Þjóðviljinn - 23.01.1987, Side 16
Aðalsími
681333
Kvöldsími
681348
Helgarsími
681663
Trésmiðir
Viðræður
í strandi
Grétar Þorsteinsson:
Viljum að staðið sé
við Febrúar-
samkomulagið um
uppstokkun launa-
kerfisins
- Það hefur ekki slitnað endan-
lega uppúr viðræðum en við telj-
um ekki ástæða tii þess að funda
frekar fyrr en eitthvað nýtt kem-
ur uppá borðið frá viðsemjend-
um okkar, sagði Grétar Þor-
steinsson formaður Trésmiðafé-
iags Reykjavíkur í samtali við
Þjóðviijann í gær.
Viðræður trésmiðja og við-
semjenda þeirra hafa legið niðri
sfðan í miðri síðustu viku en tré-
smiðir leggja áherslu á í viðræð-
unum að staðið sé við ákvæði fe-
brúarsamninganna um uppstokk-
un launakerfisins.
- Við höfum í höndunum nið-
urstöður úr kjarakönnun meðal
félagsmanna og meginkrafa okk-
ar er að færa taxtakaupið nær
greiddu kaupi. Við viljum ein-
faldlega að það kaup sem þegar
er greitt verði fest niður í samn-
ingum, sagði Grétar.
Félagsfundur hjá trésmiðjum
hefur nýlega lýst samþykki sínu
við að boðað verði til aðgerða
telji trúnaðarmannaráð ástæðu
en að sögn Grétars hefur enn
ekki verið ákveðið hvenær trún-
aðarmannaráð kemur saman. -Ig.
Bókagerðarmenn
38 þúsund
í lágmarkslaun
Samningar bóka-
gerðarmanna voru
samþykktir áfélags-
fundiígœr
Á fjölmennum fundi Félags
bókagerðarmanna í gær voru ný-
gerðir samningar félagsins við
Félag prentiðnaðarins samþykkt-
ir með 146 atkvæðum gegn 40.
í samningnum var gert sam-
komulag um 38 þúsund króna
lágmarkslaun fyrir faglærða en
þau voru áður á bilinu 22-26 þús-
und krónur eftir starfsgreinum og
starfsaldri. Starfsaldursþrepin
voru þurrkuð út með samningun-
um. Pá var samið um að launa-
könnun yrði gerð 2-4 sinnum á ári
til þess að hægt verði að fylgjast
með launaþróuninni. Hvað rétt-
indamál snertir tókst bókagerð-
armönnum að fá lögfest í samn-
inginn vikufrí vegna veikinda
barna.
Árangur náðist í samningum
fyrir iðnnema en laun þeirra
verða áfram reiknuð sem pró-
senta af sveinslaunum, en eins og
kunnugt er ríkti mikil óánægja
hjá iðnnemum með aðalkjara-
samninga ASÍ þar sem samið var
um að laun þeirra skyldu reiknuð
af lágmarkslaunum verkafólks,
en ekki sveinslaunum. Loks má
geta þess að aðstoðarfólk bóka-
gerðarmanna hækkar með þess-
um samningum úr rúmum 20 þús-
und króna byrjunarlaunum í 28
þúsund. Gert er ráð fyrir að í árs-
Iok verði laun þess rúmar 30 þús-
und krónur. -K.Ól.
þJÓDVIUIN
Föstudagur 23. janúar 1987 17. tölublað 52. örgangur
SAMVINNUBANKI
ÍSLANDS HF.
Flugslysið
Orsökin hufln ráðgáta
TF-ÖRN var að koma úr viðgerð ogskoðun áAkureyriþegarslysið
átti sér stað. Ekkertfannstfrekar ígœrþráttfyrir víðtæka leit
að er mönnum aigerlega hulin
ráðgáta hvað þarna hefur
gerst, sagði Hörður Magnússon
flugmaður og einn eigenda Flug-
félagsins Ernir á ísafirði í samtali
við Þjóðviljann í gær.
Vélín sem fórst norður af Arn-
arnesi í ísafjarðardjúpi, TF-
ÖRN, var í eigu Flugfélagsins
Ernir og var keypt eftir flugslysið
í Ljósufjöllum á Snæfellsnesi í
fyrra. Þrátt fyrir víðtæka leit á
slysstað í allan gærdag hefur ekk-
ert fundist frekar úr vélinni.
Hörður sagði í gær að flugvélin
hefði verið að koma úr viðgerð á
Akureyri. Flugskilyrði voru ekki
slæm þegar slysið átti sér stað og
flugmaðurinn var fær í sínu starfi,
þannig að menn geta að sögn
Harðar ekki gert sér í hugarlund
hvað þarna hefur átt sér stað.
Rannsóknarnefnd flugslysa hefur
að öllum líkindum rannsókn
málsins innan tíðar.
„Þetta er mikið áfall fyrir okk-
ur. Við vorum rétt að átta okkur
á slysinu í Ljósufjöllum í fyrra
þegar þetta skall á,“ sagði Hörð-
ur í gær.
Flugmaðurinn sem fórst í slys-
inu hét Stefán Páil Stefánsson.
Stefán var 38 ára gamall, búsettur
á Akureyri. Hann lætur eftir sig
konu og þrjú börn.
~gg
Borgarfulltrúar áttu langa nótt fyrir höndum þegar Sig. tók þessa mynd í arfulltrúi Alþýðubandalagsins, Ingibjörg S. Gísladóttir Kvennalista og Helga
matarhléi í gærkvöldi og þeir voru ekki alltaf svo léttir í lundu sem á þessari Jóhannesdóttir varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins birgja sig með fylltu
mynd. Magnús L. Sveinsson forseti borgarstjórnar, Guðrún Ágústsdóttir borg- lambalæri og tilheyrandi.
Fjárhagsáœilun
Góðærið í gæluverkefni
Hörð gagnrýni minnihlutans áfjárhagsáœtlun Sjálfstœðisflokksins: 'Tekjuauka vegna
kjaraskerðingarinnar veitt ígœluverkefni á bórð við ráðhús og bílageymslur.
í frumvarpi Sjálfstæðismanna
að fjárhagsáætlun skipa bfla-
geymsluhús, ráðhús, lóðakaup af
stóreignamönnum og ýmis óskil-
greind fasteignakaup æðsta sess.
Fulltrúar minnihlutans í borgar-
stjórn vilja breyta þessum for-
gangi og nýta auknar tekjur borg-
arsjóðs til að fjármagna félags-
legar framkvæmdir sem koma
fyrst og fremst þeim til góða sem
lakast eru settir. Við höfum því
komið okkur saman um að leggja
höfuðáhersluna á aðgerðir til úr-
bóta í málefnum barna, aldraðra
og í húsnæðismálum, segir m.a. í
bókun borgarfulltrúa minnihlut-
ans í borgarstjórn við afgreiðslu
fjárhagsáætlunar borgarinnar í
gærkvöldi.
Aukafundur í borgarstjórn
hófst síðdegis í gær og stóð fram
eftir nóttu. Þegar Þjóðviljinn fór í
prentun í gærkvöldi var af-
greiðsla breytingartillagna við
frumvarp til fjárhagsáætlunar
enn ekki hafin.
Ingibjörg S. Gísladóttir mælti
fyrst fyrir sameiginlegum til-
lögum Alþýðubandalags,
Kvennalista, Alþýðuflokks og
Framsóknaríflokks. Ingibjörg
minnti á að kjaraskerðingin í
upphafi valdatíma núverandi
ríkisstjórnar hefði skilað borgar-
sjóði verulegum tekjuauka, en
benti jafnframt á að þetta góðæri
ætti samkvæmt frumvarpinu að
nota í ýmis gæluverkefni Sjálf-
stæðisflokksins, í stað þess að
nýta aukið svigrúm til þess að efla
félagslega þjónustu.
Kristín Á. Óiafsdóttir borgar-
fulltrúi Alþýðubandalagsins
lagði áherslu á að bæta þyrfti úr
því ófremdarástandi sem skapast
hefur m.a. í dagvistarmálum,
málefnum aldraðra og víðar.
„Við viljum bæta þetta ástand og
bendum í tillögum okkar á leiðir
til þess. Við erum þeirrar skoð-
unar að verja eigi sameiginlegum
sjóðum til félagslegra fram-
kvæmda fyrst og fremst. Annað
verður að bíða betri tíma meðan
félagslegri þjónustu er ekki sinnt
betur en raun ber vitni,“ sagði
Kristín.
Davíð Oddsson borgarstjóri
taldi fátt markvert að finna í til-
lögum minnihlutans. Hann sagði
reynsluna hafa kennt sér að yfir-
boð minnihlutaflokkanna væru
„marklítil, að gagnrýni þeirra er
innihaldslaus, að loforð þeirra
eru brotgjörn.“
Fjárhagsáætlun Sjálfstæðis-
flokksins sagði hann hins vegar
framsækna og þróttmikla, þótt
hæfilegrar varfærni og hagsýni
væri í hvívetna gætt.
-gg
Vetrarvertíð
Afli í meðallagi
Veðurfar rysjótt það sem af er
Vetrarvertíðin er þessa dagana
að komast í gang víðast hvar. Tíð-
arfar hefur verið heldur rysjótt
síðustu daga og lítt geflð á sjó
fyrir smábáta.
í Sandgerði hefur verið
reytingsfiskur á línu, aðallega
þorskur.
í Grindavík hafa um 8-9
bátar hafið veiðar og veiða aðal-
lega í net. Þeir hafa aflað sæmi-
lega og aflinn að mestu verið ufsi.
Frá Rifi hafa 18 bátar hafið
veiðar aðallega á línu, en 5 þó á
netum og aflinn að mestu þorskur
og um 100 tonn hafa borist á land,
sem er í meðallagi.
í Ólafsvík er vertíðin að kom-
ast í gang. Nokkrir eru byrjaðir
að leggja net og fáeinir eru á línu,
búnir að fara í nokkra róðra. Frá
áramótum eru komin á land um
200 tonn.
Frá Akranesi eru nú að mestu
gerðir út smábátar auk togara.
Lélegar gæftir hafa verið nú eftir
verkfall, svo að lítill afli hefur
borist á land. -sá