Þjóðviljinn - 11.03.1987, Qupperneq 1
Miðvikudagur 11. mars 1987 58. tölublað 52. árgangur
Byggingarmenn
Verkflall skollið á
Þýðingarlaus sáttafundur ígœr. Gretar Þorsteinsson: Búumst við langri vinnustöðvun. Benedikt
Davíðsson: Hefði verið hœgtað semja á nokkrum klukkutímum efatvinnurekendur hefðu viljað
Pað má alveg eins búast við að
þetta vcrkfall standi lengi.
Hingað til hafa atvinnurekendur
helst ekkert viljað við okkur
ræða, sagði Grétar Þorsteinsson,
formaður Trésmíðafélags
Reykjavíkur, í samtali við blaðið
i gær. En verkfall bygginga-
manna hófst á miðnætti. Verk-
fallið nær til 1700-1800 manna og
er því byggingaiðnaðurinn að
mestu lamaður.
„Byggingamenn hafa verið í
yfirvinnubanni frá því í síðustu
viku, til að knýja á um samkomu-
lag við vinnuveitendur. En til
þessa hafa atvinnurekendur ekki
verið fúsir til viðræðna. Fyrir
utan þann fund sem núna stendur
yfir hjá sáttasemjara, hefur að-
eins einn fundur verið haldinn
Keflavík
Lekandinn
ofundinn
Skýrslan umfjárreiður
bæjarsjóðs enn ekki birt.
Gróusögur blómstra.
Formaður bœjarráðs
fjarverandi áfundum
ráðsins og bæjarstjórnar
Enn hefur Alþýðuflokks-
meirihlutinn í bæjarstjórn Kefla-
víkur ekki birt áfangaskýrslu um
úttekt á fjárreiðum bæjarfélags-
ins. Eins og kunnugt er af fréttum
eru í skýrslunni ýmsir bæjar-
starfsmenn bornir þungum
sökum fyrir meint misferli í um-
gengni við bæjarsjóð.
Að sögn blaðsins Víkur-frétta
hefur þessi dráttur á birtingu
skýrslunnar ýtt mjög undir alls-
kyns kviksögur um meinta aðild
fyrrverandi og núverandi bæjar-
starfsmanna að fjármálamisferli í
tengslum við bæjarsjóð Keflavík-
ur.
Áreiðanlegar heimildir blaðsins
segja að sú bið sem hefur orðið á
því að hulunni sé svipt af skýrsl-
unni stafi af óeiningu meðal
meirihlutans. í því sambandi er
bent á að formaður bæjarráðs,
Hannes Einarsson, hafi ekki
mætt á bæjarráðs- og bæjar-
stjórnarfundi síðan hann viður-
kenndi að hafa sýnt „trúnaðar-
mönnum" sínum skýrsluna. En
eins og kunnugt er barst Helg-
arpóstinum skýrslan, þrátt fyrir
að hún væri trúnaðarmál og hafa
böndin því beinst að „trúnaðar-
mönnum" bæjarráðsformanns-
ins, meðan annað verður ekki
uppvíst. -RK
Mál og menning
Hætt að selja klám
Erla Hallgrímsdóttir deildarstjóri: Vonum að aðrar verslanirfylgi
okkar fordœmi
Það sló mig mjög að sjá þessa
mynd sem var birt í fylgiriti
Þjóðviljans af barni fyrir framan
blaðarekkann okkar og í fram-
haldi af því ákváðum við að hætta
að selja þessi blöð og vonum að
aðrar bókaverslanir fylgi okkar
fordæmi, sagði Erla Hallgríms-
dóttir deildarstjóri hjá bókabúð
Máls og Menningar í samtali við
Þjóðviljann, en verslunin hefur
nú hætt sölu allra klámblaða.
Hópur kvenna hefur tekið sig
til og vakið athygli á að margar
verslanir selja og stilla upp klám-
blöðum í augnhæð barna. „Við
höfum haft þessi 8-10 tegundir af
blöðum í háum rekka við hliðina
á afgreiðsluborðinu þannig að við
gætum fylgst með því að þeim
væri ekki stolið og að börn væru
ekki að fletta þeim“ sagði Erla.
„Það eru ekki börn sem kaupa
þessi blöð heldur einhver ákveð-
in tegund af fullorðnum karl-
mönnum. Það er ekki mikil sala í
þessum blöðum og að mínu mati
breyta þau ekki hugsunarhætti
fólks ein og sér. Þetta er meira
mál en svo.“ -vd
með deiluaðilum, frá því að
deilunni var vísað til sáttasemj-
ara, fyrir hálfri þriðju viku.
Við erum reiðubúnir að halda
verkfalli til streytu ef þess þarf
með. Menn gera það ekki að
gamni sínu að boða til vinnu-
stöðvunar og þá því aðeins að
menn eru reiðubúnir að taka því
sem að höndum ber“ sagði Gret-
ar Þorsteinsson.
Aðspurður um kröfur bygg-
ingamanna, sagði Gretar að þær
teldust hóflegar. „Við gerum
kröfu um það að taxtarnir verði
hækkaðir til samræmis við greitt
kaup, eins og um var samið í febr-
úarsamningunum. Stærstur hluti
okkar félagsmanna fær greitt
hærra kaup í dag, en við gerum ,
kröfur um. Þannig að kostnaðar- ;
auki byggingaiðnaðarins verður
ekki mikill, þó gengið væri að
okkar kröfum. Mér þykir það
ekki ósennilegt að ástæða þess að
viðsemjendur okkar er jafn ófús-
ir til viðræðna, eins og raun ber
vitni, að þeir vilji áfram getað
ráðskast með kaupið okkar og
hagað kaupgreiðslum eftir hend-
inni og hvernig blæs á hverjum
tíma. Það er afskaplega þægilegt
fyrir atvinnurekendur að geta
sett menn á strípaða taxtana þá
þegar skóinn kreppir að í bygg-
ingaiðnaðinum“ sagði Gretar
Þorsteinsson að lokum.
Benedikt Davíðsson, formað-
ur Sambands byggingamanna^
tjáði blaðinu um miðnætti, að
það hefði ekki þokað neitt í
samkomulagsátt á fundi deiluað-
ila með sáttasemjara. „Við hefð-
um getað samið í dag. Það þurfti
ekki að koma til verkfalls. Hefðu
atvinnurekendur sýnt einhvern
lit til samninga, var hægt að leysa
málið á nokkrum klukkustund-
um. En viðsemjendurokkar virð-
ast ekki hafa neina löngun til
þess“ sagði Benedikt Davíðsson.
-RK
Arkarmálið
Vélaleigan
í rannsókn
Helgi Þór Jónsson, eigandi Hót-
el Arkar og umsvifamaður í
fjármálaheiminum, staðfesti í
gær að skattrannsóknadeild
rfldsskattsstjóra kannaði nú bók-
hald Vélaleigu sinnar. Hins vegar
bar hann harðlega á móti, að
rekstur Hótel Arkar væri einnig í
rannsókn.
„Hótelið er alls ekkert inni f
þessari mynd“, sagði Helgi. „Ég
trúi ekki öðru en fullt samkomu-
lag náist milli mín og skattyfir-
valda varðandi mál vélaleigunn-
ar. Það eru vissulega erfiðleikar í
hótelrekstri mínum, einsog raun-
ar annarra, en ég á ekki í neinum
erfiðleikum gagnvart skattyfir-
völdum útaf honum“
Heimildir Þjóðviljans kveða
eigi að síður, að rannsókn fari nú
fram á umsvifum Helga Þórs
Jónssonar, þar á rneðal rekstri
Hótel Arkar, meðal annars með
tilliti til söluskattskila. Þannig
hafa ekki fundist nótur fyrir
öllum útgjöldum. -Ig./ÖS