Þjóðviljinn - 12.03.1987, Page 16
Aðalsími
681333
Kvöldsími
681348
Helgarsími
681663
þJÓDVIUINN
Fimmtudagur 12. mars 1987 59. tölublað 52. örgangur
SAMVINNUBANKI
ÍSLANDS HF.
Vígreifir oddvitar vinstrimanna: Runólfur Ágústsson, efsti maöur á listanum,
Birna Gunnlaugsdóttir, formannsefni vinstrimanna, Þóra Jónsdóttir og Anna-
Hildur Hildibrandsdóttir kosningastjóri.
Stúdentaráð
Stefnum á
meirihluta
Kosið íHáskólanum ídag. Runólfur
Ágústsson, Félagi vinstrimanna:
Gœtum náð hreinum meirihluta
Skák
Konur eiga
leikinn
Skákin er eitt af síðustu vígjum
karlveldisins, og þrátt fyrir þær
Tsíbúrdanídse, Píu og Guðlaugu
þykir fáum konum að þær eigi
uppá dekk á svörtum reitum og
hvítum.
„Áhugahópur um aukna þátt-
töku kvenna í skáklistinni“ er
ekki hress með þetta ástand og
býður konum þessvegna til
sícákæfinga og kennslu næstu
fimmtudagskvöld, í fyrsta sinn í
kvöld, í húsi Skáksambandsins á
Laugavegi 71, 3. hæð.
-m
Við erum bjartsýn á að ná
oddaaðstöðu í stúdentaráði
og jafnvel hreinum meirihluta,
sagði Runólfur Ágústsson, efsti
maður á lista Félags vinstri-
manna, í samtali við Þjóðviljann.
í dag eru kosnir 15 fulltrúar af 30
til stúdentaráðs Háskóla íslands
og þrír listar eru í kjöri: Vaka,
Félag vinstrimanna og Félag um-
bótasinnaðra stúdenta.
„Við leggjum megináherslu á
lánasjóðsmálið og að hrinda árás-
um menntamálaráðherra á kjör
námsmanna," sagði Birna
Gunnlaugsdóttir, formannsefni
vinstrimanna. „Onnur mál sem
við leggjum áherslu á eru til dæm-
is að efla rekstur Félagsstofnunar
og opna matsöluna og Stúdenta-
kjallarann aftur. Þá viljum við
gerbreyta rekstri Stúdentablaðs-
ins, stuðla að aukinni umræðu
um málefni Háskólans og miðla
upplýsingum frá stúdentaráði í
meira mæli en verið hefur.“- hj
Kjararannsóknir
Skrifstofukonur
hækkuðu mest
r
Atímabilinu frá þriðja árs-
fjórðungi 1985 til sama tíma á
liðnu ári varð mest hækkun á
tímakaupi launþega hjá konum í
skrifstofustörfum en minnst
hækkunin varð hjá konum í af-
greiðslustörfum.
Dagvinnukaup hjá konum í starfsstétt hækkuðu á sama tíma
skrifstofustörfum hækkaði að um 30,1% eða 7,4% umfram
meðaltali á þessum tíma, sam- taxta en meðaltímakaup þeirra
kvæmt nýútkommu fréttabréfi var hins vegar tæpar 314 kr. a sl. ’
kjararannsóknanefndar, um árienhjáskrifstofukonumrúmar
33,4% eða um tæp 10% umfram 235 kr.
launataxta. Taxtar karla í sömu _ie.
AUKW 9IM.SH