Þjóðviljinn - 07.02.1987, Blaðsíða 17

Þjóðviljinn - 07.02.1987, Blaðsíða 17
Á sjötugsafmæli Gylfa Þ. Gísla- sonar lít ég í huganum yfir glæsi- legan starfsferil hans. Gylfi hefur lengi staðið í fylkingarbrjósti bæði í sinni fræðigrein og á sviði stjórn- mála. Að loknu kandídatsprófi í hagfræði frá háskólanum í Frank- furt am Main árið 1939 hóf hann kennslustörf við Viðskiptaháskóla íslands og hélt þeim áfram í Há- skóla íslands, þegar kennsla í við- skiptafræði og hagfræði fluttist þangað árið 1941. Hann var skipað- ur dósent árið 1940 og prófessor 1946. Doktorsprófi lauk hann við sinn gamla háskóla í Frankfurt árið 1954 og árið 1971 var hann gerður heiðursdoktor við Háskóla fslands. Gylfi hefur setið í miðstjórn Al- þýðuflokksins í 46 ár og var for- maður hans í sex ár. Auk þess hefur hann gegnt mörgum öðrum helstu trúnaðarstörfum innan flokksins. Hann sat á Alþingi sem þingmaður Reykvíkinga í 32 ár, eða frá árinu 1946 til 1978. Hann var mennta- málaráðherra árin 1956-1971, eða samfellt í 15 ár, og af þeim tíma var hann einnig viðskiptaráðherra í meira en 12 ár. Jafnframt fór hann með samskipti íslands við alþjóða- stofnanir á sviði efnahagsmála eins og Efnahags- og framfarastofnunin (OECD áður OEEC), Alþjóða- gjaldeyrissjóðinn og Alþjóðabank- ann og viðskiptabandalögin í Evr- ópu (Fríverslunarsamtökin, EFTA og Evrópubandalagið) allan sinn langa ráðherraferil. Hann hefur látið norrænt samstarf mjög til sín taka og var árin 1971-1978 formað- ur menningarmálanefndar Norður- landaráðs og fjárlaganefndar Norðurlandaráðs árin 1975-1978. Hann er nú formaður Norræna fé- lagsins á fslandi. Ég hef hér stiklað á stóru í starfs- ferli Gylfa, því nákvæm upptalning á öllum þeim margháttuðu trúnað- arstörfum, sem hann hefur gegnt, sprengir af sér öll bönd. Auk kennslu- og stjórnmálastarfa hefur Gylfi verið mikilvirkur rithöfundur og einn helsti brauðryðjandi í kennslu og rannsóknum á efna- hagsmálum hér á landi. Hann hefur skrifað fjölda bóka og ritgerða í fræðigrein sinni, en hefur auk þess látið sér fátt óviðkomandi, sem varðar farsæld íslendinga, afkomu þeirra og menningu. Honum er ein- staklega vel lagið að koma skoðun- um sínum á framfæri á ljósu máli. Fjölbreytnina í störfum Gylfa og hugðarefnum má glöggt sjá af úr- vali úr ræðum hans og ritgerðum, sem vinir hans og samstarfsmenn hafa gengist fyrir að gefið er út í bókinni Hagsæld, tími og hamingja í tilefni af sjötugsafmælinu. Úrva- linu fylgir einnig ítarleg skrá um rit hans. Gylfi leggur gjörva hönd að ritsmíðum jafnt um reikningsskil fyrirtækja sem varðveislu þjóðm- enningar. Það sætir furðu, hversu miklu Gylfi hefur komið í verk um dag- ana. Þó finnst mér enn merkilegra, að hann er enn í dag jafn starfsamur og hann var á sínum yngri árum. Nú, þegar hann stendur á sjötugu, er hann afkastamikill að semja og gefa út kennslubækur í þjóðhag- fræði og rekstrarhagfræði. Hann hefur frá því hann hóf kennslu á ný árið 1972 lagt grundvöll að nýrri grein við viðskiptadeild Háskóla ís- lands, fiskihagfræði, og eins og fyrri daginn ekki látið sér nægja að nota erlendar kennslubækur heldur samið sérstakt kennsluefni á ís- lensku, sniðið eftir íslenskum að- stæðum. Kennslustarf Gylfa er stórvirki, sem flestir mættu vera fullsæmdir af einu, en hjá honum er það aðeins einn þráður í margþætt- um starfsferli. Gylfi Þ. Gíslason sannar með lífi sínu og starfi þá kenningu um örlæti andans, sem Sigurður Nordal setti fram í rit- gerðinni „Samlagning“ í tímaritinu Vöku árið 1927: AFMÆU P. Gíslason sjötugur Mörgum manni hœttir við að spara sjálfan sig og minnast hins al- kunna stœrðfrœðilögmáls: Pað eyðist allt sem af er tekið. En undir eins og kemur yfir á landamcerasvið efnis og anda, hið lífrœna svið, kemur fram segulskekkja í áttavita tölvísinnar. Steinn og málmur slitna seint, en slitna bótalaust. En lífið bœtiroftslitogáreynslu tvennum og þrennum gjöldum. Það rýrnar og hrörnar við sparnað, en magnast við slit og auðgast við örlœti. Ef menn eru svo gætnir og sínkir, að þeir tíma ekki að segja né skrifa hugsanir sínar, rýmist aldrei til í huganum. Gylfi Þ. Gíslason hefur aldrei sparað sjálfan sig. En fyrir utan þekkingu, vinnu- semi og starfsþrek er hann einnig gæddur þolinmæði og þrautseigju, sem eru afar mikilvægir kostir for- ystumanns í stjórnmálum. Mig langar að nefna þrjú dæmi um far- sæla forystu Gylfa í málefnum þjóðarinnar, þar sem þessir kostir hans koma glöggt í Ijós. Fyrsta dæmið er aðild Islands að Fríversl- unarsamtökum Evrópu, EFTA, og viðskiptasamningur við Evrópu- bandalagið, sem sigldu í kjölfarið og hafa reynst íslendingum hag- stæðir, og eiga án efa eftir að reynast enn hagstæðari í framtíð- inni. Gylfi skildi flestum betur, að íslendingar máttu ekki einangrast á sviði alþjóðaviðskipta, ef unnt átti að reynast að efla útflutningsiðnað verulega sem undirstöðu framfara. Allan sinn ráðherraferil vann hann ásamt öðrum að því að ná hagstæð- um samningum við viðskipta- heildirnar, sem mynduðust í Vestur-Evrópu á síðari hluta sjötta og í upphafi sjöunda áratugarins. Mikilvægasta áfanganum í þessu máli var náð haustið 1969, þegar ísland gerðist aðili að EFTA. Annað dæmið, sem ég vil nefna, er á sviði menntamála. Það er ekki jafnskýrt markað sem einstakur at- burður og aðildin að EFTA, en er þó ekki síður mikilvægt. Hér á ég við nýskipan á málefnum há- skólans, sem ákveðin var árið 1970 með setningu reglugerða um aukna fjölbreytni í - kennslu og rannsóknastörfum og með auknum fjárveitingum til skólans. Þessi efling háskólans var í reynd ávöxtur margra ára undirbúningsvinnu undir forystu Gylfa. Þriðja dæmið er svo heimkoma handritanna. Sjaldan hefur nokkr- um atburði verið tekið af jafndjúp- um og einlægum fögnuði af öllum landsmönnum eins og þegar menntamálaráðherra Danmerkur, Helge Larsen, afhenti íslendingum Flateyjarbók og Konungsbók eddukvæða í apríl árið 1971 til marks um það, að handritamálinu væri lokið með þessu óviðjafnan- lega drengskaparbragði Dana. Að- dragandi þessa einstæða, menning- arsögulega viðburðar var langur. Alla sína ráðherratíð hafði Gylfi Þ. Gíslason forystu fyrir því mikla þol- inmæðisverki að auka skilning Dana á málstað íslendinga í þessu viðkvæma máli. Það fór einkar vel á því, að Gylfi skyldi sem mennta- málaráðherra taka við bókunum tveimur fyrir hönd fslendinga. Það er þátttaka Gylfa og forysta í þjóðþrifaverkum af þessu tagi, sem gera það að verkum, að hann má hiklaust telja einn merkasta stjórnmálamann íslendinga á lýð- veldistímanum. Hann, sem er rösku ári eldri en fullveldið, er einn þeirra stjórnmálamanna, sem hafa lagt sitt af mörkum til þess að draumur þeirra, sem hófu sjálf- stæðisbaráttuna á nítjándu öld, rættist; draumurinn um íslenska þjóð sem stjórnarfarslega frjálsa þjóð, efnahagslega sjálfstæða þjóð og menningarlega fullgilda þjóð. En til þess að þetta þrennt verði varanlegur veruleiki þarf þolgæði og þrotlaust starf. I því starfi er fordæmi Gylfa Þ. Gíslasonar verð- ugt til eftirbreytni. Fundum okkar Gylfa bar saman í fyrsta sinn árið 1964, þegar ég hóf störf í Efnahagsstofnun. Mér er það minnisstætt, hversu yfirlætis- laus og þægilegur ráðherrann var í viðmóti við nýútskrifaðan kandídat og reiðubúinn til að tala við hann eins og jafningja um viðfangsefnið, sem var yfirlit yfir þróun kaupmátt- ar kauptaxta og tekna. Þá eins og nú hafði hann smitandi áhuga á því að fá sem allra gleggsta mynd af því, sem tölurnar áttu að lýsa. I störfum mínum við Efnahagsstofn- un kynntist ég svo Gylfa betur í hinum daglegu verkum á sviði efna- hagsmála. Auk þess átti ég seinna því láni að fagna að vinna fyrir hann að ýmsum afmörkuðum verkum. Meðal margra góðra kosta, sem Gylfi er gæddur, er sá, að hann á afar létt með að skipta verkum og ætla öðrum verk sem hluta af stærri heild. Þessi hæfileiki er sjaldgæfur, og enn sjaldgæfara, að hann sé gef- inn þeim, sem eru sjálfir svo miklir verkmenn sem Gylfi er. Ég tók meðal annarra nokkurn þátt í undirbúningi tillögu til þingsálykt- unar um aðild íslands að EFTA haustið 1969. í því máli lagði Gylfi af mikilli skarpskyggni höfuð- áherslu á, að dregnir yrðu fram þeir möguleikar, sem EFTA-aðildin gæfi íslendingum til þess að auka iðnaðarútflutning. Síðar vann ég einnig með Gylfa og starfsmönnum hans í menntamálaráðuneyti og Háskóla Islands að undirbúningi tillagna um eflingu háskólans 1970. Þetta samstarí var mér góður skóli, og þau góðu kynni, sem tókust með okkur þá, hafa haldist og batnað æ síðan. Reyndar finnst mér nú með ólíkindum, að liðnir séu meira en tveir áratugir frá því við kynntumst, og hinn áhugasami fræðimaður og stjórnmálamaður, sem kann svo vel að nota símann til að halda sambandi við vini sína og kunningja, sé orðinn sjötugur. Hann gengur að hverju verki með áhuga hins unga manns, en jafn- framt einstæðum hæfileika til ein- beitingar, þegar á þarf að halda. Gylfi kvæntist ungur Guðrúnu Vilmundardóttur, og er jafnræði með þeim hjónum. Á þeirra heimili er gott að koma. Þar ræður gest- risni húsum. Synir þeirra þrír hafa allir sýnt með verkum sínum, hversu góðir stofnar standa að þeim. Heimilið að Aragötu 11 hef- ur mátt þola mótlæti. Guðrún og Gylfi og þeirra nánustu hafa orðið fyrir sárum ástvinamissi. Þau hafa orðið að sjá á bak syni og sonar- börnum. Fjölskyldan hefur borið þessar þungu sorgir með þeirri skapfestu og sálarstyrk, sem fá dæmi eru til. Það lýsir Gylfa vel, og viðhorfi hans til stjórnmálastarfs, sem hann sagði í haust á flokksþingi Alþýðu- flokksins í Hveragerði: „Virðing fyrir því, sem er satt og rétt, verður að móta alla baráttu í stjórnmálum. Og stjórnmálamenn verða ekki að- eins að kappkosta að segja jafnan satt. Þeir verða einnig að gera rétt, þeir mega aldrei taka eigin hagsmuni eða sérhagsmuni um- bjóðenda fram yfir hagsmuni heildarinnar, og þeir eiga að vera fyrirmynd varðandi ráðdeild og reglusemi." Hann sagði þar líka: „Ef hófsemi og heiðarleiki ásamt virðingu fyrir sannleika og réttlæti eru hornsteinar stjórnmálalífs, verður árangurinn gott þjóðfélag.“ Sjálfur hefur Gylfi fylgt þessum góðu lífsreglum. Gylfi hefur sagt frá því, að hann hafi orðið jafnaðarmaður vegna þess, að sér hafi runnið til rifja fá- tæktin og atvinnuleysið, sem hann sá sem unglingur á kreppuárunum í Reykjavík. Þá hafi vaknað í brjósti sér eldheit andstaða gegn því rang- læti, sem felst í örbirgð og atvinnu- leysi, og sterk samúð með þeim, sem urðu undir í lífsbaráttunni. Reyndar má segja, að þessi mann- úðarhugsjón gangi eins og rauður þráður í gegnum öll hans verk. En Gylfi skilur líka öðrum mönnum betur, að útrýming fátæktar og aukin hagsæld er ekki nóg til að færa þjóðum hamingju. Til að sækja fram til betra lífs þarf að efla menningu og gæta þess að spilla ekki náttúrlegu umhverfi mannlegs lífs. Um þetta allt má skrifa fleira en rúmast í þessu blaði. Því læt ég staðar numið með einlægum árnað- aróskum til Gylfa og fjölskyldu hans. Megi honum enn auðnast líf og heilsa til góðra verka fyrir land sitt og þjóð og til góðra samverust- unda með ástvinum sínum. Reykjavík 7. febrúar 1987 Jón Sigurðsson Kynni mín af Gylfa Þ. Gíslasyni, jafnaðarmanninum og rithöfundin- um, tókust löngu áður en ég kynntist manninum sjálfum og lærði að meta hann að verðleikum. Snemma á unglingsárum barst mér í hendur lítið kver eftir Gylfa: Jafn- aðarstefnan, trúi ég það heiti. Ef mig ekki misminnir voru þeir fóst- bræður Marx og Engels utan á káp- unni í félagi við minni spámenn norður-evrópskra krataforingja eins og Stauning, hinn danska síð- skegg og Clement Atlee nauðrak- aðan (sem stórbokkinn Churchill sagði ákaflega lítillátan - og ekki að ástæðulausu). Ég man ekki betur en ég hafi haft þetta kver í farangrinum í sveitina sumarið 1950. Þegar illa viðraði til útiverka gafst næði til að brjóta heilann um fræði Gylfa. Af lestri þessa kvers rann upp fyrir mér hví- líkur reginmunur væri á mannskiln- ingi jafnaðarmanna og kommún- ista - og er þó einlægt verið að kenna báða við sama ismann. Gylfi boðaði ekki Paradís á jörðu sam- kvæmt formúlu sjálfskipaðrar úr- valssveitar, þeirra sem allt þykjast vita og skilja öðrum betur. Gylfi boðaði trú á manninn, dómgreind hansogsiðgæðisvitund. Samkvæmt hans ritúali er jafnaðarstefnan spurning um siðferðilegt gildismat; hún er húmanismi + mannréttinda- barátta. Gylfi útskýrði orsakasamhengi efnahagsskipulags og lýðræðis. Hann sýndi fram á, að lýðræði fengi ekki staðist, nema þar sem hið efnahagslega ákvörðunarvald dreifist á marga aðila, sem eru óháðir valdhöfum. Sú röksemda- færsla leiðir til niðurstöðu, sem við köllum blandað hagkerfi, þar sem eignaréttarform eru margvísleg og efnahagslegt vald er dreift. Þarna var opnaður gluggi til nýrra átta. Þarna heyrði ég í fyrsta sinn sagt frá því, um hvað nútímaleg jafnaðar- stefna snýst. Þetta var ekki hörð kenning í samanburði við þann rétttrúnað rannsóknarréttarins, sem lesa mátti af guðspjöllum Einars og Brynjólfs. Og vakti til umhugsun- ar, sem hefur reynst lífsseig. Gylfi sýndi fram á það með fræðilegum rökum og vísan til sögulegrar reynslu, að hinn kosturinn ersá, að valdhafarnir (ríkið) fari einir með þetta gífurlega vald. Það endar ævinlega í valdbeitingu - lögreglu- ríki. Gildir þá einu, hvort böðuls- höndin er brún eða rauð - eins og Tómas kvað. Sú kom tíð á pólitísku gelgju- skeiði, að mér þóttu fræði Gylfa helst til þurr og hversdagsleg - varla nógu spennandi fyrir tíðar- andann. Um skeið varð ég inni- lyksa í völundarhúsi hinnar hátim- bruðu hugmyndafræði Marx gamla og epígóna hans. Þaðan rataði ég út aftur síðla á menntaskólaárum undir leiðsögn Djilasar og Cros- lands hins enska. Sá var reyndar húmanískur hagfræðingur og Iist- unnandi, sem minnti um margt á hinn þýsk-skólaða Gylfa. Ég rifja upp þessi bernskukynni af leiðbeinanda og læriföður á 70 ára afmæli hans, vegna þess að hún staðfestir, að Gylfi Þ. Gíslason hef- ur verið óvenjulegur stjórnmála- maður. Þeir stjórnmálamenn ís- Ienskir, sem með ritverkum sínum hafa náð því að sá frjókornum nýrra hugmynda í huga unglinga á mótunarskeiði, eru ekki margir. Þeir sem hafa afvegaleitt ungar sál- ir í pólitískri hjátrú og hindurvitn- um, eru helst til margir. Andlegur heiðarleiki, yfirburða- þekking, rökrétt hugsun, skýr framsetning og látlaus stíll - þetta eru kostir, sem prýða hvern mann. Gylfi Þ. Gíslason hefur sýnt það í lífsstarfi sínu, að hann er þessum kostum búinn umfram flesta menn. Hann var á sínum tíma mjög um- deildur stjórnmálamaður. Hann fór ekki varhluta af sleggjudómum og illmælgi miður góðgjarnra sam- tíðarmanna. En verkin blífa. Þess vegna er það, að vegur Gylfa og virðing með þjóðinni fer vaxandi. Hann er metinn að verðleikum m af Laugardagur 7. febrúar 1987 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 17

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.