Þjóðviljinn - 24.01.1987, Side 1

Þjóðviljinn - 24.01.1987, Side 1
Laugardagur 24. janúar 1987 18. tölublað 52. árgangur Arnarflug Afkoman stómm verri Kristinn Sigtryggsson: Ýmislegt sem hefur komið upp á borðið. Hœtt við að bœta við leiguvél ísumar. Hlutafjársöfnun ígangi. Starfsmenn einhuga um að bjarga félaginu Enn hafa ekki verið birtar opin- berlega tölur um rekstaraf- komu Arnarflugs á nýliðnu ári en forráðamenn fyrirtækisins stað- festa að afkoman sé öliu lakari en reiknað hafði verið með. - í stór- um dráttum er vandi fclagsins heldur meiri en menn reiknuðu með og það vill oft vera þannig með illa stæð fyrirtæki, að ýmis- Iegt kemur upp á borðið þegar farið er ofan í saumana á þeim, en við teljum okkur nú hafa yfirsýn yfir vandann, sagði Kristinn Sig- tryggsson nýráðinn fram- kvæmdastjóri félagsins í samtali við Þjóðviljann. Kristinn vildi ekki nefna neinar tölur um afkomu félagsins en ljóst er að töluverðar breytingar verða á starfsemi félagsins á Sturlumálið Laðast ekki að böðlunum Sturla Kristjánsson fyrrverandi frœðslustjóri: Fylgi Sjálfstœðisflokknum ekki að málumframar „Það er ekki venjan að menn laðist að böðlum sínum,“ sagði Sturla Kristjánsson f samtali við Þjóðviljann í gær, þegar hann var spurður að því hvort hann fylgdi enn Sjálfstæðisflokknum að mál- um eftir að honum var vísað úr starfí fræðslustjóra af mennta- málaráðherra. -Því hefur verið fleygt að Ör- lygur Geirsson og Sólrún Geirs- dóttir starfsmenn menntamála- ráðuneytisins standi að baki ákvörðun ráðherrans, tekur þú undir það? „Það er andlegt áfall að upplifa að annar þessarra aðila hefur gef- ið yfirvaldi einhliða upplýsingar án minnar vitundar um það sem ég hef sagt á lokuðum fundum þar sem málin voru rædd í ein- lægni, og þær síðan notaðar sem ávirðingarskjal gegn mér. Það fer hrollur um mann við að hugsa um svona vinnubrögð.“5yá wánflr í Nafni vikunnar í Sunnudagsblaðinu. Skák Héígi tapaði Helgi Ólafsson beið lægri hlut fyrir Short á alþjóðlega skákmót- inu í Wilkaan Zee í Hollandi í gær. Short hafði hvítt og situr einn í efsta sæti með Wi vinning og biðskák en Helgi er með 3VÍ vinning. þessu ári og reynt að taka sem minnsta áhættu, en slæma stöðu félagsins má fyrst og fremst rekja til ýmissa verkefna erlendis á liðnum árum. Hugmyndir munu hafa verið uppi um að taka flugvél á leigu í sumar vegna leiguflugs, en þær hugmyndir hafa nú verið lagðar á hilluna og ákveðið að freista þess að fullnýta einustu millilandavél félagsins jafnframt áætlunar- fluginu, til leiguflugs. Unniðer að því að auka hlutafé félagsins en á fundi starfsmanna Arnar- flugs í fyrrakvöld var mikill ein- hugur um að freista þess að koma félaginu á réttan kjöl. -sá. Sjá bls. 2. Fokkervélin Fokkervél með bilað nefhjól lenti á Keflavíkurflugvelli í gœr. 46farþegar um borð. Engansakaði Mér stóð ekki á sama „Ég verð að játa að mér var ekki sama enda var ég með dýr- mætan farangur,“ sagði Frið- gerður Guðmundsdóttir eftir að Fokkervél Flugleiða sem hún var á leið með til ísafjarðar í gær- morgun hafði lent giftusamlega með bilað nefhjól á Keflavíkur- flugvelli. 46 farþegar voru í vélinni auk 3ja manna áhafnar. Skömmu eftir flugtak frá Reykjavíkurflug- velli kl 10.06 uppgötvaðist að nef- hjól vélarinnar hafði festst í 60 gráðu beygju til hægri. Vélinni var þegar snúið við og undirbúin nauðlending á Reykjavíkurflug - velli en síðan ákveðið að lenda í Keflavík og tókst lendingin í alla staði giftusamlega. „Þetta gekk allt vel. Það var engin veruleg hætta á ferðum, en það hefði þó ýmislegt getað gerst í lendingunni," sagði Vilhjálmur Þórðarson flugstjóri. Farþegarn- ir tóku þessu atviki með mestu ró að sögn flugstjórans. -gg- Ég er farin að verða flughrædd í seinni tíð og ekki varð þetta til að bæta það, sagði Friðgerður Guðmundsdóttir eftir lendinguna í Keflavík í gær. Hún og synir hennar tveir, Egill og Ragnar, voru á leið til ísafjarðar í heimsókn til fjölskyldunnar þegar Fokkernum var snúið við. En það fór betur en á horfðist og þau gátu varpað öndinni léttar eftir giftusamlega lendingu. Mynd Sig. Fjárhagsáætlun Davíð fær fína bílinn Breytingartillögum minnihlutans ýmist vísaðfrá eða þœr felldar. Tvœr voru samþykktar Borgarfulltrúar Sjálfstæðis- flokksins visuðu í fyrrakvöld til- lögu minnihluta borgarstjórnar um að minnka fjárráð borgarst- jóraembættisins til bflakaupa frá, þannig að Ijóst er að borgar- stjórinn í Reykjavík mun innan tfðar aka um götur borgarinnar á nær þriggja milljóna kadilják. Minnihlutinn hafði lagt til að upphæðin sem ætluð var til kaupa á Cadillac Fleetwood 60 Special yrði lækkuð um eina milljón króna, úr 2,9 milljónum í 1,9 milljónir, og að mismunurinn skyldi renna til Ferðaþjónustu fatlaðra. Borgarstjóraembættið hefði þá getað eignast ekki lakari bíl en forsætisráðuneytið hefur keypt undir Steingrím. Borgarfulltrúar Sjálfstæðis- flokksins brugðust ókvæða við tillögu minnihlutans, settu saman frávísunartillögu og samþykktu hana. Öðrum tillögum minnihlutans utan tveimur var annað hvort vís- að frá eða þær felldar. Fjárhagsá- ætlun hefur því verið samþykkt með litlum breytingum frá því hún var lögð fram í borgarstjórn í desember. Útgjöld borgarinnar á árinu eru áætiuð um 5,5 milljarðar króna. Samþykktar tillögur minni- hlutans voru annars vegar tillaga um styrk til áhugafólks um íþrótt- ir fatlaðra, en hins vegar tillaga um fleira starfsfólk við dvalar- heimilið í Lönguhlíð. Samtals kosta þessar tillögur um 370 þús- und krónur. -gg Sjá síðu 4 og 12 Loðna 100þús. í viðbót Sjávarútvegsráðherra ákvað í gær að tillögu Hafrannsókna- stofnunar að auka loðnukvótann á íslandsmiðum um 100 þús. lest- ir. Þar af fá íslensk skip 85 þús- und lestir en norsk skip 15 þús. lestir. Rannsóknaskipið Bjarni Sæ- mundsson hefur verið við loðnu- leit úti af Austfjörðum undan- farna daga og hefur útkoma stofnmælinga verið betri en menn áttu von á. Heildarkvótinn frá því að veiðar hófust s.l. haust er því kominn yfir milljón lestir, en nokkur loðnuskip höfðu þegar klárað sinn kvóta.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.