Þjóðviljinn - 13.03.1987, Qupperneq 3
FRFTTIR
Náttúruvernd
Eftirlit
með gróðri
Náttúruverndarráð og
Vélflugfélag íslands
ásamtfleiri aðilum munu
standa að eftirlitsflugi um
hálendið ísumar til að
sporna við landspjöllum
„Upphafið að þessu var að Vél-
flugfélag Islands bauð okkur upp
á þetta eftirlitsfiug,“ sagði Gísli
Gíslason, framkvæmdastjóri
Náttúruverndarráðs, en Náttúru-
verndarráð, Vegagerð ríkisins,
lögregluyfirvöld, Ferðamálaráð
og væntanlega Landgræðslan
ásamt Vélflugfélagi Islands munu
í sumar halda áfram samvinnu
sinni um eftirlitsflug um hálendið
til að fylgjast með og sporna við
utanvegarakstri og landspjöllum
sem af honum hlýst.
Gísli sagði þetta samvinnu
frekar en ákveðin samtök. „Þetta
eru aðilar sem eiga sameiginlegra
hagsmuna að gæta, flugmennirn-
ir fá tækifæri til að æfa sig í sam-
bandi við björgunar- og leitar-
störf og sú litla þóknun sem þeir
fá fyrir þetta rennur í svokallaðan
leitarsjóð, og náttúruverndar-
samtök fá þarna tækifæri til að
sinna eftirliti sem geysimikil þörf
er fyrir.“ Gísli sagði áætlað að
taka til við eftirlitsflugið strax í
vor, enda væri þá mikil hætta á
landspjöllum á meðan snjóa væri
að leysa og frost ekki enn farið úr
jörðu, en einnig væri áætlað að
halda úti eftirlitsflugi á helstu á-
lagstímum sumarsins.
„Meiningin er líka að grípa til
þessa flugs óvænt og þá á ákveðn-
um svæðum. Við teljum þetta
eina raunhæfustu lausnina til að
sporna við landskemmdum sem
hljótast af utanvegarakstri. Við
erum ekkert hrifnir af því hvernig
fjölmiðlar slá til riddara þessa
menn sem vaða um hálendið,
enda er ekki minnst á þá þegar
þeir skilja eftir heilu bílhræin og
brotna öxla uppi um öll fjöll og
koma eins og barðir hundar heim
eftir misheppnaða svaðilför,“
sagði Gísli að lokum.
-ing
Háskólinn
Vinstrimenn
töpuðu manni
Félag vinstrimanna tapaði
manni í kosningunum til
stúdentaráðs í Háskólanum í gær.
Vaka bætti hinsvegar við sig
manni og hefur nú 13 menn í stú-
dentaráði einsog vinstri menn.
Vaka fékk 868 atkvæði eða
40,87% og sex menn kjörna í stú-
dentaráð. Vinstrimenn fengu 756
atkvæði eða 35,59% og fimm
menn kjörna. Umbótasinnar
fengu 388 atkvæði eða 18,27% og
tvo menn kjörna.
Einnig var kosið í háskólaráð
og fékk Vaka þar 839 atkvæði,
39,5% og einn mann kjörinn.
Vinstrimenn fengu 780 atkvæði,
36,72% og einn mann kjörinn.
Umbótasinnar fengu 408 at-
kvæði, 19,21% og engan mann
kjörinn.
Meðal vinstrimanna er vilji til
þess að mynda meirihluta í stúd-
entaráði með umbótasinnum og
verður sá möguleiki kannaður.
-Sáf
Verzlunarskólakennarar
70 tíma vinnuvika
Skólanefnd Verzlunarskólans býður kennurum 61.319 kr. í byrjunarlaun.
Ákvœði um kennsluskyldufelld niður.
Kirsten Friðriksdóttir, formaður Kennarafélags VÍ: Gœtiþýtt 70-80 tíma vinnuviku
„Þó að þessi krónutala sé há þá
kemur það á móti að ákvæði um
kennsluskyldu eru felld niður og
okkur reiknast til að ef við tækj-
um þessu tilboði þá værum við
komin með 70-80 tíma vinnuviku
og því erum við ekki hrifin af,“
sagði Kirsten Friðriksdóttir, for-
maður Kennarafélags Vcrzlunar-
skóla íslands, í samtali við Þjóð-
viljann, en skólanefndin hefur nú
gert kennurum tilboð um 61.319
króna byrjunarlaun fyrir kenn-
ara með BA-próf.
„Við höfum 40 tíma vinnuviku
yfir árið sem við skilum af okkur
með 48 tíma vinnuskyldu yfir
skólamánuðina og 153 tíma að
sumarlagi," sagði Kirsten. „Þess-
ir 48 tímar skiptast í 26 tíma
kennsluskyldu og 28 tíma viðveru
í skólanum þar sem kennslan og
viðtalstímar falla inn í. Auk þess
er gert ráð fyrir 20 tíma undirbún-
ingsvinnu.
I tilboðinu eru öll ákvæði um
kennsluskyldu felld niður en okk-
ur sýnist að gert sé ráð fyrir 30
tímum á hvern kennara vikulega í
stað 26. Þá var tilgreint að vinnu-
vikan skyldi öll unnin yfir vetrar-
mánuðina þannig að ef við gerum
ekki ráð fyrir þessum 153 tímum
yfir sumarið þá erum við komin
með 50 tíma vinnuviku með við-
veru í skólanum sem var ekki til-
greint hvernig ætti að verja.
Þá eigum við eftir 20 tíma í
undirbúningsvinnu heima og ef
þessi viðvera er kennsla og önnur
störf þá erum við komin með 70-
80 tíma vinnuviku.
Það er ljóst af þessu að flestir
eru að einhverju leyti inni á hug-
myndinni um fasta viðveru kenn-
ara í skólum, hvernig sem það
endar, en aðstaða til þess er til-
tölulega góð hér miðað við aðra
skóla.
Hins vegar er kennsluskyldan á
fslandi í dag mun meiri en annars
staðar og það þyrfti fremur að
minnka hana en auka,“ sagði Kir-
sten að síðustu.
„Þessi tala er falleg en hún fel-
ur í sér mikla skerðingu á því sem
áður hefur verið og tilboðið er því
algjörlega óaðgengilegt,“ sagði
Heimir Pálsson, varaformaður
HÍK, um tilboðið til Verzlunar-
skólakennara. „Við erum ekki til
viðtals um að snúa þróuninni upp
í að auka kennsluskylduna."
Kennarafélag VÍ kynnti við-
semjendum sínum gagntilboð í
gær sem byggir á fyrra tilboði
þeirra en felur í sér að kennslu-
skylda verði óbreytt og launaliðir
lækki þá niður í 51.000 króna
byrjunarlaun og hæstu laun verði
73.000 eftir 15 ár.
-vd.
Kippur hefur hlaupið í starfsemi skipasmíðastöðvanna að undanförnu vegna smíði á smábátum. Þessi mynd var tekin í
Stálvík þar sem verið er að smíða sex 9 tonna stálbáta. Mynd: E.ÓI.
Skipasmíðar
Skipaiðnaður í vanda
MIÐILL í frí
MIÐILL, hið vinsæla fylgirit
Þjóðviljans, kemur ekki út i dag,
né heldur hinar næstu vikur.
Miklar annir eru nú á ritstjórn
Þjóðviljans, enda kosningar í
nánd, og hefur því verið horfið að
því ráði að fresta útgáfu MIÐILS
um óákveðinn tíma.
RITSTJ.
■■“ÖRFRÉniR™"
Trúnaðarfundur KÍ
lýsir furðu sinni á seinagangi við-
ræðna um kaup og kjör starfs-
manna ríkis og bæja. Segja
kennarar þetta óþolandi ástand
þegar lög um samningsrétt til
handa öllum félögum opinberra
starfsmanna hafa tekið gildi. Er
skorað á fjármálaráðherra að
taka af alvöru þátt í viðræðum.
Hallgrímur fréttastjóri
Hallgrímur Thorsteinsson hefur
verið ráðinn fréttastjóri á Bylgj-
unni og segja þeir Bylgjumenn að
jafnframt verði geröur skurkur í
fréttamálum á útvarpsstöðinni og
bætt við fréttatímum klukkan 19,
23 og 3 eftir miðnætti. Hallgrímur
hættir jafnframt umsjón hins vin-
sæla þáttar um Reykjavík síð-
degis.
Sigurður Ringsted, verkfræðingur hjá Slippstöðinni Akureyri:
Iðnaðurinn stendur hörmulega. Þorsteinn Baldvinsson
útgerðarmaður: Innlendskip dýrari. Hver á að borga mismuninn?
„Það er svo komið að hreinlcga
er bannað að smíða skip á Is-
landi. Utgerðarmenn mega ekki
láta smíða nýtt skip nema láta
gamla skipið úr landi og íslenskar
skipasmíðastöðvar geta ekki
tekið gamla skipið upp í nýtt, en
það gera t.d Norðmenn í ein-
hverjum mæli, þannig að meðan
þessar reglur gilda getum við ekki
smíðað nein ný skip,“ sagði Sig-
urður Ringsted, yfirverkfræðing-
ur Slippstöðvarinnar á Akureyri,
við Þjóðviljann í gær.
f dag verður haldin í Reykjavík
ráðstefna um framtíð íslensks
skipaiðnaðar og stöðu mála í dag
og er búist við mjög hörðum um-
ræðum á fundinum.
„Við höfum barist eins og ljón
og leitað verkefna erlendis og
höfum undanfarið eitt og hálft ár
verið að smíða skip fyrir Kanada-
menn og erum nú að gera stórað-
gerð á togaranum Sléttbak, en
þegar það er búið er ekkert fram
undan. Það er hins vegar hafin
nýsmíði og endurnýjun flotans,
en það er allt gert erlendis.
Samkvæmt könnun, sem gerð
var í ráðherratíð Sverris Her-
mannssonar sem iðnaðarráð-
herra um eðlilega endurnýjunar-
þörf fiskiskipaflotans, geta inn-
lendar skipasmíðastöðvar aðeins
annað xh af þörfinni, og þes-
svegna er hart að fá ekkert,“
sagði Sigurður.
„Við erum að láta smíða fjölda
skipa, en það er gert erlendis
vegna þess að það er ódýrara,“
sagði Þorsteinn Baldvinsson út-
gerðarmaður á Akureyri. „Það er
stjórnvalda að fá því breytt, þau
verða að niðurgreiða innlenda
smíði“. -sa.
Kennarasambandið
Er réttur bama virtur?
Kynningarnefnd KÍ sendir foreldrum bœkling um rétt barna til náms
og aðstöðu við hœfi
Kynningarnefnd Kennarasam-
bands íslands hefur gefið út
kynningarrit til foreldra allra 6-
10 ára barna í landinu og annað
til þingmanna, sveitarstjórna,
fræðsluráða og skólanefnda til
þess að vekja athygii þessarra að-
ila á lagalegum rétti barna til
náms og aðstöðu við hæfi.
í bæklingnum sem sendur hef-
ur verið til foreldra er meðal ann-
ars bent á nauðsyn skóladaghei-
mila, aðstöðu í skólum til
heimanáms og samfellds skóla-
dags.
Þingmönnum, sveitarstjórnum
og fræðsluyfirvöldum er bent á að
fylgjast með því hvort að lögum
um rétt barna til kennslu í sam-
ræmi við þarfir hvers einstaklings
sé framfylgt og skorað er á þessa
aðila að standa vörð um rétt
barnanna.
-vd.
T
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3