Þjóðviljinn - 25.02.1987, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 25.02.1987, Blaðsíða 6
MINNING Rannsóknarstofur o.fl., Ármúla 1 Tilboö óskast í innanhússfrágang fyrir rannsóknar- stofur o.fl. í Ármúla 1 A í Reykjavík. Rannsóknarstofurnar eru á hluta 1. hæöar og kjall- ara, alls um 1100 m2. Auk þess skal ganga frá mötuneyti o.fl. á um 150 m2. Einnig á að steypa upp viðbyggingu og ganga frá henni, um 200 m2. Á vinnusvæðinu á að leggja allar lagnir og loftræst- ingu, auk frágangs veggja, gólfa, lofta og raflagna. Verkinu skal að fullu lokið 1. ágúst 1987. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Borg- artúni 7, Reykjavík, til og með föstudegi 6. mars 1987 gegn 10.000 kr. skilatryggingu. Tilboð verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 17. mars 1987 kl. 11.00. INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS Borgartúni 7, sími 26844 1 Ritari Laust er til umsóknar starf skólaritara við Flens- borgarskóla. Umsóknir er greini aldur og fyrri störf skulu berast bæjarskrifstofunum í Hafnar- firði eigi síðar en 27. febrúar n.k.. Bæjarstjórinn í Hafnarfirði T Gröfumaour Hafnarfjarðarbær óskar að ráða gröfumann á JCB-vél. Viðkomandi þarf að hafa tilskilin vinnu- vélaréttindi. Allar upplýsingar gefur yfirverkstjóri í Áhaldahúsi. Bæjarverkfræðingur 27. LEIKVIKA - 21. FEBRÚAR 1987 VINNINGSRÖÐ: 21X-1X1-X2X-1 1 1 1. VINNINGUR: 11 RÉTTIR, kr. 43.700,- 1237 47056(4/10) 58906(4/10) 102856(2/11,10/10H* 129743(6/10)+ 3615(3/10)+ 47077(4/10) 63425(4/10)+ 125951(6/10)+ 220880(11/10) 11044(2/10)+ 55915(4/10) 98566(6/10) 126189(6/10) 640288 2. VINNINGUR: 10 réttir, kr. 1.161,- 792 16132 49870 60789 125085 129527* 220343 613805 3544 18802+ 50492 60852 126003*+ 130274* 220634*+ 613820 4223 41377 50465 61420 126139+ 130414+ 220638*+ 639490’ 4482 41756+ 50528 61993 126162 130550* + 220894 639522 4608 42435 50907 62249 126172* 130697** 221056 640281 5685 44479 51480 62759 126183 168011 221061** 658265 6469 44922 51768 62786 126567’ 168945 221093 658267 8111 45035+ 53381 62795+ 127051* 168992 221106 658390 10838 45101*+ 54604* 63354 127052* 188528 221115 658431 10856 45451* 55012 63636+ 127296* 201668* 563654 658433' 11042-F 45535 55783 63701+ 127816* 207240 563812 658434 11048+ 45565 56234* 63707 127872* 208207*+ 564913 658447 11111*+ 46761* 57839 95827+ 128077* 213134 564915 658700 11116+ 46828** 59507+ 97066 128377 214289+ 574516 658754 11126+ 48081* 59535+ 97309+ 128753* 216214 600844 660005 11127+ 48392 59546+ 100283 128755* 216865* 600845 660074 13904 49648 59652 102833*+ 128758* 216899 600850* 668989 14985 49864 60538 102855*+ 129080* 218018* + 613800 *=2/10 **=4/10 Kærufrestur er til mánudagsins 16. mars 1987, kl. 12.00 á hádegi. Kærur skulu vera skriflegar. Kærueyðublöð fást hjá umboðsmönnum og á skrifstofunni í Reykjavík. Vinningsupphæðir geta lækkað, ef kærur verða tekn- ar til greina. Handhafar nafnlausra seðla (+) verða að framvísa eða senda stofninn og fullar upplýsingar um nafn og heimilisfang til íslenskra Getrauna fyrir loka kæru- frests. Hallfríður Pálsdottir Fœdd25. mars 1907— Dáin 15. janúar 1987 Föstudaginn 23. janúar var til moldar borín Hallfríður Pálsdótt- ir. Hallfríður var dóttir hjónanna Ingveldar Hallgrímsdóttur og Páls Arngrímssonar, sem jafnan eru kennd við Hvamm í Fljótum. Ingveldur og Páll áttu 10 börn sem upp komust og eru 5 þeirra enn á lífi. Hallfríður var innan við ferm- ingu er hún fluttist frá foreldrum sínum í Hvammi að Stóra-Holti í sömu sveit til hjónanna Svanfríð- ar og Guðmundar Ólafssonar er þar bjuggu. Þar dvaldist hún ung- lingsárin, fram til tvítugsaldurs er hún fluttist til Siglufjarðar og réði sig í vist sem kallað var, til Þór- unnar og Ottós Jörgens sem þá var símstöðvarstjóri á Siglufirði. Á þessum tímum var ekki um fjölbreytt störf að velja fyrir ungt fólk sem hleypir heimdraganum og þó síst fyrir stúlkur. Helst var um að ræða aðstoð við heimilis- störf hjá efnuðu fólki í kaupstað. Þá var mikils virði að vera hepp- inn með húsráðendur, því ef svo var, var í þessu starfi unnt að finna gagnlegan undirbúning undir það ævistarf sem flestra bíður og tengist uppeldi barna og almennum störfum húsmæðra. Hallfríður var hjá þessum hjónum í nokkur ár og þegar rifj- aðar voru upp minningar frá liðn- um tímum þá minntist hún þeirra með hlýhug og raunar má sama segja um æskudvöl hennar í Stóra-Holti. Ég man fyrst eftir Hallfríði (eða Höllu eins og nánustu vinir og ættingjar í sveitinni kölluðu hana) þegar ég var smástrákur og hún kom í heimsókn til vina og vandamanna í Fljótum. Það sem mér er minnisstætt er hvað hún Halla var í fínum fötum og yfirbragð heimsborgaralegt eins og ég skynjaði það hugtak þá. Þetta vakti forvitni og löngun til að fá tækifæri til að skyggnast um bak við fjöllin blá. Frá Siglufirði lá leið suður, fyrst til Reykjavíkur og síðan að Laugarvatni þar sem hún starfaði um tíma hjá frænku sinni og æskuvinkonu Dagbjörtu Jóns- dóttur sem þá veitti forstöðu húsmæðraskólanum á staðnum. Á Laugarvatni kynntist Hall- fríður verðandi eiginmanni sín- um Höskuldi Björnssyni listmálara sem þar dvaldi sér til heilsubótar eftir erfið veikindi. Þau giftu sig 22. júlí 1935 og flut- tust á heimili foreldra Höskuldar að Dilksnesi í Hornafirði sem var æskuheimiii hans. Ári síðar flut- tust þau að Höfn f Hornafirði og bjuggu þar næstu tíu árin. Um vorið 1946 fluttu þau síðan til Hveragerðis þar sem þau reistu sitt framtíðarheimili. Og tilveran hélt áfram eftir þeim farvegi sem hverjum er bú- inn. Ég var fluttur til Reykjavík- ur og var við nám íhúsamálun.Þá gerðist það á sólbjörtum vordegi árið 1948 að ég lagði leið mína austurfyrir fjall og kom við á heimili þeirra hjóna sem nýlega höfðu reist hús að Bláskógum 2 í Hveragerði og í byggingu var vinnustofa listamannsins. Eflaust hafa þau hjónin komið í heim- sókn í Fljótin þann tíma sem þau voru búsett á Höfn í Hornafirði þótt ég muni ekki eftir því. Hitt er víst að þetta var í fyrsta sinn sem við Höskuldur áttum tal saman og mér varð strax Ijóst að þessi yfirlætislausi og hægláti maður bjó yfir gáfum og næmum listræn- um hæfileikum, sem frekari kynni áttu eftir að staðfesta. Þessi fyrsta heimsókn í Bláskóga 2 er mér sérlega minnisstæð. Á þessum tímum var dýrt fyrir efnalitlar fjölskyldur að reisa þak yfir höfuð sér, ekki síður en nú, en þar við bættist skortur á góðu byggingarefni. Þetta hús var ekki háreist né ríkmannlegt að ytra eða innri gerð samkvæmt mæli- stiku efnishyggju nútímans, en þar ríkti heilnæmt og ferskt and- rúmsloft sem erfitt er að finna orð til að lýsa. Á þessum árum voru búsettir í Hveragerði margir þekktir lista- menn og má telja að Hveragerði hafi um tíma verið miðstöð menningar og lista sunnan heiða. Þessir menn áttu margt sameigin- legt og höfðu samband hver við annan. Margir úr þeirra hópi voru tíðir gestir á heimili þeirra hjóna. Tveir af þeim eru mér minnisstæðastir, en það eru skáldin Jóhannes úr Kötlum og Kristján frá Djúpalæk. Höskuldur var náttúrubarn, þangað sækir hann gjarnan fyrir- myndir í verk sín. En myndir hans eru ekki afmarkaðar við þröng hugtök, því lífið sem fram fer umhverfis okkur tengist at- höfnum vinnandi fólks, þess fólks sem skóp þá sögu er þjóðleg menning byggir á. Allir þessir þættir birtist okkur í myndum Höskuldar mismun- andi samofnir eða einir sér eftir atvikum. í dagblaðinu Tímanum 8. des- ember 1960 skrifa tveir þekktir listamenn þeir Ríkharður Jóns- son og Guðmundur Einarsson frá Miðdal grein um verk Höskuldar sem ber yfirskriftina „Fegurð perlunnar fer ekki ekki eftir stærðinni". Þessi grein er mynd- skreytt með verkum Höskuldar og verður að teljast gott innlegg til að halda uppi minningu um þennan sérstæða listamann. Höskuldur átti við veikindi að stríða alla ævi og lést 2. nóvember 1963. Við fráfall hans hlaut að skapast tómarúm í tilveruna og þó helst hjá þeim sem næst stóðu. Nú komu að góðu gagni eðlis- kostir í fari Hallfríðar, dugnaður og kjarkur til að takst á við lífið. Hún bjó áfram í Bláskógum 2 ásamt elsta barnabarni sínu Hall- fríði sem jafnframt var fóstur- dóttir afa og ömmu frá fyrstu tíð. Það tókst giftusamlega að við- halda þeim andblæ og reisn sem frá upphafi hafði einkennt þetta heimili. Nú þjónaði vinnustofa málarans margþættara hlutverki en hún hafði áður gert. Jafnframt því að vera áfram sýningarsalur á myndverkum var þar nú komin kaffistofa sem varð einkar vinsæll viðkomustaður þeirra er leið áttu um Hveragerði. Þá er ótalinn fé- lagslegi þátturinn, ýmis félög sem staðsett voru í Hveragerði og ná- grenni héldu þarna fundi jafnvel félög sem höfðu aðsetur í Reykjavík. Hallfríður var glæsileg kona glaðvær og frjálsleg í framkomu. Hún hafði fastmótaða skapgerð sem hún hlaut sem arf frá ætt- mennum sínum. Hún var hrein- skilin í samskiptum og órög að setja fram skoðanir og fylgja þeim eftir hver sem í hlut átti, en hún virti einnig skoðanir annarra og átti því auðvelt með að um- gangast fólk. Hún var góðum gáf- um gædd þótt ekki nyti hún skólamenntunar, en orðið menntun hefur afstæða merkingu því menntun er einnig fólgin í þeim störfum sem vel eru af hendi leyst og lífsreynslu og fróð- leik er hægt að öðlast með ýmsum hætti. Að eðlisfari voru þau hjónin ólík, en það kom ekki að sök í sambúð þeirra því þau sýndu hvort öðru gagnkvæmt traust og virðingu og jafnvel þessi ólíka persónugerð átti sinn þátt í að skapa það heilnæma andrúmsloft er ríkti á þeirra heimili og kímnig- áfuna áttu þau sameiginlega þótt þau beittu henni hvort með sín- um hætti. Hallfríður var eigin- manni sínum skjöldur og skjól í veikindum og hún lagði sig fram um að halda uppi virðingu og reisn hans sem listamanns lífs sem liðnum. Að hennar frum- kvæði var haldin yfirlitssýning á verkum hans síðla vetrar 1967. Sigurjón Jónsson frá Þorgeirs- stöðum skrifar ágæta grein um Höskuld og verk hans í tengslum við þessa sýningu sem birtist í sunnudagsblaði Tímans 9. aprfl 1967. Börn þeirra Hallfríðar og Höskuldar eru tvö, Halldór fæddur 1936 giftur og búsettur í Hveragerði en hann reisti sér hús á lóðinni í Bláskógum 2 árið 1973. Ingveldur gift og búsett í Reykjavík. Ævikvöld þessarar dugmiklu konu var henni erfitt. Hún varð fyrir áföllum heilsufarslega, sem orsakaði að henni var um megn að sinna þeim störfum sem tengd- ust rekstri kaffistofunnar. Þar með þurfti hún jafnframt að yfir- gefa þann starfsvettvang sem hún af elju og dugnaði hafði skapað sér og sínum. Að vera sjálfbjarga og þá um leið fremur veitandi en þiggjandi, það var hennar lífs- stefna. Húseignin í Hveragerði var seld og keypt lítil íbúð í Reykja- vík, en þar var dvölin stutt vegna veikinda Hallfríðar og þá tók við j vist á sjúkrahúsum og dvalar- heimilum fyrir aldraða fyrst í Hveragerði og síðan í Reykjavík. Þetta er sú vegferð sem allra bíður, aðeins mismunandi hvað lokaáfanginn er erfiður. Þótt lífshlaup Hallfríðar sýni að henni var tamara að vera í sókn en vörn, þá var henni gefið raunsæi og styrkur til að mæta mótlæti. Það sýndu viðbrögð hennar síð- ustu æviárin í þeim erfiðu veikindum en hún átti við að stríða. Þótt fráfall Hallfríðar hafi ver- ið tilefni þess að ég tók mér penna í hönd var mér ljóst að minningin um þessi hjón er svo samofin í vitund minni að hún verður ekki aðskilin. Eitt af því sem gefur lífi hvers manns gildi er að eignast trausta vini. Kynni mín og minnar fjöl- skyldu af þeim merkishjónum Hallfríði og Höskuldi hafa á ýms- an hátt mótað viðhorf mín. Myndirnar hans Höskuldar sem prýða veggi á okkar heimili vekja athygli á þeirri fegurð sem felst í því smæsta sem við augum blasir úti í náttúrunni og mörgum sést yfir í erli dagsins. Að lokum sendi ég Halldóri, Ingu, Höllu og þeirra fjöl- skyldum hugheilar kveðjur og vænti þess að við eigum eftir að fá tækifæri til að hittast og rifja upp sameiginlegar minningar. Hjálmar Jónsson 6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Midvikudagur 25. febrúar 1987

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.