Þjóðviljinn - 13.02.1987, Qupperneq 16
Aðalsími
681333
Kvöldsími
681348
Helgarsími
681663
Notaðir bílar
Innflutningur fjórfaldast
Notaðir bílar20-25% ódýrariíV-Þýskalandienhér. 330fluttir inníhittifyrra, 1445ífyrra
Innflutningur á notuðum bflum
frá Evrópu til landsins hefur
stóraukist. Samkvæmt upplýs-
ingum frá Hagstofu íslands voru
fluttir 1445 notaðir bflar hingað
til lands á síðasta ári en ekki nema
330 árið á undan. Aukningin er
því rúmlega fjórföld.
Að sögn Jónasar Bjarnasonar
hjá FÍB er hér aðallega um að
ræða bfla í millistærð og dýra bfla,
svo sem Audi og Mercedez Bens.
Flestir þessara notuðu bfla eru
keyptir í V-Þýskalandi þar sem
verð á þeim er um 20-25% ódýr-
ara en hér á landi. Ennfremur er
eitthvað um það að menn kaupi
inn bfla sem þeir síðan rífa í sund-
ur og nota sem varahluti og spara
sér þannig dágóðan pening því
Sjónstöð íslands
Brautin radd
fyrir blinda
Sjónstöð íslands tók til starfa í gær. Mun
þjóna blindum og sjónskertum á öllu landinu
Farmenn/útgerðarmenn
Dregur til
úrslita
í dag mun draga til úrslita um
framhald deilu yflrmanna á
kaupskipum og útgerðarmanna.
Þetta er samdóma álit deiluaðila.
Að sögn þeirra hefur miðað
ágætlega í samningaviðræðum
um breytt vinnufyrirkomulag, en
í gær hófu aðilar viðræður um
launaliði samninganna. Að sögn
Helga Laxdal yfirmanns samn-
inganefndar farmanna „ber ögn á
milli“ hugmynda deiluaðila, en af
árangri dagsins ræðst hvort yfir-
menn boða til verkfalls um helg-.
ina eða ekki.
-K.ÓI.
Vísitala
Verðbólga
20%
Vísitala framfærslukostnaðar
hækkaði um 1,47% í janúar, sem
svarar til 19,1% ársverðbólgu, en
hækkunin síðustu þrjá mánuði
mundi gera 20,5% ársverðbólgu.
Hækkun vísitölunnar er nú
0,04% meiri en gert var ráð fyrir í
kjarasamningum ASI og VSI.
Hækkun vísitölunnar í janúar
stafar af matvöruhækkun
(0,4%), hækkun húsnæðisliðs
(0,3%), bflahækkun (0,1% og af-
gangurinn af hækkun á „ýmissi
vöru og þjónustu" (0,7%), fyrst
og fremst í veitingahúsum.
Síðustu tólf mánuði hefur vísi-
tala framfærslukostnaðar hækk-
að um 11,9% samkvæmt tilkynn-
ingu Hagstofunnar.
-m
Það er óskaplega spennandi að
fara í gang með þetta
brautryðjendastarf, þetta er ný
starfsemi og við munum þjóna
öllu landinu, sagði Kristín Gunn-
arsdóttir sjóntækjafræðingur
Sjónstöðvar Islands, sem tók
formlega til starfa í gær að
Hamrahlíð 17.
Hlutverk stofnunarinnar er að
annast hvers konar þjónustu við
sjónskerta, svo sem sjúkdóms-
greiningu, úthlutun sérhæfðra
hjálpartækja og hvers konar
þjálfun sem sjónskertir þurfa á að
halda. Við Sjónstöðina starfa
sjóntækjafræðingur, sjónþjálfi,
umferlis-og ADL kennari,
augnsmiður og ritari, auk yfir-
læknis sem er Guðmundur Vigg-
ósson augnlæknir.
Sjónstöðinni hafa borist gjafir,
Kiwanisklúbburinn Esja gaf tæki
til augnskoðunar og Gleraugna-
verslunin Linsan gaf lessjónvarp
sem getur stækkað texta allt að
60-falt.
Blindrafélagið hefur í mörg ár
annast ýmsa þjónustu við blinda
og sjónskerta og á stóran þátt í að
stofnun þessi er komin á laggirn-
ar, en hún heyrir undir
heilbrigðis-og tryggingamála-
ráðuneytið.
-vd.
tollur og vörugjald af innfluttum
varahlutum er urn 70%.
Samkvæmt heimildum Þjóð-
viljans er þessi innflutningur ekki
aðeins stundaður til endursölu
heldur fer fólk unnvörpum til
Evrópu gagngert til að kaupa
sjálfu sér notaðan bfl uppundir
fjórðungi ódýrari en hér á landi.
Stefán Baldursson, eini augnsmiðurinn I landinu, heldur hér á gerviauga úr
akrýl, sem hann hefur smíðað í nýrri aðstöðu sinni í Sjónstöð (slands. „Það eru
langflestir með „(slandsblá" augu“ sagði Stefán. „Flestir missa augu í bílslys-
um vegna þess að fslendingar eru alltof tregir til þess að nota bílbeltin." Mynd
E.ÓI
ísafjörður
Sauma-
stofurnar
varaskeifur
Sigrún Magnúsdóttir í
Hlein hf.: Urðum að
hœtta rekstrinum. Allir
viljaflytja inn
„Það er mjög erfitt að reka
saumastofu úti á landi og raunar
hvar sem er í landinu,“ sagði Sig-
rún Magnúsdóttir, einn eigenda
Saumastofunnar Hleinar hf. á
ísafírði í samtali við Þjóðviljann,
en Saumastofan hætti rekstri í
byrjun febrúar.
„Við reyndum ýmislegt til að
auka söluna en það gekk ekki
upp og reksturinn var orðinn
mjög erfiður," sagði Sigrún.
„Þróunin virðist vera sú að allir
vilja flytja inn beint og kaup-
menn fara á sýningar erlendis en
íslenskar saumastofur og fata-
heildsalar eru bara varaskeifur."
Sjö konur voru í fullu starfi við
Saumastofuna, sem hefur verið
starfandi í tvö og hálft ár. „þessar
konur voru búnar að fá sig
fullsaddar af fiskvinnunni og
voru mjög ánægðar með að fá
vinnu við Saumastofuna. Þeim
gengur því illa að fá vinnu við sitt
hæfi,“ sagði Sigrún.
-vd.
BSRB
Ummæli Friðriks út í hött
Kristján Thorlacius segir grundvallarkröfur BSRB hafi verið gerðar
Ijósar á síðasta ári. Kristján: Illa gengur að ná samningum nú vegna
þess að stjórnvöld hafa ekki viljað standa við bókuð loforð frá febrúarsamningunum
Eg skil ekkert hvert varaformað-
ur Sjálfstæðisflokksins er að
fara. Ummæli hans eru gjörsam-
lega út í hött, sagði Kristján Thorl-
i acius formaður BSRB um þau um-
mæli Friðriks Sophussonar á fundi
þjá málfundafélaginu Verði í fyrr-
akvöld að verkfall opinberra
starfsmanna gæti leitt til þingrofs
ef reynt yrði að nota samningana í
pólitísku skyni.
Kristján sagði að strax í byrjun
nóvember á sl. ári hefðu opinberir
starfsmenn gefið út þær yfirlýsing-
ar að samtök þeirra væru tilbúin til
þess að ganga til samninga sem
leiddu til aukins kaupmáttar og
lækkunar verðbólgu. Forsendur'
slíkra samninga væru þær að
stjórnvöld tryggðu stöðugt gengi
og aukið aðhald í verðbólgu. Þá
hafi verið bent á það að það hafi
orðið efnahagsbati í þjóðfélaginu
og af honum hafi leitt auknar yfir-
borganir og misrétti. Kristján
sagði að opinberir starfsmenn
vildu fá laun sín leiðrétt í samræmi
við þessa þróun en það hafi verið
gerð bókun í febrúarsamningun-
um þess efnis að leiðréttingar yrðu
framkvæmdar í samræmi við
launakönnun, en á grundvelli
hennar yrðu laun félaganna sam-
ræmd innbirðis sem og samræmd
við laun á almennum vinnumark-
aði. „Við förum ekki fram á annað
en að það verði staðið við þessi
loforð þannig að ég skil ekki hvað
Friðrik er að tala um,“ sagði Krist-
ján.
Að sögn Kristjáns stendur allt
fast í samningaviðræðum aðildar-
félaga BSRB við viðsemjendur,
en eins og kunnugt er sigldi sam-
flot þeirra í strand og er því úr
sögunni. Kristján sagði að ástæð-
an fyrir því að svo illa gengi væri sú
að viðsemjendur hefðu ekki feng-
ist til að standa við umrædd loforð.
-K.Ól.