Þjóðviljinn - 13.02.1987, Blaðsíða 1
Innheimta
Rukkarar undir
fölsku flaggi
Anna Kristjánsdóttir: Vil opinbera rannsókn á lögbrotum
ívörslusviptingum. Heforðiðfyrirþessu sjálf. Bréftilríkissaksóknara
Eg hef orðið fyrir því sjálf að fá
í heimsókn rukkara sem
sögðust vera frá borgarfógeta og
hugðust sækja til mín sjónvarpið
vegna vanskila. Þetta er miklu ai-
gengara en menn geta ímyndað
sér og því verður auðvitað að
rannsaka þetta mál, sagði Anna
Kristjánsdóttir fyrrum formaður
Lögverndar í samtali við Þjóðvilj-
ann í gær.
Anna hefur farið fram á það
við Hallvarð Einvarðsson ríkis-
saksóknara að hann láti fara fram
opinbera rannsókn á framkvæmd
vörslusviptinga hjá skuldurum.
Hún fullyrðir í bréfi sínu til
ríkissaksóknara að lög um vörslu-
sviptingu fjárnumdra muna sé
stórlega brotin. Hún segir inn-
heimtuaðila oft á tíðum sjálfa sjá borgarfógeta. Anna segir einnig
umaðvörslusvipta,enþaðerein- að grunur leiki á að rukkarar
göngu í verkahring starfsmanna kynni sig sem starfsmenn borg-
arfógeta og noti jafnvel nöfn
starfsmanna þar.
-gg
Moskva
Svaraö
í dag
Dilkakaup á döfinni
Fulltrúar Prodintorg í Moskvu
munu í dag svara því hvort þeir
eru reiðubúnir til áframhaldandi
viðræðna um hugsanleg kaup á
íslensku dilkakjöti.
Málið er á algjöru byrjunar-
stigi, en Sovétmenn hafa sýnt
slíkum viðskiptum nokkurn
áhuga.
íslendingar hafa í Sovétríkjun-
um verið taldir úr leik hvað kaup
á dilkakjöti snertir fram til þessa
vegna riðuveiki, en í janúar
komu upp nýjar túlkanir á því og
hefur verið rætt um að velja kjöt
af riðuveikislausum svæðum.
Enn hefur ekkert verið rætt um
verð fyrir kjötið. -gg
Kvikmyndir
Hrafnsvartur
listi
Vilhjálmur Ragnarsson:
Sumir frystir frá öllu
starfi
Það er á allra vitorði, sem
eitthvað koma nálægt kvikmynd-
um, að ákveðnir aðilar einfald-
lega fá ekki að starfa hjá sjón-
varpinu. Ástæðan er sú ein, að
þeir falia ekki í kramið hjá Hrafni
Gunnlaugssyni, sagði Vilhjálmur
Ragnarsson, í Félagi kvikmynda-
gerðarmanna, við Þjóðviljann i
gær.
En í harðorðri grein sem birtist
eftir Vilhjálm í Morgunblaðinu í
gær er því haldið fram, að menn
sem tengjast kvikmyndum ein-
faldlega þori ekki að mótmæla
Hrafni. Astæðan sé sú, að sem
deildarstjóri innlendrar dag-
skrárgerðar hafi Hrafn algerlega í
hendi sér hvaða verk innlendra
kvikmyndara séu sýnd, og hverjir
þeirra fái verkefni hjá sjónvarp-
inu.
Fólk í kvikmyndum þori því
ekki að ganga gegn Hrafni, vegna
þess að „á meðan Hrafn Gunn-
laugsson ræður því hverjir koma
verkum sínum í sjónvarpið gæti
það komið mótmælendum í
koll“, segir Vilhjálmur í grein
sinni.
Þeir fáu sem þó hafa þorað
það, „...Ég hirði ekki um að
nefna nöfn“, skrifar Vilhjálmur,
„. .hafa meðal annars verið frystir
frá öllu starfi við Sjónvarpið, aðr-
ir hafa verið mjög óheppnir með
úthlutanir úr Kvikmyndasjóði".
-ÖS
Spítalayfirvöld munu standa ráðþrota 1. apríl fari svo sem horfir að um 600 manns hverfi frá störfum. Hlutfall hjúkrunarfræðinga sem segja upp á
gjörgæsludeild Landspítalans er mjög hátt, en hér eru tveir þeirra að störfum, þær Lovísa |Baldursdóttir og Jóna Margrét Jónsdóttir. Mynd: Sig.
Spítalarnir
Hjúkninarfólk fer burt
Án kjarabóta til heilbrigðisstétta lamastspítalarnir 1. aprílþegar um 600 hætta störfum.
Lovísa Baldursdóttir: Margir hjúkrunarfrœðingar hafa ákveðið að yfirgefa stéttina
Alvarlegasta afleiðing uppsagn-
anna er sú að stór hópur
hjúkrunarfræðinga kemur ekki
til starfa aftur, sagði Lovísa Bald-
ursdóttir á gjörgæsiudeild Lands-
pítalans við Þjóðviljann í gær.
Uppsagnir um á milli 80-90%
þjúkrunarfræðinga sem starfa
hjá ríkinu ganga í gildi 1. aprfl
nk. sem og uppsagnir fjölmargra
annarra heilbrigðisstétta.
Lovísa sagði að nokkrir hjúkr-
unarfræðingar á sinni deild hefðu
ákveðið að hverfa í önnur störf
þegar að uppsagnirnar tæku gildi
og annar hópur kæmi sennilega
ekki aftur til starfa nema með
umtalsverðum kjarabótum.
„Fólk hefur ekki efni á að vera í
þessari stétt," sagði Lovísa, en
stéttin vill að launin verði sam-
ræmd Iaunum háskólamanna
á almennum vinnumarkaði.
Byrjunarlaun hjúkrunarfræðinga
eru nú 33.857 krónur eftir fjög-
urra ára háskólanám.
Samtals hafa 348 sagt upp á
ríkisspítölunum, auk hjúkrunar-
fræðinganna, sjúkraliðar og fóst-
rur. Á Borgarspítalanum hafa
rúmlega 200 sagt upp og þar eru
meinatæknar, fóstrur og sjúkra-
liðar stærsti hópurinn. „Það er
enn óljóst hvernig við mætum yf-
irvofandi neyðarástandi, en rót-
tækar ráðstafanir þurfa að koma
til,“ sagði Magnús Skúlason að-
stoðarframkvæmdastjóri Borgar-
spítalans um ástandið. -K.ÓI.
Siðanefnd BÍ
Ritstjóri HP kærir fréttastjóra DV
Ummœli Óskars Magnússonar, DV, um greiðslur með auglýsingareikningum
kærð til siðanefndar
Halldór Halldórsson, ritstjóri
HP, hefur kært fyrrverandi
fréttastjóra DV, Óskar Magnús-
son fyrir siðanefnd Blaðamanna-
félagsins. Ástæðan eru skrif Ósk-
ars frá 31. janúar, þar sem hann
ýjar að því, samkvæmt kæru
Halldórs, að hann og ef til vill
fleiri starfsmenn HP, hafi greitt
fyrir flugferðir hjá Flugleiðum
með því að kvitta fyrir
auglýsingareikninga. Engin aug-
lýsing hafi svo komið fyrir
reikninginn. Samkvæmt yfirlýs-
ingu sem Sæmundur Guðvinsson
hefur sent Siðanefnd fyrir hönd
Flugleiða. er enginn fótur fyrir
skrifum Oskars.
Þjóðviljinn hefur áreiðanlegar
heimildir fyrir því að innan Flug-
leiða hafi skrif Óskars Magnús-
sonar vakið mikla reiði, enda
töldu menn þau ekki síður bein-
ast að Flugleiðum.
1 bréfi Halldórs Halldórssonar
til Siðanefndar er staðhæft, að
skrif Óskars Magnússonar séu
runnin undan rifjum Ragnars
Kjartanssonar, fyrrum stjórnar-
formanns Hafskips.
Halldór Halldórsson, ritstjóri
HP, vildi í gær ekki tjá sig um
málið við Þjóðviljann meðan það
væri í höndum siðanefndar.
-ÓS