Þjóðviljinn - 12.03.1987, Page 13

Þjóðviljinn - 12.03.1987, Page 13
HEIMURINN Tékkóslóvakía Djassdeildin dæmd í Prag Fangelsisdómar benda til áframhaldandi hörku gegn andófi menntamanna. Formaður Djassdeildarinnar í 16 mánaðafangelsi. Skilaboð til Gorbatsjofs? Eðafrá honum? Leiðtogar hinnar svokölluðu Djassdeildar voru dæmdir í fangelsi í Prag í gær fyrir að stunda sjálfstæð viðskipti án leyfis. Karel Srp, formaður deildarinnar, var dæmdur í 16 mánaða fangelsi, ritarinn Vla- dimir Kouril í 10 mánuði. Þrír aðrir fengu skilorðsbundinn dóm, réttarhöldumyfirtveimur í viðbót var frestað vegna veikinda þeirra. í dómsforsendum sagði að eng- an veginn stæði til að hamla menningarþróun í landinu, hins- Garrett Fitzgerald sagði í gær af sér forystu Fine Gael flokksins á írlandi. Ástæðan virðist vera vonbrigði vegna hraklegrar útreiðar flokksins í kosningunum í síðasta mán- uði og skipan erkifjandans, Charles Haughey, leiðtoga Fi- anna Fail, í stöðu forsætisráð- herra. Fitzgerald var formaður Fine Gail um tíu ára bil og forsætisráð- herra í tveimur samsteypustjórn- um. Sú fyrri þeirra lagði upp laupana eftir að hafa starfað í að- eins sjö mánuði árið 1982. Flin síðari sprakk einnig vegna inn- byrðis ágreinings aðildarflokka en hélt þó út í fjögur ár. Það var í janúar á þessu ári að Verka- mannaflokkurinn klauf sig út úr henni vegna niðurskurðaráforma Fitzgeralds í félagslegri þjónustu og heilbrigðismálum. Fitzgerald var prófessor í hag- fræði áður en hann hélt út á skylmingavöll stjórnmálanna. Það ganga þjóðsögur af minni hans og þá einkum hve hann á gott með að muna tölur og alls- kyns útreikninga. Hann tekur ekki svo þátt í pólitískum umræð- um eða deilum um hvað sem vera Skák Karpof tveimur yfir Þarfþrjá vinninga í viðbót úrsjö skákum Anatólí Karpof og Andrei Sókolof sættust á jafntefli eftir 41 leik í 7. einvígisskák sinni í fyrrakvöld, og í gær gafst Sókolof upp á biðstöðunni í 6. skákinni án þess að tefla. Staðan er þá 4 1/2-2 1/2 í fjórtán skáka einvígi þeirra land- anna. Skákmenn sem fylgjast með einvíginu í Limares á Spáni segja Karpof nær öruggan um sigur. Hann þarf aðeins þrjá vinninga úr þeim sj ö skákum sem eftir eru, en Sókolof fimm. Sá sem sigrar í Limares vinnur sér rétt til að reyna að ná heimsmeistaratitlinum af Kaspa- rof síðar á árinu. Karpof hefur hvítt í áttundu skákinni í dag. -m vegar mætti ekki fara útfyrir þann ramma sem viðskiptum og atvinnulífi er settur. Gefinn var átta daga frestur til áfrýjunar og áfrýjaði saksóknari strax. Hinir dæmdu lýstu vonbrigðum sínum með niðurstöðuna og kváðust saklausir af ákærum um efna- hagsglæpi. Karel Srp hefur sagt að hann líti á réttarhöldin sem próf á mannréttindi í Tékkóslóvakíu, og vestan járntjalds hefur verið fylgst vel með málinu, meðal annars vegna þess að það var tal- skal að hann hafi ekki á hraðbergi ógrynni númera og talna. Við íslendingar vitum af eigin raun að hagfræðingar í valdastól- um eru ekki manna líklegastir til að ráða bót á efnahagsvanda. Fitzgerald var engin undantekn- ing og fáir þykja líklegir til að ausa lofi á athafnir hans á þeim vettvangi. Hann þykir ekki hafa ráðið neina bót á þeim eilífðar- vanda íra. En það er í utanríkis-/ innanríkismálum sem hann náði merkasta áfanga ferils síns sem forsætisráðherra. Árið 1985 rituðu Fitzgerald og Margrét Thatcher undir sáttmála þar sem ráðamönnum í írska lýð- Þegar gölturinn rýtir þá er vá fyrir dyrum. Þessu halda tveir danskir læknar fram og máli sínu til stuðnings benda þeir á hávaðamælingar sem fram- takssamir menn gerðu á svína- búi þar sem ellefuhundruð svín hrinu fullum háisi enda var hádegisverður brátt fram borinn. Um matmálstímann eru þau nefnilega háværari en endranær. Hávaðinn mældist vera hundr- ið geta leitt í ljós opinbera af- stöðu í Prag til nýrra vinda frá Moskvu. Djassdeildin var stofnuð 1971 þá hluti af tónlistarsamtökum, sem nú eru bönnuð. Djassdeildin hefur getað leikið tveimur skjöld- um gagnvart yfirvöldum sem formlegur angi af kerfinu, en var sjálf bönnuð fyrir tveimur árum. Djassmenn, sem segjast hafa um sjöþúsund félaga, héldu þó áfram starfi sínu, hafa haldið tón- leika, gefið út djasstímarit, og - ekki síst - staðið fyrir ýmiskonar veldinu er í fyrsta sinn veittur íhlutunarréttur um málefni Norður-írlands en þar býr sem kunnugt er hálf milljón kaþólskra manna. Markmið samkomulagsins er að reyna að stilla til friðar milli stríðandi fylkinga mótmælenda og kaþólikka en það er Fitzgerald persónulega mikið metnaðarmál því hann er sonur kaþólsks manns úr írska lýðveldinu en móðir hans var mótmælandi að norðan. Þótt ekki sjái fyrir endann á óöldinni í norðri þá hittast ráð- herrar landanna tveggja með jöfnu millibili og ræða um allt milli himins og jarðar er viðvíkur að og fjögur desíbel en danskt mannseyra kvað ekki með góðu móti þola meira en níutíu desíbel. Við þessu er aðeins eitt ráð sem dugir, segja læknarnir. Svínabúin verða að koma sér upp sjálfvirk- um útbúnaði til að fóðra dýrin svo hirðarnir geti forðað sér út fyrir dyr þar til mestu ósköpin eru gengin yfir. Alkunna er að Danir eru miklir fleskútflytjendur og þar búa níu milljónir svína. _4ís. bókaútgáfu um listir og heimspeki og þannig verið í farar- broddi andófs í Tékkóslóvakíu, þarsem menningarstarf og sam- félagsumræða hefur verið í klaka- böndum frá innrásinni 1968. Sjö forystumenn Djassdeildarinnar voru síðan handteknir 2. sept- ember síðastliðinn. Búast má við að dómarnir í Prag verði fordæmdir harðlega bæði í vestri og af andófsmönnum fyrir austan, en þeir eru samt lík- legir til að reynast fréttaskýrend- um stirður biti í hálsi. Dómarnir Norður-írlandi, réttindamál minnihlutans, öryggi á landa- mærum og umbætur í réttarkerfi svo eitthvað sé nefnt. Ekki er vitað hvort Haughey forsætisráðherra muni reyna að hrófla við þessu samkomulagi en Fitzgerald lét það verða eitt af sínum síðustu verkum áður, en hann sagði af sér formennsku í flokki sínum, að vara erkifjand- ann við slíku. _ks. virðast nefnilega vera einhvers- konar málamiðlun, og ef til vill tákn um ákveðna biðstöðu í við- horfum Pragstjórnarinnar til andófsmanna. Þótt 16 og 10 mánaða fangelsi séu raunir fyrir þá sem í komast var hámarksdómur fyrir meint af- brot djassmannanna átta ára fangelsi, og dómarinn tók í gær undir með talsmönnum stjórnvalda um að réttarhöldin væru engan veginn pólitísk. Að auki vakti sú nýlunda athygli að leyfð var návist þriggja erlendra blaðamanna. En þrátt fyrir að djassdómarnir teljist ekki harðir á austrænan kvarða verða þeir ekki túlkaðir öðruvísi en sem yfirlýsing um áframhaldandi hörku gegn andó- fi menntamanna í Tékkó. Það vekur athygli að Shevardnadze, utanríkisráðherra Kremlverja, var í Prag fyrir nokkrum vikum og í fyrstu viku apríl er Goijbat- sjof sjálfur væntanlegur í heim- sókn. Enginn veit á þessari stundu hvaða afstöðu þeir taka til dómanna, og hvort þeir eru felld- ir í einhverskonar samráði við Moskvumenn, og spurningin er hvort tíðindin frá Prag í gær séu einskonar skilaboð frá Gorbat- sjof til almennings og andófs- manna í Austur-Evrópu - eða ef til vill þvert á móti einskonar orðsending frá íhaldsstjórn Husaks til nýsköpunarmannanna í Kreml. -m Kjörskrá Kjörskrá til alþingiskosninga, erfram eigaaö fara 25. apríl nk., liggur frammi almenningi til sýnis á bæjarskrifstofu Garöabæjar, Sveinatungu viö Vífilsstaöaveg, alla virka daga frá og meö 13. mars til og meö 9. apríl nk., þó ekki á laugardögum. Kjörskrárkærur skulu hafa borist bæjarskrif- stofunum eigi síöar en 6. apríl nk. Menn eru hvattir til að kynna sér hvort nöfn þeirra er í kjörskránni. Garðabæ, 11. mars 1987 Bæjarstjórinn í Garðabæ A Auglýsing um framlagningu kjörskrár í Kópavogi Kjörskrá fyrir Kópavog vegna alþingiskosn- inga sem fram eiga aö fara 25. apríl 1987 liggur frammi almenningi til sýnis á bæjar- skrifstofunni að Fannborg 2, Kópavogi, alla virka daga nema laugardaga frá 13. mars til 6. apríl nk. kl. 8.30-15.00. Kærur vegna kjör- skrárinnar skulu hafa borist skrifstofu minni eigi síöar en 6. apríl nk. Kópavogi, 11. mars 1987 Bæjarstjórinn í Kópavogi írland Fitzgerald lætur af fbrystu Var formaður Fine Gael í tíu ár. Samningurinn við Thatcher um Norður-Irland var minnisstœðasta afrek hans Garret Fitzgerald. Varð fyrir vonbrigðum og sagði af sér. Svínarí Rýt skaðar heym Fimmtudagur 12. mars 1987 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 13

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.