Þjóðviljinn - 07.02.1987, Side 1
Laugardagur 7. febrúar 1987 30. tölublað 52. árgangur
Sjóðurinn
Slegist um fundargerðir
Sögulegarfundargerðir BJ í vörslu Þjóðviljans. Guðmundur E. og Stefán B.: Þorsteinn er réttlaus eftir
aðhafasagtaf sér. Sést ífundargerðunum. Þorsteinn:Rangt. Þjóðviljinn: Fundargerðirnarsanna ekkert
Ideilu þeirri setn nú er fyrir
dómstólum um yfirráð yfir
peningum BJ halda fyrrverandi
þingmenn fiokksins því fram, að
Þorsteinn Hákonarson, sem höfð-
ar málið á hendur þeim, hafi í
raun ekki heimild til málarekst-
urs fyrir BJ. Staðhæfinguna
byggja þeir á því að Þorsteinn
hafi sagt af sér trúnaðarstörfum
fyrir BJ, um leið og þeir tóku
ákvörðun um að ganga til liðs við
Alþýðuflokkinn. Þorsteinn neitar
því hins vegar, en þingmennirnir
svara því með því að vísa til
fundargerðar þar sem þetta komi
fram.
Þjóðviljinn hefur nú undir
höndum óundirrituð drög að
fundargerð frá hinum sögulega
fundi, þegar þingmennirnir tóku
ákvörðun sína um að ganga í Al-
þýðuflokkinn, og þar er mjög
óljóst hvort Þorsteinn geldur já-
Kynning
G-listinn
Reykjavík
Alþýðubandalagið í Reykjavík
kynnir framboðslista sinn fyrir
komandi þingkosningar. Sjá bls.
9-12
Var í fremstu
víglínu
íranskiflóttamaðurinn í
viðtali við Þjóðviljann:
Aðsœkja um pólitískt
hœli er erfiðasta ákvörð-
un lífs míns
„Ég var aðeins 19 ára þegar ég
fór í stríðið og 18 mánuði var ég í
fremstu víglínu. En ég vil ekki
tala um stríðið við þig, það vekur
upp of slæmar minningar,“ sagði
íranski flóttamaðurinn Omid
(persneska=von) í samtali við
Þjóðviljann í gær.
Hann sagði það erfiðustu á-
kvörðun lífs síns að yfirgefa land
sitt og leggja á flótta. „Ég hef
misst persónuleika minn,“ sagði
hann. „En ég átti engra kosta
völ.“
Sjá nánar í Nafni vikunnar í
Sunnudagsblaðinu. _vd.
yrði við að segja af sér trúnaðar-
störfum eður ei.
í yfirlýsingu sem blaðinu barst
frá Guðmundi Einarssyni og
Stefáni Benediktssyni í gær ítreka
þeir þá skoðun sína að Þorsteinn
hafi sagt af sér og vísa enn til fyrr-
_ nefndrar fundargerðar. „Dugi
það ekki, getum við leitt fram
vitni sem voru á fundinum,“
sagði Stefán við blaðið í eær-
kvöldi.
Kristín Waage, fyrrum starfs-
maður BJ, taldi aðalatriði máls-
ins vera, að hún hefði einungis
greitt sér og Karli Th. Birgissyni
laun út uppsagnarfrestinn sam-
kvæmt samningum. En þær
launagreiðslur kallar Þorsteinn
Hákonarson þjófnað, og telur þá
Stefán og Guðmund ábyrga fyrir
þjófnaðinum. „Þeir voru gengnir
úr BJ og gátu því engan veginn
ráðstafað fé þess,“ sagði Þor-
steinn í gær.
Guðmundur og Stefán kveðast
álíta, að þar sem þingflokki BJ
hafi verið úthlutaðir þessir pen-
ignar af ríkissjóði, þá beri að skila
þeim aftur þangað. _ gg/ös
Sjá yfirlýsingu Guð-
mundar og Stefáns,
ásamt yfirlýsingu Eiðs
Guðnasonar, bls. 3
Galvaskir námsmenn með nýja útvarpið sitt!
Ljósvakinn
Skólafólk fær Útras
Nýtt útvarp hefur göngu sína
Efni það sem boðið verður
uppá í miðli þessum kemur til
með að verða af ýmsum toga.
Vitaskuld verður megin áhersla
lögð á það sem snertir málefni
skólafólks, svo sem hagsmuna-
mál margskonar og menningarm-
ál, fræðslumál og skemmtan af
öllu tagi. En fullvíst má telja að
fólk á öllum aldri muni taka því
fegins hendi að geta hlýtt á vand-
að útvarp án þess að hafa auglý-
singar sýknt og heilagt glymjandi
í eyrum.
Stefnt er að því að varpa út
hvern rúmhelgan dag frá kl. 10-
24 þó hægar verði farið í sakirnar
fyrst í stað. -ks.
Sprautufólk
Aróðurinn hefur engin áhrif
Þráttfyrir hœttuna sem stafar afeyðnismiti virðastfíkniefnaneytendur ekki var■
kárari með sprautur. Fjöldi sprautufólks talinn vera um 120—150 manns
Framhaldsskólanemar eru
stórhuga um þessar mundir og
veigra sér ekki við því að etja
kappi við sér eldri og reyndari,“
menn! Þeir ætla nefnÚega að
hleypa af stokkunum nýrri út-
varpsstöð og mun fyrstu útsend-
ingar að vænta næstkomandi
mánudag á slaginu klukkan tólf á
hádegi. Verður þá send út hátíð-
ardagskrá og geta menn hlýtt á
hana með því að stilla tæki sín á
FM 88,6.
Útrás, en svo nefna þeir fyrir-
tækið, hefur verið nokkuð lengi í
deiglunni en fyrstu hugmyndir
um að ráðast í þetta stórvirki
kviknuðu um það bii sem nýju
útvarpslögin tóku gildi.
Stofnaðilar eru nemendafélög
átta framhalds skóla á höfuð-
borgarsvæðinu og munu þau
standa straum af rekstri útvarps-
ins að öllu leyti, sjá um dagskrá
og greiða allan kostnað. Það er
einkar athygli vert að ekki ein
einasta auglýsing mun verða lesin
í útvarpinu.
Aróðurinn gegn eyðni hefur lítil
áhrif haft inní okkar hóp. Við
erum ekkert á nálum út af þessu
og ég held að fólk haldi bara
áfram uppteknum hætti í
neyslunni, sagði fikniefnaneyt-
andi sem neytir reglulega amfct-
amíns í æð í samtali við Þjóðvilj-
ann, en sá hópur er að mati Ótt-
ars Guðmundssonar læknis að
Vogi talinn vera um 120-150
manns.
Hópur þeirra sem neytir am-
fetamíns í æð hefur stöðugt farið
stækkandi hér á landi og gerir
enn. Áætlað er að fjöldi þeirra
sem komu í meðferð á Voginn úr
' þessum hópi árið 1986 sé á milli
80-90 manns. Þessi hópur er
áhættuhópur hvað varða eyðni-
sjúkdóminn, en hlutfall sprautu-
fólks meðal þeirra sem mælst
hafa með eyðni á íslandi er hærra
en víðast hvar í nágrannalöndun-
um eða um 21% sýktra.
í úttekt Þjóðviljans í Sunnu-
dagsblaðinu segir viðmælandi
sem er sprautumaður að notkun-
arvenjur fólks á sprautum hafi
lítið sem ekkert breyst þrátt fyrir
eyðniáróðurinn. Fólk noti sömu
sprauturnar og aðrir ef aðstæður
bjóði ekki uppá annað.
-K-Ól.
Sjá bls. 4 og 5
í Sunnudagsblaði
■■HBmnHraB