Þjóðviljinn - 13.02.1987, Page 2
pSPURNINGIN-
Flest bendir til þess að
1987 verði „skattlaust"
ár. Hvað telur þú að það
merki?
Þór Níelsson, hljómlistar-
maður:
Mér líst Ijómandi vel á þaö. Það
hlýtur að vera gott fyrir alla að
sleppa við skatta upp að vissu
marki.
Rannveig Jónasdóttir, hús-
móðir:
Guð minn góður- það veit ég ekki.
Höfum við nokkuð með skattlaust
ár að gera? Nei, annars - ég þarf
að fá meiri upplýsingar um málið
svo ég geti tjáð mig um það.
Helga Hallbjörnsdóttir,
verslunarmaður:
Það eru margir kostir við það, til
dæmis ef maður þénar vel á þessu
ári en ekki því næsta. Þetta kemur
sér vel fyrir mig.
Guðmundur Bjarnason,
þjálfari:
Meiri tekjur. Fólk fær að halda pen-
ingunum sínum. Ég hugsa mér gott
til glóðarinnar því ég verð allt árið
úti á vinnumarkaðnum og ætti að
geta þénað vel.
Þórarinn Guðjónsson, um-
sjónarmaður Ölduselsskóla:
Þetta þýðir það að menn stað-
greiða skattana. Gott fyrir þá sem
geta bætt við sig tekjum. í ár borgar
maður sín gjöld að venju en síðan
tekur staðgreiðslan við á næsta ári,.
sem hlýtur að koma sér best fyrir
þá sem hafa breytilegar tekjur og
ótraustar, t.d. sjómenn.
FRÉTTIR
UnglingaathvarflHlemmur
í saítiTþrjú ár
f Gísli Á rni Eggertsson œskulýðsfulltrúi:
Gerðum tillögur um samastað fyrir unglingafyrirþremur árum en það varsett í
salt vegna skorts áfjármagni. Hlynnturþvíað málið verði tekið upp aftur
Fyrir þremur árum var til um-
ræðu að koma upp
tómstunda-og menningaraðstöðu
fyrir unglinga í miðbænum en
þetta var sett í salt á miðju ári
1984 vegna þess að það vantaði
fjármagn, auk þess sem að á þeim
tima dro mjog ur olátum á
Hlemmi, sagði Gísli Árni Eggerts-
son æskulýðsfulltrúi íþrótta-og
tómstundaráðs Reykjavíkur í
samtali við Þjóðviljann.
„Við vorum búnir að kynna ýt-
arlegar tillögur og rekstraráætl-
anir fyrir borgaryfirvöldum en
ekkert varð úr neinu. Ég tek að
sjálfsögðu undir það að þetta
verði reynt að nýju.“
„Mér finnst það mjög jákvæð
lausn að finna húsnæði fyrir þetta
fólk þar sem það er sjálft að ein-
hverju leyti ábyrgt fyrir rekstrin-
um, þessa krakka vantar ein-
hvern samastað þar sem þau geta
hist“ sagði Sveinn Björnsson for-
stjóri Strætisvagna Reykjavíkur í
samtali við Þjóðviljann.
Sveinn sagðist einnig vera því
hlynntur að götulögregluþjónn
kæmi öðru hvoru við á biðstöð-
inni, nærvera einkennisklædds
manns gæti dempað niður hugs-
anleg ólæti.
„Mér líst mjög vel á þessa
lausn“ sagði Snjólaug Stefáns-
dóttir deildarstjóri Unglinga-
deildar Félagsmálastofnunnar
Reykjavíkur. „Þegar þetta var
rætt fyrir þremur árum var þegar
búið að benda á 3-4 húsnæði sem
komu til greina, þar á meðal var
Kveldúlfsskálinn, en svo strand-
aði málið á fjárskorti. Við mæl-
um eindregið með að þetta verði
tekið upp að nýju. -vd.
„Það er miklu elskulegra að búa á litlu vistheimili en stóru elliheimili," sögðu þau (t.v.) Jakob, Jónas og Margrét. Mynd:
Sig.
Sambýli aldraðra
Hér er gott að vera
íbúarsambýlis aldraðra við Skjólbrekku í Kópavogi eru ánœgðir með nýja
heimilið sitt
|y| ér líkar alveg feykilega vel
hér. Þetta er eins og eitt stórt
heimili. Á mínu heimili hér áður
fyrr voru oft miklu fleiri í heimili,
sagði einn af vistmönnum
sambýlis aldraðra við Skjól-
brekkuna í Kópavogi, Margrét
Gróa Sigurðardóttir, um nýja
heimilið sitt.
Sambýlið við Skjólbraut var
tekið í notkun fyrir helgi, en
heimilið er ætlað 14 íbúum. Nú
hafa 6 þeirra flutt inn og aðrir eru
væntanlegir á næstunni. Fyrst úm
sinn verður kvenþjóðin þar í
meirihluta, eða samtals 11 á móti
3 karlmönnum.
Viðmælendur okkar þau Mar-
grét, Jakob Helgason og Jónas
Bjarnason voru öll sammála um
að það væri miklu elskulegra að
vera á litlu vistheimili en stóru
elliheimili. Þarna kynntist fólk
fljótt og væri nánara en ella. Það
væri í stuttu máli sagt gott að vera
á Skjólbrautinni.
-K.ÓI.
Bœndafundur
Nafnabrengl
Þau mistök urðu í umfjöll-
un um fund Félags sauðfjár-
bænda í Borgarfirði og
Snæfells- og Hnappadals-
sýslu í blaðinu í gær að
Magnús Friðgeirsson fram-
kvæmdastjóri búvöru-
deildar SlS var látinn heita
Magnús B. Jónsson í
myndatexta. Blaðið biður
viðkomandi að sjálfsögðu
velvirðingar á þessum leiðu
mistökum.
Alpaklúbburinn
Ganga á
Gangapurna
Níu meðlimir
Alpaklúbbsins œtla að
klífa hœstafjall sem
nokkur íslendingur hefur
klifið
Níu meðlimir Alpaklúbbsins ís-
lenska ætla í mars nk. að klífa
fjallið Gangapurna í Himalaya.
Takist þeim það hafa þau kliflð
hærra fjall en nokkrum öðrum
íslendingi hefur tekist að klífa.
Undirbúningur að leiðangrin-
um hefur nú staðið í rúmt ár þó
svo að leyfi frá yfirvöldum í Nep-
al hafi ekki fengist fyrr en
19.janúar sl. Leiðangursmenn
þurfa að greiða þessum sömu
yfirvöldum svokallað tindagjald,
50 þúsund krónur en áætlaður
kostnaður við leiðangurinn er
tæplega ein og hálf milljón króna.
-jo
BSRB
Framb'ð opinberrar þjónusbi
Itilefni af 45 ára afmæli Banda-
lags starfsmanna ríkis og bæja
efna samtökin laugardag - 14.
feb. - til ráðstefnu um gildi og
framtíð opinberrar þjónustu.
Meðal umræðuefna er
menntakerfið, ríkisfjölmiðlarnir,
heilbrigðiskerfið og hverskyns fé-
lagsleg þjónusta og aðstoð.
Einnig verður fésýsla þess op-
inbera til umræðu og launakjör
ríkisstarfsmanna í nánd og lengd.
Frummælendur verða m.a.
Sverrir Hermannsson mennta-
máiaráðherra, Markús Örn Ant-
onsson útvarpsstjóri og Þorbjörn
Broddason lektor. Að framsögu-
ræðum loknum taka við fyrir-
spurnir ráðstefnugesta og pall-
borðsumræður valinkunnra karla
og kvenna. Ráðstefnu-stjóri er
Guðrún Árnadóttir en Ævar
Kjartansson mun stjórna pall-
borðsumræðum.
Ráðstefnan verður sett kl. 8.45
á laugardagsmorgun, en ráð-
stefnuslit verða um kl. 17, eftir að
þátttakendur hafa þegið veiting-
ar í boði BSRB. Allar nánari
upplýsingar eru veittar á skrif-
stofu samtakanna.
-RK
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 13. febrúar 1987