Þjóðviljinn - 28.01.1987, Side 7
Hverstórviðburðurinn rek-
ur nú annan í leikhúslífi höfuð-
borgarinnar: um áramótin
opnaði Þjóðleikhúsið nýtt
leikhús meðfrumsýningu á
verki ÞórunnarSigurðardótt-
ur, Leikfélagið hélt nýverið
upp á 90 ára afmælið með
áhrifamikilli sýningu á Degi
vonar eftir Birgi Sigurðsson,
(slenska óperan frumsýnir
Aidu við fagnaðarlæti og nú
stendurfyrirdyrumfrumsýn-
ing á Djöflaeyjunni, leikgerð
Kjartans Ragnarssonar á
skáldsögum Einars Kára-
sonar, Guileyjunni, og Þar
sem djöflaeyjan rís. Verður
leikritið frumsýnt á sunnudag-
inn kemur í Leikskemmu
Leikfélagsins við Meistara-
velli, og hafa Reykvíkingar þá
eignast enn eitt leikhúsið í við-
bót.
Blaðamenn fengu að sjá
æfingu á Djöflaeyjunni í vikunni
og verður ekki annað sagt en að
með þessari sýningu sé blásið
fersku lofti inn í íslenskt leikhús-
líf. Hjálpast þar allt að, skemmti-
legt leikrit, snjöll uppfærsla, frá-
bær leikur og síðast en ekki síst
nýstárlegt umhverfi sem býður
upp á marga óvænta möguleika.
Leikskemma L.R. er gömul
birgðaskemma með bragga-
formi, sem áður var í eigu Bæjar-
útgerðarReykjavíkur. Braggarn-
ir hafa nú verið gerðir upp með
leikhúsrekstur fyrir augum. Sett
hefur verið nýtt hitakerfi í húsið,
áhorfendapallar fyrir um 170
áhorfendur hafa verið smíðaðir,
og er öll aðstaða fyrir áhorfendur
til fyrirmyndar. Hefur meira að
Að neðan: Guðmundur Pálsson og Kristján Franklín Magnús með dollaragrínið Ford Fairline.
segja verið settur upp veitinga-
staður á staðnum í tilefni sýning-
arinnar.
Kjartan Ragnarsson höfundur
leikgerðarinnar og leikstjóri
verksins sagði að við gerð hand-
ritsins að leiknum hefði hann
þegar haft í huga hrátt húsnæði í
líkingu við það sem bragginn byði
upp á. „Þegar BÚR-bragginn
fékkst svo undir þessa sýningu í
haust fórum við Grétar Reynis-
son höfundur leikmyndar að
huga að þeim möguleikum sem
húsið býður upp á. Við vorum
með leikara í æfingu hér í eina
viku til þess að kanna hugsanlega
möguleika hvað varðar staðsetn-
ingu leiksviðs, áhorfendapalla
o.s.frv. Við þurftum að læra
tungumál hússins, ef svo mætti
segja, því hér eru aðstæður á
margan hátt ólíkar því sem við
eigum að venjast í hefðbundnu
leikhúsi. En ég vil taka það fram
að þetta er húsnæði sem hefur
verið brýn þörf fyrir, þótt ekki sé
ljóst um hvort það fæst til frekari
leikhússtarfsemi."
Áhorfendapallarnir hafa verið
byggðir á ská þvert yfir braggann
og fyrir framan þá er stórt rými
sm myndar leiksvið. Auk þess
eru pallar meðfram veggjum allt í
kringum áhorfendpallana, sem
nýtast einnig til leiks, þannig að
leikendur nýta ekki bara
leiksviðsrýmið, heldur nánast allt
húsið. Það vekur athygli þegar
komið er í salinn að ekki sést nein
leikmynd, sem heitið getur því
nafni. „Mér finnst það vera ár-
angur út af fyrir sig að gera leik-
mynd sem sést ekki fyrr en farið
er að leika,“ sagði Grétar Reynis-
son leikmyndasmiður við blaða-
mann. En þegar leikurinn hefst,
koma í ljós ýmsar þær breytingar
á upphaflegri gerð skemmunnar,
sem eru annars þess eðlis að þær
gætu eins verið hluti af upphaf-
legri gerð hennar.
„Þetta er spurning um val á
leið,“ sagði Kjartan Ragnarsson
um uppfærslu sína á verkinu.
„Það hefði verið hægt að velja
ítarlegri leikmynd, en okkur
fannst húsið sjálft gefa raunsæja
mynd af því umhverfi sem verkið
gerist í.“
Þær breytingar sem gerðar
hafa verið á skemmunni eru að
mestu leyti unnar af leikurunum
sjálfum. Sagði Stefán Baldursson
leikhússtjóri að kostnaði við
þessa sýningu hefði verið haldið í
lágmarki, og hefðu aðeins einn
smiður og einn tæknimaður unn-
ið við breytingar á skemmunni.
Dýrasta framkvæmdin hefði ver-
ið nýtt hitakerfi í húsið, en á móti
hefði komið, að mörg fyrirtæki
hefðu boðið efni og aðstoð við
þessa framkvæmd. Þannig eru
sætin í húsinu til dæmis gefin af
Jóni Ragnarssyni í Regnbogan-
um, en það eru gömlu sætin úr
Hafnarbíói, sem þarna hafa feng-
ið nýtt hlutverk.
Leikendur í Djöflaeyjunni eru:
Margrét Ólafsdóttir, Guðmund-
ur Pálsson, Hanna María Karls-
dóttir, Margrét Ákadóttir, Har-
ald G. Haraldsson, Edda
Heiðrún Backman, Guðmundur
Ólafsson, Helgi Björnsson, Þór
Tulinius og Kristján Franklín
Magnús, og fara allir með stór
hlutverk.
Tónlistin í verkinu er að mestu
leyti slagarar frá 6. áratugnum,
og aðstoðar Jóhann G. Jóhanns-
son við flutning hennar, en Egill
Árnason er tækni- og ljósastjóri.
Að lokum má geta þess að
veitingahúsið Torfan mun sjá um
veitingarekstur í gamla mötu-
neytinu, sem áfast er bragganum,
þá daga sem leiksýningar verða.
Verður boðið upp á mat (3 mat-
seðlar) frá kl. 18, og bar verður
opinn í hléi og eftir sýningu, en þá
verður einnig hægt að fá létta
rétti.
Sýningar á Djöflaeyjunni
munu hefjast kl. 20.00, og verður
miðasala í skemmunni-frá kl. 16
sýningardaga, en að öðru leyti
mun miðasala fara fram í Iðnó
eins og á aðrar sýningar Leikfé-
lagsins.
-ólg.
Mi&vikudagur 28. janúar 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7