og Selvatni um
Miðdal að Hafravatni. Áreynslulítil
gönguferð. Brottförfrá Umferðar-
miðstöðinni austanmegin. Verð
400.-, fríttf. börn m. fullorðnum.
Gerðuberg. Dagskrá um Snorra
Hjartarson skáld verður f lutt í
Gerðubergi laugardaginn 24. janú-
ar kl. 16.00 í umsjón Páls Vals-
sonar, sem flytur erindi um skáldið
auk þess sem lesið verður úr Ijóð-
um þess.
Klúbburinn Þú og ég gengst
fyrir Bingói í Mjölnisholti 14 á sunn-
udag kl. 14.
íslenska óperan sýnir óperuna
Aidu eftir Giuseppe Verdi á föstu-
dögum og sunnudögum kl. 20.00.
Símapantanir virka daga 10-14 og
á miðasölutíma kl. 15-19.
Leikfélag Reykjavíkur sýnir
Land míns föður á föstudag og
þriðjudag kl. 20.30. Sýningum fer
fækkandi. Vegurinn til Mekka eftir
Athol Fugard sýndur á laugardag
kl. 20.30. Fáar sýningar eftir. Dag-
ur vonar eftir Birgi Sigurðsson
sýndur á sunnudag og miðvikudag
kl. 20.00.
Alþýðuleikhúsið heldurauka-
sýningu á Hin sterkari - sú veikari
eftir August Strindberg og Þorgeir
Þorgeirsson í Hlaðvarpanum á
sunnudag kl. 17.00. Allra síðasta
sýning.
Leikfélag Akureyrar sýnir
„Hvenær kemurðu aftur
rauðhærði riddari?“ á föstudag
og laugardag kl. 20.30.
HITJ OG ÞETTA
Kvenfélag Kópavogs gengst
fyrir félagsvist mánudaginn 26. jan.
kl. 20.30 í félagsheimilinu. Allir vel-
komnir.
Hana nú. Vikuleg laugar-
dagsganga verður frá Digranes-
vegi 12 á laugardag kl. 20. Sam-
vera, súrefni, hreyfing, allir vel-
komnir.
indafélag Islands efnir til á myndlist
eftir núlifandi íslenskar listakonur
aðHallveigarstöðum.Túngötu 14Í
Reykjavík. Sýningin er haldin í til-
efni þess að Kvenréttindafélag ís-
lands verður 80 ára þann 27. janúar
næstkomandi. Sýningin verður
opnuð á laugardag kl. 16, og verður
opin 16-20 virka daga en 14-22 um
helgar og stendur fram til 8. febrúar.
Menningarsamtök Norðlend-
inga og Alþýðubankinn hf. sýna
myndir eftir Óla G. Jóhannsson í
salarkynnum Alþýðubankans á Ak-
ureyri, Skipagötu 14. Óli sýnir nú
óhlutbundnar myndir unnar í acryl
og olíu á striga. Myndirnar eru allar
málaðar á síðasta ári. Sýningin
stendurtil 16. mars.
Ragna Róbertsdóttir sýnir
skúlptúra í galleri Overgaden, sem
er sýningarsalur danska mennta-
málaráðuneytisins fyrir nútímalist
við Overgaden neden Vandet 17 í
Kaupmannahöfn. Sýningin stendur
til 15. febrúar.
TÓNLIST
Norræna húsið. Sveinn Eyþórs-
son gitarleikari heldurtónleika á
sunnudag kl. 17. Sveinn hefur
stundað gítarnám í T ónlistarskóla
Hafnarfjarðar og á Spáni, þar sem
hann lauk burtfararprófi frá Con-
servatorio de Musica „Isaac Albén-
iz“ í Gerona vorið 1986 eftir 6 ára
nám. EnnfremurhefurSveinn
stundað framhaldsnám við Tón-
listarskólann í Barcelona, auk þess
sem hann hefur komið fram á
hljómleikum á Spáni einn og með
öðrum. Efnisskráinátónleikunum
eru mestmegnis eftir spænsk og
suður-amerísk tónskáld.
Kammersveit Reykjavíkur
heldur upp á 100 ára afmæli brasil-
íska tónskáldsins Heitor Villa Lobos
með tónleikum í Bústaðakirkju á
sunnudag kl. 17.00.
The Smithereens erbresk
popphljomsveit sem halda mun
tvenna tónleika í íslensku óperunni
í byrjun febrúar. Fyrri tónleikarnir
verða 3. febrúar, en þeirsíðari dag-
inn eftir kl. 21. Bubbi Morthens og
MX21 koma fram á undan. Forsala í
Gramminu, Laugavegi 17.
VísnavinirhaldafyrstaVísna-
kvöld ársins að Hótel Borg á mánu-
dag kl. 20.30. Meðal gesta verða
Egill Ólafsson og Ásgeir Óskarsson
og „Dietrich“-söngkonan Sif Ragn-
hildardóttir, sem mun flytja nokkra
gamla smelli við undirleik þeirra
Tómasar Einarssonar og Jóhanns
Kristinssonar.
LEIKLIST
Nemendaleikhús Leiklistar-
skóla Islands frumsýnir gaman-
leikinn „Þrettándakvöld" eftir
William Shakespeare í Lindarbæ á
laugardag kl. 20.30. Þýðandi Helgi
Hálfdánarson, leikstjóri Þórhallur
Sigurðsson, leikmynd og búningar
Una Collins. Önnur sýning á mánu-
dag og 3. sýning á miðvikudag.
Miðapantanir í síma 21971.
Þjóðleikhúsið sýnir Aurasálina
eftir Moliére í kvöld kl. 20.00. Hall-
æristenór eftir Ken Ludwig á laug-
ardag og sunnudag kl. 20.00. Litla
sviðið, Lindargötu 7 sýnir í smásjá
eftir Þórunni Sigurðardóttir á laug-
ardag kl. 20.30.
Listskreytingasjóður
ríkisins
Listskreytingasjóður ríkisins starfar samkvæmt lögum
nr. 34/1982 og er ætlað að stuðla að fegrun opinberra
bygginga með listaverkum. Verksvið sjóðsins tekur til
bygginga, sem ríkissjóður fjármagnar að nokkru eða
öllu leyti. Með listskreytingu er átt við hvers konar
fasta og lausa listmuni, svo sem veggskreytingar
innan húss og utan, höggmyndir, málverk, veggá-
breiðurog hvers konar listræna fegrun. Skal leitast við
að dreifa verkefnum milli listgreina, þannig að í hverri
byggingu séu fleiri en ein tegund listskreytinga.
Þegar ákveðið hefur verið að reisa mannvirki sem
lögin um Listskreytingasjóð ríkisins taka til, ber arki-
tekt mannvirkisins og bygginganefnd sem hlut á að
máli að hafa samband við stjórn Listskreytingasjóðs,
þannig að byggingin verði frá öndverðu hönnuð með
þær listskreytingar í huga sem ráðlegar teljast. Heimilt
er einnig að verja fé úr sjóðnum til listskreytingar
bygginga sem þegar eru fullbyggðar.
Umsóknum um framlög úr Listskreytingasjóði skal
beint til stjórnar Listskreytingasjóðs ríkisins, mennta-
málaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík, á til-
skildum eyðublöðum sem þar fást. Æskilegt er, að
umsóknir vegna framlaga 1987 berist sem fyrst og
ekki síðar en 1. ágúst nk.
Reykjavík, 19. janúar 1987
Stjórn Listskreytingasjóðs ríkisins
Undir áhrifum
Ný bók um alkóhólisma
ísafoldarprentsmiðja h.f. hef-
ur sent frá sér bókina Undir áhrif-
um eftir James R. Milam, Ph.D.
og Katherine Ketcham.
Bókin er skrifuð á aðgengilegu
almennu máli og skýrir sjúkdóm-
inn alkohólisma á lífeðlisfræði-
legan hátt, án tillits til þess hvaða
tilfinninglegar hugmyndir menn
kunna að hafa um hann.
Rakið er eðli sjúkdómsins,
þróun hans í frum-, mið- og há-
stigsalkohólisma, hvernig bera
megi kennsl á einkennin og á
hvern hátt sé hægt að bregðast
við þeim. Þá er lýst skammtíma-
og langtímafráhvarfseinkennum
og af hverju þau stafa. í viðauka
aftast er tafla yfir æskilegt fæðu-
val í þeirri viðleitni að viðhalda
óvirkni.
Bókin lýsir því einnig hvernig
ættingjar, vinir, vinnuveitendur,
löggæslumenn, læknar, prestar
o.fl. geta komið hinum sjúka til
aðstoðar og stuðlað að því að
hann leiti til sérhæfðra sjúkra-
stofnana. Reyndin er sú að fáir
fara sjálfviljugir í meðferð enda
er hinn sjúki yfirleitt síðastur til
að átta sig á að hann eigi við
áfengis- eða vímuefnavandamál
að stríða. Áfengi er sterkt efni og
því engin goðgá að hvetja fólk til
að kynna sér verkan þess og þær
hættur sem geta verið neyslu þess
samfara. Allir sem nota alkohól,
mikið eða lítið, geta orðið alko-
hólistar vegna þess að lífeðlis-
fræðilegur sjúkdómur fer ekki í
manngreinarálit.
Bókin er margföld metsölubók
í Bandaríkjunum og ótölulegur
fjöldi manna þar í landi kallar
hana einfaldlega lífgjafa sinn.
Örn Bjarnason og Þorgerður
Ásdís Jóhannsdóttir þýddu bók-
ina en Þórarinn Tyrfingsson, yfir-
læknir á Sjúkrastöðinni Vogi
veitti faglegar ráðleggingar.
Bókin er 200 bls. í kiljuformi
og kostar kr. 995.oo.