Þjóðviljinn - 06.02.1987, Side 2
Jóhanna Jóhannsdóttir,
lögg. skjalaþýðandi:
Ég er þessu mjög sammála.
Sjálf er ég mikil bindindismann-
eskja og ég veit þaö að það þýðir
lítið að predika. En það sem kem-
ur við pyngjuna hefur áhrif.
Emil Dusan,
strætisvagnabílstjóri:
Ég er mótfallinn þessu. Ég
held að hækkun sé alröng leið til
þess að minnka drykkju. Áhrif
hækkunarinnar kemur verst út
fyrir láglaunafólk, en aðrir geta
haldið áfram að kaupa þessa lúx-
usvöru.
—SPURNINGIN—
Hvað finnst þér um til-
lögu áfengisvarnar-
nefndar að þrefalda
eigi verð á áfengi?
Jóhannes Sveinsson,
bifvélavirki:
Ég er mótfallinn því. Áfengið er
nógu dýrt samt.
Elsa Pétursdóttir,
bóndakona:
Mér finnst þetta nú hálffárán-
legt. Ég held að það hafi ekkert
áhrif á drykkjuna hvort verðið
hækkar eða ekki.
Þóranna Sveinsdóttir,
verkakona:
Mér finnst að það eigi að
hækka áfengið upp úr öllu valdi
og lækka þess í stað verðið á
nauðsynjavörum.
FRÉTTIR
Áfengismál
Verð á vínum stórhækki
Tillögur opinberrar nefndar íáfengismálum: Erfiðara
verði að ná í áfengi og öll viðurlög viðfylliríisbrotum
stórhert
Viðurlög við brotum á áfengis-
löggjöfínni verði stórhert,
verð á áfengi, einkum sterkum
vínum verði stórhækkað og við-
urlög við ölvunarakstri verði
stórhert. Þetta er nokkrar af til-
lögum nefndar sem unnið hefur
að mörkun opinberrar stefnu í áf-
engismálum, en nefndin skilaði
áliti sinu í vikunni. Að sögn Ragn-
hildar Helgadóttur heilbrigðis-
ráðherra verða tillögur nefndar-
innar lagðar fyrir ríkisstjórnina á
næstunni.
Nefnd þessi var stofnuð í kjöl-
far þingsályktunar um mörkun
opinberrar stefnu í áfengismál-
um, sem samþykkt var á alþingi
vorið 1981. Á starfstíma sínum
hefur nefndin fylgst náið með
störfum Alþjóða heilbrigðis-
stofnunarinnar hvað varðar
áfengismál og eru lokatillögur
hennar sniðnar að mestu eftir
markaðri stefnu stofnunarinnar.
Nefndin telur að viðhalda eigi
einkasölu ríkisins til að auðveld-
ara verði að draga úr neyslu
áfengis og að bjórinn verði ekki
ieyfður. Sala á ölgerðarefnum
verði bönnuð, umboðsmanna-
kerfið á áfengi verði lagt niður og
endurskoðaðar verði reglur sem
heimila flugliðum og farmönnum
tollfrjálsan innflutning áfengis.
Þá er lagt til að reynt verði að
ílraga úr eftirspurn eftir áfengi,
td. með því að takmarka aðgang
manna að áfengi með ýmsu móti
og draga auk þess úr áhuga,
löngun eða þörf fólks fyrir það. I
þessu efni er gert ráð fyrir þrem
stigum: Grunnvörnum (Primer)
sem hafa þann tilgang að koma
sem mest í veg fyrir að fólk verði
háð áfengi. Avanavörnum (Sek-
under) sem miða að því að hindra
að vandræði fólks vegna áfengis-
neyslu aukist, og í þriðja lagi
neyðarvörnum (tertier) sem
miða að því að leysa meiriháttar
vanda sem fólk hefir komið sér í
vegna áfengisneyslu.
-sá.
Félagshyggjufólk
Fundað
um
framtíð
skólamála
Staðan rædd í Ijósi
skýrslu OCED
Frá undirritun samninga fulltrúa starfsmanna sveitarstjórna og launanefndar sveitarfélaga á Akureyri. Mynd-yk.
Bæjarstarfsmenn
18,25% á þremur ámm
Inýundirrituðum kjarasamn-
ingum starfsmanna sveitarfé-
laga sem ná til um 3000 manna,
eða allra sveitarfélaga í landinu
nema Akraness, Reykjavíkur og
Siglufjarðar, er kveðið á um
26.500 kr. lágmarkslaun eftir 3ja
mánaða starf þrátt fyrir að fjöl-
mörg sveitarfélög hafi þegar sam-
ið um 30 þúsund króna lágmarks-
laun.
Samningarnir sem eiga að gilda
til þriggja ára og gilda frá sl. ára-
mótum gera ráð fyrir um 18.25%
kauphækkun á samningstíman-
um. Þar af kemur 3.6% hækkun
til frá 1. janúar sl. en að öðru leyti
er miðað við sömu hækkanir og í
samningum ASÍ og VSÍ út þetta
ár.
Á næsta ári kemur 1.3% hækk-
un í ársbyrjun, 1.8% l.mars,
l.júní og 1. október. Þá kemur
1.3% hækkun í ársbyrjun 1989 og
síðan aftur í mars, júní og októ-
ber. Launaliðir þessa samnings
eru uppsegjanlegir ef forsendur
breytast verulega á samningstím-
anum og takist ekki samningar
um breytingar á launaliðum er
heimilt að segja honum upp með
hálfsmánaðarfyrirvara 1. janúar,
apríl, júlí eða október ár hvert.
Húsgagnasmiðir
Málfundafélag félagshyggju-
fólks boðar til opins fundar
um skólamál í Odda á morgun
laugardag, þar sem umræðuefnið
verður: Hvert stefnir í íslenskum
skólamálum?
Rædd verður staða skólamála
hérlendis, einkum í ljósi nýbirtr-
ar skýrslu ráðgjafa OECD, sem
nokkuð hefur verið til umræðu að
undanförnu.
Frummælendur á fundinum
verða þau Halldór Guðjónsson
kennslustjóri Háskólans, Svan-
hildur Kaaber formaður Banda-
Iags kennarafélaga og Eygló
Eyjólfsdóttir konrektor Mennta-
skólans í Hamrahlíð. Fundar-
stjóri verður Kristín Ástgeirs-
dóttir en fundurinn hefst kl.
13.30.
Lágkúrulegt fyrir alþingi
Harðlega mótmœlt kaupum alþingis á útlendum húsgögnum í kaffistofu þing-
Starfsmenn í húsgagnaiðnaði
hafa harðlega mótmælt
kaupum alþingis á innfluttum
húsgögnum, sem Þjóðviljinn
skýrði frá á dögunum, en allur
nýr húsbúnaður í kaffístofu þing-
manna var keyptur inn frá Dan-
mörku.
-Það er og hefur verið krafa
félagsins að opinberar stofnanir
manna
ríkisins reyni ávallt að kaupa ís-
lenska framleiðslu til eigin þarfa,
þegar það er hægt. Þær fullyrð-
ingar forráðamanna alþingis að
ekki sé hægt að fá full frambæri-
leg íslensk húsgögn í kaffistofu
alþingis eru algerlega út í hött,
segir í ályktun trúnaðarmanna-
ráðsfundar félags starfsfólks í
húsgagnaiðnaði.
-Það er ákaflega lágkúrulegt
fyrir alþingi íslendinga að kaupa
fjöldaframleidd tískuhúsgögn er-
lendis frá í stofnunina, þar sem
ríkja ætti sá metnaður að alþingi
notaði aðeins íslenskar úrvals
iðnaðarvörur í sölum sínum,
segir ennfremur í ályktun hús-
gagnasmiða.
-•g-