Þjóðviljinn - 27.02.1987, Blaðsíða 3
Loðna
Frystingu lokið
Heildarfrysting nœr 7000 tonn. Jón Ög-
mundsson hjá SH: Góð vertíð - lítið um átu
HP-könnun
Framsókn
og
kratartapa
Samkvæmt skoðanakönnun
sem Helgarpósturinn birti í gær
tapar Framsóknarflokkurinn
töíuverði fylgi í komandi kosning-
um og Alþýðuflokkurinn er að
missa flugið, einkum í höfuðborg-
inni.
Alþýðubandalagið eykur
nokkuð fylgi sitt frá fyrri könnun--
um og þá mest í Reýkjaneskjör-
dæmi þar sem lítið vantar uppá 2
kjörna þingmenn. Samkvæmt
könnuninni fengi AB 11 þing-
menn, Alþýðuflokkur 14, Fram-
sóknarflokicur 8, Kvennalisti 6 og
Sjálfstæðisflokkur 24.
Jarðskjálftar
28 milj.
í rannsóknir
Norðurlandaráð hefur sam-
þykkt tillögu Guðrúnar Helga-
dóttur um samnorrænar jarð-
skjálftarannsóknir á Suðurlands-
undirlcndinu.
Hefur þegar verið veitt tæpum
28 miljónum til rannsóknanna en
markmið þeirra er m.a. að draga
úr tjóni af völdum væntanlegra
jarðskjálfta.
Frá fréttaritara Þjóðviljans í Hels-
inki, Eiríki Hjálmarssyni:
Liflegar umræður urðu á Norð-
urlandaráðsþinginu í gær um
Dounray-kjarnorkuverið í Skot-
landi og stækkun þess. Fyrir
þinginu lá fyrirspurn tii ráð-
herranefndarinnar frá Aase Oles-
en frá Radikalc Venstre í Dan-
mörku um hvað ráðherranefndin
hefði í bígerð hvað málið varðar.
Ragnhildur Helgadóttir varð
fyrir svörum af hálfu ráðherra-
nefndarinnar og kynnti mótmæl-
aorðsendingu frá nefndinni til
bresku ríkisstjórnarinnar.
Nokkrar umræður spunnust um
hvort nóg væri að gert og spurði
Guðrún Helgadóttir nefndina
hvort hún hefði tekið ákvörðun
um framhaldið og varð þá frekar
fátt um svör.
f ræðu sinni vitnaði Guðrún í
nýútkomna skýrslu Geislavarna
nícisins og Siglingamálastofnunn-
ar um afleiðingar hugsanlegs
slyss í Dounray og vakti hún
nokkra athygli.
Áhyggjur Norðmanna af Do-
unray eru sérstaklega miklar,
enda hafa þeir mælt geislun frá
kjarnorkuverinu allt norður í
Barentshaf. Að sögn Tove Ger-
hardsen félagsmálaráðherra Nor-
egs óar Norðmönnum við frekari
útþenslu á starfsemi í Dounray.
Ennfremur lýstu Grænlendingar
áhyggjum sínum en því miður
virðist ráðherranefndin ekki hafa
neitt frekar á takteinum til að
mótmæla verinu.
Félags-og umhverfismála-
nefnd Norðurlandaráðs hefur
fjallað um málið en frá henni hef-
ur enn ekkert komið. Pétur Sig-
urðsson situr fyrir hönd íslands í
þeirri nefnd. Staðan er sem sagt
sú að allir eru sammála en ekkert
gerist og liggja Svíar undir grun
um að vera dragbítar í þessu máli.
-vd./E.Hj.
Törnin stóð yfir í tæpan hálfan
mánuð og við lukum við alla
loðnufrystinguna í byrjun þess-
arar viku. Almennt séð hefur
loðnan verið mun betri til fryst-
ingar í ár en oftast áður, bæði
hvað snertir stærð og átu-
innihald. Hjá okkur voru fryst
5000 tonn samkvæmt samningi
við Japani sem kaupa alla loðn-
una, - segir Jón Ögmundsson hjá
SH.
Sömu sögu hafði Sæmundur
Guðmundsson hjá Sjávarafurða-
deild Sambandsins að segja:
- Við hættum í byrjun vikunn-
ar og vorum þá búnir að frysta
1500 tonn. Að vísu höfum við
fengið 300 tonn í viðbót af
tveimur bátum svo þetta verða í
allt um 1800 tonn af frystri ioðnu.
Samningurinn við Japani gerði
ráð fyrir 750 tonnum en þessi við-
bót er öll seld og á förum út, -
sagði Sæmundur að lokum.
Hjá Íslandssíld í Sandgerði
voru þeir að klára loðnufrysting-
una í gær. Höfðu þeir fryst um
150 tonn og gengið þokkalega.
grh
FRETTIR
Óvenju mikið er um byggingarframkvæmdir nú vegna góðrar tíðar. Verkfall byggingarmanna mun því hafa viðtæk áhrif.
F.v. Guðjón og Stefán. Mynd Sig.
Byggingarmenn
Tölur VSI útí hött
Benedikt Davíðsson segirþað hugarburð hjá VSÍað kröfurbygging-
armanna séu 40% hærri en desembersamningarnir. Benedikt: 1 des-
ember varsamið um að taxtarnir yrðufærðir að greiddum launum. Sú
ein er krafa okkar
Þessar upplýsingar frá Vinnu-
veitendasambandinu eru út í
hött. Þetta er bara áróðursupp-
setning og á ekki við neina stoð að
styðjast í raunveruleikanum,
sagði Benedikt Davíðsson for-
maður Sambands byggingar-
manna um þær fullyrðingar VSI
að kröfur byggingarmanna séu
allt að 40% hærri en sú launa-
hækkun sem fólst i samkomulagai
ASÍ og VSÍ frá því í desember.
Benedikt sagði að það sem
byggingarmenn færu fram á væri
ekkert framyfir það sem samið
var um í desember. Þar er samið
um, í samningnum um
fastlaunasamninga, að taxtakaup
verði fært að greiddum launum í
fyrirtækunum og sú ein sé krafa
byggingarmanna. „Nú ef þeir hjá
VSIvilja meina að þetta séu 40%
þá er það það sem þeir sömdu um
í desembermánuði," sagði Bene-
dikt. Þá sagði Benedikt að við-
semjendur hefðu fram til þessa í
viðræðunum alfarið neitað að
ræða fastlaunasamningana.
Benedikt taldi mjög líklegt að
fleiri félög boðuðu til verkfalls á
sama tíma og Trésmíðafélag
Reykjavíkur sem er 11. mars, en
nokkur félög eru nú þegar komin
með verkfallsheimild, s.s. Iðns-
veinafélag Suðurnesja, Félag
byggingariðnaðarmanna í Hafn-
arfirði, Trésmíðafélag Akureyrar
og Félag byggingariðnaðar-
manna í Arnessýslu. Loks sagði
Benedikt að byggingarfram-
kvæmdir á sucý-vesturhorni
landsins væri í fullum gangi og
eftirspurn eftir fólki, þannig að
gera má ráð fyrir að verkfall
byggingarmanna muni hafa víð-
tæk áhrif.
—K.Ól.
Norðurlandaráðsþingið
Dounray mótmælt
Miklar umrœður á Norðurlandaráðsþinginu
um Dounray-kjarnorkuverið. Norðmenn
mjög áhyggjufullir. Ráðherranefndin sendir
mótmœlaorðsendingu til bresku ríkisstjórnar-
innnar en hefst ekkifrekar að
Góugleði
Alþýðubandalagsins í Kópavogi
verður laugardaginn 28. febrúar í Þinghóli,
Hamraborg 11. Húsið opnað kl. 19.00.
Fordrykkur - þorramatur -
Söngfélagið Drangey - dans.
Gestur kvöldsins verður Ásdís Skúladóttir.
Veislustjóri: Sigurður Jóhannsson.
Miðaverð kr. 1.200.-
Miðar verða seldir í Þinghóli í dag,
sími 41746.
Fjölmennum og tökum með okkur gesti.
Vestmannaeyjabær
Vestmannaeyjabær auglýsir stöðu, forstöðu-
manns Safnahúss Vestmannaeyja, laust til um-
sóknar.
Háskólamenntun í bókasafnsfræðum áskilin.
Upplýsingar veitir bæjarstjóri í síma 98-1088,
utan vinnutíma 98-1588. Umsóknarfrestur er til
16. mars 1987.
Bæjarstjórinn í Vestmannaeyjum,
Arnaldur Bjarnason.
jmi AUGLYSING
SsSb um styrki til leiklistarstarfsemi
í fjárlögum fyrir árið 1987 er 2.000.000,- kr. fjárveiting, sem ætluð er
til styrktar leikistarstarfsemi atvinnuhópa, er ekki hafa sérgreinda
fjárveitingu í fjárlögum.
Hér með er auglýst eftir umsóknum um styrki af fjárveitingu þessari.
Umsóknareyðublöð fást í ráðuneytinu.
Umsóknir skulu hafa borist Menntamálaráðuneytinu fyrir 10. apríl
næstkomandi.
Menntamálaráðuneytið,
24. febrúar 1987.
Föstudagur 27. febrúar 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3