Þjóðviljinn - 07.02.1987, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 07.02.1987, Blaðsíða 9
Þangað ætlum við með fleira fólk, því kosningasigur Alþýðubandalagsins er eina leiðin til að breyta þjóðfó- laginu. Svavar Gestsson efsti maður G-listans í Reykja- vík. Guðrún Helgadóttir 2. maður G-listans í Reykjavík. Myndin er tekin á heimili Guðrúnar, en þar er oft margt um manninn og mikið rætt um menningu og pólitík og allt þar á milli. Ásmundur Stefánsson, forseti Alþýðusamband (slands, skipar 3. sæti G-listans. Hann er mikið á ferðinni og næstu vikurnar meira en nokkru sinni fyrr sem frambjóð- andi Alþýðubandalagsins í Reykjavík. Álfheiður Ingadóttir, blaðamaður, skipar baráttusæti listans, 4. sætið. Hún er þekkt fyrir blaðaskrif sín, en einnig fyrir afskipti sín af umhverf ismálum og þátttöku í jafnróttisbaráttu kvenna, meðal annars fyrir starf við Kvennaat- hvarfið í Reykjavík. Olga Guðrún Árnadóttir rithöfundur skipar 5. sæti G-listans. Auk ritstarfa er Olga þekkt fyrir söng sinn og baráttu fyrir betra lífi barnanna í þessu landi. Þá hefur Olga starfað mikið með Húsnæðishópnum svonefnda sem um árabil hefur barist fyrir réttlátri húsnæðisstefnu. G-LISTINN í REYKJAVÍK Samnefnari allra vinstrimanna Við kynnum G-listann í Reykjavík. Listann skipa að þessu sinni 36 menn samkvæmt nýju kosningalögunum sem gera ráð fyrir því að kosn- ir verði 18 alþingismenn fyrir Reykjavíkurkjör- dæmi. Listinn okkar í Reykjavík er fjölbreyttur fram- boðslisti sem á að geta verið góður samnefnari fyrir alla vinstri menn í höfuðborg landsins: Þar eru í efstu sætum alþingismenn flokksins þau Svavar og Guðrún. Þriðja sætið skipar forseti Alþýðusambands íslands og í fleiri sætum listans sjáum við forystulið verkalýðssamtakanna, bæði Alþýðusambands íslands og Bandalags starfs- manna ríkis og bæja. Og auðvitað eru konur jafnmargar og karlar: Þetta er listi jafnréttissinna. í fimm efstu sætunum eru þrjár konur. Á listanum eru einnig öflugir baráttumenn fyrir jafnrétti fatlaðra: Þau Arnór Pétursson og Ólöf Ríkharðsdóttir. Það sem einna mesta athygli vekur er myndar- legur hlutur íslenskra listamanna á framboðslista Alþýðubandalagsins. Kjartan Ragnarsson, leikari og leikstjóri, Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, leikari, Sif Ragnhildar- dóttir, söngkona og rithöfundarnir: Sigurður A. Magnússon, Guðbergur Bergsson og Vigdís Grímsdóttir að ógleymdum auðvitað þeim Guð- rúnu og Olgu sem eru líka rithöfundar og skipa efstu sæti listans. Eitt alvarlegasta vandamál samtímans eru um- hverfismálin, en Alþýðubandalagið var fyrsti flokkurinn til þess að taka náttúruverndar- og umhverfismál á dagskrá sína hér á landi. í sam- ræmi við áherslur okkar í þeim efnum skipa tals- menn umhverfissjónarmiða sæti ofarlega á list- anum: Álfheiður Ingadóttir, blaðamaður 4. sæti framboðslistans og Auður Sveinsdóttir, varafor- maður Landverndar í 10. sæti framboðslistans. Á listanum eru flokksmenn og einnig fólk úr stuðningssveit Alþýðubandalagsins sem ekki hefur áður skipað sér í fremstu röð. Það má líka benda á að á listanum eru fulltrúar þeirra hópa sem sérstaklega hafa orðið fyrir at- lögum stjórnarstefnunnar: Fulltrúar kvennabaráttunnar, verkalýðshreyf- ingarinnar og menningarlífsins. Þar eru sterkir talsmenn kröfunnar um nýtt og betra þjóðfélag handa barninu, þjóðfélag fjölskyldustefnu sem skapar barninu hollar og menntandi uppeldisað- stæður. Með þessum orðum kynnum við G-listann í Reykjavík. Laugardagur 7. febrúar 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.