Þjóðviljinn - 28.01.1987, Page 13
HEIMURINN
Sovét
Gorbatsjoff vill meira lýðræði
Miðstjórnarfundur í Moskvu. Gorbatsjof: leynilegar kosningar, fleiri en einn íframboði.
Flokksráðstefna á næsta ári um lýðræðisþróun.
Búist við að síðustu Brésnef-mönnum verði vikið úr framkvæmdanefndinni. Stalínstíminn gagnrýndur
Moskvu - Aðalritari sovéska
kommúnistaflokksins boðaði í
gær leynilegar kosningar í
æðstu stöður í flokknum og
vlll hafa fleiri en einn í fram-
boði. Mikhail Gorbatsjof lagði
einnig til í ræðu á miðstjórnar-
fundi í gær að kjördæmi í kosn-
ingum til ráðanna yrðu stækk-
uð og hafður fleiri en einn
þingmaður í hverju, og hann
sagði að „nauðsynlegt væri að
fólk sem ekki er flokksbundið
tæki meir þátt í stjórnun lands-
ins og slíkt væri merki um
aukið lýðræði í þjóðfélaginu"
samkvæmt frétt frá sovésku
fréttastofunni APN.
Gorbatsjof flutti ræðu sína við
upphaf miðstjórnarfundar sem
haldinn er tveimur mánuðum á
eftir áætlun, og er umræðuefnið
„enduruppbygging og manna-
val“. Aðalritarinn hóf ræðua á að
rekja breytingar á sinni valdatíð,
„glasnost“-stefnuna, og sagði að
þegar væri nokkur árangur sjáan-
legur, og von á meiru. Hann rakti
efnahagstölur og sagði bjartara
framundan nú en áður, og kom
síðan að „þróun lýðræðis“. „Þeg-
ar Mikhail Gorbatsjof ræddi um
kosningakerfið, benti hann á
nauðsyn þess að kjósendur tækju
virkari og meiri þátt í öllum stig-
um kosningaherferðarinnar“
segir í APN-frétt: „Hann sagði að
tillögur hefðu komið fram um að
rædd væru nokkur framboð á
fundum fyrir kosningar og að
kjördæmi yrðu stækkuð og að
nokkrir þingmenn yrðu kjörnir
úr hverju kjördæmi." Hér er ver-
ið að tala um kosningar til sovét-
anna, ráðanna, sem gegna þing-
hlutverki í sovéska kerfinu, með
æðstaráðið sem allsherjarþing.
Nú er aðeins einn maður í kjöri
og einn kjörinn í hverju kjör-
dæmi, sem hefur skapað „rúss-
neskri kosningu" sérstakan sess í
stjórnmálaorðfæri.
Gorbatsjof ræddi líka um kosn-
ingar innan flokksins, sem hingað
til hafa verið mikilvægari en al-
mennar kosningar, og lagði til að
æðstu forystumenn flokksins, rit-
arar og aðalritarar í flokks-
deildunum, yrðu kosnir leyni-
legri kosningu, og heimilt að hafa
fleiri en einn í kjöri. Hingað til
hefur verið makkað um þessar
stöður í bakherbergjum valda-
manna og einn frambjóðandi síð-
an kosinn með handauppréttingu
og lófaklappi.
Gorbatsjof lagði til að á næsta
ári verði haldin flokksráðstefna
Nicaragua
Kana sleppt
Managua - Tilkynnt hefur verið
að stjórnvöld ætli að láta
lausan Bandaríkjamanninn
Sam Hall sem handtekinn var í
desember og sakaður um
njósnir, og var talið sennilegt
að hann yrði laus í nótt.
í útvarpi í Managua var sagt að
Hall væri geðveikur og þarfnaðist
læknishjálpar, - væri látinn laus
af mannúðarástæðum. Hann var
handtekinn við herflugvöll ná-
lægt Managua og fundust á hon-
um grófgerðir uppdrættir af hern-
aðarmannvirkjum. Ekki er talið
að Hall sé á vegum CIA eða
skyldra afla, og hefur verið látið
að því liggja í bandarískum blöð-
um að Hall sé ekki með öllum
mjalla.
til að ræða um lýðræðisþróun.
Slík ráðstefna hefur ekki verið
haldin síðan 1941, hún kemur
næst á eftir flokksþingi að mikil-
vægi. Þing eru haldin á margra
ára fresti, og síðast í fyrra.
Kosningatilhögun samkvæmt
tillögum Gorbatsjof yrðu ein-
hverjar róttækustu breytingar í
sovésku stjórnkerfi frá því það
festist í sessi á þriðja áratugnum.
Tillögur Gorbatsjofs eru þó ekki
fordæmislausar, því nýlega var
tekinn upp svipaður háttur í Ung-
verjalandi. Þar koma þó engir
aðrir til greina en hollir flokks-
menn, og er vart við að búast að
Sovétmenn fari frammúr Ung-
verjum í þeim efnum, - er þó at-
hyglisvert að Gorbatsjof sagði í
ræðu sinni nauðsynlegt „að fólk
sem ekki er flokksbundið tæki
meiri þátt í stjórnun landsins og
slíkt væri merki um aukið lýðræði
í þjóðfélaginu“ (APN).
Mikail Gorbatsjof.
ERLENDAR
FRÉTTIR
MÖRÐUR
ÁRNASON
/REUlE R
Auk „enduruppbyggingar og
mannavals" mun Gorbatsjof hafa
rætt nokkuð málefni einstakra
Sovétþjóða, og var búist við því
eftir óeirðirnar í Kasakstan sem
meðal annars höfðu á sér svip
andófs gegn rússnesku alræði í
öðrum ríkjum Sovét.
Til þess var tekið að Gorbat-
sjof gagnrýndi Stalín óbeinlínis í
ræðu sinni. Hann hefur hingað til
látið sér nægja að vega að Brésn-
eftímabilinu, en sagði í gær að
vandamál þess skeiðs ættu sér
rætur í ástandinu á þriðja ára-
tugnum og þeim fjórða, þegar
samfélagið átti við allt önnur
verkefni, þá hefðu gagnlegar um-
ræður og skapandi hugmyndir
horfið af vettvangi, og skoðanir
sem einkenndust af alræði orðið
óskeikull sannleikur.
Búist er við að miðstjórnar-
fundurinn víki úr framkvæmda-
nefnd flokksins („pólítbúróinu")
þeim Kúnajef, fyrrverandi
flokksleiðtoga í Kasakstan, og
Sjerbitsky aðalritara Úkraínu-
flokksins, sem nýlega hefur verið
gagnrýndur harðlega fyrir land-
búnaðarstjórn. Væru þá horfnir
allir gamlir Brésnef-vinir úr tólf-
mannanefndinni, og aðeins tveir
eftir sem þar áttu sæti á Brésnef-
tímanum, Gorbatsjof sjálfur og
Andrei Gromykó forseti lands-
ins, sem virðist hafa skapað sér
stöðu utan og ofan við átök stríð-
andi afla í flokknum, þótt raun-
veruleg völd hans nú séu mjög
óljós.
Talið er að frestun miðstjórn-
arfundarins kunni að eiga sér þá
ástæðu að deilur hafi staðið um
kosningatillögur Gorbatsjofs, -
hinsvegar bendir gangurinn í ný-
sköpunarviðleitni hinna nýju
stjórnenda í Kreml til þess að
Gorbatsjof njóti víðtæks stuðn-
ings.
Filippseyjar
Aquino stóðst áhlaupið
Byltingartilraun kœfð ífœðingu, hundrað uppreisnarmenn íherkvíí sjónvarpsstöð
Manila - Corazon Aquino for-
seti Filippseyja stóðst í gær
versta ólag sem hún hefur orð-
ið fyrir frá því Marcos flúði
eyjarnar fyrir tæpu ári. Bylting-
artilraun hluta hersins var
kveðin niður í fæðingu í fyrri-
nótt, og lét forsetinn í sjón-
varpsávarpi að því liggja að
hart yrði tekið á uppreisnar-
mönnum.
Herflokkar virðast í fyrrinótt
hafa reynt að ná á sitt vald fern-
um herbúðum, en verið stöðvaðir
af stjórnarhollum sveitum og
ekki komið til verulegra átaka
nema á herflugvelli í grennd við
Manila þarsem háðir voru skot-
bardagar nokkra hríð. Hinsvegar
náði um hundrað manna her-
flokkur á sitt vald einni af sjón-
varpsstöðvum á eyjunum og hélt
henni enn þegar síðast fréttist í
gærkvöldi, og voru líkur á að
stjórnarhersveitir mundu ráðast
inní stöðina.
Um þrjú þúsund manns söfnuð-
ust að sjónvarpsstöðinni í gærdag
og hrópuðu slagorð gegn Aquino
og með Marcosi, en síðdegis var
mannfjöldanum dreift og stjórn-
arhersveitir tóku sér árásarstöðu.
Uppreisnarmenn innandyra
höfðu á orði að berjast þartil yfir
lyki en skiluðu hinsvegar um
fimmtíu starfsmönnum sem upp-
haflega var haldið í gíslingu.
Augljóst er að stjórnin reynir að
komast hjá hernaðarátökum við
uppreisnarmenn, ekki bara til að
forðast blóðsúthellingar heldur
London - Ekki er gert við síma-
bilanir í Bretlandi og símakerf-
ið allt í hættu eftir að 114 þús-
und símvirkjar hjá British Tele-
com lögðu niður vinnu aðfara-
nótt mánudags. Samningavið-
ræður hafa engan árangur bor-
ið.
Símvirkjarnir hafa undanfarið
deilt um kaup og kjör við yfir-
stjórn símafyrirtækisins, sem rík-
líka til að koma í veg fyrir að upp-
reisnarmenn verði að píslarvott-
um meðal stjórnarhersins sem er
engan veginn einhuga um Aqu-
ino.
Óljóst er um þátt Marcosar
fyrrverandi einræðisherra í upp-
reisninni. Sögur höfðu gengið um
ið seldi einkaaðilum fyrir
skömmu, og var lýst yfir verkfalli
þegar stjórnendur neituðu að
ráða aftur símvirkja sem reknir
höfðu verið í tengslum við deil-
una.
Tilkynnt hefur verið um baga-
legar bilanir víða í Bretlandi, en
ennþá er mikill meirihluti síma
virkur. Mjög er óttast um að
símar hjá til dæmis lögregiu,
það í Manila að hann væri vænt-
anlegur til landsins í vikunni, og í
gærmorgun hvarf hann skyndi-
lega frá heimili sínu á Hawaii-
eyjum með margt sitt hafurtask,
en birtist þar aftur í gærkvöldi og
sagðist engan hlut eiga að mái-
slökkviliði og sjúkrabílum fari úr
lagi, og eru yfirvöld þó einna
hræddust um að fjármálahverfið
The City í London verði síma-
laust.
í gær bættust 34 þúsund skrif-
stofumenn í hóp verkfallsmanna.
Starfsmenn vilja tíu prósent
kauphækkun strax, fyrirtækið
býður 5,2% með ákvæðisskilyrð-
um.
um.
Bretland
Verkfall á símanum
Uml50þúsundsímamennleggjaniðurstörf. Enginneyðenn, en
óttast um City
Líbanon
Leitað að Teny Waite
Samningamanni ensku kirkjunnar við mannræningja rœnt sjálfum?
Beirút - Enn er ekkert vitað
hvar Terry Waite er niðurkom-
inn í Beirút, en óljósar fréttir
herma að hann sé í haldi hjá
mannræningjum. Terry Walte
varsendurtil Líbanon af ensku
biskupakirkjunni til að semja
við mannræningja um afdrif
gísla.
Waite hefur sagt að hann
mundi fara erinda sinna á „neð-
anjarðar“ í Beirút, og er vika lið-
in síðan síðast höfðust af honum
spurnir á hóteli hans í vesturhluta
Beirút. Þá ætlaði hann að ræða
beint við samtök mannræningj-
anna. Síðan hefur magnast orð-
rómur um að hann hafi sjálfur
lent í klóm þeirra, og í gær sagði
Geoffrey Howe utanríkisráð-
herra Breta að sendiherrann í
Beirút hefði fengið fyrirmæii um
að hafa uppá Waite. Erkibi-
skupinn í Kantaraborg segir þó
að engar sannanir séu fyrir því að
Waite sé í haldi.
Skæruliðar úr hópi Drúsa sem
skipuðu lífvörð Waites meðan
hann fór um Beirút í allra augsýn
hafa neitað að svara spurningum
um dvalarstað Waites, en haft er
eftir þeim í líbönsku blaði að Wa-
ite hafi á þriðjudag beðið þá að
hætta að fylgja sér til að auðvelda
samningaviðræður. Fréttastofa í
Kuwait segir að Waite sé í stofu-
fangelsi.
Eftir að Waite kom til Beirút
12. janúar hafa níu manns horfið
og eru útlendir gíslar nú taldir að
minnsta kosti 26. Ekki er vitað
hvaða samtök standa að
mannránunum að undanförnu.
Noregur
íslam
í sókn
Af rúmum fjórum milljónum
Norðmanna eru aðeins um 171
þúsund í öðrum söfnuðum en
norsku þjóðkirkjunni.
Af þessum söfnuðum jókst sá
íslamski mest á fyrra ári, um 28
prósent, og telur nú 10.500
manns.
Fjölmennastur söfnuður utan
þjóðkirkjunnar eru hvítasunnu-
menn, rúmlega 44 þúsund, þá
fríkirkjumenn, rúmlega 20 þús-
und. Kaþólikkar eru um 19.400,
meþódistar 15 þúsund, vottar Je-
hóva 13 þúsund og baptistar 12
þúsund.
Guðleysingjar í „Humanetisk
Forbund“ eru um 32.700.
(Nordisk kontakt).
Miðvlkudagur 28. janúar 1987 ÞJÓÐVIUINN - SÍÐA 13