Þjóðviljinn - 07.02.1987, Qupperneq 20

Þjóðviljinn - 07.02.1987, Qupperneq 20
Aðalsími 681333 Kvöldsími 681348 Helgarsími 681663 þjómnuiNN Laugardagur 7. febrúar 1987 30. tölublað 52. örgangur SAMVINNUBANKI ÍSLANDS HF. Keflavík Sprengjumar virkar Friðþór Eydal blaðafulltrúi varnarliðsins: Fólk tilkynni yfirvöldum efþaðfinnurgamalthernaðardót Asvæðinu við Háabjaila sem er gamalt æfíngasvæði landhers- ins var mikið af alls kyns gömlu drasli og voru þar á meðal gamlar sprengjur, bæði virkar og óvirk- ar en svæðið var hreinsað síð- astliðið sumar og vonandi hefur það tekist vel, en ef fólk fínnur eitthvað torkennilegt verður það endilega að láta það eiga sig að hafa hendur á því heldur tilkynna það lögreglu eða varnarliðinu strax,“ sagði Friðþór Eydal blaðafulltrúi varnarliðsins. Þeim sprengjum sem þarna lágu hefur sumum verið varpað úr flugvélum og þær grafist niður í jarðveginn og síðar lyfst upp á yfirborðið með tímanum vegna frosta og jarðklaka en aðrar slík- ar hafa ekki sprungið af ýmsum orsökum. Þetta æfingasvæði var mikið notað fram til um 1960 og að- spurður um hversvegna herinn hefði ekki tekið til eftir sig fyrr, sagðist Friðþór ekki vera kunn- ugur málinu, en telja að ekki hefði verið farið fram á það fyrr. Friðþór gat þess einnig að sprengjan sem drengirnir í Kefla- vík fundu um daginn í fjörunni við bæinn, hefði að öllum líkind- um upphaflega fundist annars- staðar en verið borin þangað al- veg nýlega. / Hann taldi ekki ólíklegt að eitthvað af svona dóti, jafnvel virku, væri í höndum fólks víðs- vegar og væri full ástæða til að minna á þá hættu sem slíku fylgir og hvetja fólk til að afhenda það yfirvöldum sem koma draslinu fyrir kattarnef. -sá. Krafla Hreyfing Við Leirhnúk Stöðugt en hægfara landris hef- ur verið í kringum Leirhnúk við Kröflu síðan i nóvember, en þar hefur allt verið með kyrrum kjörum síðan í mars 1985. „Þetta er ákaflega lítið landris en við fylgjumst vel með öllu,“ sagði Guðmundur Sigvaldason jarðfræðingur við Norrænu eld- fjallastöðina í samtali við Þjóð- viljann. „Sjálfvirk mælitæki skrá allar hreyfingar dag og nótt og við verðum þannig varir við hvers konar hreyfingar. Það er okkar fyrsta verk á morgnana hér að lesa af þessum tækjum.'“ - vd. Júlíana Sigurjónsdóttir: Það er fullskipað við 12-14 borð í briddsinu á fimmtudögum. Mynd E.ÓI. Sigtún Mikið fjör á laugardagskvöldum Félag eldri borgara heldur uppi öflugufélagsstarfi í Sigtúni Við komum hér á hverjum fímmtudegi til að spila bridge, og það er alltaf mjög góð mæting sagði Júlíana Sigurjónsdóttir, einn gesta Félags eldri borgara í Sigtúni, í samtali við Þjóðviljann þegar við litum þar inn í gær. Félag eidri borgara hefur haft opið hús í Sigtúni í vetur og að sögn Péturs H. Ólafssonar starfs- manns félagsins, hefur það vakið mikla lukku. „Við héldum tvö þorrablót síð- ustu laugardaga því mætingin var svo góð, í fyrra sinnið komu 340 en í það seinna um 300 manns,“ sagði Pétur. I Sigtúni er ýmislegt á boðstól- um og námskeið í silkiptrentun og krystalskurði eru meðal þess sem má leggja stund á. Auk þess er spiluð vist á þriðjudögum og bridge á fimmtudögum einsog fyrr segir. „Það er dansað hér á laugar- dögum og þá er oft mikið fjör,“ sagði Júlíana. „Við höfum fengið harmonikkara til að spila fyrir okkur. Það er mikil þörf fýrir svona félagsskap.“ Þess má geta að næsta laugar- dag verður dagskrá með upplestri og söng í Sigtúni og eru allir vel- komnir sem í félaginu eru. -vd. Farmenn Leigutökur verði stöðvaðar Farmenn segja gjaldeyrisheimildirfyrir27leiguskipum hafi verið gefnar út. Eitt á vegum Eimskips á fölskum forsendum Enginn fundur var boðaður hjá ríkissáttasemjara með far- mönnum og vinnuveitendum í gær. Ekkert hefur verið ákveðið um það hvenær fundur verður boðaður. Farmenn hafa sent viðskipta- ráðherra bréf þar sem bent er á að síðan 1. desember sl. hafi ver- ið gefnar út gjaldeyrisheimildir fyrir 27 erlendum leiguskipum og þar af ein á fölskum forsendum. Hvetja þarf ráðherra til þess að stöðva leigutökur þessar. Að sögn Jóhanns Símonar- sonar var það Eimskip sem sótti um leiguskip á fölskum forsend- um, en flest öll leiguskipin eru á þeirra vegum. Sótt hefði verið um heimild fyrir skipi til flutninga á salti og heimildin veitt á þeim forsendum. Skipið flutti hjns veg- ar til landsins stykkjavörur. —K.Ól. T T ' r ^ \*Vhvo£ Her tæróu ,, obbolítinrí' kaffirjóma út í kaffiö þitt

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.