Þjóðviljinn - 28.01.1987, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 28.01.1987, Blaðsíða 12
ORÐ IEYRA Norðri, Suðri og Vestri skrifa: JB - ekkiBJ Fréttaskýring Þegar illskiljanlegir atburðir gerast eru aðskiljanlegir menn fengnir til að útskýra þá á óskiljanlegan hátt. Þetta er kall- að „fréttaskýring" og er aðalstolt íslenskrar fjölmiðlunar, næst á eftir hálsbindasafni Páls Magnús- sonar. Til dæmis gerðist það í haust, að þrír þingmenn úr Bandalagi jafnaðarmanna urðu svo leiðir á flokknum sínum, að þeir gengu í Alþýðufiokkinn. Þetta voru Stef- án Benediktsson, Kolbrún Jóns- dóttir og Guðmundur Einarsson. (Og auk þeirra ein kona, Kristín Kvaran, sem var öllu klókari en þremenningarnir því að hún fór aila leiðina í einum áfanga og gekk strax í Sjálfstæðisflokkinn). Þessi atburður varð þegar í stað tilefni mikilla fréttaskýringa, sem enginn skildi, en alla vega var niðurstaðan sú, að þetta væri hið besta mál af ýmsum ástæðum: 1. Af því að BJ væri dautt hvort sem var og flokkssjóðurinn tæmdur. 2. Af því að kjósendur hefðu ein- staklega gaman af svona gríni. '3. Af því að BJ ætti bara þing- menn en enga kjósendur, en Alþýðuflokkurinn ætti bara kjósendur en enga þingmenn. 4. Af því að JB (eins og í Jón Baldvin) væri vinsælli skamm- stöfun en BJ. 5. Af því bara. Hafandi lesið aliar tiitækar fréttaskýringar biðu menn síðan þess sem verða vildi og atburða- rásin varð skrautlegri en bjartsýnustu menn þorðu að vona: Stefán Ben. hættur - af ástæð- um sem ókurteisi væri að rifja upp. Kolbrún Jónsdóttir er líka hætt - af ástæðum sem verða raktar hér á eftir. Og Guðmundur Einarsson mætti til þings með reyfað höfuð eftir kosningaferðalag um Aust- firði í jólafríinu sínu undir kjör- orðinu: Brjótum múrinn! Og nú Iiggja fréttaskýringar yfir því að útskýra gengi JB- frambjóðendanna. Innlegg í þá fréttaskýringu er eftirfarandi við- tal: Frétta-Haukur: Segðu mér Guðmundur, hvernig metur þú stöðu ykkar í JB-hópnum í fram- boðsmálum? Guðmundur: Ef við gefum okkur það, að til sé einhver JB-létBJ hverfa heildarmynd þá mundi ég segja að hún væri mjög góð. Frétta-Haukur: A hverju merkirðu það? Guðmundur: Ef við tökum Stebba Ben fyrst þá mundi ég segja að hann hefði lent í öruggu þingsæti hérna í Reykjavík, ef hann hefði ekki lent í klandri. Frétta-Haukur: En ef við víkj- um að Kolbrúnu? Guðmundur: Þá mundi ég segja að staða hennar væri mjög góð, ef hún væri Akureyringur. Frétta-Haukur: En nú er hún ekki Akureyringur. Guðmundur: Að vísu ekki, en miðað við það þá mundi ég segja að staða hennar sé mjög góð. Hún kemst að vísu ekki á þing, en það er ekki vegna þess að hún er JB-ari, heldur vegna þess að hún er ekki Akureyringur. Frétta-Haukur: En staða þín, Guðmundur? Guðmundur: Ég mundi segja að hún sé mjög góð miðað við stöðu Stebba og Kollu. Ég er nokkurs konar varaformaður Al- þýðuflokksins, því að JB treysti sér ekki til að fara í framboð á Austfjörðum, heldur bað mig um að fara í sinn stað. Alþýðuflokk- urinn hefur aldrei fengið mann kjörinn þarna fyrir austan, svo að JB sagði sjálfur við mig: Gummi minn, á Austurlandi þurfum við að brjóta niður múrvegg. Nú þarf ég á þínum haus að halda. Frétta-Haukur: Finnst þér vera komin sprunga í hann? Guðmundur: Nei, nei, þetta var bara smáskráma. Ég er alveg að verða góður aftur. Frétta-Haukur: Ég átti nú við múrinn. Guðmundur: Við sjáum bara til. Það eru þykk í mér höfuð- beinin. Er það ekki JB? JB: Jú Gummi minn. Taktu bara magnylið þitt og vertu ekki að þreyta þig á að hugsa. Frétta-Haukur: JB, hvað segir þú um stöðuna? JB: Staðan er góð. Það var að vísu Ieiðinlegt með hana Kol- brúnu að hún skyldi álpast þarna á Norðurlandi eystra inn í einka- keppni tveggja Akureyringa. En stjórnmálin eru þannig. Guðmundur: Já hvað sagði ég ekkj. JB: Viltu ekki fara að leggja þig, Gummi minn. Þú ert svo slæmur í höfðinu. Hvfldu þig, hvfld er góð. Frétta-Haukur: í alvöru talað: Hvernig líst þér á möguleika Guðmundar á Austurlandi? JB: Ég er í nánast engum vafa um að hann Guðmundur flýgur inn. Hann þarf ekki að gera nokkurn skapaðan hlut annan en brjóta niður múrinn og þrefalda fylgið frá síðustu kosningum. Smíthereens r i Ópemnni í byrjun næsta mánaðar er væntanleg til landsins bandaríska hljómsveitin THE SMITHERE- ENS og mun hún halda tónleika í íslensku Óperunni 3. febrúar. THE SMITHEREENS er fjögurra manna hljómsveit sem stofnuð var í New Jersey fyrir 7 árum. Tónlistin sem hljómsveitin flytur er melódískt rokk sem sam- einar á sérstakan hátt laglínur Bítlatímabilsins og kraft nýja rokksins. THE SMITHEREENS var lengi framanaf kölluð „best Ljóðakver P. Barða Kárasonar varðveitta leyndarmál poppsins“ en það breyttist í sumar þegar hljómsveitin gaf út sí.ia fyrstu breiðskífu „Especially For You“. Gagnrýnendur bæði vestan hafs og austan áttu ekki nógu stór orð til að lýsa hrifningu sinni á þessari frumraun THE SMITHERE- ENS. Koma hljómsveitarinnar hing- að til lands er hvalreki á fjörur íslenskra tónlistaráhugamanna og þykja aðstandendum sérlega ánægjulegt að geta boðið uppá tónleika þeirra í einu af bestu tónleikahúsum borgarinnar; Óperunni. Forsala aðgöngumiða verður í Gramminu og Fálkanum. Hún hefst föstudaginn 16. janúar. Hljómsveitin The Smithereens. Rðvaromman og amma dreki Sögur Guðrúnar Helgadóttur komnar á færeysku „Ég öskra / og orðin bergmála milli hugsana minna / sem ennþá eru að mótast / af uppvexti mín- um“. Þetta eru lokaorð í ljóðakveri sem Þ. Barði Kárason, 23 ára gamall auglýsingateiknari hefur gefið út og kallar „í þessum morgni“. Geymir hún óbundin ljóð sem flest mætti að líkindum fella undir „opna skólann" svo- nefnda. Kennarafélagið í Færeyjum hefur gefíð út tvær skáldsögur Guðrúnar Helgadóttur, __,Jón Oddur og Jón Bjarni“ og „í abb- asa húsi“. Sögurnar eru báðar þýddar af Martin Næs, en mynd- irnar í „í abbasa húsi“ eru eftir Mikael V. Karlsson og Kqlbrún Kjarval myndskreytir Jón Odd og Jón Bjarna. Til gamans má geta þess að amma dreki heitir á færeysku rpvaromman, og er nafn hennar skýrt með eftirfarandi hætti í sög- unni: „Rpvaramman. Navnið kom av, at omma teirra av og á helt rpðu í útvarpinum, og tá var altíð sagt: Næst á skránni verður ein rpða, og útvarpsmaðurinn segði altíð „r0va“ og ikki r0ða: Margreta Hjálmarsdóttir heldur nú r0ðu um..., og tað vóru ikki smáting, sum omma teirra helt r0ðu um. Men hetta var eisini hennara lívsstarv, at halda r0ðu, og tí kallaðu teir hana bara r0var- ommuna. R0varaomman segðist að vera ein avbera góður r0ð- ari... “ Það er ekki alltaf einfalt að þýða á milli mála, þótt tungumál- in séu lík. ólg. 12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Mlðvlkudagur 28. janúar 1987 Hann flýgur inn. Er það ekki, Gummi minn? Gummi: Jú, jú! Á ég að rjúka á múrinn núna? JB: Vertu rólegur vinur, þetta er veggurinn á Alþingishúsinu. Farðu bara inn um dyrnar og vittu hvort hann Albert nennir ekki að tefla við þig. Frétta-Haukur: Eitthvað að lokum? JB: Já, mig langar til að bæta því við í fyllstu einlægni, að það væri óbætanlegt tjón ef allt þetta helv... ágætis pakk, ég meina fólk, dytti út af þingi. Það væri synd ef þessir skemmtilegu keppinautar okkar, ég meina fé- lagar, yrðu að athlægi. Kolbrún Jónsdóttir ekki Akur- eyringur- inn! Frétta-Haukur: Nú lýstir þú því yfir hvað eftir annað, að þú ætlaðir sjálfur í framboð á Austfjörðum. JB: Hann var góður þessi! Frétta-Haukur: Takk fyrir. Guðmundur: Æ, hver fjárinn! JB: Rólegur, Gummi minn. Hurðin opnast inn. /fZfc,- Valsar eftir Kristin Reyr Kristinn Reyr skáld hefur lagt gjörfa hönd á margt - hann hefur skrifað leikrit, m.a. fyrir útvarp, margar ljóðabækur, málað og samið tónlist. Nú síðast kom út sjöunda nótnaheftið frá hans hendi og geymir fimm valsa. Eyþór Þorláksson útsetti valsa Kristins. Ljóð- oimur Komið er út 4. hefti Ljóðorms. Ljóðormur er tímarit þar sem ljóðskáld birta ljóð sín, áður óbirt verk. Einkum leita útgef- endur til nýgræðinga sem vilja koma ljóðum sínum á framfæri. í 4. tbl. Ljóðorms er að finna ljóð eftir Jórunni Sörensen, Anton Helga Jónsson, Álfheiði Lárus- dóttur, Braga Olafsson, Þorvald Friðriksson, Hörð Gunnarsson, Jóhann Árelíus og Gunnar Hólmstein. Auk þeirra birtir Álf- heiður Lárusdóttir þýðingar sínar á tveimur ljóðum eftir íranska skáldið Sohrab Sepehri og Guð- bergur Bergsson þýðir ljóð nokk- urra portúgalskra skálda. í þessu hefti Ljóðorms er einnig merki- legt viðtal Eysteins Þorvalds- sonar við Jerome Rothenberg, bandarískt ljóðskáld og bók- menntafræðing. í Ljóðormi er sem fyrr birt yfirlit yfir þær ljóð- bækur sem út komu árið 1986 áður en blaðið fór í prentun. Út- gefendur Ljóðorms eru þeir Eysteinn Þorvaldsson, Heimir Pálsson, Pjetur Hafstein Lárus- son og Þórður Helgason.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.