Þjóðviljinn - 28.01.1987, Page 1
Miðvikudagur 28. janúar 1987 21. tölublað 52. ðrgangur
Húsnœðislánakerfið
Guðmundur Pálsson (LR-skemmunni á Meistaravöllum, Þar sem Djöflaeyjan rís. Leikgerð Kjartans Ragnarssonar eftir sögu Einars Kárasonar verður frum-
sýnd þar á sunnudaginn, - sjá umfjöllun á síðu 7. (mynd: Sig.).
Við Htum þannig á að þessi
nefnd hafi alls ekki lokið þeim
störfum sem henni var ætlað að
gegna. Ríkisstjórnin kippti
grunninum undan þessu starfi
með fjárlögum og fulltrúar
stjórnarflokkanna í nefndinni
treystu sér ekki til þess að ræða
þessi mál til hlítar. En ef haldið
verður áfram á sömu braut held-
ur greiðslubyrði fólks áfram að
aukast og biðraðirnar í húsnæðis-
stofnun sömuleiðis, sagði Guðni
Jóhannesson fulltrúi Abl. í milli-
þinganefnd um húsnæðismál í
samtali við Þjóðviljann í gær.
f skýrslu milliþinganefndarinn-
ar, sem hóf störf árið 1985, um
húsnæðiskerfið segir m.a. að það
sé orðið „óhemju stórt og dýrt“
og sé miðað við framlag ríkis-
sjóðs til Byggingarsjóðs verka-
manna á þessu ári, sé „ekki hægt
að tala um að horfur kerfisins séu
bjartar.“
Hlutverk nefndarinnar var að
taka húsnæðiskerfið til endur-
skoðunar og leggja fram tillögur
til úrbóta. Nefndin er hins vegar
klofin í tvennt í afstöðu sinni og
sameiginleg niðurstaða hennar er
nær engin.
Guðni sagði í gær að til að
mynda væri engin sameiginleg af-
staða tekin hvað varðar félags-
legar íbúðir. „Það kom í ljós við
gerð fjárlaga að vilji ríkisstjórn-
arinnar til þess að takast á við
uppbyggingu félagslega kerfisins
er enginn. Samkvæmt fjárlögum
er ekkert svigrúm til þess að
mæta stórkostlegri þörf fyrir
leiguíbúðir, en það hefur komið í
ljós að þörf er fyrir 2.500 slíkar á
landinu," sagði Guðni.
Mikill ágreiningur var milli að-
ila í nefndinni, fulltrúa stjórnar-
flokkanna annars vegar og stjóm
arandstöðu hins vegar. Þannig er
í séráliti fulltrúa Alþýðubanda-
lags, Kvennalista og Alþýðu-
flokks bent á að ríkisstjórnin hafi
með fjárlögum þessa árs dregið
verulega úr framlögum til hús-
næðislánakerfisins og stungið
SVR
Ferðum
fækkað?
Sigurjón Fjeldsted stjórnarfor-
maður SVR hefur varpað fram
þeirri hugmynd að lækka tíðni
ferða hjá vögnum fyrirtækisins,
þannig að ferðir yrðu á 20 mín-
útna fresti í stað 15 mínútna eins
og nú er. Farþegum hjá SVR
fækkaði á síðasta ári og afkoma
fyrirtækisins varð slök, og er hug-
mynd Sigurjóns því að bregðast
við þessu m.a. með fækkun ferða
eða hækkun fargjalda.
-gg
Sjá síðu 5
Snót
Náðu aldurshækkunum
Snót undirritaði samninga ígœr.
Náðu starfsaldurshœkkunum inn í samninginn
Igær undirrituðu fulltrúar
Verkakvennafélagsins Snótar í
Vestmannaeyjum samkomulag
það sem félagið náði við vinnu-
veitendur í fyrrakvöld.
Samkomulagið sem var borið
undir félagsfund sama kvöld var
samþykkt einróma með þeim
fyrirvara að gildistími samkomu-
lagsins verði frá 1. desember sl.,
en vinnuveitendur hafa sett sem
skilyrði að gildistíminn verði frá
undirritun samkomulagsins.
í gær hélt Snót fund með vinnu-
veitendum þar sem krafa félags-
manna var lögð fram en vinnu-
veitendur neituðu að koma til
móts við kröfuna. Stefnt er að því
að boða til félagsfundar hjá Snót
á fimmtudag þar sem tilboð vinn-
uveitenda verður borið undir fé-
lagsmenn.
Vilborg Þorsteinsdóttir for-
maður Snótar sagði í samtali við
Þjóðviljann í gær að erfitt væri að
spá fyrir um hvernig félagsmenn
afgreiddu málið en að konur hafi
verið mjög harðar á því á síðasta
félagsfundi að samningarnir ættu
að vera afturvirkir. Að öðru leyti
hafi konurnar verið tiltölulega
sáttar við samkomuiagið.
í samkomulaginu er gert ráð
fyrir sömu grunnlaunshækkun og
í ASÍ/VSÍ samkomulaginu frá því
í desember en til viðbótar náðu
Snótarkonur ma. starfsaldurs-
hækkunum inn en krafa þeirra
miðaðist helst við það. Konur
með 5 ára starfsreynslu í fisk-
vinnslu fá nú 2% hækkun, konur
eftir 10 ára í fiskvinnslu í
Vestmannaeyjum fá 3% og kon-
ur með 15 ára starfsreynslu hjá
sama vinnuveitenda fá 4% hækk-
-K.ÓI.
Grandi
Davíð situr á upplýsingum
Fulltrúar minnihlutans í borgarráði fara fram á yfirlityfir stöðuna hjá Granda hf.
Hafa engar upplýsingar fengið síðan í júlí ífyrra
Reykjavíkurborg á 75% í þessu
r
I fyrirtæki og því eigum við sem
kjörnir fulltrúar borgarbúa rétt á
að fá að fylgjast reglulega með
stöðu fyrirtækisins, sagði Ingi-
björg S. Gísladóttir borgarfull-
trúi Kvennalista í samtali við
Þjóðviljann í gær, en fulltrúar
minnihlutans ítrekuðu á fundi
borgarráðs í gær beiðni um yfirlit
yfir rekstrarstöðu Granda hf.
Borgarfulltrúar minnihlutans
hafa engar upplýsingar fengið um
stöðu mála hjá Granda síðan í júlí
í fyrra. Þeir óskuðu eftir slíku yf-
irliti fyrir all nokkru og ítrekuðu
þá ósk í gær.
„Okkur finnst undarlegt að
borgarstjóri, sem fer með hlut
borgarinnar í Granda, skuli sitja
á upplýsingum um stöðuna,“
sagði Ingibjörg.
-gg
Milliþinganefnd skilar auðu
Lítið á skýrslu milliþinganefndar um húsnæðismál að byggja. Ágreiningur milli stjórnar og stjórnarandstöðu.
Nœrengin sameiginleg niðurstaða. Guðni Jóhannesson: Fjárlög kipptu grunninum undan starfinu.
Stjórnin hefur engan vilja til að takast á við vandann
undan söluskattstiginu, sem var greiðsluerfiðleikum. ríkisins til Byggingarsjóðs verka- ið til þess að sliga sjóðinn á fáum
ætlað að koma til móts við fólk í Þar segir einnig að framlag manna sé svo lágt að það geti orð- árum. “88