Þjóðviljinn - 28.01.1987, Page 5
BORGARMAL
Umsjón:
Garðar
Guðjónsson
Jr ; ; ,jp}& m : i y i , 'S ; , y. 'f j ij. <8
K I li
" r;' W<M m
Hugdetta Sigurjóns Fjeldsted um að draga úr þjónustunni er auðvitað afleit. Strætó á þvert á móti að hefja sókn og leggja út í samkeppni við einkabílismann með auglýsingar og bætta þjónustu að
vopni, segir Guðrún. Mynd E.OI. n ,
m Stræto
I samkeppni við einkabílinn
Farþegum SVRfœkkaði á síðasta ári. Sigurjón Fjeldsted stjórnarformaður:
Hœkkunfargjalda eða minniþjónusta. Mœtti lœkka tíðniferða.
Guðrún Ágústsdóttir: SVR verður að fara út íharða samkeppni við einkabílinn.
Auglýsingar og betriþjónusta rétta leiðin. Líst illa á uppgjafartóninn íSigurjóni
Þessi upgjafartónn Sigurjóns
Fjeldsted leggst auðvitað afar illa
í mig. Strætisvagnar Reykjavíkur
verða eins og önnur fyrirtæki að
berjast fyrir tilveru sinni þegar
samdráttar verður vart og tU þess
eru ýmsar leiðir. Rétta leiðin er
ekki sú að leggja árar í bát, sagði
Guðrún Agústsdóttir borgarfull-
trúi og fulltrúi Alþýðubandalags-
ins í stjórn SVR þegar Þjóðviljinn
leitaði álits hennar á hugmynd
Sigurjóns Fjeldsted formanns
SVR um að fækka ferðum vagna
fyrirtækisins í kjölfar samdráttar
og fækkunar farþega.
Sigurjón fjallaði um hag strætó
í ræðu á borgarstjórnarfundi sl.
fimmtudagskvöld. Hann gat þess
að farþegum hefði fækkað nokk-
uð á síðasta ári og að útlit væri
fyrir að kostnaðarhlutdeild borg-
arsjóðs í rekstri fyrirtækisins
myndi hækka á þessu ári, ef ekki
yrði gripið til niðurskurðar á
þjónustu eða hækkana á fargjöld-
um.
Hækkanakvótinn
búinn
Það hefur verið Sjálfstæðis-
flokknum í Reykjavík mikið
kappsmál að láta fargjaldatekjur
standa undir 75% eða jafnvel
100% rekstrarútgjalda SVR.
Þetta hefur að vísu ekki gengið
eftir, því í fyrra stóðu fargjöld
undir um 67% af rekstrarkostn-
aði og að sögn Sigurjóns er útlit
fyrir að þetta hlutfall fari niður í
um 63% á þessu ári. Að öllu
óbreyttu.
En til þess að mæta þessu virð-
ist sem grípa eigi til þess ráðs að
minnka þjónustuna og gera
reksturinn þannig ódýrari, en
hækka fargjöld að öðrum kosti.
Dragbítur á fargjaldahækkanir er
hins vegar samkomulag verka-
lýðshreyfingar og ríkisvalds um
aðhald í verðlagsmálum. Segja
má að SVR hafi klárað hækkan-
akvótann sinn með fargjalda-
hækkunum í ársbyrjun.
Sigurjón nefndi sérstaklega þá
hugmynd að lækka tíðni ferða,
þannig að tekin yrði upp 20 mín-
útna tíðni í stað 15 mínútna eins
og raunin er í flestum hverfum
borgarinnar. En hvernig vill
Guðrún þá bregðast við erfið-
leikum í rekstrinum?
Sókn gegn
einkabílisma
„Sú hugdetta Sigurjóns að
mæta samdrætti með því að
leggja rófuna á milli fótanna er
afleit og einmitt það sem SVR
ætti ekki að gera.
Það er alveg rétt að afkoma
SVR var ekki góð í fyrra. Farþeg-
um fækkaði talsvert mikið, m.a.
í kjölfar aukins innflutnings á bfl-
um vegna tollalækkunar og lækk-
unar bensínverðs, og það segir til
sín í rekstrinum. En SVR verður
að sjálfsögðu að berjast gegn
þessari þróun, hefja sókn gegn
einkabílismanum.
Það mætti að mínu mati gera í
fyrsta lagi með því að auglýsa
þjónustununa mun betur. Ein
leiðin til þess er að fela listamanni
að gera auglýsingaspjöld fyrir
fyrirtækið. Við borgarfulltrúar
minnihlutans fluttum tillögu um
það við gerð fjárhagsáætlunar að
verja 500 þúsund krónum til
þessa verkefnis, en sú tillaga
hlaut ekki náð fyrir augum Sjálf-
stæðisflokksins fremur en aðrar
tillögur okkar.
Þetta hefur hins vegar verið
gert víða erlendis með góðum ár-
angri, t.d. hjá dönsku rikisjárn-
brautunum.
í öðru lagi verður fyrirtækið að
bæta þjónustu sína og laða þann-
ig að fleiri farþega. Strætisvagnar
Reykjavíkur verða að fara út í
harða samkeppni við notkun
einkabflsins og sérfræðingar í
þessum efnum segja að fyrirtæki
eins og þetta geti fyrst staðið sig í
slíkri samkeppni þegar það býður
upp á ferðir á 10 mínútna fresti.
Þannig að með því að fækka ferð-
um stefna menn í þveröfuga átt.“
Þjóðhagslega
hagkvæmur rekstur
„Það skiptir miklu máli í þessu
sambandi að þessi þjónusta sé að-
laðandi í augum almennings, að
vagnamir séu þægilegir, að þörf á
að skipta um vagn verði haldið í
lágmarki og að fargjöld verði á
skaplegu verði.
Áætlun um þetta er til hjá
SVR. Á ámnum 1980-1983 var
leiðakerfið endurskoðað og
lagðar fram tillögur um að laga
það frekar að óskum og þörfum
almennings. Þessu hefur bara
ekki verið hrint í framkvæmd.
Strætó á tvímælalaust að geta
farið út í samkeppni við einkabfl-
inn með því að auglýsa þjónustu
sína á smekklegan hátt og auðvit-
að ekki síst með því að bjóða upp
á enn betri þjónustu.
Það er enginn vafi á því að
rekstur almenningsvagna er
þjóðfélagslega hagkvæmur, en á
hinn bóginn tekur einkabflisminn
sinn toll. Einkabíllinn kallar á
byggingu dýrra umferðarmann-
virkja, t.d. bflageymsluhúsa sem
munu kosta borgarsjóð 60-70
milljónir króna á þessu ári sam-
kvæmt fjárhagsáætlun. Þá má
nefna þá gjaldeyrissóun sem felst
í gegndarlausum innflutningi bif-
reiða, kostnað almennings af
kaupum á bifreiðum og rekstri
þeirra, og síðast en ekki síst veru-
lega fjölgun umferðarslysa sam-
fara aukinni umferð.“
Aldraðir, konur
og börn í strætó
„Almenningsvagnar eru val-
kostur til þess að hamla á móti
þessu, en menn eru auðvitað að
færa klukkuna til baka með því
að draga úr þjónustunni, eins og
Sigurjón Fjeldsted hefur boðað.
Með því mun SVR fæla frá fjölda
manns, sem annars myndu not-
færa sér þessa þjónustu, auk þess
sem aðstaða þeirra sem hafa ekk-
ert val versnar til muna. Það hef-
ur sýnt sig að meirihluti farþega
SVR eru konur, börn og aldraðir
og þessir aðilar hafa oft á tfðum
ekki um annað að velja en að
ferðast með strætó.“
Getur sameiginlegur rekstur
almenningsvagna á höfuðborgar-
svæðinu ekki orðið til þess að
styrkja stöðu þeirra verulega?
„Jú, sem betur fer er til stór-
huga fólk sem horfir fram á við og
hefur unnið að því að gera sam-
ræmingu almenningsvagnaþjón-
ustu á höfuðborgarsvæðinu
mögulega.
Kostir þess eru aui ír. Þar
með verður hægt að samnýta
þetta kerfi og bæta þj< iustu við
farþega, án þess að stnaður
aukist. Forstjóri S\ '.ynnti
skýrslu um þetta á alfundi
Samtaka sveitarfélaga á höfuð-
borgarsvæðinu í haust, en síðan
hefur því miður lítið gerst í þess-
um efnum. En mér fyndist ekki
óeðlilegt að Reykjavíkurborg
hefði þarna frumkvæði, þar sem
hún er langstærsu og öflugasti
aðilinn," sagði Guðrún.
-gg
Miðvikudagur 28. janúar 1987 ÞJÓÐVILJINN - SlÐA 5