Þjóðviljinn - 12.03.1987, Qupperneq 15
ÍÞRÓTTIR
Helgi Harðarson skorar hér eitt af fjórum mörkum sínum fyrir Hauka. Mynd E.ÓI.
Handbolti/Bikar
Haukar klaufar gegn Fram
Haukar voru miklir klaufar
gegn Fram í Hafnarfirði í gær-
kvöldi, eftir að hafa haft yfir-
burðastöðu í fyrri hálfleik, 16-11,
en lokastaðan var 24-25.
Framarar byrjuðu betur, en er
staðan var 5-4 varð gerbreyting.
Á næstu 15 mín. skoruðu Haukar
10 mörk gegn 1 og komust í 14-8.
Á þessu tímabili var eins og eitt
lið á vellinum, þ.e. Haukar sem
voru vel vakandi og börðust.
Framarar náðu aðeins að rétta
sinn hlut fyrir leikhlé.
Framarar léku af meiri skyn-
semi'í síðari hálfleik og söxuðu
smá saman á forskotið og náðu að
jafna um miðjan hálfleikinn 20-
20 og komast síðan yfir 21-23 þeg-
ar 10 mín. voru eftir. Það var
mikill hamagangur síðustu mín.
leiksins. Haukar jöfnuðu 24-24
þegar 1 mín og 40 sek. voru eftir.
Agnar svaraði með marki úr víti
Handbolti/ Bikar
Þeir gömlu sprækir
þegar 42 sek. voru eftir og Sigurj-
óni var vísað af leikvelli. Haukar
skoruðu, en dómarar höfðu
flautað. Þeir fengu aftur auka-
kast þegar7sek. lifðu af leiktíma,
en af óskiljanlegum ástæðum
reyndi Þórir Jónsson ævintýra-
legt skot aftur fyrir sig, beint úr
aukakastinu, og leiktíminn rann
út. Það getur verið að hann hafi
ekki séð betur en að 1 sek. væri
eftir, en það afsakar þó ekki
bráðræðið í þessari stöðu.
Hjá Haukum voru þeir Pétur
og Einar Örn sterkir, auk Helga
sem var mjög góður í fyrri hálf-
leik. Sigurjón átti ágæta kafla, en
var í strangri gæslu lengst af
leiknum. Framarar áttu varla
skilið að vinna þennan leik, en
náðu sér þokkalega á strik í síðari
hálfleik. Hermann átti stóran
þátt í því með stórglæsilegum
mörkum úr horninu. Agnar var
öruggur í vítunum og skoraði úr
þeim öllu á meðan Haukar mis-
notuðu 2.
Mörk Hauka: Sigurjón Sigurðsson
7 (1v), Helgi Harðarson 4, Pétur
Guðnason 4, Jón Ö. Stefánsson 4
(1 v), Ingimar Haraldsson 3, Ólafur
Jóhannesson 2.
Mörk Fram: Hermann Björnsson
6, Agnar Sigurðsson 6 (6v), Birgir
Sigurðsson 4, Júlíus Gunnarsson 2,
Per Skaarup 2, Tryggvi Tryggvason
2, Björn Eiríksson 1, Óskar Frið-
björnsson 1, Ragnar Hilmarsson 1.
-gsm
Það var mikill munur á fyrri og
síðari hálfleik í leik FH og b-liðs Vals í
Hafnarflrði í gærkvöldi. Valsarar
leiddu í leikhlé 10-7, en FH-ingar sigr-
uðu 27-15.
Gömlu kempurnar í Val sýndu
klærnar vel í fyrri hálfleik og voru
oftast yfir. í leikhléi munu FH-ingar
hafa fengið að heyra sitt af hverju frá
Viggó þjálfara, en Valsmönnum lík-
lega ekki veitt af hvíldinni.
í síðari hálfleik settu heimamenn á
fulla keyrslu og við henni áttu hinir
frísku fyrrverandi landsliðsmenn
ekkert svar. Staðan varð fljótlega 15-
11 og eftir það var aldrei spurning um
sigur og leiknum lauk eins og áður
segir 27-15.
Lítið er hægt að segja um FH-liðið
eftir þennan leik, en leikmenn voru
nokkuð jafnir og allir fengu að
spreyta sig. Valsmenn sýndu oft stór-
skemmtilega takta en þrekið er ekki
það sama þegar mikið hefur bæst við
af viðbótarþunga á skrokkinn.
Mörk FH: Þorgils Óttar Mathiesen
6, Óskar Ármannsson 5 (3v), Guðjón
Árnason 4, Héðinn Gilsson 4, Stefán
Kristjánsson 4, Gunnar Beinteinsson
3, Hálfdán Þórðarson 1, Peter Pe-
dersen 1.
Mörk Vals-b: Jón Pétur Jónsson
4, Gunnsteinn Skúlason 2, Guðni
Bergsson 2, Jón H. Karisson 1,
Ólafur H. Jónsson 1, Stefán Gunn-
arsson 1, Hermann Gunnarsson 1
(1v), Guðjón 2, Ingvar 1.
—gsm
Kvennahandbolti
Góður endasprettur FH
FH-ingar tryggðu sér sigur
gegn Stjörnunni með góðum
endaspretti í 1. deild kvenna.
Lokatölurnar 17-15, FH í vil.
FH-ingar voru sterkari framan
af og staðan í hálfleik var 10-7.
Stjarnan skoraði fimm fyrstu
mörk síðari hálfleiks og breytti
stöðunni í 10-12, en með góðum
endaspretti tókst FH-ingum að
tryggja sér sigur.
Rut Baldursdóttir átti góðan
leik fyrir FH, en Erla Rafnsdóttir
var best í liði Stjörnunnar.
Mörk FH: Rut Baldursdóttir 7,
Kristín Pétursdóttir 3, Heiða Einars-
dóttir 3, Inga Einarsdóttir 2, Helga
Sigurðardóttir 1 og Sigurborg Jóns-
dóttir 1.
Mörk Stjörnunnar: Erla Rafns-
dóttir 10, Margrét Theodórsdóttir 2,
Steinunn Þorsteinsdóttir, Hrund
Grétarsdóttir 1 og Guðný Gunn-
steinsdóttir 1. -MHM
Handbolti
m m
Oiuggur sigur KA
eftir slœmanfyrri hálfleik
Mjög góður siðari hálfleikur
færði KA-mönnum sigur gegn
Breiðabliki í gær, 26-23, í 1.
deildarkeppninni. Breiðablik var
yfir í hálfleik, 7-12, en sprakk á
limminu og sigur KA var örugg-
ur.
Blikarnir voru mun sterkari í
fyrri hálfleik, vörnin góð og Guð-
mundur varði vel í markinu.
Vörn KA og markvarsla var hin
slakasta og ekki mikil hindrun
fyrir sóknarleikmenn Breiða-
bliks. Munurinn varð mestur
fimm mörk í leikhléi, 7-12.
Það var allt annað að sjá
heimamenn í síðari hálfleik.
Brynjar Kvaran lokaði markinu
um leið og vörnin small saman. í
sókninni gekk flest upp og var
engu líkara en gestirnir gæfust
upp. Það tók KA aðeins 7 mínút-
ur að jafna leikinn og síðan sigu
þeir framúr. Sigur þeirra var ör-
uggur, enda Blikarnir ótrúlega
áhugalausir.
Bestu menn í liði KA voru þeir
Brynjar Kvaran, sem varði mjög
vel, og Hafþór Heimisson sem
stóð sig vel í sókninni. Þá átti Pét-
ur Bjarnason góðan leik.
Hjá Breiðabliki var Svafar
Magnússon sá eini sem lék af
eðlilegri getu, en Guðmundur
Hrafnkelsson varði ágætlega í
fyrri hálfleik. _HK/lbe
Akureyri 11. mars
KA-UBK 26-23 (7-12)
0-1, 3-7, 5-9, 7-12, 12-13, 14-14, 16-
16, 917-17, 20-17, 22-18, 25-20, 26-
23
Mörk KA: Eggert Tryggvason 6
(4v), Jón Kristjánsson 5, Hafþór
Heimisson 5, Pétur Bjarnason 4, Axel
Björnsson 3, Friðjón Jónsson 2 og
Anton Pétursson 1.
Mörk UBK: Svafar Magnússon 5,
Aðalsteinn Jónsson 4, Kristján Hall-
dórsson 4, Jón Þórir Jónsson 4 (2v),
Þórður Davíðsson 3, Björn Jónsson 2
og Elvar Erlingsson 1.
Dómarar: Stefán Arnaldsson og
Ólafur Haraldsson-góðir.
Maður leiksins: Brynjar Kvaran,
KA.
V-Þýskaland
Toni fær
stuðning
Toni Schumacher hefur eins og
flestir vita verið settur út úr liðinu
hjá félagi sínu Köln. Hann hefur
nú fengið stuðning frá áhorfend-
um sem skipuleggja mótmæli.
Þó að Schumacher sé um-
deildur þá standa áhorfendur á
bakvið hann og þeir ætla að mót-
mæla brottvikningu hans með því
að mæta ekki á leik Kölnar gegn
Bayern Múnchen á laugardag-
'nn- lbe/Reuter
/- Blak
IS vann
ÍS sigraði Víking í fyrsta leik
liðanna í úrslitakeppninni í
kvennadeildinni í blaki í gær.
Sigur ÍS varöruggur, 3-0,15-5,
16-14 og 15-6.
Þá sigraði Breiðablik Þrótt í
fyrsta leiknum um þriðja sætið.
-lbe
Fatlaðir
íslandsmót
íslandsmót íþróttasambands
fatlaðra verður haldið í Keflavík
3.-5. aprfl.
Keppt verður í boccia, sundi,
bogfimi, borðtennis og lyfting-
um. Skráning þarf að berast skrif-
stofu ÍF í síðasta lagi 20. mars.
Einnig er hægt að fá upplýsingar í
síma 91-83377. -lbe
England
Uveipool
kaupir
Miklar líkur eru á því að John
Barnes, sem leikið hefur með
Watford, fari til Liverpool.
Watford hefur samþykkt til-
boð frá Liverpool sem hljóðar
uppá 900.000 sterlingspund. Það
er því aðeins Barnes að ákveða
hvort hann vill fara til Liverpool.
John Barnes samþykkti ekki
nýjan samning sem Watford
bauð honum, en hann mun engu
að síður leika með Watford það
sem eftir er af þessu keppnistíma-
bili. Eftir það hefur hann mikinn
áhuga á að leika utan Bretlands,
helst á Ítalíu. Hann hefur þó eng-
in tilboð fengið þaðan og líklegt
má telja að hann leiki með Li-
verpool næsta keppnistímabil.
Ibe/Reuter
Júdó
Steingrímur
sigraði
Við sögðum frá því á þriðjudaginn
að Steingrímur Njálsson hefði lent í
öðru sæti í 37 kg flokki 9-10 ára á
íslandsmeistaramótinu í júdó. Það er
ekki rétt, hið rétta er að hann sigraði
glæsilega.
Fimmtudagur 12. mars 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15