Þjóðviljinn - 06.02.1987, Page 16
flBMj
Aðalsími
681333.
Kvöldsími
681348
Helgarsími
681663
biócnnuiNN
»SAMVINNUBANKI
ÍSLANDS HF.
Fösfudagur 6. febrúar 1987 29. tölublað 52. örgangur
Steypuverð
Réðu ekki við frelsið
M
Hœkkun á meðalverði steypu hefur rokið upp síðan verðið vargefið
frjálst. Hlutdeild sements í verðinu hefur lœkkað úr 38% Í28% á.
þremur árum
eðalverð á steypu hefur
hækkað um allt að 50,4% á
miUi ára síðan verðlag á þessari
vöru var gefíð frjálst haustið
1984. A sama tima hefur sements-
verð hækkað mun minna mUli
ára, en verðlagsyfírvöld ákvarða
hámarksverð á sementi.
Þetta kom fram í svari viðskipt-
aráðherra við fyrirspurn Skúla
Alexanderssonar Alþýðubanda-
lagi um verðlag á steypu og sem-
enti á árunum 1983-1986.
í svari viðskiptaráðherra kem-
ur fram að verð á sementi hækk-
aði um 25,7% milli áranna 1983
og 1984,22,2% milli áranna 1984
og 1985 og 26,5% milli áranna
1985 og 1986.
Meðalverð á steypu án sem-
ents, það er að segja því sem
framleiðendur leggja sjálfir til,
hækkaði hins vegar allt að 50,4%
milli ára. Hækkunin milli áranna
1983 og 1984 nam 35,4%. Síðan
var verðlagið gefið frjálst og á
milli áranna 1984 og 1985 hækk-
uðu framleiðendur verðið um
46,3%. Á milli áranna 1985 og
1986 færðu þeir sig enn upp á
skaftið og hækkuðu verð fram-
leiðslunnar að meðaltali um
50,4%. Á sama tíma ákvörðuðu
verðlagsyfirvöld 26,5% verð-
hækkun á sementi að meðaltali.
Hlutdeild sements í heildar-
verði steypunnar hefur því farið
stöðugt minnkandi á síðustu
árum. Árið 1983 var hluti sem-
ents í verði á steypu um 38%,
36,4% árið 1984, 32,3% árið
1985 en í fyrra var hlutdeild sem-
ents í verðinu komið niður í
28,7%. og hefur því hrapað úr
38% í 28% á þremur árum.
-gg
Fíkniefnalögreglan
Enn krafist
gæslu-
varðhalds
Fjórir handteknir eftir
húsleit ífyrrakvöld.
Krafist gœsluvarðhalds
yfir einum
Fíkniefnalögreglan handtók
Qóra menn eftir húsleit í fyrra-
kvöld. Þremur mannanna var
sleppt eftir yfirheyrslur, en í gær
var gerð krafa um 15 daga gæslu-
varðhald yfír þeim fjórða. Búist
er við að úrskurðað verði í því í
dag.
Ljóst er að talsvert magn ým-
issa efna fannst við húsleitina, en
ekki fékkst upp gefið um hvaða
efni er þar að ræða.
Það er óhætt að segja að miklar
annir séu hjá fíkniefnalögregl-
unni því undanfama viku hafa
fimm menn að auki verið úr-
skurðaðir í 15 til 30 daga gæslu-
varðhald og tengjast þeir allir
sama málinu. Þeir eru grunaðir
um að hafa staðið að innflutningi
og dreifingu fíkniefna. Fjölmarg-
ir aðrir hafa verið handteknir
vegna þessa máls.
-gg
Farmannadeilan
Allt í óvissu
Mikil óvissa ríkir um næstu
skref í farmannadeilunni eftir að
langur næturfundur „úti í bæ“
varð árangurslaus eftir að far-
menn höfnuðu nýju tilboði skip-
afélaganna.
Stjómvöld hafa lýst yfir að
ekki komi til greina að grípa inn í
deiluna á þessu stigi með laga-
setningu, en eftir að slitnaði upp-
úr í gær hafa vinnuveitendur gef-
ið í skyn að ekki sé eftir neinu að
bíða. Farmenn segjast hinsvegar
ekki afgreiða frekari undanþágur
fyrr en einhver hreyfing kemst á
samningamálin. Ólíklegt er að
sáttasemjari kalli deiluaðila til
fundar fyrr en um eða eftir helg-
ina.
-•g
Sagnfrœði
Hvalyeiðar
við ísland
Trausti Einarsson hampar nýtti bók sinni, glaður í bragði, ásamt Bergsteini
Jónssyni frá Sagnfræðistofnun sem gefur bókina út ásamt Menningarsjóði.
Um fátt hefur verið meira ritað,
rifist, rætt og rövlað en hval-
veiðar Islendinga á síðustu miss-
erum, en sjálfsagt hafa fæstir
þeirra sem hæst hafa skeytt því
þanka að hvalveiðar við ísland
eiga sér langa sögu, og koma þar
ýmsir við sögu, til dæmis Baskar,
og svo Norðmenn um síðustu
aldamót. Allar helstu upplýsingar
um hvalveiðar fyrri tíðar manna
koma fram í nýrri bók Trausta
Einarssonar sagnfræðings sem
ber heitið: Hvalveiðar við ísland
1600-1939.
Höfundur ferðaðist víða til að
afla heimilda, meðal annars fór
hann til Noregs, Bretlands,
Frakklands og Spánar enda
komu menn víða að til að stunda
hvalveiðar við ísland.
í bókinni segir frá veiði-
mönnum og veiðarfærum, skip-
akosti, aflabrögðum, afurðum,
vinnslu og markaði, einsog segir
á bókarkápu, og prýða hana
gamlar Ijósmyndir og uppdrættir.
Bókaútgáfa Menningarsjóðs
gefur verkið út í samvinnu við
Sagnfræðistofnun háskólans.
- ks
Fóstrur
Vilja 40 þúsund minnst
Fóstrur íReykjavík krefjast 40þúsund króna í lágmarkslaun. Hafa nú 28
þúsund. Eru 14mánuði að vinnafyrir árslaunumfóstra í Eyjum
Fóstrur í Reykjavík hafa sett
fram kröfur um að lágmarks-
laun þeirra verði 40 þúsund krón-
ur. Fóstrur þjá Reykjavíkurborg
taka nú laun samkvæmt 62.
launaflokki þar sem lágmarks-
laun eru 28,906 krónur, en laun
eftir 18 ára starf tæplega 38 þús-
und krónur.
Kristín Á. Ólafsdóttir Alþýðu-
bandalagi hóf umræðu um kjara-
mál fóstra á borgarstjómarfundi í
gærkvöldi og sagði litlar líkur á að
fóstrur hættu við að ganga út 1.
maí ef samningaviðræður snerust
um hækkanir sem væru fjarri
þessum kröfum fóstra.
Bjarni P. Magnússon átaldi
harðlega stefnu Sjálfstæðis-
flokksins í kjaramálum fóstra.
Hann benti á að laun fóstra væru
víðast mun betri en í Reykjavík.
Fóstrur í Vestmannaeyjum fá nú
38,636 krónur í lágmarkslaun,
þannig að reykvískar fóstrar era
14 mánuði að vinna fyrir árs-
launum starfssystra sinna í
Vestmannaeyjum.
Bjami gat þess einnig að á
Akranesi, í Neskaupsstað, á ísa-
firði og víðar væru lágmarkslaun
fóstra rúmlega 34 þúsund krónur.
„Það er greinilegt að borgin
stendur sig illa í þessum efnum og
það er ekki nokkur vafi á að Sjálf-
stæðisflokkurinn hefur stigið
stórt skref afturábak á síðustu
árum.“
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
Sjálfstæðisflokki taldi hins vegar
ekki rétt að draga fóstrar sérstak-
lega út úr og ræða kjaramál
þeirra í borgarstjórn. Mál þeirra
væra í réttum farvegi og viðræður
um kröfur þeirra á viðkvæmu
stigi.
-gg
Kvikmyndasjóður
Uthlutun
gagnrýnd
Stjórn félags kvikmyndagerð-
armanna hefur gagnrýnt úthiut-
un Kvikmyndasjóðs á dögunum
þar sem Hrafni Gunnlaugssyni
var úthlutað 15 miljónum til
myndarinnar Tristan og ísold
sem aðallega verður unnin af er-
lendum aðilum.
„Við samþykktum ályktun á
dögunum, þar sem gagnrýnt er að
úthlutað sé þriðjungi af ráðstöf-
unarfé sjóðsins í eitt verkefni sem
er að mestu í höndum erlendra
aðila, án þess að nokkur skilyrði
fylgdu um þátttöku íslenskra
kvikmyndagerðarmanna,“ sagði
Þorsteinn Jónsson formaður fél-
agsins í samtali við Þjóðviljann.
-sá.
Slys
Maðurinn
látinn laus
Maður lést er hann féll úr stiga
skömmu fyrir þrjú aðfaranótt
fimmtudagsins. Félagi hans sem
tilkynnti um slysið gLsti fanga-
geymslur um nóttina en var látinn
laus í gær eftir yfirheyrslur.
Að sögn RLR kom upp deila í
húsi í vesturbæ Reykjavíkur. Vís-
aði húsráðandi tveimur gesta
sinna á dyr og hélt síðan ásamt
þeim látna á eftir þeim. Þeir
höfðu læst sig úti og hugðust
komast inn um glugga, en þá féll
annar þeirra úr stiga þrjá metra
og lést.
Húsráðandi var einn til frá-
sagnar en lögreglan taldi ekki á-
stæðu til þess að halda honum
eftir skýrslutöku. Mennirnir
höfðu neytt talsvert mikils áfeng-
is um nóttina. -gg