Þjóðviljinn - 24.01.1987, Blaðsíða 12
BORGARMAL
Borgarstjórn
Tvær
andstæöar
pólitískar
stefnur
Fjárhagsáœtlun borgarinnar hljóðar upp á
um 5,5 milljarða króna. Minnihlutinn lagði til
270 milljóna króna tilfœrslur tilfélagslegra
framkvœmda. Sjálfstœðisflokkurinn sýnir
hug sinn til barna og aldraðra
Auðvitað er marktækur mun-
ur á stefnu Sjálfstæðisflokksins
og okkar í minnihlutanum. I til-
lögum okkar annars vegar og
Sjálfstæðisflokksins hins vegar
birtast tvær andstæðar póiitískar
stefnur. Og tilraunir íhaldsins til
þess að sýna fram á hið gagn-
stæða eru ekki annað en hræðsla
við þau pólitísku tíðindi sem fel-
ast í samvinnu minnihlutaflokk-
anna, sagði Kristín Ólafsdóttir
borgarfulltrúi Alþýðubandalags-
ins m.a. á borgarstjórnarfundin-
um á fimmtudagskvöldið, þar
sem fjárhagsáætlun borgarinnar
fyrir liðandi ár var samþykkt.
Fjárhagsáætlun borgarinnar
upp á um 5,5 milljarða króna út-
gjöld eftir höfði borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins var sam-
þykkt á aukafundi borgarstjórnar
í fyrrakvöld.
Borgarfulltrúar Alþýðubanda-
lagsins, Alþýðuflokksins,
Kvennalista og Framsóknar-
flokks tóku upp það nýmæli að
standa saman að breytingartil-
lögum við áætlun Sjálfstæðis-
flokksins, sem mörkuðu skýra
andstæðu við þá stefnu sem birt-
ist í fjárhagsáætlun Sjálfstæðis-
flokksins.
Minnihlutinn stóð saman að
stefnumörkun, sem felst í því að
nýta stórauknar tekjur borgar-
sjóðs vegna kjaraskerðingar
ríkisstjórnarinnar til þess að efla
til muna þjónustu borgarinnar
við aldraða og börn, auk þess sem
flokkarnir vildu veita mun meira
fjármagni til uppbyggingar fé-
lagslegra íbúða.
Sjálfstæðisflokkurinn ýmist
felldi þessar tillögur eða vísaði
þeim frá, sem og aðrar minni
háttar tillögur minnihlutaflokk-
anna.
Þorrablót ABR
1987
verður haldið laugardaginn 31. janúar
í Risinu, Hverfisgötu 105.
Saia miða og borðapantanir: laugardag kl. 10-14,
sunnudag kl. 14-16, mánudag - föstudag kl. 17-
19 á skrifstofu ABR, Hverfisgötu 105 sími 17500.
Siðamaður verður Árni Björnsson þjóð-
háttafræðingur. Sif Ragnhildardóttir syng-
ur lög sem Marlene Dietrich gerði vinsæl á
fjórða áratugnum.
Nánar auglýst í vikunni.
Auglýsing um próf
fyrir skjalþýðendur
og dómtúlka
Þeir, sem öðlast vilja réttindi sem skjaþýðendur
og dómtúlkar, eiga þess kost að gangast undir
próf, er haldin verða í mars-apríl ef þátttaka verð-
ur nægjanleg.
Umsóknir skal senda dóms- og kirkjumálaráðu-
neytinu fyrir 13. febrúar 1987 á sérstökum eyðu-
blöðum, sem þar fást.
Við innritun í próf greiði próftaki gjald kl. 1.775.-
sem er helmingur gjalds fyrir löggildingu til að
verða dómtúlkur og skjalþýðandi. Gjaldið er óaft-
urkræft þó próftaki komi ekki til prófs eða standist
það ekki.
Dóms- og kirkjumálaráðurfeytið, 23. janúar
1987
Össur Skarphéðinsson, Bjarni P. Magnússon og Kristín Ólafsdóttir spá í tölur
fjárhagsáætlunarnóttina. Mynd Sig.
270 milljónir færðar til
Minnihlutinn lagði til að fjár-
magn til framkvæmda í þágu aldr-
aðra yrði aukið um 100 milljónir,
úr 118 í 218 milljónir króna.
Minnihlutinn lagði til að
hækka framlög til dagvistarstofn-
ana um tæplega helming frá fjár-
hagsáætlun Sjálfstæðisflokksins.
Lagt var til að stórauknu fé yrði
varið til bygginga leiguíbúða og
búseturéttaríbúða.
Minnihlutinn lagði til að fram-
lög til heilsugæslustöðvar í
Breiðholti yrðu nær þrefölduð.
Minnihlutinn lagði til að borg-
in verði 5 milljónum króna til
þess að hægt yrði að nýta Völund-
arhúsið sem unglingahús. Og
svona mætti lengi telja.
Hins vegar voru borgarfulltrú-
ar minnihlutaflokkanna sammála
um að bíða með stofnun 60
milljóna ráðhússjóðs, en leggja
féð í öldrunarsjóð.
Lagt var til að beðið yrði með
byggingu bílageymsluhúsa fyrir
tugi milljóna.
Minnihlutaflokkarnir voru á
móti því að verja tugum milljóna
til lóðakaupa af stóreigna-
mönnum.
Minnihlutinn vildi að bfla-
kostnaður borgarinnar, sem farið
hefur úr böndum, yrði skorinn
niður um 10 milljónir.
Alls vildi minnihlutinn færa
270 milljónir króna frá minnis-
vörðum úr steinsteypu til brýnna
félagslegra framkvæmda.
385% aukning
til fasteigna
í sameiginlegri bókun minni-
hlutans segir að það sem sé sam-
merkt með þessum tillögum sé að
þær miða að því að nýta fjármagn
til þess að gera Reykjavík að
mennskari borg. „Þær eru fluttar
með það að leiðarljósi að borgar-
yfirvöldum beri að standa í farar-
broddi fyrir aukinni samneyslu,
ekki síst á sviði félags- og hús-
næðismála."
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
Kvennalista gat þess á fundinum í
fyrrakvöld að framlag til fast-
eigna á þessu ári er áætlað 338,5
milljónir króna, en í áætlaðri út-
komu fyrra árs er þetta framlag
um 74 milljónir og hefur því vaxið
um 385% á milli ára.
Framlagið til fasteigna (bfla-
geymsluhúsa og þess háttar) er
nánast jafnhátt og áætlað fram-
kvæmdafé í skólabyggingum,
dagvistarheimilum, Borgarbóka-
safni, stofnunum aldraðra, æsku-
lýðsmálum, heilbrigðismálum og
leiguíbúðum. Þannig nýtir Sjálf-
stæðisflokkurinn góðærið.
Mismunandi áherslur
Auðvitað er ýmislegt nýtilegt
að finna í fjárhagáætlun borgar-
innar, sem nú hefur tekið á sig
endanlega mynd. Þar mætti m.a.
nefna stofnun húsafriðunarsjóðs
og veglegt framlag til byggingar
tæknigarða.
En það breytir ekki þeirri
staðreynd að tekjuauki, sem að
sögn Ingibjargar S. Gísladóttur
nemur 1,4 milljarði miðað við
framreiknaðar tekjur ársins
1983, rennur að allt of litlu leyti
til þess að byggja upp félagslega
þjónustu í borginni.
Út úr fjárhagsáætlun, þar sem
60 milljónum er varið í ráðhús-
sjóð í stað öldrunarsjóðs og 39
milljónum í bflageymslur í stað
dagvistarstofnana, má greinilega
lesa hug borgarfulltrúa Sjálf-
stæðisflokksins til aldraðra og
barna í borginni. Um það snerist
afgreiðsla þessarar áætlunar. Þar
lá hinn pólitíski ágreiningur milli
meirihluta og minnihluta í borg-
arstjórn.
-gg
Jafnrétti
Jafnrétti
afreksmanna
„Konur hafa nú löngu fengið
formlegt og síðar fyrir all löngu
raunverulegt jafnrétti í landi okk-
ar. Því er bæði rangt í dag og
konum ósæmandi að reka kvenn-
abaráttu út frá þeirri afstöðu, að
konur sem hópur standi höllum
fæti og þurfi sérstakra rannsókna
við,“ segir m.a. í frávísunartil-
lögu borgarfulltrúa Sjálfstæðis-
flokksins við tillögu borgarfull-
trúa minnihlutans um 1
milljón króna til rannsókna á lífi
og starfi reykvískra kvenna.
Frávísunartillöguna flutti Ing-
ólfur Sveinsson varaborgarfull-
trúi og varð þetta hans jómfrúr-
ræða í borgarstjórn.
Og það er óhætt að segja að
fáar jómfrúrræður hafi kallað á
svo sterk viðbrögð. Tillaga Ing-
ólfs fékk óblíðar móttökur hjá
borgarfulltrúum minnihlutans,
sem bókuðu harðorð mótmæli
gegn þeirri afstöðu sem þar kem-
ur fram.
Og undir lok fundarins flutti
IngibjörgS. Gísladóttirsvohljóð-
andi frávísunartillögu á tillögur
um styrki til afreksmanna:
„íslenskir afreksmenn hafa
fyrir löngu fengið formlegt
jafnrétti til íþróttaiðkana í landi
okkar. Ættu þeir óhindrað að
geta stundað íþrótt sína án þess
að til komi sérstakt framlag af al-
mannafé.
Það er rangt að ætla afreks-
mönnum endalaust stöðu sem
einhvers konar fyrirbæra, sem
eigi sér enga hliðstæðu, og sem
standi höllum fæti í samfélagi
manna.
Því er bæði rangt í dag og
Sjálfstæðismönnum ósæmandi að
reka íþróttamálin út frá þeirri af-
stöðu, að afreksmenn sem hópur
standi höllum fæti og þurfi sér-
stakra styrkja við.
Ég legg því til, að borgarstjórn
samþykki að vísa tillögunni frá
sem ástæðulausri, óþarfri og
jafnvel óviðeigandi."
-gg
12 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN
Auglýsing um deili-
skipulag Kvosarinnar
Með vísan til 17. og 18. greinar laga nr. 19/1964
er hér með auglýst deiliskipulagstillaga Kvosar-
innar, sem afmarkast af Höfninni, Lækjargötu,
Tjörninni og Aðalstræti.
Deiliskipulagstillagan felur í sér breytingu á stað-
festu deiliskipulagi Pósthússtrætisreitsins
staðgr.r. 1.1405 og breytingu á aðalgatnakerfinu.
Með deiliskipulagstillögu Kvosarinnar eru teknar
ákvarðanir varðandi eftirtalin atriði sem fram
koma á skipulagsuppdrættinum og fylgigögnum:
Aðalgatnakerfið, landnotkun, nýtingarhlutfall
lóða, hæðir húsa.
Uppdráttur ásamt líkani og fylgigögnum liggja
frammi almenningi til sýnis hjá Byggingarþjón-
ustunni, Hallveigarstíg 1, frá og með föstudegin-
um 23. janúartil miðvikudagsins 18. mars 1987.
Opin á virkum dögum frá kl. 9-18.
Fylgigögn eru: Greinargerð arkitekta með skýr-
ingaruppdráttum (dags. 17. nóv. 1986). Lóða-
blöð í hefti, dags. 17. nóv. 1986. Greinargerð
borgarverkfræðings, „Kvosin, skipulag umferðar
og bílastæða", dags. okt. 1986.
Athugasemdum, ef einhverjar eru, skal skila
skriflega til Borgarskipulags Reykjavíkur, Borg-
artúni 3, eigi síðaren kl. 16.15, miðvikudaginn 1.
apríl 1987. Þeir sem eigi gera athugasemdir
innan tilskilins frests, teljast samþykkir deiliskipu-
lagstillögunni.
Borgarskipulag Reykjavíkur,
Borgartúni 3,
105 Reykjavík.