Þjóðviljinn - 06.02.1987, Qupperneq 14
ALPÝÐUBANDALAGHE)
Alþýðubandalagið á Akureyri
Árshátíð
Árshátíð Alþýðubandalagsins á Akureyri verður haldin þann 6. febrúar
nk. í Alþýðuhúsinu. Hátíðin hefst með borðhaldi kl. 20.30.
Ávörp, söngur, glens og grín. Heiðursgestir verða Lena og Árni Berg-
Vnann.
Skemmtinefndin.
Málefnahópur
Utanríkis- og friðarmál
Málefnahópur Alþýðubandalagsins um utanríkis- og friðarmál er boðað-
ur til fundar í flokksmiðstöðinni, Hverfisgötu 105, Reykjavík mánudaginn 9.
febrúar kl. 20.30.
Félagar mætið vel og stundvíslega.
Alþýðubandalagið á Norðurlandi eystra
Byggjum landið allt
Alþýðubandalagið heldur opna stjórnmálafundi á eftirtöldum stöðum:
Félagsheimili Húsavíkur, sunnudaginn 8. febrúar kl. 13.30. Gestur fundar-
ins er Kristín Á. Ólafsdóttir varaformaður Alþýðubandalagsins.
Alþýðuhúsið á Akureyri, sunnudaginn 8. febrúar kl. 20.30. Gestur fundar-
ins Kristín Á. Ólafsdóttir varaformaður Alþýðubandalagsins.
Frambjóðendur Alþýðubandalagsins á Norðurlandi eystra flytja ávörþ á
fundunum. - Kjördæmisráð.
Alþýðubandalagið Rangárþingi
Almennur félagsfundur
Almennur félagsfundur verður haldinn föstudaginn 13. febrúar kl. 21.00
að Krókstúni 5, Hvolsvelli.
Á fundinn koma menn úr efstu sætum framboðslistans. Nýir félagar
velkomnir.
Stjórnin.
Miðstjórn Alþýðubandalagsins
Miðstjórnarfundur
verður haldinn 7. og 8. mars nk. í flokksmiðstöðinni Hverfisgötu 105,
Reykjavík. Fundargögn verða send út í vikunni. Efstu menn á framboðslist-
um flokksins eru sérstaklega boðaðir á fundinn.
Formaður miðstjórnar.
ÆSKULÝÐSFYLKINGIN
Æskulýðsfylkingin í Reykjavík
Félagsfundur
ÆFR heldur félagsfund þann 14. febrúar að Hverfisgötu 105 kl. 14.00.
Dagskrá: 1) Starfið framundan. Framlag frá vinnuhópi um baráttuna fram
að alþingiskosningum. 2) Önnur mál.
Undirbúningsnefnd.
Æskulýðsfylkingin
Skrifstofa ÆFAB
Skrifstofa Æskulýðsfylkingarinnar verður opin næstu vikur á milli 17-19
alla virka daga.
Liggi þér eitthvað á hjarta, þá sláðu á þráðinn í síma 17500 eða roltu við á
H-105.
Starfsmenn.
ÆFR
Aðalfundur
Æskulýðsfylkingin í Reykjvík boðar til aðalfundar, laugardaginn 14. fe-
brúar kl. 10.00 árdegis.
Daqskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Önnur dagsrkáratriði auglýst síðar.
Stjórn ÆFR
Söfnun
vegna jarðskjálftanna í El Salvador lýkur 6. febrúar.
Framlög greiðist með gíró inn á reikn.
0303-26-10401.
El Salvador-nefndin
Styrkir til háskólanáms á Ítalíu
ítölsk stjórnvöld bjóða fram styrk handa íslendingum til
náms á Italíu á háskólaárinu 1987-88. Styrkirnir eru einkum
ætlaðir til framhaldsnáms eða rannsókna við háskóla að
loknu háskólaprófi eða náms við listaháskóla. Styrkfjárhæð-
in nemur 600.000 lírum á mánuði.
Umsóknum ásamt tilskildum fylgiskjölum, skal komið til
menntamálaráðuneytisins, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík,
fyrir 28.febrúar nk., á sérstökum eyðublöðum sem þar fást.’
Menntamálaráðuneytið,
3. febrúar 1987.
MINNING
Amfinnur Þórðarson
frá Hlíð
Arnfinnur Þórðarson var
fæddur 6. febrúar 1903 á Hjöllum
í Gufudalssveit í Austur-
Barðastrandarsýslu. Foreldrar
hans voru hjónin Þórður Jóns-
son, bóndi og hreppstjóri á
Hjöllum, og kona hans, Ingi-
björg Páímadóttir frá Hraundal í
Nauteyrarhreppi. Fyrstu árin ólst
hann upp á Hjöllum, en þegar
hann var 9 ára gamall, fluttist
hann með foreldrum sínum að
Gröf í sömu sveit, og ári síðar að
Hallsteinsnesi, sem var næsti bær
út með Þorskafirði. Foreldrar
hans bjuggu svo á Hallsteinsnesi
til vorsins 1932, er þau flytjast að
Hlíð í Reykhólasveit, en sá bær er
hinum megin Þorskafjarðar, en
Arnfinnur hóf þar búskap með
konu sinni, Kristínu Daníelsdótt-
ur, og foreldrum sínum.
Á uppvaxtarárunum mun hug-
ur hans hafa staðið til náms, enda
vel gefinn og athugull. En hér fór
sem og fyrir mörgu ungmenni á
þeim tíma, að efnahagur fátækra
foreldra, sem framfleyta þurftu
stórri fjölskyldu, leyfði ekki frek-
ara nám en það, sem laut að
fermingarundirbúningi. Ungur
varð hann að hefja lífsbaráttuna
við að létta undir með heimilinu
eftir getu, elztur átta systkina, og
faðir hans ekki heilsuhraustur.
Hann var ekki gamall, er hann
hélt fyrst úr foreldrahúsum. Vor-
ið, sem hann fermdist, fór hann
til sjóróðra hjá bóndanum á Snæ-
fjöllum á Snæfjallaströnd. Hann
var síðan við sjóróðra eða í
kaupavinnu á ýmsum stöðum
næstu árin, en oftast heima tíma
og tíma, einkum þó um sláttinn.
Á árinu 1923 er hann háseti á
59 lesta fiskiskipi frá Flatey.
Þetta var seglskúta með lítilli
hjálparvél og hét Arney. í sjó-
ferðabók hans frá þessu ári gefur
skipstjórinn á Arney, Einar Jó-
hannesson frá Stykkishólmi,
honum ágætis vitnisburð fyrir
dugnað, stundvísi og hegðun. Og
stýrimaðurinn, Sigurður Níels-
son, kvaðst engan fremur vilja
hafa á vakt með sér en Arnfinn,
því að hann væri svo fimur og
öruggur við að hagræða seglum í
vondum veðrum.
Eftir þetta var hann á ýmsum
fiskiskipum allt fram á árið 1936
og gat sér alls staðar gott orð, líka
eftirsóttur til vinnu af þeim, er til
þekktu. Hann var mikill þrek-
maður og knár, þótt lágur væri
vexti, og Snæbjörn Stefánsson,
skipstjóri, sagði sig oft hafa undr-
að þá snerpu og það harðfylgi, er
ekki stærri maður byggi yfir.
Þessar umsagnir um Arnfinn
falla vel að þeirri mynd, er ég
gerði mér af honum, tæplega sex-
tugum, er ég sá hann fyrst. Að
þar væri maður, sem öruggt væri
að treysta, vinur vina sinna og
vildi allt fyrir þá gera. Þetta fór
líka svo við nánari kynni. Oft
heyrði ég inn á óánægju hans yfir
sérhlífni sumra manna, enda
kunni hann ekki að hlífa sér.
Heiðarleiki var hans leiðarljós í
orði og verki.
Arnfinnur var glaðlyndur,
spaugsamur og hafði gaman af
græzkulausri glettni, nokkuð ör-
geðja, en reyndi þó jafnan að
stilla skapi sínu í hóf, því að hann
var hógvær að eðlisfari og gæddur
ríkri réttlætiskennd. Hann var
því ávallt reiðubúinn að leita
sátta, teldi hann sig hafa misgert
við einhvern.
Sem fyrr segir hófst búskapar-
saga hans í Hlíð vorið 1932, og
þar bjó hann í rúm 27 ár. Um
sumarið, þann 16. júlí 1932,
kvæntist hann eftirlifandi konu
sinni, Kristínu Daníelsdóttur frá
Hvallátrum á Breiðafirði, hinni
mestu ágætiskonu, er reyndist
honum hinn bezti hfsförunautur,
enda mat Arnfinnur konu sína
mikils. Fyrstu ár þeirra í Hlíð
14 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN
voru á ýmsa lund erfið, efnin
smá, jörðin lítt ræktuð og óhæg
sökum brattlendis, þótt landrými
sé allmikið. Á búskaparárum
þeirra gerði hann verulegur um-
bætur á jörðinni og reisti meðal
annars heimilisrafstöð árið 1942,
með þeim fyrstu þar í sveit. Hafði
Jón Guðmundsson í Teigskógi
áður átt rafstöðina, og sá hann
um uppsetningu á henni í Hlíð.
Þessi framkvæmd má segja, að
hafi orðið heimilinu mikið happ,
ekki sízt börnunum, og stytt hið
mikla skammdegi og sólarleysi.
En í Hlíð nýtur sólar ekki í um
þrjá mánuði, eða frá því í
nóvember og fram í byrjun febrú-
ar.
Með tímanum vænkaðist hagur
heimilisins, enda lét Arnfinnur
ekkert tækifæri ónotað, til að svo
mætti verða, og voru hjónin sam-
hent um að nýta vel það sem afl-
aðist. Bústofninn varð að vísu
aldrei stór, en fallegur, vel hirtur,
og skilaði góðum afurðum. Arn-
finnur var og mikill dýravinur, er
vildi láta skepnum sínum líða vel,
og þótti einkar vænt um þær,
enda hændust þær líka margar að
honum, svo að undrum sætti.
Á búskaparárum sínum gegndi
Arnfinnur ýmsum trúnaðarstörf-
um fyrir sveit sína, átti meðal
annars sæti í hreppsnefnd í nokk-
ur ár, og var forðagæzlumaður
um skeið. Síðustu árin, sem hann
bjó sá hann um viðhald og eftirlit
með mæðiveikivarnargirðingu
milli Berufjarðar og Steingríms-
fjarðar á móti Magnúsi Gunn-
laugssyni, bónda á Osi. Farið var
daglega meðfram girðingunni,
meðan féð var á fjalli. Ferðin tók
tvo daga fram og til baka, en svo
verið heima aðra tvo daga, með-
an Magnús fór með girðingunni.
Það hefur því orðið all úrtöku-
samt við heyskapinn þau ár.
Haustið 1959 brugðu þau hjón-
in búi og fluttu til Reykjavíkur.
Til þess lágu ýmsar ástæður, bæði
var hann þá orðinn heilsuveill, og
einnig varð hann að fella fjár-
stofn sinn vegna hættu á mæði-
veiki, sem komin var í fjárhjarðir
í nágrenni við Hlíð. Það var hon-
um ekki sársaukalaust að þurfa
að farga öllum bústofni sínum og
flytjast burt, en hann hafði ávallt
tamið sér að taka því, sem að
höndum bar.
Er til Reykjavíkur kom, réðst
Arnfinnur til Ölgerðar Egils
Skallagrímssonar, þar sem hann
starfaði í nokkur ár. Þá vann
hann hja Timburverzluninni Völ-
undi um tíma, svo og hjla Birgða-
vörzlu Pósts og Síma, meðan
kraftar leyfðu.
Vorið 1963 festi hann kaup á
efri hæð í húsinu Hlégerði 29 í
Kópavogi, þar sem þau hjónin,
og Guðmundur, sonur þeirra,
áttu síðan heima. Þar er mjög
gott að koma, heimilið hlýlegt,
og ekki vantar góðar móttökur,
enda húsráðendur afar gestrisnir
og hafa gaman af að gleðjast með
vinum og vandamönnum.
Þau Arnfinnur og Kristín
eignuðust fimm börn. Þau eru:
Daníel, fæddur 10. maí 1933,
starfsmaður hjá SÍS, kvæntur
Unni Óladóttur, búsett í Kópa-
vogi; Guðmundur, fæddur 31.
júlí 1936, fulltrúi hjá Ríkissak-
sóknara, býr að Hlégerði 29;
Gerður Ingibjörg, fædd 13.
febrúar 1939, gift Kjell Fryden-
lund, búsett í Noregi; María
Steinunn, fædd 9. ágúst 1942, gift
Braga Hallgrímssyni, búsett á
Héraði; Þóra Ásdís, fædd 5. okt-
óber 1943, hjúkrunarkennari,
búsett í Reykjavík. Barnabörnin
eru fimmtán og eitt lítið barna-
barnabarn.
Börnin og fjölskyldur þeirra
voru þeim afar kær, og gerðu þau
hjónin allt þeim til aðstoðar, sem
þau gátu. Barnabörnunum þótti
líka mjög vænt um afa og ömmu
og höfðu mikla ánægju af að
heimsækja þau eða fá þau í heim-
sókn. Það þótti þeim hjónum
miður, hversu langt var milli fjöl-
skyldumeðlima, og því gátu
heimsóknir ekki orðið eins tíðar
og allir hefðu óskað.
í nokkur ár, eftir að starfsgetu
Amfinns lauk, dvaldist hann á
heimili sínu og naut umhyggju og
ástúðar eiginkonu og barna, er
næst honum bjuggu, svo og ann-
arra skyldmenna. En tvö síðustu
æviárin urðu honum erfið sökum
sjúkleika. Og þrátt fyrir að hans
nánustu veittu honum aðstoð
eftir föngum, varð hann, megnið
af þeim tíma, að dvelja á Hjúkr-
unarheimilinu Hátúni 10B í
Reykjavík, þar sem hann naut
frábærrar umönnunar. Starfs-
fólkinu þar er hérmeð færðar al-
úðar þakkir fyrir umhyggju og
hlýju í hans garð.
Árnfinnur andaðist á Hátúni
10B hinn 10. maí, síðastliðinn, og
var því á 84. aldursári, er hann
lézt.
Mér hefur orðið það tamt að
minnast á þau hjón bæði svo til í
sama orðinu, en það kemur til af
því, hversu samrýnd þau voru og
fylgdust mikið að, eftir að ég
kynntist þeim.
Því veit ég, að söknuður þinn
er mikill, Kristín, en ég veit líka,
að þú trúir á, að þið eigið eftir að
hittast aftur, og það gerir allt létt-
ara.
Kæri tengdafaðir, hafðu þökk
fyrir allt.
Far þú í friði. Friður Guðs þig
blessi.
Bragi Hallgrímsson.
Móðir okkar
Salbjörg Magnúsdóttir,
Vörðustíg 7, Hafnarfirði
lést þriðjudaginn 3. febrúar.
Katrín Kristjánsdóttir,
Andrés Kristjánsson,
Bergljót Krístjánsdóttir,
María Kristjánsdóttir og
Logi Kristjánsson.
n«——iiwmíihi ii iinm i iniii, iitiiiiiiii^giamigiiaaa^Tá^ggáa