Þjóðviljinn - 06.02.1987, Blaðsíða 8
GLÆTAN
Helgl Hjörvar: Þurfti hann að beita prettum gegn Versló?
Sveinn Valfells III, liðsstjóri MR: Leiðir hann skólann til sigurs í viðureigninni um VISA-bikarinn?
„Skeggöld
Ófriðlega horfir nú hjá MORF-
(S - mælsku- og rökræðu-
keppni framhaldsskólanna á
íslandi, - hver höndin upp á
móti annarri og vantrauststil-
laga á stjórnina yfirvofandi.
„Við ætlum að ganga frá þess-
ari stjóm,“ sagði mér MH-ingur,
sem virkan þátt hefur tekið í
málfundastarfi skólans. „Við
höfum þegar fengið liðveislu
nokkurra skóla munnlega og frá
fimm skólum höfum við skrif-
legan stuðning við vantrauststil-
lögu okkar.“
Allt útlit er því fyrir að kalla
verði saman aukaaðalfund
MORFÍS og þar gæti svo farið að
stjórninni verði velt úr sessi - að-
eins tveimur mánuðum áður en
kjörtímabili hennar lýkur. Þetta
setur framhald keppninnar í
óvissu, þegar aðeins tvær um-
ferðir eru eftir; undanúrslit og
svo sjálf úrslitakeppnin. Haldi
stjórnin hinsvegar velli er viðbúið
að samtökin liðist í sundur.
/ líkingu
við hliðstæðu
Það sem olli þessu fjaðrafoki er
undarlegt mál, sem kom upp í
kjölfar keppni Verslunarskólans
og Menntaskólans við Hamrahlíð
í annarri umferð. Umræðuefnið
var: „Lið M.H. leggur til að
stofnuð verði samtök á íslandi
hliðstæð Sea-Shepard samtöku-
num“. - Fyrir misskilning gekk
lið M.H. út frá því að tillagan
hljóðaði: „... í líkingu við Sea-
Shepard samtökin“.
Þetta kom í ljós strax í upphafi
keppninnar, þegar Helgi Hjörv-
ar, liðsstjóri M.H. gerði athuga-
semd við orðalag tillögunnar sem
fundarstjóri las upp. Var síðan
gengið út frá upprunalegu til-
lögunni í umræðunum.
Lið Verslunarskólans hlaut
fleiri stig en þar sem M.H. var
hærra að stigum hjá tveimur
dómurum af þremur þá sigruðu
þeir síðarnefndu á svokallaðri -
og afar umdeildri - „2-1“ reglu.
Versló kærir
Varla var fagnaðarlátum
M.H.-inga farið að linna þegar
kæra barst framkvæmdastjórn
MORFÍS: M.H. og þó einkum og
sér í lagi Helgi Hjörvar var sakað-
ur um að hafa reynt að villa um
fyrir dómurunum.
Og þar með var stríðið byrjað.
Framkvæmdastjórnin fundaði
oft og lengi og hlýddi á rök beggja
aðila málsins. Bréf og klögur
gengu á víxl, hótanir og brigsl-
yrði. Blöðin voru óspart notuð,
bæði lesenda- og slúðurdálkar og
á forsíðu Tímans var „frétt“ eftir
Þór Jónsson (einn af frum-
kvöðlum MORFÍS og þraut-
reyndan oddadómara) sem var
vægast sagt vilhöll; M.H.-ingar
sakaðir um svindl og pretti. Þór
hefur ekki dregið fréttina til baka
en mun hafa beðið M.H.-inga
afsökunar, að þeirra sögn.
Verslunarskólanemar hömp-
uðu áliti málfræðinga; þegar
eitthvað er „í líkingu við“ má
gera ráð fýrir svona 75% skyld-
leika fyrirbæranna - „hliðstætt“
er aftur á móti um það bil 90%
skylt!
Lið M.H.; Helgi Hjörvar,
Halldóra Jónsdóttir, Stefán.
Eiríksson og Benedikt Erlings-
son, gáfu þá ýfirlýsingu út að yrði
eitt þeirra sett í keppnisbann þá
litu þau svo á að um allt liðið væri
að ræða; ekki væri hægt að taka
einn einstakling út úr - þar sem
Iiðið ynni sem ein heild.
Dómur framkvæmdastjórnar-
innar var efnislega á þessa leið:
Helgi Hjörvar dæmdur í keppnis-
bann í 3ju umferð, liðsstjóri
Verslunarskólans, fundarstjóri
og oddadómari hljóta ávítur
„sem birtar verða opinberlega",
svo og lið M.H.
Jónas Frlörlk, þjálfari Versló: Voru
skjólstæðingar hans beittir
rangindum?
Stjórnin felld?
Eftir að stjórnin hafði kveðið
upp úrskurð kom í ljós að hún
hafði ekki talað við oddadómara
keppninnar, Gylfa Magnússon,
sem samkvæmt heimildum úr
oddadómararáði MORFÍS nýtur
trausts. Gylfi sagði hins vegar frá
því í einkasamtölum að hann og
meðdómendur hans hefðu dæmt
keppnina út frá upprunalegu til-
lögunni, þ.e.a.s. „hliðstæðu til-
lögunni“. Þar að auki hefði þetta
enginn áhrif haft á framgang og
niðurstöðu keppninnar. Strax og
dómurinn hafði verið kveðinn
upp sendi lið M.H. frá sér yfirlýs-
ingu þar sem það sagðist líta svo á
að liðið allt væri í banni og gæti
því ekki tekið þátt áfram. Þessi
túlkun þeirra hefur af sumum
verið álitin full einstrengingsleg
en er útskýrð þannig „að sam-
þykki M.H. að einn úr liðinu fari í
bann, þá er um leið verið að sam-
þykkja og viðurkenna að brögð
hafi verið í tafli af hálfu M.H.“,
sagði einn liðsmaður skólans.
M.H.-ingar hafa unnið af
kappi við að afla vantrauststillög-
unni fylgis og eins líklegt er að
hún nái fram að ganga. Þeir
skólar sem ýmist hafa lýst stuðn-
ingi eða eru taldir líklegir til þess
að fylgja M.H. í máli þessu eru
m.a. Menntaskólinn á ísafirði,
Menntaskólinn á Akureyri,
Menntaskólinn á Egilsstöðum,
Verkmenntaskólinn á Akureyri,
Menntaskólinn að Laugarvatni,
Menntaskólinn við Sund, Flens-
borgarskóli í Hafnarfirði, Fjöl-
brautaskólinn í Ármúla og
Kvennaskólinn í Reykjavík.
Liðast MORFÍS
ísundur?
Það er mat flestra sem tíðinda-
maður Glætunnar talaði við að
MORFÍS geti hæglega liðast í
sundur, verði ekkert gert til að
bera klæði á vopnin. Þar með
yrðu starfsömustu samtök fram-
haldsskólanna úr sögunni.
Mælskukeppnin hefur notið
mikilla vinsælda síðan hún var
tekin upp fyrir fáeinum árum.
Mikill fjöldi kemur alla jafna á
hverja keppni og þannig hefur
MORFÍS orðið til þess að efla
félagslíf skólanna og hefur
sumum ekki fundist veita af. f
seinni tíð hefur gætt vaxandi óá-
nægju með fyrirkomulagið, eink-
um þó hjá M.H.-ingum. Þeim
finnst að keppnin hafi gengið sér
til húðar, þær forsendur sem
dæmt sé útfrá stuðli að einhæfari
ræðumennsku og gefi lítið svig-
rúm til frumleika. Einnig er það
skoðun margra að ræðumennim-
ir verði alltaf líkari frá ári til árs,
meðalmennskan sé í hávegum og
enginn þori að taka áhættu, þar
sem alls óvíst sé að dómurum falli
það í geð. Ekki eru allir sömu
skoðunar. Birgir Ármannsson,
frummælandi liðs Menntaskólans
í Reykjavík, sagði: „Það hafa
komið upp vandamál í vetur sem
reynt hefur verið að leysa úr. Það
hefur gerst öll árin og þótt ýmsum
hafi sárnað hefur keppnin haldið
áfram. Ég tel að það sé grund-
völlur fyrir áframhaldi á meðan
fólk fæst annars vegar til að tala
og hinsvegar til að hlusta. f
augnablikinu er ekkert sem
bendir til að áhuginn sé að dofna.
Ég er þessvegna bjartsýnn á að
þessi keppni haldist.“
Leysast málin
í vor?
Flestir sem tíðindamaður
Glætunnar talaði við voru á því
að um tímabundið vandamál væri
að ræða. í vor verður haldinn að-
alfundur MORFÍS og kosin ný
stjórn. Mjög almenn óánægja er
með störf stjórnarinnar og varla
nokkrir til að mæla henni bót
nema þeir skólar sem eiga full-#
trúa í henni. „Þetta er handónýt
stjórn og óhæf,“ sagði forystu-
maður í Menntaskólanum í
Reykjavík. Málsmeðferðin í
Versló/MH-málinu þykir sýna að
stjórnin er illa til þess fallin að
leysa úr deilumálum og skynjar
ekki óánægjuna.
Á þessari stundu er líklegast að
einn skóli sitji yfir í undanúrslit-
unum, en þrír eru eftir; MR, FG
og Fjölbrautaskólinn á Suður-
nesjum. MR og FG er talin
Suðurnesjum langtum sterkari,
svo sjálf úrslitakeppnin gæti allt
eins farið fram í undanúrslitum.
Allt um það má ljóst vera að
fjandvinirnir í MR og MH keppa
ekki í úrslitum að þessu sinni.
-hj
UTRAS:
FM 88,6
MORFIS:
GEGN FS
Á mánudaginn klukkan tólf á
hádegi hefjast útsendingar Út-
varps framhaldsskólanema úr
Fjölbrautaskólanum í Breiðholti.
Það eru átta skólar á Reykjavík-
ursvæðinu sem standa að þessu
útvarpi, sem hefur hlotið nafnið
Útrás. Fyrsta daginn verður sent
út til miðnættis, en á þriðjudag og
miðvikudag er byrjað klukkan 10
fyrir hádegi og útvarpað til kl. 24.
Frá og með mánudeginum 15.
febrúar verða reglulegar útsend-
ingar og munu skólarnir átta
skipta umsjóninni með sér; með-
al annars verður Útrás nýtt á
frjálsu vikum skólanna.
Vert er að hvetja alla til þess að
fylgjast með Útrás framhalds-
skólanema á FM 88,6.
í gær var dregið um það hvaða
lið mætast í undanúrslitum
MORFÍS-keppninnar. Lið
Menntaskólans í Reykjavík á
heimaleik gegn Fjölbrautaskól-
anum á Suðurnesjum og munu
ræðumenn MR leggja til að allir
landsmenn verði skyldaðir til að
gangast undir eyðnipróf. Lið
Fjölbrautaskólans í Garðabæ sit-
ur hjá, þar sem Menntaskólinn
við Hamrahlíð hefur sagt sig úr
keppni eins og fram kemur ann-
ars staðar á síðunni. Ætla má að
Sveinn Valfells III, Birgir Ár-
mannsson, Auðunn Atlason og
Illugi Gunnarsson, - lið MR, -
fari nokkuð létt með Suðurnesja-
menn.
Þessvegna er allt útlit fyrir að
FG mæti MR í úrslitum og þar
getur sannarlega brugðið til
beggja vona. Mikið er í húfi fyrir
MR; sigri þeir þriðja árið í röð
vinna þeir til eignar forláta bikar
sem VISA-ísland gaf til keppn-i
innar.
Hitt er jafn víst að stjórn
MORFÍS hefur ekki bitið úr nál-
inni - og MH-ingar ekki sagt sitt
síðasta orð.
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 6. febrúar 1987