Þjóðviljinn - 11.03.1987, Qupperneq 5
Hvað er
stúdentapólitík?
Þetta er jú víðtæk spurning og
margþætt. Ég ætla að reyna að
svara henni út frá sjónarhóli hins
almenna nemanda. Stúdentapól-
itík er allt umhverfi og þar með
„vistkerfi" nemandans ef svo má
segja. Sá aðili sem leggja á rækt
við þetta vistkerfi er svokallað
Stúdentaráð og þar kemur pólit-
íkin inn í. Já, en afhverju pólitík?
Spyr nemandinn. Jú, þessu er
þannig farið að einhver þarf að
sitja í Stúdentaráði og það er
hlutverk hins almenna nemanda
að velja manneskjur úr hópi
skólafélaga sinna, til þess að sitja
í þessu ráði. Hvernig fer hann að
þvf?
Nú; hann velur eða kýs ein-
hverja sem honum líst vel á úr
hópi þeirra sem bjóða sig fram til
setu í Stúdentaráði. Og þarna
færumst við ennþá nær pólitík-
inni því að þessir frambjóðendur
skipa sér í hópa undir merkjum
hægri, vinstri og allt þar um
kring. Þessir hópar móta svo
sínar stefnuskrár og bera þær
undir hinn almenna nemanda svo
hann geti valið. Hvernig fer svo
hinn almenni nemandi að því að
velja úr? Allt hlýtur þetta að líta
sómasamlega út og jú, þetta er
ákaflega myndarlegt fólk o.s.frv.
Hvaða mælistiku hefur nemand-
inn .á þessa valkosti sína? Jú, eins
og ég sagði hér að ofan þá er pól-
itíkin í Háskóla íslands vistkerfi
hins almenna nemanda. Af því
sem hann hefur í kringum sig og
hefur ekki í kringum sig getur
hann dæmt hvort honum líki nú-
verandi ástand eða hvort hann
felli sig alls ekki við það.
Ef til vill heldur hann að þetta
sé bara svona og eigi bara að vera
svona. Nei! Stúdentar ráða að
töluverðu leyti hvernig vistkerfið
þeirra lítur út. Og það sem gefur
honum valdið í þessum efnum er
svokallað atkvæði. Nemandinn
verður því að velja hverjum hann
treystir til að fara með umboð sitt
íþessum efnum, og þá hefst pólit-
íkin:
Félag Vinstrimanna
Nú stefnir Félag Vinstrimanna
í Háskóla íslands á að ná meiri-
hluta í Stúdentaráði, einvörð-
ungu til þess að sporna við
þriggja ára íhaldsstjórn sem að
mati félagsmanna hefur alls ekki
sinnt skyldum sínum við nemend-
ur.
Stúdentaráð þarf að vera öfl-
ugur baráttuvettvangur fyrir
hagsmunamál stúdenta og félags-
hyggjufólkið í Félagi Vinstri-
manna treystir sér til að standa
við þau orð að útvaldir félags-
menn Vöku hafi ekki staðið sig í
stykkinu þessi þrjú ár.
Lítið
upplýsingastreymi
til stúdenta
Þeir hafa verið í meirihluta í
Stúdentaráði. Hvers konar þjón-
usta er það af hendi Stúdentaráðs
að funda bara örfáum sinnum um
allt það sem varðar málefni nem-
andans?
Upplýsingastreymi hefur verið
af mjög skornum skammti þannig
að hinn almenni nemandi fær
nánast engar fregnir af fram-
göngu hagsmunamála sinna. Til
dæmis var stór skýrsla um LÍN
(sem Ráðgjafaþjónustan vann),
alls ekki birt á slíkum fundi.
Hvað þá að hinn almenni nem-
andi hafi fengið nasasjón af inni-
haldi þessarar skýrslu! Við í Fé-
lagi Vinstrimanna viljum vera í
nánari tengslum við nemendur
þannig að þeir viti hver fram-
gangur hagsmunamála þeirra sé í
raun og veru. Og jafnframt því
sem við gagnrýndum þennan nú-
verandi meirihluta þá treystum
við okkur til þess að gera betur.
Jafnrétti
forsenda framfara
Það sem við viljum til dæmis gera
betur er að auka jafnrétti fólks til
náms því við trúum að jafnrétti sé
forsenda framfara.
í þessum efnum jafnt sem öðr-
um felur orðið jafnrétti margt í
sér. Efla þarf jafnrétti barnafólks
til náms til dæmis með því að
greiða því aðgang að dagvistun-
arheimilum og útvega fleiri pláss.
Þetta var eitt jafnréttið! - og
meira jafnrétti. Margir þurfa að
taka námslán og þykir það ekki
fýsilegur kostur þegar lánin
hljóða upp á rúmlega 22.000
krónur, sem er sú upphæð sem
einstaklingur í leiguhúsnæði fær
sér til lífsviðurværis.
Þrátt fyrir þennan nauma
skammt, þennan smánarlega
fjölda af krónum, þá geta ekki
allir fengið hann. Vaxtabroddur
þjóðfélagsins sem er að byrja í
Háskóla íslands, fyllir þennan
hóp. Þeir sem ætla að hefja nám í
Háskóla íslands þurfa sem sagt
að leita á náðir annarra lána-
stofnana. Til dæmis banka og
hlíta þeirra reglum. Þessi brestur
hefur haft þær afleiðingar að fólk
hverfur úr námi.
Þetta getur okkur ekki fundist
vera jafnrétti! Stúdentaráð er til
húsa í Félagsstofnun Stúdenta en
hún hýsir einnig ýmis önnur þjón-
ustufyrirtæki nemenda; Til dæm-
is Bóksölu Stúdenta og Ferða-
skrifstofu Stúdenta. Á þeirn tíma
sem núverandi meirihluti hefur
setið í ráðinu, hefur þjónusta
F.S. verið skert um u.þ.b. helm-
ing. Til dæmis er ekki hægt að fá
heitan mat lengur í hádeginu og
ekki er hægt að sækja Stúdenta-
kjallarann.
Atkvæði þitt
skiptir sköpum
Hagsmunamál stúdenta skipta
tugum og ekki er hægt að drepa
niður fæti á öllum vígstöðvum í
svo stuttri lesningu sem þessari,
en nemandi góður, þú er; ef til
vill búin að sjá það nú rsu
öflugt atkvæðið þitt er og lag
Vinstrimanna vill efla þac :nn
meira. Þess vegna skaltu ígi ída
málið nú í dag og taka iðan
höndum saman á morgun þ\ þá
kemur til þinna kasta.
Atkvæði þitt skiptir miklu máli
því síðast vantaði bara 48 manns
upp á að við næðum meirihluta.
Styddu við bakið á hagsmunafé-
lagi þínu og kjóstu fólk sem þú
treystir fyrir þínum málum.
Þóra Jónsdóttir skipar annað sæt-
ið á lista Vinstrimanna til Stúd-
entaráðskosnlnga í Háskóla ís-
lands.
KOSNINGAVAKA
ÁMORGUN
Árleg KOSNINGAVAKA Félags vinstrimanna verð-
ur á morgun, fimmtudagskvöld í stúdentakjallaranum.
Reikna má með fyrstu tölum upp úr hálftíu.
Einsog ævinlega verður hressileg stemmning.
Fögnum kosningasigrinum saman.
Allir velkomnir - láttu sjá þig þó þú sért önnum kafinn
í náminu!
Eldri vinstrimenn (á Grundaraldri og réttundir) sér-
staklega velkomnir.
„Johnny, wenn du Geb'urtstag
hast, bleib ích bei dir zu Gast,
-die ganze Nacht.“ Sif Ragnhild-
ardóttir kom og söng einsog blár
engill um Jón, sem átti afmælis-
dag í fyrndinni og frægt er síðan í
Bæjaralandi.
Þóra
Jóns-
dóttir.
Hagsmunabaratta
- okkar baratta!
Póra Jónsdóttir skrifar í tilefni stúdentaráðskosninganna í
Háskólanum á morgun
Mikill fjöldi háskólastúdenta kom á
baráttuhátíð vinstrimanna á Hótel
Borg síðastliðið fimmtudagskvöld.
Einsog má sjá á myndinni komust
færri í sæti en vildu. Guðbergur
Bergsson las upp drepfyndin Ijóð um
hár og höfuð, Ingibjörg Sólrún borg-
arfulltrúi rifjaði upp gamlar sögur úr
Stúdó og Edda Pétursdóttir kynnir
dró fram gamla dýrafræðikennarann
sinn frá ísafirði, Össur ritstjóra. Síðan
fóru menn á barinn...
RunólfurÁg-
ústsson, efsti
maðurálista
Félagsvinstri-
mannatil SHÍ-
kosniganna,
hélt baráttu-
ræðunaáHót-
el Borg, ske-
leggurað
vanda.
ÞJÓÐVILJINN - SfÐA 5