Þjóðviljinn - 13.03.1987, Qupperneq 2
—SPURNINGIN-
Hefur þú trú á að afvopn-
unarviðræður stórveld-
anna beri einhvern ár-
angur?
Bragi Guðmundsson
verkamaður:
Já, frekar geri ég það. Ég er
bjartsýnn á að þær beri árangur.
Undirbúningsviðræður stórveld-
anna eru í áttina. Það vilja allir
frið.
Guðrún Hafsteinsdóttir:
Já, það vona ég svo sannar-
lega. Ég vil að öllum kjarnorku-
vopnum verði útrýmt.
Sævar Stefánsson
lögreglumaður:
Nei, ég hef ekki trú á því. Það
ber of mikið á milli. Aftur á móti
bind ég nokkrar vonir við þá kú-
vendingu sem er að gerast í Sov-
étríkjunum.
Sigurður Ingimundarson
nemi:
Nei, ekki mikla trú á því. Ég er
hræddur um að alger afvopnun
komi seint. Stórveldin geta ekki
treyst hvort öðru.
Salome Ásta Árnadóttir
læknanemi:
Ég vil bara vona að þessar
stórþjóðir sjái að sér og hætti
þeim háskaleik sem þær hafa
stundað lengi. Þær verða að
semja um afvopnun.
FRÉTTIR
SVR
Ferðafækkun í bígerð
Stjórn SVR samþykkir sumarsamdrátt. Guðrún
Ágústsdóttir: óttast að þetta vari áfram
Stjórn Strætisvagna Reykja-
víkur samþykkti í fyrradag að
fækka ferðum strætóa úr fjórum í
þrjá á klukkutíma í sumar. Sam-
þykkt stjórnarinnar þarf gegnum
borgarráð og borgarstjórn til að
öðlast gildi.
Meirihluti SVR-stjórnarinnar
gerir ráð fyrir að þeir strætisvagn-
ar sem nú fara á 15 mínútna fresti
fari í júní, júlí og ágúst á 20 mín-
útna fresti. Við það sparast fjórð-
ungur bflaflotans og ekki þarf að
ráða 18 afleysingabflstjóra. Segir
meirihluti stjórnarinnar að þessi
ráðstöfun spari hálfa milljón á
dag.
Þau Guðrún Agústsdóttir og
Hallur Magnússon greiddu at-
kvæði gegn ferðafækkuninni, og
telja í bókun að ráðstöfunin sé
röng og tákni í raun uppgjöf. Lé-
legri þjónusta leiðir til færri far-
þega, og þannig skapast hættu-
íegur vítahringur, sagði Guðrún
við Þjóðviljann í gær, og óttaðist
að hinum nýja ferðatíma yrði
haldið áfram næsta vetur. -m
Kosningabaráttan er nú að komast á fullan skrið og frambjóðendur viðtökur. Þessi mynd var tekin er þær Alfheiður Ingadóttir og Olga Guðrún
flokkanna hafa gert víðreist á vinnustaði undanfarna daga og vikur. Frambjóð- Árnadóttir ræddu helstu mál kosninganna við kennara í Menntaskólanum við
endur Alþýðubandalagsins í Reykjavík hafa farið víða um og fengið góðar Sund. Mynd: Sig.
Alþýðubandalagið
Styðjum útvaipsfrelsið
Svavar Gestsson: Styðjum ekki afnám laganna. Viljum
tryggja innlent efni. Fjármagnsöflin mega ekkifá ofurvald á Ijósvakanum
Stöð 2 sé allt niður í 3 prósent af mynda hugsað mér að reglur fvrir 30 nrósent “ saeði Svavar.
því sem sent er út. Ég gæti til að tryggðu að það færi aldrei niður ÖS.
Útflutningsráð
Viðskiptaskrifstofur eriendis
Útflutningsráð undirbýr átak í kynningu á íslenskum útflutningsgrein-
um og þjónustu í V-Þýskalandi
Við myndum aldrei styðja af-
nám nýju útvarpslaganna, í
mesta lagi breytingar á þeim,
sagði Svavar Gestsson á fundi Al-
þýðubandalagsins með ungu fólki
á Hótel Borg á sunnudaginn. En
Hrannar Arnarsson spurði þar,
hvort flokkurinn myndi beita sér
fyrir afnámi nýju útvarpslag-
anna, tæki hann þátt í myndun
nýrrar ríkisstjórnar.
Við höfum staðið á bremsun-
um í þessum málum Iengur en
efni stóðu til, sagði Svavar, en
bætti við að það yrði að tryggja að
fjármagnsöflin fengju ekki ofur-
vald á ljósvakamiðlunum.
Hann taldi að Alþýðubanda-
lagið kynni að íhuga breytingar á
lögunum, í þá veru að tryggja að
ákveðið hlutfall af útsendu efni til
dæmis sjónvarpsstöðva væri
ævinlega innlent. „Mér skilst að
það komi fyrir að innlent efni á
Utflutningsráð íslands, sem
stofnað var á síðasta ári, hef-
ur nú ráðið í tvær viðskiptafullt-
rúastöður erlendis, aðra í Kaup-
mannahöfn en hina í Frankfurt,
en alls hafa sex nýir starfsmenn
verið ráðnir undanfarið.
Útflutningsráð undirbýr nú
þriggja ára kynningarátak í
Vestur-Þýskalandi á íslenskum
útflutningsgreinum og þjónustu.
í ráði er að bjóða nokkrum
fimm manna hópum þýskra fjöl-
miðlamanna frá völdum fag-
blöðum og tímaritum í þriggja
daga kynnisferðir hingað og
munu þeir heimsækja fyrirtæki í
útflutningsgreinum, kynna sér
starfsemi flugfélaganna, ferða-
þjónustu og fara í skoðunarferð-
ir.
Árið 1988 er gert ráð fyrir
skipulögðu kynningarstarfi í stór-
um þýskum verslunarmiðstöðv-
um þar sem íslensk matvæli,
ullar- og tískuvörur og ferðaþjón-
usta verða kynnt. Þá er einnig
stefnt að því að sýna íslenska
framleiðslu fyrir útgerð og fisk-
vinnslu á helstu þýskum sjávar-
útvegs vörusýningum.
-ing.
Þegar aldurinn færist yfir
hefur maður meira og meira
gaman að fábreyttum
skemmtunum
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 13. mars 1987