Þjóðviljinn - 23.01.1987, Page 14
ALÞÝÐUBANDALAGHD
AB Akureyri
Bæjarmálaráð
Fundur í bæjarmálaráði mánudaginn 26. janúar klukkan 20.30 í Lárusar-
húsi. Dagskrá: Skólamál.
Stjórnin.
ABR
Þorrablót
Þorrablót Alþýðubandalagsins í Reykjavík verður haldið þann 31. janúar
nk. að Hverfisgötu 105. Nánar auglýst síðar. - Stjómin.
Alþýðubandalagið Selfossi og nágrenni
Almennur félagsfundur
Almennur fólagsfundur verður haldinn fimmtudaginn 29. janúar kl. 20.30
að Kirkjuvegi 7.
Efstu menn framboðslistans koma og
Nýir félagar velkomnir.
Fjölmennið.
ræða kosningastariið framundan.
Stjórnin.
Umboðsmaður
Þjóðviljann vantar umboðsmann í Mosfellssveit.
Hafið samband við afgreiðslu Þjóðviljans í símum
681663 og 681333.
Þjóðviljinn
VEISLUR - SAMKVÆMI
Skútan h/f hefur nú opnað glæsilegan sal, kjörinn
fyrir árshátíðar, veislur, fundi félagasamtaka og alls
kyns samkvæmi. Leggjum áherslu á góðan matog
þjónustu.
SKÚTAN HF.
Dalshrauni 15, Hafnarfirði, sími 51810 og 651810.
Lestu
aðeins
stjómarblöðm?
Þjóðviliinn
Höfuðmálgagn
stjómarandstöðunnar
Áskriftarsími (91)68 13 33.
ÍÞRÓTTIR
-------------------------------,
Jón Kr. Gíslason átti góðan leik með ÍBK í gær. Mynd: E.OI.
Körfubolti
Oruggt hjá IBK
Keflvíkingar áttu ekki í mikl-
um vandræðum með baráttulaust
lið Framara er liðið mættust í
Keflavík í gærkvöld. Keflvíking-
ar sigruðu 80-60 og hefði sigurinn
getað verið mun stærri
Það var aðeins á fyrstu mínút-
unum sem einhvern áhuga var að
sjá hjá Fram-liðinu. Um miðjan
fyrri hálfleik var jafnt 26-26, en
þá fór að skilja sundur með liðun-
um. Ekki bætti það úr skák fyrir
Keflavík 22. janúar
ÍBK-FRAM 80-60 (43-32)
7-10, 13-10, 26-26, 34-28, 43-
32, 54-40, 66-48, 80-54, 80-60
Stig ÍBK: Jón Kr. Gíslason 21,
Hreinn Þorkelsson 16, Gylfi Þor-
kelsson 10, Sigurðurlngimundar-
son 9, Guðjón Skúlason 8, Matti
Stefánsson 6, Falur Harðarson 4,
Ingólfur Haraldsson 4 og Ólafur
Gottskálksson 2.
Stig Fram: Þorvaldur Geirsson
22, Jón Júlíusson 12, Símon Ól-
afsson 8, Ómar Þráinsson 8, Jó-
hann Bjarnason 4, Guðbrandur
Lárusson 2, Örn Þorsteinsson 2
og Þorsteinn Guðmundsson 2.
Dómarar: Jón Otti Ólafsson og
Ómar Scheving - ágætir.
Maður ieíksins: Jón Kr. Gísla-
son, ÍBK.
Framara að Símon Ólafsson
þurfti að yfirgefa völlinn með 5
villur undir lok fyrri hálfleiks.
í síðari hálfleik héldu Keflvík-
ingar forskotinu og sigur þeirra
var jafnt öruggur sem auðveldur.
Eftir frekar slaka byrjun tóku
Keflvíkingar sig á um miðjan
fyrri hálfleik og keyrðu upp hrað-
ann. Vörnin var sterk og mikið
um hraðaupphlaup eftir að hafa
stolið boltanum af Framörum.
Jón Kr. Gíslason átti mjög
góðan leik í liði Keflavíkur, átti
góðar sendingar og hitti vel.
Hreinn Þorkelsson átti einnig
góðan leik og lét heyra vel í sér
jafnt utan vallar sem innan. í>á
átti bróðir hans, Gylfi, ágætan
leik.
Þorvaldur Geirsson var eini
maðurinn í liði Fram sem sýndi
einhverja baráttu og hann hélt
Fram-liðinu lengst af á floti. Þó
átti Jón Júlíusson sæmilega
spretti undir lokin.
Fram-liðið virkaði, sem svo oft
áður, baráttulaust og þó að mun-
urinn hafi lengst af verið lítill var
ekki að sjá að þeir hefðu nokkurn
sigurvilja.
SOM/Suðurnesjum.
Handbolti
Alfreð með KA
eftir tvö ár
Alfreð Gíslason sagði Þjóðvilj-
anum í gær að hann ætlaði sér að
ganga til liðs við KA þegar hann
kæmi heim eftir tvö ár.
Alfreð sagði að KA hefði alla
burði til að vera gott 1. deildarlið,
og hann væri sannfærður um að
hann ætti eftir að spila með Akur-
eyrarliðinu í 1. deild.
Þess má geta að Alfreð og aðrir
íslendingar sem spila í Vestur-
Þýskalandi eru vel þekktir í
Austur-Þýskalandi, og mjög
beðnir um eiginhandaráritanir. I
gær kom áritanasafnari til Al-
freðs með blokk, og hafði safnað
mörgum nöfnum á síðurnar, en
Alfreð var beðinn að skrifa einn á
heila síðu, og skrifa stórt!
Knattspyrna
Liveipool
kaupir
Liverpool var ekki lengi að
finna varnarmann í stað Jim
Beglin sem fótbrotnaði á miðvik-
udag. Þeir keyptu í gær bakvörð-
inn Derek Statham frá W.B.A. á
250.000 pund.
Statham er 27 ára gamall.
Hann lék þrjá leiki með enska
iandsliðinu árið 1983, en langvar-
andi meiðsli gerðu út um mögu-
leika hans á föstu landsliðssæti.
Jim Beglin fótbrotnaði sem
kunnugt er í leik gegn Everton og
er óvíst hve lengi hann verður frá.
Ibe/Reuter
Körfubolti
Tveir leikir
ÍR bætti stöðu sína á toppi 1.
deildarinnar með góðum sigri
gegn Grindvfldngum I gær, 69-
81. Staðan í hálfleik var 32-50 ÍR í
vil.
Þá var einn leikur í 1. deild
kvenna. Keflvíkingar sigruðu
Hauka nokkuð auðveldlega 65-
49, staðan í hafleik var 22-15,
Keflvíkingum í vil.
SÓM/Suðurnesjum
Körfubolti
SOSIALISTAR - RAÐSTEFNA UM
FRAMBOÐSMÁL
Hótel Borg laugardag kl. 13.00.
Er þörf á framboöi vinstra megin viö Alþýöubandalagiö?
Vinstrisósíalistar boða til ráöstefnu um framboð til alþingis. Rætt veröur um
málefnagrundvöll og skipulagningu framboðs og teknar ákvaröanir um hvert
áframhaldið veröi.
Ráöstefnan er öllum opin.
Vinstrisósíalistar.
Fýluferð!
Á annað hundrað áhorfendur
fóru fýluferð í íþróttahús Hafn-
arfjarðar í gær. Þar átti að fara
fram leikur Hauka og KR, en
sökum þess að annar dómarinn
mætti ekki var leiknum frestað
um óákveðinn tíma.
Það var ekki fyrr en rétt fyrir
níu að það var tilkynnt að
leiknum yrði frestað og voru
áhorfendur og leikmenn þá búnir
að bíða í tæpan klukkutíma.
Þennan leik áttu að dæma Jó-
hann Dagur og dómari af Suður-
nesjum. Jóhann Dagurmætti gal-
vaskur á réttum tíma, en Suður-
nesjamaðurinn lét ekki sjá sig.
Jóhann reyndi hvað hann gat til
að ná í dómara en það tókst ekki
og því varð ekkert úr leiknum
Það er undarlegt að svona
hlutir skuli gerast í Úrvals-
deildinni og það ætti ekki að vera
mikið mál að koma í veg fyrir
það.
-Ibe
14 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 23. janúar 1987