Þjóðviljinn - 06.03.1987, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 06.03.1987, Blaðsíða 11
CnVARP^SJÓrMRPf .© 6.45 Veöurfregnir. Bæn. 7.00 Fréttir. 7.03 Morgunvakt. 9.00 Fréttir. 9.03 Morgunstund barnanna: „Mamma f uppsveiflu" eftlr Armann Kr. Einarsson. 9.20 Morguntrimm. Tilkynningar. 9.35 Lesið úr forustugreinum dagblað- anna. 9.45 Þingfréttlr 10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. 10.30 Sögusteinn. 11.00 Fréttir. 11.03 Samhljómur. 12.00 Dagskrá. Tilkynningar. 12.20 Fréttir 12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar. Tón-. leikar. 14.00 Mlðdegissagan: „Áfram veginn", sagan um Stefán fslandi. 14.30 Nýtt undir nálinni. 15.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar. 15.20 Landpósturinn. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Barnaútvarpið 17.00 Fréttir. 17.03 Síðdegistónleikar. 17.40 Torglð - Viðburðir helgarinnar. Til- kynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. 19.30 Tilkynningar Daglegt mál. 19.40 Þingmál. 20.00 Lög unga fólkslns. 20.40 Kvöldvaka. 21.30 Sfgild dægurlög 22.00 Fréttir. Dagskrá morgundagsins. 22.15 Veðurfregnir. 22.20 Lestur Passfusálma. 22.30 Vísnakvöld. 23.10 Andvaka. 24.00 Fréttir. 00.10 Næturstund f dúr og moll. 01.00 Dagskrárlok. Næturútvarp á rás 2 til kl. 03.00. & 9.00 Morgunþáttur. 12.00 Hádeglsútvarp. 13.00 Bót f máll. 15.00 Sprettur. 17.00 Fjör á föstudegi. 20.00 Kvöldvaktin. 23.00 Á næturvakt. 7.00 Á fætur með Sigurðl G. Tómas- synl. 9.00 Páll Þorsteinsson á léttum nót- um. 12.00 Á hádegismarkaði með Jóhönnu Harðardóttur. Fréttapakkinn. 14.00 Pétur Stelnn á réttri bylgjulengd. 17.00 Hallgrfmur Thorsteinsson f Reykjavfk sfðdegis. 19.00 Þorsteinn J. Vilhjálmsson. 22.00 Jón Axel Ólafsson. 03.00 Næturdagskrá Bylgjunnar. ÚTRÁS 8.00 Morgunhaninn. 10.00 Lagkaka. 12.00 Hljóðblandarar. 13.00 Hjartarbúgf. 14.00 Draugabanlnn. 15.00 Rokk að hætti hússlns. 17.00 Morfís - Lið F.G. 18.00 Notað og nýtt. 20.00 Sól-tónlist. 21.00 Félagsmiðstöðin Garðalundur. 24.00 Næturútvarp F.G. 18.00 Nilli Hólmgeirsson. 18.25 Stundln okkar - Endursýning. 19.05 Á döfinnl. 19.10 Þlngsjá. 19.25 Fréttaágrip á táknmáli. 19.30 Spftalalff. 20.00 Fréttir og veður. 20.35. Auglýsingar og dagskrá. 20.40 Unglingarnir f frumskóginum. 21.10 Mlke Hammer. 22.00 Kastljós. 22.30 Seinni fréttir. 22.40 Fram f sviðsljósið. (Being There). Aðalhlutverk: Peter Sellers, Shirley MacLaine og Melvyn Douglas. Einfald- ur og fáfróöur garðyrkjumaöur stendur uppi einn og óstuddur eftir fráfall hús- bónda sins í heimi sem hann þekkir að- eins úr sjónvarpi. Atvikin haga þvi þó svo að máttarstólpar þjóðfélagsins taka hann upp á arma sér og hampa honum sem nýjum spámanni vegna visku hans og mannkosta. Þýðandi Veturliði Guðnason. 17.00 # Fljótið (The River). Bandarísk kvikmynd með Mel Gibson og Sissy Spacek i aðalhlutverkum. 18.40 #Myndrokk. 19.00 Ferðlr Gúllfvers. Teiknimynd. 19.30 Fréttir. 20.00 Opin lína. 20.15 Um vfða veröld. 20.35 # Á hálum fs (Thin lce). Bandarísk sjónvarpsmynd frá CBS. 22.05 # Benny Hill. 22.30 # Leltin (Missing). Bandarísk kvik- mynd meö Sissy Spacek og Jack Lem- mon í aðalhlutverkum. 00.30 # Eyjan (The Island). Bandarísk kvikmynd með Michael Caine í aðalhlu- tverki. 02.10 # Myndrokk. L Þjóðháttadeild fíkniefnalögreglunnar Hin útbreidda söguskoðun meðal íslenskra sagnfræðinga er sú, að frá því á dögum Magnúsar prúða hafi vopnaburður ekki tíðkast á íslandi - ef frá eru taldir þeir fornkappar Oddur sterki af Skaganum og Pétur Hoffmann. Fíkniefnadeild lögreglunnar hefur þó með rannsóknum sínum kippt fótunum undan þessari söguskoðun og í ljós er komið, að íslenska þjóðin er nú mun betur vopnum búin heldur en nokkru sinni fyrr. Og hætt er við að forn- ar hetjur eins og Þorgeir Hávars- son yrðu grænar af öfund, ef þær fengju augum litið hið glæsilega vopnabúr, sem fíkniefnadeildin hefur hrifsað úr höndum við- skiptavina sinna, og geymir nú í sinni vörslu þangað til stofnuð hefur verið þjóðháttadeild fíkni- efnalögreglunnar. Þar getur að líta morðtól og limlestingatæki af vönduðustu gerð. Til dæmis hlaupsagaðar haglabyssur, sem eru mjög vin- sælar erlendis meðal bankaræn- ingja og fjöldamorðingja. Þessar hlaupsöguðu haglabyssur hafa að vísu þann ókost, að þær eru ekki jafnmarkvissar á löngu færi og þær byssur, sem eru óstyttar, en hafa á hinn bóginn þann kost, að þær fara mun betur í frakkavasa og vekja minni athygli á manna- mótum, heldur en þær byssur sem eru það langar að nauðsyn- legt er að hafa þær hangandi í ól um öxlina. Hinar hlaupsöguðu byssur hafa líka gildi sem tómstundagaman, því að lag- hentir menn geta haft það fyrir dægrastyttingu og haft af því ómælt gaman að saga framan af hlaupinu og að sverfa til skeftið. í vopnabúrinu er að sjálfsögðu einnig að finna allar hinar vinsælli tegundir af skammbyssum, eins og lesa má um í erlendum glæpa- sögum, og fylgja jafnvel hljóð- deyfar sumum tegundunum, en hljóðdeyfa er einkarþægilegt að hafa á skammbyssum, sérstak- lega til notkunar í fjölbýlishúsum eða á nóttunni, ef notandinn vill ekki raska svefnró almennings. Fyrir þá sem eru sérstaklega hljóðlátir má benda á að notkun boga og örva virðist færast mjög í vöxt, og er það sennilega vegna dýrkunar á fornkappanum Gunnari á Hlíðarenda. Bæði eru þama venjulegir bogar af þeirri tegund sem Gunnar á Hlíðarenda og frændi hans Hrói höttur not- uðu, en ennfremur er í vopnabúr- inu gífurlegt úrval af lásbogum, sem eru mjög skemmtileg og kraftmikil vopn, en með þeim er hægt að senda ör viðstöðulaust í gegnum hvern meðalmann, jafnvel úlpuklæddan. Það er því ánægjulegt að sjá, að landsmenn halda enn tryggð við fomsögurnar, þótt að sönnu megi KALU OG KOBBI GARPURINN FOLDA í BLÍÐU OG STRÍÐU Og gettu hvað Ella? Það var rétt lykt af honum! Þegar þú finnur þann rétta 'finnur þú að það er akkúrat r6tt l\/lrt af hnni imll orð^yra"# HJá lögreglunnlgeturað líta skemmtllegt safn vopna bæðl tll helmlllsbrúks ogelnstll notkunar í smærrl ofbeldls- og ránsferðum. harma það hversu litla áherslu menn virðast nú orðið leggja á að eignast góð sverð. Hins vegar er úrvalið af hnífum, söxum og breddum hvers konar mjög vand- að og forvitnilegt. Nú er það alkunna að góð vopn em dýr, og það er því ekki á hvers manns færi að vera vel vopnum búinn, nema til komi bæði hugvit og handlagni. íslenskt hugvit er mjög til um- ræðu þessa dagana og er vopna- búrið góð staðfesting þess, að hinu íslenska hugviti em lítil tak- mörk sett, því að þarna getur að líta margs konar limlestingar- tæki, sem eru hreinasta dverg- asmíð. Má nefna kylfur ýmiss konar, jafnvel kylfur sem eru svo haganlega gerðar að hægt er að draga þær saman eins og útvarps- loftnet og geyma í brjóstvasa eða uppi í j akkaermi, og síðan er ky lf- an dregin sundur og tilbúin til notkunar á nokkrum sekúnd- ubrotum þegar nauðsyn krefur. Jafnvel ódýrir og hversdags- legir hlutir geta með ofurlitlu hugviti orðið að skemmtilegum vopnum: Keðjur em þarna marg- ar og frábærlega hugvitssamlega útfærðar. Sumar keðjurnar eru festar á handfang, sem gerir það kleift að ná meiri sveiflu á keðj- una, og á sumar þeirra er enn- fremur festur járnhlunkur fremst til að gera sem mest úr högginu. Ekki þarf mikla líkamsburði til að valda stóráverkum eða dauða með slíkum vopnum og gætu þau því hentað jafnvel konum og ung- lingum. Léttust og skemmtilegust í vasa em þó hnúajárnin, en af þeim eru ótal útgáfur í vopnabúr- inu. Hnúajámin em til bæði í tísku- litunum, og eru þá ýmist máluð eða vafin plastefnum, eða líka krómuð og gljáandi, sem sumum þykir ávallt sportlegra. Fíkniefnalögreglan hefur það fyrir sið að gera þau vopn upptæk sem hún finnur í fórum viðskipta- vina sinna, og er óskandi að hún haldi sem fyrst sýningu á vopnun- um fyrir allan almenning í stað þess að bjóða einvörðungu blaðamönnum. Þetta gæti orðið til þess að auka enn og útbreiða áhugann á vopnaburði og vopna- smíð. Þjóðminjavörður mætti einnig taka til athugunar að opna sérs- taka vopna- og fíkniefnadeild í Þjóðminjasafninu, því að hvort- tveggja er að við megum vera stolt af þessu framtaki fíkniefna- neytenda og eins getum við glaðst yfir tryggð þeirra við þjóðlega hefð. í vopnabúrinu er nú þegar samankomið nægilegt magn vopna til að rota og limlesta alla landsmenn á stuttum tíma. Og enda þótt menn hljóti að virða þá viðleitni fíkniefna- deildarinnar að taka til varð- veislu dýrmæt áhöld af þessu tagi, finnst mörgum það skjóta skökku við á þessum frjálshyggjutímum að meina fólki vopnaburð, enda væri það í anda hinnar frjálsu samkeppni að eftirláta hverjum og einum að ákveða það, hvort hann (eða hún) kýs að ganga vopnaður að leik og starfi. Þessa spumingu þyrfti hið bráðasta að leggja í dóm hinna bestu og vitrustu manna, og gera margir sér vonir um að lands- fundur Sjálfstæðisflokksins láti ekki undir höfuð leggjast að álykta um þetta mál eins og önnur sem heyra til frelsis og framfara. Föstudagur 6. mars 1987 ÞJÓÐVIUINN - SlÐA 11

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.