Þjóðviljinn - 25.02.1987, Blaðsíða 12
HEIMURINN
íransskandall
Regan hætt kominn
Staða Regans versnar ogþvíerspáð að starfsmannastjórinn hœtti
í vikunni. McFarlane segir eitt, Regan annað, Reagan man ekkert...
Washington - Ónafngreindir
heimitdarmenn Reuter-
fréttastofunnar í Hvíta húsinu
teija að Donaid Regan starfs-
mannastjóri sé í þann mund að
taka pokann sinn vegna ír-
ansmálsins, og spá sumir því
að hann verði látinn fjúka eftir
að skýrsla einnar af
rannsóknarnefndunum um
málið verður birt á morgun.
Embætti Donalds Regans er
eitt hið mikilvægasta í herbúðum
forsetans, og er hin hefðbundna
íslenska þýðing „starfsmanna-
stjóri“ of léttvæg, ef til vill væri
nær lagi að kalla hann fram-
kvæmdastjóra forsetans í fyrir-
tækjastfl. Donald Regan er þrátt
fyrir eigin neitun talinn lykilmað-
ur í íranshneykslinu og ósenni-
legt að hann hafi ekki haft alla
hugmynd um framferði þeirra
Norths og Poindexters í Öryggis-
ráðinu, sem á sér samastað í kjall-
ara Hvíta hússins.
Heimildarmenn fréttastofunn-
ar segja að Nancy Reagan, sem
hefur umtalsverð pólitísk áhrif á
eiginmann sinn, beiti sér gegn
Regan, og Maureen dóttir forset-
ans er talin í bandalagi við móður
sína um að koma Regan í burtu. í
síðustu viku sagði Reagan í ræðu
að það væri mál Donalds Regan
hvort hann segði af sér, og túlk-
uðu margir þau orð sem óbeina
hvatningu til afsagnar, sem gæti
bjargað því sem bjargað verður
af áliti forsetans heimafyrir og út-
ávið.
Einn hugsanlegra eftir-
manna er Paul Laxalt, gamall
vinur forsetans og fyrrverandi
þingmaður frá Nevada. Laxalt
var fyrr í vikunni kallaður í Hvíta
húsið til viðræðna, að sögn um
það hvernig skyldi bregðast við-
V-Pýskaland
Samkomulag um skatta
Nýja stjórnin mun lcekka hátekjuskatta. Eyðnitillögur ullu fjaðrafoki í
viðræðunum
Bonn - Stjórnarflokkarnir þrír í isbreytingar í fjórðu viku
Vestur-Þýskalandi hafa komist stjórnarmyndunarviðræðna
að samkomulagi um skattkerf- eftir þingkosningar í lok janú-
Skák
Jafntefli í fyrstu
áskorendaskákinni
Anatólí Karpof og Andrei Sókólof betur framanaf en bauð jafntefli i
gerðu jafntefli í fyrstu skákinni í 36. leik eftir að Karpof hafði náð
áskorendaeinvíginu í Limares á að skipta upp á drottningum.
Spáni í gær. Tefldar verða þrettán skákir og
mætir sigurvegarinn Kasparof
Karpof hafði svart og lék Caro- heimsmeistara í haust.
Kam-vörn, Sókólof virtist standa -m/reuter
/€|||\Betri hönnun steyptra mannvirkja - orsakir galla og varnir Námstefna 26. og 27. febrúar á vegum endur- menntunarnefndar Háskóla íslands í Borgartúni 6. Umsjónarmaður Ríkharður Kristjánsson verk- fræðingur. Skráning þátttakenda er á skrifstofu Háskólans síma 25088.
Berðu ekki við tímaleysi ■ umferðinni. R Það ert ýtí sem situr undir stýri. M Í UMFERÐAR Fararí**(\ VRÁÐ ^5P7*jr
Auglýsið í Þjóðviljanum
ar. Skattamálin voru eitt helsta
ágreiningsmál flokkanna
þriggja og stendur nú helst í
vegi nýrrar stjórnar að eftir er
að komast að samkomulagi
um ráðuneyti og fjölda ráð-
herra. Búist er við að Kohl kan-
slari tilkynni nýja stjórn sína
um miðjan mars.
Frjálslyndir demókratar og
(FDP) og kristilegi flokkurinn í
Bæjaralandi CSU hafa löngum
elt saman grátt silfur í stjórnar-
samvinnunni, en í skattamálum
hefur brugðið svo við að forystu-
menn þessara flokka hafa sam-
einast gegn flokki kanslarans
(CDU), og krafist lækkunar á
fyrirtækjasköttum og sköttum á
hátekjumenn. Þessi skattalækk-
un á að hleypa auknu lífi í efna-
hag þar sem smá og meðalstór
fyrirtæki hagnast vel á breyting-
unum.
CDU, á sér meira fylgi meðal
lágtekjumanna og verkamanna
en samstarfsflokkarnir, og þar
eru menn hræddir um að skatt-
breytingarnar verði túlkaðar sem
gjöf til ríkra. Slíkt kann að koma
flokknum illa í fernum eða fimm
fylkiskosningum á árinu. Að lok-
um var komist að málamiðlun
sem heldur virðist mótast af af-
stöðu FDP og CDU en tregðu
Kohls og félaga, og kann stór-
veldafundurinn í París um helg-
ina að hafa haft sín áhrif, en þar
lofuðu Vestur-Þjóðverjar að
hvetja til aukinnar heimaneyslu
með skattalækkunum.
Eyðnipestin hefur einnig kom-
ið við sögu í stjórnarmyndunar-
viðræðunum þýsku. Kristilegir
Bæjarar undir forystu Strauss
kröfðust þess að tekin yrði upp
opinber skylduskráning allra
eyðnisjúklinga, en féllu frá því
vegna andstöðu í hinum flokkun-
um.
Enn eiga stjórnarflokkarnir
eftir að koma sér saman um ráðu-
neyti og fjölda ráðherra. Búist er
við að FDP-menn heimti ráð-
herrastól í viðbót við þá þrjá sem
þeir sitja í nú með tilvísun til
kosningaúrslita, og jafnframt er
búist við að Strauss standi þver í
vegi, en þær hræringar ættu ekki
að hindra Kohl í að kynna nýja
stjórn um miðjan mars.
-m
Líbanon
SýHendingar
hreiðra um sig
Líf almennings í Vestur-
Beirút er smám saman að falla
í fyrra horf eftir að fólk hafði
mátt dúsa í vikutíma innilokað
í heimahúsum vegna látlausra
bardaga i borgarhlutanum.
Verslanir og bankar sem ekki
höfðu verið sprengd í rústir opn-
uðu að nýju og þúsundir manna
héldu til vinnu.
Sýrlendingar leggja undir sig
hverja herbækistöðina á fætur
annarri. Einn vegfarandi beið
bana þegar þeir skutu á vopnaða
Drúsa sem neituðu að láta tól sín
af hendi. Að sögn dagblaðsins
Af-Safír munu þeir hafa fellt tólf
vígamenn, handtekið tíu og lok-
að fimmtíu skrifstofum hinna
andstæðu fylkinga síðan þeir her-
námu Vestur-Beirút.
Oddvitar Drúsa og Amalsíta
segjast fyllilega sáttir við að dátar
þeirra afhendi hernámsliðum
vopn sín og bækistöðvar. Drús-
arnir flykkjast nú unnvörpum út
úr borginni á leið heim til Shouf-
fjalla, borgaralega klæddir.
-ks.
Donald Regan. Dagar hans í Hvita
húsinu taldir?
skýrslunni sem birt verður á
morgun.
Eitt af meginatriðum í ír-
ansmálunum er hvort forsetinn
samþykkti vopnasöluna til íran
áður eða eftir að hún hófst.
McFarlane, fyrrverandi öryggis-
ráðgjafi Reagans, hefur sagt að
Reagan hafi samþykkt áður en
byrjað var, en starfsmannastjór-
inn Regan segir hann hafa sam-
þykkt eftirá. New York Times
sagði í gær að Reagan forseti
myndi ekkert eftir þessu, og gæti
því ekki skorið úr um hvor segir
satt. -m
Sovét
Dumban
dreymir,
dáti talar
Sovéthermaður fær mál-
ið eftir 43 ár
Moskva - Hálfáttræður Úkra-
ínumaður fékk aftur málið fyrir
skömmu eftir 43 ár eftir
draumfarir, og talar nú fullum
fetum um heima og geima við
nágranna sína í þorpinu Svídó-
vets.
Arkíp Maxímenkó var her-
maður i Rauða hernum í síðari
heimsstyrjöld og missti málið
þegar hann varð fyrir kúlu í bar-
daga í Póllandi í desember 1944.
Isvestíu segist svo frá að Maxím-
enkó hafi dreymt aftur orrust-
una, ráðist fram með riffil sinn og
öskrað fullum hálsi, vaknað síðan
altalandi.
Afríka
Nígeríu-
mönnum
fjölgar
of hratt
Lagos - Starfsmenn þeirrar
stofnunar Sameinuðu þjóð-
anna sem fylgjast með fólks-
fjöida hafa varað Nígeríumenn
við of örri mannfjölgun í
landinu, og segja að ef ekki
verður lát á muni íbúatala tvö-
faldast á næsta aldarfjórðungi.
Nígeríumenn eru nú taldir á
bilinu 100 til 106 milljónir, og
yrðu þarmeð yfir 200 milljónir
árið 2012. Nígería er fjölmenn-
asta land álfunnar og fólki fjölgar
þar hraðar en að meðaltali í öðr-
um Afríkulöndum, um 3,5% á
ári, meðaltalið er3%. Fólksfjölg-
un í álfunni er talin mest í Ken-
ýju, 4%.
Eins og stendur brauðfæðir
Nígería ekki íbúa sína og er
matur flutturinn eins og íslend-
ingum er kunnugt.
-m
12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 25. febrúar 1987