Þjóðviljinn - 24.01.1987, Blaðsíða 6
Leikurinn
í tölum
0-1 Wenta
Kristján /v 1-1
Þorgils Ó. 1-2 Klempel
2-2
2-3 Danidziuk
Siguröur G. 3-3
Alfreð 4-3
Þorgils Ó. 4-4 MloczynsKi
5-4
Alfreö 6-4
6-5 Klempel
Kristján v/ 7-5
7-6 Plechoc
Kristján 8-6
8-7 Klempel
8-8 Wenta
Sigurður G. 9-8
Þorgils O. 10-8
10-9 Wenta
Bjarni 11-9
11- 10 Plechoc
Alfreð 12-10
12- 11 Szargiej
12- 12 Wenta
Þorgils Ó. 13-12
13- 13 Dziuba
13-14 Plechoc
Sigurður G.
Sigurður G.
Kristján
Þorgils Ó.
Bjarni
Alfreð
Sigurður S.
Sigurður S.
Kristján
Páll
Þorgils Ó.
Sigurður G.
Alfreð
Sigurður S.
Páll
Sigurður G.
(hlé)
14-14
14- 15
15- 15
16- 15
17- 15
18- 15
18-16
18- 17
19- 17
19-18
19- 19
20- 19
20-20
20-21
21- 21
21-22
21- 23
22- 23
23- 23
23- 24
24- 24
24- 25
25- 25
25- 26
26- 26
26- 27
27- 27
28- 27
28-28
29- 28
Wenta
Klempel
Danidziuk
Dziuba
Dziuba
Mrowiec
Plechoc
Mrowiec
Wenta
Kordowiecki
Wenta
Kordowiecki
Wenta
Danidziuk
Alfreð Gíslason skoraði fimm mörk
úr átta skotum, tapaði bolta þrisvar.
Bjarni Guðmundsson skoraði tvö
mörk úr þremur skotum, átti eina
sendingu sem gaf víti, tapaði bolta
þrisvar.
Guðmundur Guðmundsson tapaði
bolta einu sinni.
Kristján Arason skoraði fimm
mörk (tvö víti) úr tíu skotum, átti eina
sendingu sem gaf mark, fiskaði eitt
vfti, tapaði bolta einu sinni.
Páll Ólafsson skoraði tvö mörk úr
tveimur skotum, átti eina sendingu
sem gaf mark, tapaði bolta einu sinni.
Sigurður Gunnarsson skoraði sex
mörk úr átta skotum, átti þrjár send-
ingar sem gáfu mörk, tapaði bolta
tvisvar.
Sigurður Sveinsson skoraði þrjú
mörk úr sex skotum, átti eina send-
ingu sem gaf mark.
Þorgils Óttar Mathiesen skoraði
sex mörk úr níu skotum, átti eina
sendingu sem gaf mark, fiskaði eitt
víti, tapaði bolta einu sinni.
Einar Þorvarðarson varði fimmtán
skot.
Geir Sveinsson lék allan leikinn í
vörn og kemur þvt ekki við þessa
sögu.
Jakob Júlíusson og Bryqjar Kvar-
an voru með í liðinu en komu ekki
inná.
Mörk Pólverjanna skoruðu: Wenta
4, Plechoc 4, Klempel 4, Dziuba 3,
Danidziuk 3, Mrowiec 2, Kordowi-
ecki 2, Mloczynski 1, Szargiej 1.
ÍÞRÓTTIR
Eystrasaltsmótið
Hvílíkur leikur!
íslendingar unnu Pólverja 29-28 í œsispennandi leik.
Skytturnar, Þorgils Óttar og Einar Þorvarðarson í
aðalhlutverkum. Alltgetur gerst ímótinu íRostock
Sigurleikurinn gegn Pólverjum
f Wismar f gær er einhver sá stór-
kostlegasti sem ég hef orðið vitni
að. Spennan í lokin var slfk að fátt
stenst samanburð, jafnvel ekki
stundirnar stóru í Sviss síðasta
vetur. Islensku landsliðsmenn-
irnir hafa sjaldan eða aldrei leikið
af öðrum eins krafti og baráttugl-
eði, og er þá miklu saman við að
jafna. Þegar þeir gengu fagnandi
af leikvelli voru þeir svo gegnum-
vættir af svita að engum duldist
að þar fóru menn sem höfðu lagt
til allt sem þeir áttu og jafnvel
meira. Þennan sigur áttu þeir svo
sannarlega skilinn - hann mun
verða þeim sem tóku þátt í honum
og þeim sem fylgdust með óg-
leymanlegur um aldur og ævi.
Það sem bæði lið sýndu var
fyrst og fremst stórgóður sóknar-
leikur. Handboltalega séð var
leikurinn langt frá því að vera
gallalaus - sérstaklega brugðust
varnir beggja liða oft illa. En hin-
ir stórkostlegu og áhugasömu
áhorfendur í Wismar fengu að sjá
stórskyttur sýna snilii sína eins og
best verður gert. íslendingarnir
Alfreð, Sigurður Gunnarsson,
Sigurður Sveinsson og Kristján
ásamt Pólverjunum Wenta og
Klempel voru í aðalhlutverkum í
þeirri sýningu.
Fyrstu tuttugu mínúturnar lék
íslenska liðið reglulega vel. Sókn-
arleikurinn gekk upp og vörnin
var samstillt, - en opnaðist samt
oft illa. Sigurður Gunnarsson og
Þorgils Óttar voru þarna í aðal-
hlutverkum og þrjár
gullsendingar Sigga á Óttar gáfu
falleg mörk. íslenska liðið var
með undirtökin allan hálfleikinn
en fór illa með góð færi til að bæta
við forystuna. Síðustu tíu mínút-
umar vora hinsvegar versti ka-
flinn í leiknum. Þá hélt Einar
Þorvarðarson íslenska liðinu á
floti, varði þrisvar í dauðafærum
þegar staðan var 12-12. Síðan
fóru þrjú gullin færi íslands for-
görðum, þar af tvö hraðaupph-
laup, og Pólverjarnir komust yfir
á lokamínútunni, 13-14.
Skotnýting íslenska landsliðs-
ins í fyrri hálfleik var góð, 60%,
eins og hún var reyndar í leiknum
í heild, en á móti kom að liðið
tapaði boltanum átta sinnum í
hálfleiknum án þess að ná skoti,
og í tvö skiptin skoruðu Pólverj-
arnir ódýr mörk þegar þeir kom-
ust inní sendingar framanvið ís-
lenska markið.
Byrjunin á síðari hálfleik var
eins og best verður á kosið. Fimm
íslensk mörk gegn einu og staðan
eftir átta mínútur orðin 18-15 en
keðja mistaka varð síðan til þess
að Pólverjar jöfnuðu fljótlega.
Og þegar staðan var 21-23 Pól-
verjum í hag þegar 13 mínútur
voru eftir var útlitið farið að dök-
kna ískyggilega.
En lokakaflinn er einhver sá
ótrúlegasti sem ég hef séð í lands-
Þorgils Óttar landsliðsfyrirliði, allt annar maður en daginn áður, - allt annað lið
en daginn áður!
leik. Rafmögnuð spenna og allt
gat gerst, og áhorfendur studdu
hressilega við bakið á íslenska
liðinu. Pólverjar freistuðu þess
að taka íslensku skytturnar úr
umferð til skiptis en Bogdan
þjálfari átti snjallan mótleik.
VÍÐIR
SIGURÐSSON
Rostock
Hann lét Kristján Arason í stöðu
leikstjórnanda, Sigurður Sveins-
son fékk aukið frelsi hægramegin
og nýtti sér það vel. Skytturnar
skoruðu hvert glæsimarkið á fæt-
ur öðru, Sigurðarnir báðir og Al-
freð, og ísland náði loks forystu á
ný tveimur mínútum fyrir leiks-
lok, 28-27, þegar Páll Ólafsson
skoraði úr hraðaupphlaupi. Pól-
verjar jöfnuðu 28-28 og þá stóð
1:30 á klukkunni. Þegar 53 sek-
úndur voru eftir braust Sigurður
Gunnarsson í gegnum pólsku
vörnina af miklu harðfylgi og
skoraði, 29-28. Það sem eftir var
reyndu Pólverjar án árangurs að
finna glufu á íslensku vörninni,
sem sýndi ótrúlega baráttu og
náði að halda algerlega aftur af
stórskyttunum Klempel og
Wenta. Þegar flautað var til leiks-
loka voru fagnaðarlæti áhorfenda
slík að fátt jafnast á við þau nema
Laugardalshöllin sjálf í öllu sínu
veldi.
Það er þegar komið fram hvað
það var sem bar leik íslands uppi.
Alfreð, SigurðurGunnarsson, og
Þorgils Óttar hver öðrum betri og
Einar ómetanlegur í marki.
Sennilega vegur hans þáttur ein-
na þyngst - hann var bjargvættur-
inn á örlagaríkustu augnablikun-
um. Alfreð hefur sjaldan eða
aldrei verið betri í sínum 99
landsleikjum og það er kannski
einna þýðingarmest fyrir þann
undirbúning liðsins sem hér fer
fram hve vel hann er að komast í
gang. Þorgils Óttar var allur ann-
ar maður en daginn áður - nú
kannaðist maður aftur við
Hafnfirðinginn handstyrka. Sig-
urður Gunnarsson hefur ekki
leikið lengi af öðrum eins krafti
og Sigurður Sveinsson kom
skemmtilega inn í leikinn í seinni
hálfleik. Þrumufleygar hans köll-
uðu fram undrunar- og hrifning-
arhljóð frá áhorfendum, og það
var sérstakt ánægjuefni að sjá að
hann og Kristján Arason geta
leikið hlið við hlið í íslenska
landsliðinu. Helsti mínusinn í
leik íslands fyrir utan köflóttan
varnarleik var hinsvegar frammi-
staða hornamannanna sem hafa
ekki náð sér almennilega á strik
hér í Austur-Þýskalandi
Pólska liðið var jafnoki þess ís-
lenska allan tímann og leikur
kraftmikinn og skemmtilegan
handknattleik. Vörnin er þó
greinilega Akkilesarhæll þess.
Bogdan Wenta er tvímælalaust
orðinn einn besti handknattleiks-
maður heims, fjölhæfur, kraft-
mikill og líflegur leikmaður og
með framtíðina fyrir sér. Hinn 34
ára gamli Klempel er alltaf hættu-
legur en íslensku vörninni tókst
þó að halda honum vel í skefjum í
sfðari hálfleik.
„Þetta var góður leikur, sókn-
arlega séð, en það fór lítið fyrir
varnarleik. Hann brást mikið til
hjá báðum liðum. Sigurinn er
mjög mikilvægur og við erum
þegar búnir að ná góðum árangri
í þessu móti. Tveir sigrar eru
mjög gott, ég lít á jafntefli við
Austur-Þýskaland sem sigur, og
þrír sigrar eru frábært. Miðað
við undirbúning var ekki við því
að búast að liðið næði vel saman
hér. En þessi úrslit eru dæmigerð
fyrir íslenskan handknattleik -
góðir leikir og slæmir til skiptis.
Það var ánægjulegt hve vel Sig-
urður Sveinsson nýtti sér tæki-
færi þegar Kristján Arason var
tekinn úr umferð. Eftir þær
æfingar sem framundan eru ætti
liðið að vera búið að bæta við sig
35 til 40 prósent í styrk þegar
leikið verður við Júgóslava heima
í febrúar“ sagði Bogdan Kow-
alczyk landsliðsþjálfari íslands
eftir leikinn.
„Bæði lið hefðu getað sigrað og
það réð miklu þegar við misstum
tvo menn útaf í seinni hálfleik.
Vörnin brást alveg hjá mínu liði“
sagði Zenon Lakomi þjálfari pól-
ska landsliðsins.
„Það var hugarfarsbreytingin
sem gerði útslagið fyrir okkur.
Við skömmuðumst okkar fyrir
skellinn gegn Vesturþjóðverjum í
gær og náðum að rífa upp kraft
og baráttu. Með því unnum við
upp skortinn á samæfingu sem
háir okkur hérna, sérstaklega í
varnarleiknum“ sagði Þorgils
Óttar Mathiesen, fyrirliði ís-
lands. -VS
Tobbi
mættur
Þegar landsliðsmenn og blaða-
menn komu aftur heim í Hotel
Neptun í Rostock eftir leikinn við
Pólverja í Wismar, beið þeirra
kunnuglegur maður í anddyrinu.
Þorbjörn Jensson hafði ekki
getað stillt sig, var kominn yfir
Eystrasaltið frá Svíþjóð þar sem
hann er þjálfari og leikmaður
með Malmö. Miklir fagnaðar-
fundir urðu með landsliðs-
mönnum og fyrirliðanum fyrrver-
andi.
-m/VS
Allt uppí loft
Austur-Þjóðverjar og Sovétmenn efstir.
þeir síðustu gœtu orðið fyrstir
- er
Góðir áhorfendur
Áhorfendur á leikjum í
Eystrasaltskeppninni setja mjög
skemmtilegan svip á hana. Þeir
fjölmenna á alla leiki, líka þegar
Austur-Þýskaland er ekki að
spila, og eru mjög skemmtilega
vel með á nótunum. Þeir kunna
vel gott að meta, sama hver á í
hlut, jafnvel mótherjar Austur-
þjóðverja. Sannir áhugamenn
um handknattleik og þjóð sinni til
mikils sóma.
En í Wismar í gær voru þeir þó
einstakir, frá sjónarhóli íslend-
inga. Þeir studdu vel við bakið á
íslenska landsliðinu aiit frá byrj-
un, en falleg tilþrif Pólverja féllu
samt alltaf í góðan jarðveg hjá
þeim. Það er ekki ónýtt fyrir ís-
lenska liðið að leika við Sovét-
menn einmitt í Wismar í dag -
góður stuðningur áhorfenda ætti
að vera íslendingum vís.
-VS
Það fer ekkert „eftir bökinni" á
Eystrasaltsmótinu að þessu sinni,
„bókin“ sennilega týnd og tröllum
gefin og bara lcikinn handbolti
eins vel og hægt er. Öll liðin nema
heimamenn hafa tapað leik og að-
eins Svíar hafa ekki náð að sigra.
í gær gerðu Austur-Þjóðverjar
jafntefli við Svía, 24-24, - heima-
liðið jafnaði á síðustu stundu eftir
að hafa haft forystu mest af
leiknum. í hálfleiknum var stað-
an þó 14-13 fyrir Svía.
Og Vestur-Þjóðverj ar skítlágu
fyrir Sovétmönnum, 18-24 (9-
13), daginn eftir sannfærandi
stórsigur á móti íslendingum.
Staðan fyrir síðustu tvær um-
ferðirnar er þessi:
A-Þýskaland
Sovétríkin
V-Þýskaland
ísland
Svíþjóð
Pólland
3 1 2 0 68-59 4
3 2 0 1 72-68 4
3 111 64-61 3
3 1 1 1 62-70 3
3 0 2 1 68-69 2
3 1 0 2 73-80 2
f dag, laugardag leika fsland-
Sovétríkin, Svíþjóð-Pólland og
A-Þýskaland-V-Þýskaland,
leikur sem beðið er í Rostock
með mikilli eftirvæntingu.
Mótinu lýkur svo á sunnudag
með Ísland-Svíþjóð, V-Þýska-
land-Pólland og A-Þýska-
land-Sovét, sem á þessarí stundu
sýnist verða úrslitaleikurinn. En
„bókin“ er týnd...
-m/VS
ÞJÓÐVILJINN - SfÐA