Þjóðviljinn - 07.02.1987, Page 6
ALÞÝÐUBANDALAGHD
Málefnahópur
Utanríkis- og friðarmál
Málefnahópur Alþýðubandalagsins um utanríkis- og friðarmál er boðað-
urtilfundaríflokksmiðstöðinni, Hverfisgötu 105, Reykjavík mánudaginn9.
febrúar kl. 20.30.
Félagar mætið vel og stundvíslega.
Alþýðubandalagið á Norðurlandi eystra
Byggjum landið allt
Alþýðubandalagið heldur opna stjórnmálafundi á eftirtöldum stöðum:
Félagsheimili Húsavíkur, sunnudaginn 8. febrúar kl. 13.30. Gestur fundar-
ins er Kristín Á. Ólafsdóttir varaformaður Alþýðubandalagsins.
Alþýðuhúsið á Akureyri, sunnudaginn 8. febrúar kl. 20.30. Gestur fundar-
ins Kristín Á. Ólafsdóttir varaformaður Alþýðubandalagsins.
Frambjóðendur Alþýðubandalagsins á Norðurlandi eystra flytja ávörp á
fundunum. - Kjördæmisráð.
Alþýðubandalagið Rangárþingi
Almennur félagsfundur
Almennur félagsfundur verður haldinn föstudaginn 13. febrúar kl. 21.00
að Krókstúni 5, Hvolsvelli.
Á fundinn koma menn úr efstu sætum framboðslistans. Nýir félagar
velkomnir.
Stjórnin.
Miðstjórn Alþýðubandalagsins
Miðstjórnarfundur
verður haldinn 7. og 8. mars nk. í flokksmiðstöðinni Hverfisgötu 105,
Reykjavík. Fundargögn verða send út í vikunni. Efstu menn á framboðslist-
um flokksins eru sérstaklega boðaðir á fundinn.
Formaður miðstjórnar.
Alþýðubandalagið Kópavogi
Morgunkaffi ABK
Heimir Pálsson bæjarfulltrúi og Ari Skúlason formaður atvinnumálanefndar
verða með heitt á könnunni í Þinghóli, Hamraborg 11, 3. hæð í dag,
laugardag, milli kl. 10-12.
Kópavogsbúar velkomnir. - Stjórnin.
/ESKULÝÐSFYLKINGIN
Æskulýðsfylkingin
Skrifstofa ÆFAB
Skrifstofa Æskulýðsfylkingarinnar verður opin næstu vikur á milli 17-19
alla virka daga.
Liggi þér eitthvað á hjarta, þá sláðu á þráðinn í síma 17500 eða röltu við á
H-105.
Starfsmenn.
ÆFR
Aðalfundur
Æskulýðsfylkingin í Reykjvík boðar til aðalfundar, laugardaginn 14. fe-
brúar kl. 10.00 árdegis.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Önnur dagsrkáratriði auglýst síðar.
Stjórn ÆFR
Lögtaksú rsku rðu r
Eftir beiðni Hafnarfjarðarbæjar úrskurðast hér
með að lögtök megi fara fram fyrir eftirtöldum
gjöldum til Hafnarfjarðarbæjar, ásamt dráttar-
vöxtum og kostnaði.
I.
Til bæjarsjóðs Hafnarfjarðar:
a) Gjaldfallin eru ógreidd gatnaðgerðargjöld
álögð 1986, skv. 6. gr. rgl. nr. 446, 9. okt. 1975
um gatnagerðargjöld í Hafnarfirði sbr. og rgl. nr.
468 7. júlí 1981.
b) Gjaldfallin en ógreidd leyfisgjöld álögð 1986,
skv. gr. 9.2. í byggingarreglugerð nr. 292,16. maí
1979.
II.
Til hafnarsjóðs Hafnarfjarðar:
Gjaldfallin en ógreidd hafnargjöld álögð 1986,
skv. 11. gr. hafnarlaga nr. 69/1984, sbr. rgl. nr.
494/1986 og rgl. nr. 375/1985.
Lögtök fyrir framangreindum gjöldum ásamt
dráttarvöxtum og kostnaði mega fara fram á
kostnað gjaldenda, en á ábyrgð Hafnarfjarðar-
bæjar, að átta dögum liðnum frá birtingu þessa
lögtaksúrskurðar.
Hafnarfirði 30. janúar 1987.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði.
INNSÝN
aðarbandalögum bót - fyrir hönd
Islendinga.
Varnaglar gegn friði
Og nú koma varnaglarnir: „En
afvopnunin verður að taka mið af
ástæðum og orsökum vígbúnað-
arins, sem eru stjórnmálalegs eð-
lis. _ (Leturbr. Þjóðv.: Hvað
meinar maðurinn?). Efafvopnun
á að skila árangri og friður að
aukast verður því að vera fyrir
hendi samningsvilji voldugustu
ríkja heims. Sá vilji verður til
þegar ótti og tortryggni minnkar.
(Hvernig gerist það?).
Skilyrði afvopnunar eru fleiri.
Það verður að vera ljóst til hvaða
tegunda vopna niðurskurður
tekur. Það verður að koma í veg
fyrir að árangur á einu sviði leiði
til hernaðarkapphlaups á öðrum
sviðum. Niðurskurður kjarna-
vopna má ekki skapa ójafnvægi
t.d. á sviði efnavopna eða hefð-
bundins vígbúnaðar. (Leturbr.
Þjóðv.). Frysting og bann við
kjarnasprengjum má ekki leiða
til þess að ríki geti haldið
augljósu forskoti. (Menn skulu
hafa það hugfast þótt erfitt sé, að
það er utanríkisráðherra íslands,
sem skrifar þessa grein, en ekki
hershöfðingi í Washington eða
Moskvu). Mikilvægasta skilyrði
afvopnunar er síðan eftirlit með
framkvæmd hennar. Eftirlitið
verður að vera með þeim hætti að
allir aðilar geti unað við það og
treyst því.
A vettvangi Sameinuðu þjóð-
anna höfum við greitt atkvæði
gegn óraunsæjum og óraunhæf-
um tillögum um frystingu og af-
vopnun þar sem framangreindra
atriða er ekki gætt. I umræðum á
vettvangi Norðurlandaráðs um
kjarnorkuvopnalaus svæði höf-
um við lagt áherslu á, að hvert
skref til afvopnunar dragi úr
spennu. (Með því að koma í veg
fyrir að Norðurlönd verði kjarn-
orkuvopnalaus svœði???) Við
höfum hvatt til samstöðu með
öðrum vestrænum ríkjum og við
höfum lagt til að slíkt svæði verði
víðáttumeira og taki jafnframt til
hafsins. Með slíkri afstöðu höfum
við gætt þess að hrapa ekki að
neinu því sem spillt gæti friðnum
eða forsendum hans.
Stefna íslendinga í afvopnun-
armálum er varfærin en hún er
um leið ábyrg. Næðist árangur í
anda hennar yrði friður og af-
vopnun líka langvarandi.“ (Let-
urbr. Þjóðv.)
Friður
kjötkaupmanna
og skipamiðlara
Og þar með er lokið úttekt
Matthíasar Á. Mathiesen utan-
ríkisráðherra ríkisstjórnar Stein-
gríms Hermannssonar á framlagi
Islendinga til friðarmála.
Þetta framlag er ekki mikils
virði.
Þetta framlag gerir okkur ef til
vill kleift að selja ameríska setu-
liðinu dáldið af keti (samt ekki
lambaketi) og hænueggjum, og
þetta framlag gerir okkur ef til
vill kleift að fá örlitla sposlu
handa íslenskum skipafélögum
við birgðaflutning fyrir herveld-
ið.
Þetta framlag gerir okkur ekki
kleift að tala um sjálfstæða utan-
ríkisstefnu, hvað þá friðar- eða
afvopnunarstefnu.
Þetta er framlag dáðlausrar
ríkisstjórnar til að halda við-
skiptafriðinn við vini okkar í
vestri.
Þetta framlag til friðarmála á
þessum skelfilegu kjarnorkutím-
um er jafnaumkunarvert og ríkis-
stjórnin sem leggur það fram.
Ef ísland hefur ekki annað til
málanna að leggja á alþjóðavett-
vangi er sæmst að þegja.
Þegja og hugsa um hermangs-
gróðann og reyna að gleyma
50.000 kjarnaoddum. Reyna að
vera borubrött og halda áfram að
þykjast trúa því að friðarmálin
snúist um nokkra skrokka af
lambaketi. -Þráinn
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur
Auglýsing
frá Menntamálaráði íslands um
styrkveitingar árið 1987
Samkvæmt fjárveitingu á fjárlögum 1987 verða á
árinu veittir eftirfarandi styrkir úr Menningarsjóði
ísiands:
Útgáfa tónverka
Til útgáfa íslenskra tónverka veröa veittir einn eða
fleiri styrkir en heildarupphæð er kr. 100.000.00. Um-
sóknum skulu fylgja upplýsingar um tónverk þau sem
áformað er að gefa út.
Dvalarstyrkir listamanna
Veittir verða 8 styrkir að upphæð kr. 70.000.00 hver.
Styrkir þessir eru ætlaðir listamönnum sem hyggjast
dveljast erlendis um a.m.k. tveggja mánaða skeið og
vinna þar að listgrein sinni. Umsóknum skulu fylgja
sem nákvæmastar upplýsingar um fyrirhugaða dvöl.
Þeir sem ekki hafa fengið sams konar styrk frá
Menntamálaráði síðastliðin 5 ár ganga að öðru jöfnu
fyrir við úthlutun.
Styrkir til fræðimanna
Styrkir þessir eru til stuðnings þeim sem stunda fræði-
störf og náttúrufræðirannsóknir. Heildarstyrkupphæð
er kr. 220.000.00. Umsóknum skulu fylgja upplýsingar
um þau fræðiverkefni sem unnið er að.
Umsóknir um framangreinda styrki skulu hafa borist
Menntamálaráði íslands, Skálholtsstíg 7,101 Reykja-
vík fyrir 10. mars 1987.
Nauðsynlegt er að nafnnúmer umsækjanda fylgi um-
sókninni.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu Menn-
ingarsjóðs að Skálholtsstíg 7, Reykjavík.
SVÆÐISSTJÓRN
MÁLEFNA FATLAÐRA
Reykjavík
Laus staða
forstöðumanns
Auglýst er til umsóknar staða forstöðumanns á
nýju heimili í Reykjavík fyrir 5 fjölfötluð börn.
Starfsvið forstöðumanns verður auk meðferðar-
starfa, ráðning starfsfólks, vaktaskipulag og fjár-
reiður.
Staðan veitir hlutaðeigandi mikið frjálsræði hvað
varðar efnistök en krefst fagþekkingar, færni í
samskiptum og hæfileikatil stjórnunar. Mikilvægt
er að viðkomandi hafi reynslu af meðferðarstarfi
með fötluðum og þekki fjölþætt markmið þess.
Ráðningartími hefst þ. 1. júlí nk. Laun skv. kjörum
opinberra starfsmanna. Umsóknir ásamt upplýs-
ingum um menntun og fyrri störf sendist fyrir 1.
mars nk.
Nánari upplýsingar í síma 621388.
Svæðisstjórn málefna fatlaðra í Reykjavík,
Hátúni 10, 105 Reykjavík.
Laus staða
Kvikmyndasjóður íslands óskar að ráða starfs-
mann. Hér er um að ræða fjölbreytt og áhugavert
starf, sem felur m.a. í sér vinnu við Kvikmynda-
safn íslands auk almennra skrifstofustarfa.
Nauðsynlegt er að umsækjendur hafi lokið a.m.k.
stúdentsprófi, geti unnið á tölvu og hafi skipu-
lagshæfileika.
Um er að ræða hálfs dags starf fyrst um sinn.
Laun samkvæmt kjarasamningum opinberra
starfsmanna.
Upplýsingar um menntun og fyrri störf sendist
fyrir 15. febrúar til
Kvikmyndasjóðs íslands
Skipholti 31, 105 Reykjavík.
Auglýsið í Þjóðviljanum