Þjóðviljinn - 13.02.1987, Qupperneq 11

Þjóðviljinn - 13.02.1987, Qupperneq 11
ÚIVARP^SJÓNWLRPf © 6.45 Veðurfregnir. Bæn. 7.00 Fréttir. 7.03 Morgunvaktin. 9.00 Fréttir. 9.03 Morgunstund barnanna: „Stúlk- an í glerkistunni". 9.20 Lesið úr forustugreinum dagblað- anna. 9.45 Þingfréttlr. 10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. 10.30 Ljáðu méreyra. 11.00 Fréttir. 11.03 Samhljómur. 12.00 Dagskrá. Tilkynningar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar. Tón- leikar. 14.00 Mlðdegissagan: „Það ereltthvað sem enginn veit“ Llney Jóhannsdóttir les endurminningar slnar sem Þorgeir Þorgeirsson skráði (3). 14.30 Nýtt undir nálinni. 15.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar. 15.20 Landpósturinn. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Barnaútvarpið. 17.00 Fréttir. 17.03 Sfðdegistónleikar. 17.40 Torgið - Viðburðir helgarinnar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. 19.30 Tilkynningar. Daglegt mál. 19.40 Þingmál. 20.00 Lög unga fólkslns. 20.40 Kvöldvaka. 21.30 Sigild dægurlög. 22.00 Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð kvöldsins. 22.15 Veðurfregnir. 22.20 Hljómplöturabb. 23.00 Andvaka. 24.00 Fréttir. 00.10 Næturstund í dúr og moll. 01.00 Dagskrárlok. Næturútvarp á Rás 2 til kl. 03.00. 9.00 Morgunþáttur. 12.00 Hádegisútvarp. 13.00 Bót í máli. 15.00 Sprettur. 17.00 Fjör á föstudegi. 18.00 Hlé. 20.00 Kvöldvaktin. 23.00 Á næturvakt. 03.00 Dagskrárlok. 7.00 Á fætur með Sigurði G. Tómas- synl. 9.00 Páll Þorsteinsson á léttum nót- um. 12.00 Á hádegismarkaði með Jóhönnu Harðardóttur. Fréttapakkinn. 14.00 Pétur Steinn á réttri bylgjulengd. 17.00 Hallgrímur Thorsteinsson ( Reykjavfk sfðdegis. 19.00 Þorsteinn J. Viihjálmsson. 22.00 Jón Axel Ólafsson. 03.00 Næturdagskrá Bylgjunnar. 18.00 Nilli Hólmgelrsson. Þýskur teikni- myndaflokkur. 18.45 Stundin okkar - Endursýning. 19.00 Á döfinni. 19.10 Þingsjá. 19.25 Fréttaágrip á táknmáli. 19.30 Spftalalff (M*A*S*H) 20.00 Fréttir og veður. 20.35 Auglýsingar og dagskrá. 20.40 Unglingarnir i frumskóginum. 21.10 Mike Hammer. 22.00 Kastljós. 22.30 Seinni fréttir. 22.35 Sælt er f sveitlnni. Tékknesk bíó- mynd gerð árið 1985. 00.25 Dagskrárlok. 17.00 Undir áhrifum. Átakanleg mynd um þau áhrif sem ofneysla áfengis getur haft á fjölskyldulífið. 18.30 Myndrokk. 19.00 Teiknimynd. Glæframúsin (Dang- ermouse). 19.30 Fréttir. 20.00 Um vfða veröld. 20.20 Geimálfurinn. 20.55 Háskaleg eftlrför (Moving Violati- ons). Bandarísk bfómynd frá 1976. 22.30 Benny Hill. 22.55 ( upphafi skal endinn skoða. 00.20 CABO BLANCO Bandarísk bíó- mynd með Charles Bronson. 01.55 Myndrokk. 03.00 Dagskrá. KALLI OG KOBBI GARPURINN FOUDA í BLÍDU OG STRÍDU ORÐ I EYRA J Peningagræðgi Alþýðubandalagsmanna i Það er kominn kosningaskjálfti í íhaldið. Friðrik Sófusson varaformað- ur Sjálfstæðisflokksins trúir hin- um trygglyndu sauðum í Verði fyrir því, að það eigi að fara fram alþingiskosningar eigi síðar en 25. apríl. Til að gera frásögnina ennþá mergjaðri lætur Friðrik varafor- maður það fylgja sögunni, að vel geti komið til þess að kosið verði fyrr, ef Framsóknarmenn sem eru samábyrgir íhaldinu í ríkis- stjórn láti ekki af þeirri firru að heimta rannsókn á embættis- rekstri þess stjórnglaða manns Sverris Hermannssonar. En Frið- rik segir að fleira geti komið til og sundrað þeirri dásamlegu sambúð frjálshyggju og fram- sóknar sem nú hefur staðið með ærslafullum ástum í hartnær fjögur ár. Hann bendir á, að enn- fremur geti dökkar blikur á launamarkaðinum orðið til þess að ríkisstjórnin leiti til þjóðarinn- ar til að fá hennar umboð og stað- festingu tii að stjórnin geti haldið áfram að vinna ótrufluð að því höfuðmarkmiði sínu að haída niðri launum fólksins í landinu til hagsbóta fyrir þjóðina. I sjónvarpsviðtali um hina mögnuðu pólitísku úttekt sína lagði Friðrik mikla áherslu á, að hann hefði í ræðunni slegið þann varnagla, að persónulega væri hann ekki trúaður á að til þess arna kæmi - enda þótt hann teldi ástæðu til að hafa orð á þessu. Enda er það skynsamlegt hjá stjórnmálamanni sem finnst loft- ið lævi blandið að reka eins marga varnagla og kostur er hverju sinni. Þrátt fyrir að Friðrik sé ekki trúaður á að þau atvik gerist sem hann varar við virðist hann ekki alveg frír við að hafa áhyggjur af því að „ótiltekin öfl“ muni eitra hugi þeirra launþega sem nú eiga eftir að berjast fyrir einhverjum lágmarkskjarabótum, þannig að launþegasamtökin kunni að steypa ríkisstjórninni og þjóðinni allri í glötun með því að knýja fram hærri laun heldur en ríkis- stjórnarstefnan leyfir að fólk hafi. Og þá eru góð ráð dýr að mati Friðriks. Ef launþegar, eins og til dæmis kennarablækur og opin- berir starfsmenn, fara að heimta meira kaup en ríkisstjórnin telur hoilt fyrir þá að hafa til ráðstöf- unar þá er ekki um annað ræða, en að leita til allrar þjóðarinnar og spyrja hana, hvort það sé ekki rétt og skynsamlegt af ríkisstjórn- inni að koma fram af fullri festu við þetta lið, sem skeytir engu um þjóðarhag heldur heimtar svimhá laun fyrir það eitt að kenna krökkum í upphituðum kennslu- stofum eða hanga á opinberum kontórum. Enda gæti það náttúrulega Varaformaður Sjálfstæðisflokksins varar við launagræðgi. kippt fótunum undan láglauna- stefnu ríkisstjórnarinnar, ef „hin myrku öfl“ gætu spanað þessa bókabéusa sem fást við kennslu og eiga ekki að vera að hugsa um peninga upp í að krækja sér í meiri kjarabætur en öðrum hefur tekist að sækja í greipar atvinnu- rekenda og ríkisstjórnar. Þessi óskilgreindu „öfl“ sem ríkisstjórnin óttast - þessi „myrku öfl“ - hljóta að vera Al- þýðubandalagsmenn, sem eins og allir vita, kæra sig kollótta um þjóðarhag og sjá ekki út fyrir eigin hagsmuni og láta stjórnast af blindri peningagræðgi og Mammonsdýrkun. Ekki geta þetta verið kratar eða Jón Bald- vin sem nú starir ástsjúkum augum til íhaldsins, og bíður þess eins að grái fiðringurinn hlaupi í Þorstein Pálsson svo að hann yfir- gefi framsóknarmaddömuna og biðji um hönd nýútsprunginnar kratarósar. Þessi myrku og gráðugu öfl kunna nú að eitra saklausa hugi kennaranna og hvísla í eyru þeirra allskonar freistandi fyrir- heitum um óhófleg laun, risnu og fríðindi og hvers konar munað og býlífi, þannig að kennararnir missi stjórn á sér og gleymi þeirri borgaralegu skyldu sem á herð- um þeirra hvílir að kenna börn- um og ungmennum daginn út og inn og forðast að safna korni í hlöður, vitandi það af menntun sinni að auðveldara er úlfalda að smjúga gegnum nálarauga en rík- um manni að komast inn í himn- aríki. Ef til þess kemur, sem bjartsýnismaðurinn Friðrik Sófusson hefur þó enga trú á að verði, sem sé að kennarafólin geri alvöru úr að brjóta lág- launastefnuna á bak aftur, er vitaskuld kominn tími til að bregðast hart við og siga þjóðinni allri á þennan þrýstihóp, sem hef- ur látið afvegaleiðast af Mam- monshyggju Alþýðubandalags- ins og vill steypa þjóðinni í glötun og gera að engu verk þeirrar dás- amlegu stjórnar, sem hefur tekist að afstýra horfelli og hung- ursneyð í landinu nokkur undan- farin ár, þrátt fyrir að utanað- komandi uppákomur eins og mesta góðæri í sögu lýðveldisins hafi næstum náð að rugla stjórn- ina í ríminu og setja verðbólguna af stað aftur. Það er nefnilega ríkisstjórninni að þakka að verðbólgan skuli vera á undanhaldi. Ríkisstjórn- inni hefur tekist að halda verð- bólgunni í skefjum þrátt fyrir mikinn mótbyr. Upp á eigin spýt- ur hefur stjórninni tekist þetta ætlunarverk sitt: Þrátt fyrir fíkn og eftirsókn þjóðarinnar í vaxta- okur, þrátt fyrir þá hættulegu efnahagssveiflu sem varð þegar þjóðin heimtaði að stjórnin lækk- aði launin um þriðjung, þrátt fyrir lækkandi olíuverð, þrátt fýrir verðhrun Bandaríkjadals- ins, þrátt fyrir aflasæld og góðæri til sjávar og sveita sem í tíð óvandaðri stjórna hefði leitt til þenslu og óhófs, þrátt fyrir erfið skilyrði og vanþakklæti heimsins hefur ríkisstjórninni tekist að halda verðbólgunni innan skynsamlegra marka - þótt stjórnin hljóti að sjálfsögðu að viðurkenna þann ósigur sinn, að henni hefur ekki gengið eins vel að halda niðri verðbólgunni eins og kaupinu. En þótt Friðrik Sófusson sé ekki trúaður á eigin varnaðarorð er rétt að hafa þau í huga: Það er bein árás á ríkisstjórn þeirra Steingríms Hermanns- sonar og Þorsteins Pálssonar að heimta mannsæmandi laun í þessu landi. Og ef einhver hópur, eins og til að mynda kennarar, ætla að mögla verður öðrum launþegum sigað á þá sem reyna að rjúfa lág- launasamtökin og sagt við þá: Þessir ætla að reyna að hafa það betra en þið á ykkar kostnað. Þetta er sú stjórnviska sem við búum við í dag. Og um þessa stjórnvisku verður kosið 25. apr- fl. Eða fyrr? Föstudagur 13. febrúar 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.