Þjóðviljinn - 06.03.1987, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 06.03.1987, Blaðsíða 10
HEIMURINN 8..REMPIA&JE: Drögin frá Ósló eru stór áfangi í átt- ina. Fyrirsagnir úr Arbeiderbladet í Noregi, Svenska Dagbladet, Þjóðvilj- anum og hinni dönsku Information. AfiBEIOtRfilAQEI. HRSOAG 3. MABS .198I fraktat-forskig sna .j. ____M. Udsigt til gennembrud for nordisk atomvábenfri zone Kjarnorku vopnalaus Norðurlö, ■'v' ^uvupnaia Samkomulag • S U/t \>/l »■ /’.'/w. m r nd Mens Hoyre fQrtsatt sier beidet med á gjore Nofds ---------------lísko, m Nyt forslag. der erstat.ter en enkelt trektat med et fstem af ■ r A JÍ!i2!fn,mál*nokl>«rí N„rn. ílurltodum uu„ h.grin.Ak. _ i sionmali CKle r for i i den anske mit.N-riN hi n-iKt nt Kcnncmforc umlcrNOKclscsarlH'jdct Mtlflo iH-ntlf mf<l ••ml»fd.NmandN«rup opklarinK*'' irksnmhed I)«•! kun lilivf uktufll ut unmo d«- cmlH-dsinundsKruppcn om at udurln-jdf udkust til traklal om dfii unrdiskf utomvAlK'nln zonc dlcr andcn form f«»r ;if tuh-r ■• l)ft nordiskf udcnriKNinim Ntermedc. soni parlamenturi kcrnc vil unmode om ut ncd* sa-tt«- cmlH‘dmun«lsudvHl*;«,l. fin«l«*r stc«l i slutninKcn uf marts máncd Froblemet Ofitersoen ji tuinnncn «.*; l'SA. mi-n dcr td-tru-lH-s «>*;sA cn tillu-*;suftu li* mi-d *:aranticr fru NATC) <»K \\ ars/.uwapu*;tfn Island hur Indtil spdlct cn hri-msi-n<lc rullc. «># isla-ndin- (jcnc vd nu afvcnti- Ih-sIuI- nm*'rn pA parlumimturikcr- I grupiH-ns niodc. for dc tagcr I endclig stdlin*; til. om dc vil an | bcfale «l«* nordisk«- ud«*nrÍKsmi- | mstrc at ni-dsM'tU- pmfieds mumlsKruppi'n Vclinformcrcdc kildcr i dct f«.r mcget sundsynlÍKt. at I d«-r kun skaln-N <-nÍKh«*d i purla T mcnturikcrKruppfn Skcr del. vd dct riflt va-rc ct Kcnncm lirud i urlH-idcl for on atom- j Kalevi Sorsaforsætisráðherra Finna. Allir flokkar þar í landi eru sammála um svæðisstofnun. Gro Harlem Brundtland forsætisráð- herra Noregs. Miðflokkarnir styðja vinstrimenn í norska svæðismálinu. Anker Jörgensen formaður þing- mannanefndarinnar, - hvenær setj- ast emgættismennirnir niður? Jón Baldvin Hannibalsson. Útiloka kratar ísland frá aðild að samningn- um? Káre Willoch, einn helsti leiðtogi norska Hægriflokksins. Vill að Nató sé við stjórnvölinn. Kjarnorkuvopnalaus Norðurlönd Samkomulag á næsla leiti Traustur meirihluti með samningsdrögum Anker-nefndarinnar á norrœnum þingum nema á íslandi. Polinmœðigagnvartíslenskritregðuáþrotum. Andstaða Alþýðuflokksins gœti útilokað ísland frá samningnum Norræna þingmannanefnd- in sem oftast er kennd við for- mann sinn Anker Jörgensen gekk á mánudaginn frá sam- komulagsdrögum um tillögur að kjarnorkuvopnalausu svæði á Norðurlöndum og telj- ast líkur á nær einhuga niður- stöðum frá nefndinni mjög góðar. Þingmeirihluti virðist vera fyrir hugmyndum nefnd- arinnar á öllum norrænum þjóðþingum nema ef til vill hinu íslenska. Norræn dagblöð tala um „full fart“ og „gennembrud“, en enn hika hægriflokkarnir sem ekki taka þátt í störfum nefndarinnar, og línurnar skýrast ekki fyrren eftir fund utanríkisráðherranna í Reykjavík í lok mánaðar þarsem tekin verður afstaða til skipunar embættismannanefndar um mál- ið. f samkomulagsdrögunum mun gert ráð fyrir að samningur um kjarnorkuvopnalaust svæði nái til Norðurlanda allra, og skuldbindi þjóðirnar sig til að framleiða ekki kjarnorkuvopn, taka ekki á móti þeim, gera ekki tilraunir með þau, leyfa þau ekki í löndum sín- um, búa sig ekki undir að fá slík vopn, kenna ekki herjum sínum að beita kjarnorkuvopnum, leyfa ekki flutning þeirra um Iönd sín og leyfa ekki mannvirki ætluð uppsetningu kjarnorkuvopna. Gert er ráð fyrir að flutningur kjarnorkuvopna sé bannaður í landhelgi norrænna ríkja, þó með þeim undantekningum sem leiða af alþjóðlegum réttarreglum um siglingar. Flugvélar hlaðnar kjarnorkuvopnum verða ekki leyfðar yfir Norðurlöndum, og ekki tekið á móti þeim til lending- ar. Meginplagg og nokkrir hliðarsamningar Drög Anker-nefndarinnar gera ráð fyrir einum aðalsamn- ingi milli norrænna ríkisstjórna, og að auki hliðarsamningum, til dæmis um Eystrasaltið við Sovét- menn, Austur-Þjóðverja og Pól- verja, og um norðvestursvæðið við Bandaríkjamenn sem hafa herstöðvar bæði í Keflavík og Thule á Grænlandi. Risaveldin yrðu með þeim hætti og öðrum fengin til trygg- ingar, og stefnt að ábyrgðarvott- orði frá bæði Atlantshafs- og Varsjárbandalagi. Sérsamningar og alþjóðlegar tryggingar kæmu í áföngum, eftir að aðalsamning- urinn hefur verið gerður, - svipað verklag og viðhaft var við stofnun svæðanna í Suður-Ameríku og í Suður-Kyrrahafi og samkvæmt fyrirmyndum frá Sameinuðu þjóðunum. Ennfremur er reiknað með að samningurinn skapaði Norður- löndum stöðu til að þrýsta á um afvopnun á grannsvæðum, og er þá Kóla-skaginn sérlega í huga hafður. Að auki yrði samningur um Norðurlandasvæði mikilvæg- ur stuðningur við tillögur Palme- nefndarinnar svokölluðu um kjarnavopnalaust belti gegnum Evrópu frá Ítalíu gegnum þýsku ríkin til Norðurlanda, - hugmynd sem meðal annars nýtur stuðn- ings í Austur-Berlín og í höfuð- stöðvum vesturþýskra krata. Drögin sem samþykkt voru í Ósló hafa verið send þeim þing- flokkum sem aðild eiga, og beðið um samþykki eða athugasemdir fyrir 21. apríl, en þá heldur þing- Frakkland Barre hefur meðbyr í nýrri franskri skoðana- könnun kemur í Ijós að ef gengið yrði til forsetakosninga nú og valið stæði á milli Raym- onds Barre, fyrrverandi for- sætisráðherra, og Francois Mitterrand, núverandi forseta, myndi sá fyrrnefndi fara með nauman sigur af hólmi. Fimmtíu og eitt prósent að- spurðra hugðust ljá Barre at- kvæði sitt en fjörutíu og níu pró- sent myndu kjósa Mitterand. Hinsvegar myndi forsetinn sigra Jacques Chirac, núverandi forsætisráðherra, með umtals- verðum mun. Áttahundruð og sextíu ein- staklingar voru spurðir, vítt og breitt um Frakkland. -ks. Raymond Barre nýtur vinsælda þessa dagana. mannanefndin fund í Helsinki. Má búast við að þau verði sam- þykkt þar óbreytt eða lítt breytt og hefur þingmannanefndin þá lokið ætlunarverki sínu. Hún væntir þess að málið kom- ist síðan í hendur þeirrar emb- ættisnefndar sem hægrimenn hafa hvað eftir annað komið í veg fyrir að skipuð yrði, síðast Matt- hías Á. Mathiesen, - og er því horft til ráðherrafundarins í Reykjavík eftir þrjár vikur með nokkrum væntingum. Frá emb- ættisnefndinni færi málið til ríkis- stjórnanna sem allar væru undir þrýstingi frá þjóðþingunum. Stuðningur miðflokka .Vinstrimenn á Norðurlöndum hafa hingaðtil verið mestir hvata- menn að stofnun kjarnorku- vopnalauss svæðis, en það sem nú ræður úrslitum er síaukinn áhugi og stuðningur miðflokkanna plús augljós almannavilji. A afstöðu norrænu hægriflokk- anna, sem ekki hafa tilnefnt full- trúa í þingmannanefndina, er tal- sverður blæbrigðamunur. Hæg- riflokkurinn í Noregi er einna harðastur í andstöðu sinni og vill að allt gerist undir Natómer- kjum, Sjálfstæðisflokkurinn ís- lenski viðheldur hinni sérkenni- legu „norður-evrópsku" línu en vill fylgjast vel með undirbúningi öllum, Moderaterna í Svíþjóð eru taldir munu verða með að lokum, og íhaldsflokkur Schlut- ers í Danmörku hefur tekið mjög varfærna afstöðu til málsins. Úr þessu munstri sker sig einn flokkur, Alþýðuflokkurinn ís- lenski, sem á fulltrúa í nefndinni en hefur ekki tekið skýra afstöðu til grunnhugmynda hennar. Nú er svo komið að það verður Al- þýðuflokkurinn að gera með ein- hverjum hætti fyrir Helsinki- fundinn 21. apríl, ekki síst vegna þess að búast má við að tillögur Anker-nefndarinnar verði um- ræddar í kosningabaráttunni hér- lendis. Andstaða Alþýðuflokksins getur auðvitað ekki ein og útaf fyrir sig stöðvað þann skrið sem kominn er á þetta verk á Norður- löndum. Forystumenn Alþýðufl- okksins njóta lítils trausts nor- rænna bræðraflokka í utanríkis- málum og megna fátt einir og sér. Öðru máli gegndi hinsvegar ef að kosningum loknum tækist „Við- reisnar“-stjórn hans og Sjálfstæð- isflokks, sem væntanlega hreyfði sig ekki gegn bandarískum vilja í utanríkismálum, og tæki illa í til- lögur um svæðisstofnun. Útilokar Alþýðuflokkurinn íslenska þátttöku? Sennilegast er þó að slík stjórn næði ekki að stöðva svæðissamn- ing á Norðurlöndum í náinni framtíð. Þolinmæði stjórnmála- manna á Norðurlöndum gerist æ takmarkaðri gagnvart kenjum ís- lendinga í þessum efnum, og tregða hjá næstu ríkisstjórn í Reykjavík gæti hæglega leitt til þess að ísland yrði ekki haft með í samningnum, sem aftur þýddi að íslendingum gæti reynst torvelt að komast inn síðar. Á Norðurlöndum hefur lengi verið takmarkaður áhugi á að hafa ísland með í hugsanlegri svæðisstofnun, vegna þess að við það flækjast málin mjög vegna bandarískra hernaðarhagsmuna hér á landi, og mundu sumir mestu áhugamenn á Norður- löndum um kjarnorkuvopnalaust svæði gráta það þurrum tárum að íslendingar sætu að lokum hjá. Um hugsanlegar afleiðingar slíkrar hjásetu Islands á norrænt samstarf og hlutverk íslands í hernaðarkeðju Nató skal aftur ekki spáð hér. -m 10 SÍÐA - ÞJ«!>ÐVILJINN Föstudagur 6. mars 1987

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.