Þjóðviljinn - 24.01.1987, Blaðsíða 3
__________________________FRÉTT1R________________________
Framsóknarraunir
Ekki hent mér út enn
Stefán Valgeirsson: ... Ekki skyldugir til að hlíta forystu eins né neins.
Fólk rœður hvað það gerir í kjörklefanum
mm ÖRFRÉTTIRjh
Slökkvilið
Hafnarfjarðar
fór í 183 útköll á nýliðnu ári og
hafa útköll aldrei áður verið
jafnmörg á einu ári. Af öllum út-
köllum voru 104 vegna elds í
rusli, sinu og mosa, þar af 23 á
nýársnótt fyrir rúmu ári.
Kínaleiðangri
fjallgöngumanna á hið 7.500 m.
háa fjall Kongur Tiube sem fyrir-
huguð var snemma í vor hefur
verið frestað vegna þess að illa
hefur gengið að safna fé hér
heima til að standa undir kostn-
aði. Leyfi Kínverja liggur nú fyrir
um annan leiðangur á rúmlega
8000 m. tind í Tíbet sem íslenskir
fjallagarpar ætla að reyna við
eftir fáein ár.
Tómas Á. Tómasson
sendiherra
hefur afhent P. N. Demichev,
fyrsta varaforseta Forsætisráðs
Æðstaráðs Sovétríkjanna, trún-
aðarbréf sitt sem sendiherra (s-
lands í Sovétríkjunum.
Verkfræðinga-
félag íslands
hefur á félagsfundi lýst yfir fullum
stuðningi við vinnubrögð Stefáns
Ingólfssonar hjá Fasteignamati
ríkisins og telur að Stefán hafi í
krafti persónu sinnar og verk-
fræðilegrar þekkingar þróað að-
ferðir í upplýsingamiðlun, sem
hann og félag hans geti verið
stolt af.
Bæjarstjórn
Kópavogs
hefur fagnað þeirri ákvörðun al-
þingis að heimila fjármálaráð-
herra að taka lán til innréttinga á
húsnæði í Kópavogi til kennslu í
matvælagreinum og fyrir Hótel-
og veitingaskóla íslands. Er
skorað á ráðherra að nýta þessa
heimild sem fyrst svo kennsla
geti hafist í haust.
Eg bíð ósköp rólegur og mér líð-
ur vel, sagði Stefán Valgeirs-
son þegar Þjóðviljinn spurði
hann um viðbrögð hans við
ákvörðun kjördæmisráðs Fram-
sóknarflokksins, þar sem honum
er neitað um sérframboð á vegum
flokksins í Norðurlandskjördæmi
eystra.
Aðspurður um hver viðbrögð
hans yrðu við ákvörðun flokks-
ráðsins sagði Stefán: Ég er ekki
með lög flokksins hjá mér, en ég
man ekki betur en það sé í lögun-
um að svona niðurstöðu skuli á-
frýjað til framkvæmdastjómar.
Ég held að ég muni þetta rétt.
Ef framkvæmdastjórn sam-
þykkir ákvörðun kjördæmisráðs,
jafngildir það þá ekki brottvísun
allra framboðmanna úr flokkn-
um?
Ég læt þá alveg um það. Það er
þeirra mál en ekki mitt. Það er
þannig í lögum flokksins, en ég er
ekki farinn að sjá það að þeir vísi
mér út úr þingflokksherberginu.
Við sjáum nú til, ég trúi því ekki
fyrr en ég tek á því. Þetta eru nú
allt saman framsóknarmenn sem
eru á þessum lista og menn eru nú
ekki skyldugir til að hlíta forystu
eins eða neins og svo ræður nú
enginn hvað fólk gerir í kjörklef-
anum.
Hvenær áttu von á niðurstöðu
framkvæmdastjórnar?
Ég á ekki von á að þeir séu neitt
að draga það. Það sem mér þætti
sárast í þessu er, ef það yrði ein-
hver hópur sem nýtist ekki, að
flokkur minn skuli hafna því að
koma inn einum manni til við-
bótar. -«á
Eyðni
Hættulaust
kynlíf
Nemendaleikhúsið í Lindarbæ fmmsýnir gamanleikinn „Þrettándakvöld" eftir William Shakespeare í Lindarbæ í
Skagfjörð, Þórarin Eyfjörð og Kormák Baltasar í hlutverkum sínum. Leikstjóri er Þórhallur Sigurðsson. - Ljósm. Valdís.
Borgarleikhús
45 milljónir framúr
120 milljónir í stað 75 milljóna í Borgarleikhús á síðasta ári.
Minnihlutinn telur að málið hefði átt að fá umfjöllun í borg-
arráði. Meirihlutinn: Rangt og ódrengilegt
Upplýsingar og frœðsla
þau vopn sem duga gegn
eyðni
Kynlíf homma getur verið
hættulaust ef rétt er að því staðið
sögðu talsmenn samtakanna 78
þeir Böðvar Björnsson og Þor-
valdur Kristinsson þegar þeir
kynntu nýjan bækling, sem sam-
tökin hafa nýverið gefið út í sam-
vinnu við landlækni.
Böðvar Björnsson starfsmaður
á skrifstofu samtakanna sagði að
nú væri verið að dreifa bæklingn-
um og ætti hann að liggja frammi
á heilsugæslustöðvum og apó-
tekum, skólum og skemmtistöð-
um og sem víðast yfirhöfuð.
Markmiðið með útgáfu hans
væri að ná til sem flestra með
upplýsingar og ráðgjöf en það
væru þau vopn sem helst dygðu til
að hefta útbreiðslu eyðnisjúk-
dómsins illræmda.
Framkvæmdir við Borgar-
leikhús fóru 45 milljónum
króna fram úr fjárhagsáætlun
síðasta árs. Niðurstaðan varð sú
að 120 milljónir fóru í Borgar-
leikhús á síðasta ári í stað 75
miljjóna króna eins og áætlað
var. Ákvörðun um þetta var ekki
lögð fyrir borgarráð. Á þessu ári
renna 130 milljónir króna til
Borgarleikhúss.
Borgarfulltrúar Alþýðubanda-
lags, Kvennalista, Alþýðuflokks
og Framsóknarflokks mótmæltu
þessu harðlega á borgarstjórnar-
fundinum í fyrrakvöld. í bókun
flokkanna segir að þetta mál sé
þess eðlis að það hefði átt að fá
sérstaka umfjöliun í borgarráði,
þegar mönnum var ljóst hvert
stefndi.
„Teljum við þessa sjálftöku
með öllu óþolandi, sérstaklega
þegar þess er gætt, að borgar-
stjóri á sjálfur sæti í byggingar-
nefnd leikhússins," segir í bókun-
inni og jafnframt: „Þótt Borgarl-
eikhúsið sé ágæt menningarstofn-
un, þá réttlætir það ekki þessi
vinnubrögð.“
Minnhlutinn vísaði máli sínu til
stuðnings í 80. grein sveitar-
stjórnarlaga, þar sem segir að út-
gjöld sem þessi verði sveitar-
stjórn að samþykkja, í þessu til-
felli borgarráð.
Borgarfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins lögðu fram sérstaka
bókun, þar sem bókun minni-
hlutans er vísað á bug. Meiri-
hlutinn segir hana á misskjlningi
byggða, ranga og ódrengilega.
-gg
kvöld kl. 20.30. Myndin synir þá Valgeir
Kópavogur
Kvöldvaka með
Jóni úr Vör
Norræna félagið í Kópavogi
efnir til kvöldvöku með Jóni úr
Vör næstkomandi sunnudags-
kvöld, í Þinghól kl. 20:30, í tilefni
af sjötugsafmæli skáldsins nú
fyrir skemmstu.
Á dagskrá verður erindi, upp-
lestur og söngur. Hjörtur Pálsson
talar um Jón úr Vör og skáldskap
hans, leikarar lesa úr verkum
Jóns og Margrét Bóasdóttir syng-
ur lög eftir Þorkel Sigurbjörnsson
tónskáld við ljóð skáldsins. Und-
irleikari verður Margrét Gunn-
arsdóttir.
Eldri borgarar
Söngur og upp-
lestur í Sigtúni
Opið hús verður hjá Félagi
eldri borgara í Sigtúni í dag frá kl.
14 - 21.
Meðal gesta verða Skúli Hali-
dórsson píanóleikari, Ólafur
Magnússon sem syngur við undir-
leik Jónasar Ingimundarsonar og
Björn Th. Björnsson listfræðing-
ur.
Þorramatur verður á boðstól-
um og spilað og dansað.
G-listinn Reykjanesi
Kynningarfundur
í Mosfellssveit
G-hstinn á Reykjanesi heldur kynn ingariund í Hlégarði í MosfeDssveit,
mánudaginn 26. janúar kl. 20 J0
Funm efstu menn listans þau: velkomnir.
Geir, Ólafur Ragnar, Ásdís, Bjargey Gerum ísland að fyrirmynd.
og Jóhanna koma á fundinn. Allir
Laugardagur 24. janúar 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3