Þjóðviljinn - 13.03.1987, Blaðsíða 6
VIÐHORF
KJORSTAÐIR
ERLENDIS
Utankjörfundaratkvæöagreiösla erlendis vegna
Alþingiskosninga 25. apríl nk. getur fariö fram á þeim
stööum og tímum, sem hér segir:
Spánn
Barcelona:
Aðalræðismaður: Jose Daurella
Ræðismaður: Luis Balaguer de Palle-
ja
Cerdena 229-237
Sobreatico Tercera
08013 Barcelona
Sími: (3) 232-5810
8., 9. og 10. apríl kl. 10.00-14.00 eða
eftir samkomulagi.
Benidorm:
Vararæðismaður: Juan José Campus
Blanquer
Casa de las Flores Local 13
Avda del'Mediterraneo 2/N
Sími: (65) 85.08.63.
8., 9 og 10. apríl kl. 10.00-12.00 og
15.00-17.00 eða eftir samkomulagi.
Las Palmas:
Ræðismaður: Francisco Luis Carrer-
as Irmia
Leon Y Castillo 244,
Oficina 209,
35005 Las Palmas
Sími: (28) 230460 og 364300
8., 9. og 10. apríl kl. 10.00-12.00 og
15.00-17.00 eða eftir samkomulagi.
Madrid:
Aðalræðismaður: José Maria
Figueras-Dotti
Eurobuilding, Oficina 15
Juan Ramón Jiménez 8
Madrid 16
Sími: (1) 457-89-84
1.-3. apríl kl. 10.00-12.00 og 15.00-
17.00 eða eftir samkomulagi.
Malaga:
Vararæðismaður: Per Dover Peter-
sen
Paseo Maritimo 25
Málaga
Sírni: (52) 221739
8., 9. og 10. apríl kl. 10.00-12.00 og
15.00-17.00 eða eftir samkomulagi.
Palma de Mallorca:
Vararæðismaður: J.C. Miralles Ce-
lant
Via Alemania 2-10
(Torre de Mallorca)
Sími: (71) 29 10 87/88/89
8., 9. og 10. apríl kl. 10.00-12.00 og
15.00-17.00 eða eftir samkomulagi.
Svíþjóð
Stokkhólmur:
Sendiráð íslands
Kommendörsgatan 35
114 58 Stockholm
Símar: (08) 624016 og 672753
12. mars til 24. apríl kl. 9.00-16.00,
mánudaga til föstudaga.
Gautaborg:
Ræðismaður: Gösta Christian Lund-
holm
Östra Hamngatan 19 A
411 10 Göteborg
Símar: (031) 116868 og 176325
6.-9. apríl kl. 10.00-12.00 og 13.00-
15.00 eða eftir samkomulagi.
Jönköping:
Ræðismaður: Björn Leifland
Högalundsgatan 19
564 00 Bankeryd
Sími: (036) 72246
6.-8. apríl kl. 16.00-20.00 eða eftir
samkomulagi.
Malmö:
Aðalræðismaður: Erik Philip Sören-
sen
Stortoget 3
201 21 Malmö
Símar: (040) 112245 og 128110
6. -7. apríl kl. 10.00-12.00 og 14.00-
16.00; 8. apríl kl. 10.00-12.00 og
14.00-19.00 eða eftir samkomulagi.
Sundsvall:
Ræðismaður: Lennart Enström
Skeppargatan 1
851 88 Sundsvall
Símar: (060) 193211 og 193212
7. og 8. apríl kl. 9.00-11.00 eða eftir
samkomulagi.
Sambandslýðveldiö
Þýskaland
Bonn:
Sendiráð fslands
Kronprinzenstrasse 6,
5300 Bonn 2
Símar: (0228) 364021 og 364022
12. mars til 24. apríl kl. 9.00-16.00
mánudaga til föstudaga eða eftir
samkomulagi.
Hamborg:
Ræðismaður: Oswald Dreyer-
Eimbcke
Raboisen 5
1, Eimbcke-Haus
2 Hamburg 1
Símar: (040) 330587
2. og 3. apríl kl. 9.00-17.00 eða eftir
samkomulagi.
Hannover:
Ræðismaður: Gisela Maurer
Birkenweg 4,
3000 Hannover 51
Sími: (0511) 650507
6. og 7. apríl kl. 9.00-16.00 eða eftir
samkomulagi.
Lúbeck:
Ræðismaður: Franz Siemsen
Körnerstrasse 18
24 Liibeck 1
Sími: (0451) 54075
30. og 31. mars kl. 10.00-13.00 og
15.30-17.00 eða eftir samkomulagi.
Munchen:
Ræðismaður: Dr. Hermann Schwarz
Muhldorfstrasse 15
8 Miinchen 80
Sími: (089) 4129-2214
31. mars og 1. apríl kl. 10.00-12.00
eða eftir samkomulagi.
Stuttgart:
Fv. ræðisskrifstofa íslands
Westbahnhof 79/81
7 Stuttgart-W.
Símar: (0711) 652031 og 652032
Aðeins 1. apríl kl. 14.00-16.00.
V-Berlín:
Ræðismaður: Andreas Howaldt
(Charlottenburg) Kurfustendamm 57
1000 Berlín 15
Símar: (030) 625031 og 323061
30. mars kl. 9.00 til 16.00 og 31. mars
kl. 9.00 til 10.00 eða eftir samkomu-
lagi.
Utanríkisráðuneytið, Reykjavík,
9. mars 1987.
þlÓÐVILIINN
ÁSKRIFTARÁTAK
Okkur vantar fólk til starfa í ÁSKRIFTARÁTAKI
ÞJÓÐVILJANS. Góð laun fyrir röskar mann-
eskjur.
Hafið samband viö Hörð í síma 681333 eða
681663.
Þjóðviljinn.
Konur og kosningar
Anna María Pálsdóttir skrifar
I leiöara eins af dagblöðunum
stóð fyrir nokkru þessi setning:
„Kvennalistinn verður að
svara vel“. Þar var meðal ann-
ars talað um það, að konum hefði
fjölgað mjög í sveitarstjórnum í
síðustu kosningum. Einnig var
með mikilli vandlætingu rætt um,
að Kvennalistinn byði fram í
öllum kjördæmum, þá yrði sú
raunin á, að konur færu að fella
konur (kosningum.
Styðjum kvennalista
Já, vissulega væri það slæmt,
en er það bara nokkuð öðruvísi
en ef karlar fella karla? Er þetta
ekki pólitískt mál? Snúast ekki
kosningar um stefnur og samtök
eða flokka? Þessar stefnur eru
misjafnar, og þess vegna vísast
stefnumál kvenna ekki alltaf þau
sömu, að minnsta kosti hasla þær
sér völl innan hinna ýmsu flokka
eða samtaka. Þá var rætt um það,
að 40% af sveitastjórnarmönnum
úr Alþýðubandalaginu væru kon-
ur. Gott er ef rétt er.
En þá er eftir að huga að hvert
sé verksvið þessara kvenna í sín-
um byggðarlögum. Eru þeim fal-
in störf í nefndum og ráðum í
jöfnu hlutfalli eða að einhverju
marki á við karla, eða voru þær
bara fengnar á lista hjá viðkom-
andi flokkum til að hægt væri að
fá góða prósentutölu til að hampa
í fjölmiðlum, og láta líta svo út,
að flokkarnir væru að opna fyrir
konum? Því miður eru flokkarnir
ekki ennþá tilbúnir til að veita
konum jafnrétti, þó þeir reyni nú
að flíka sínum konum mikið, eftir
að séð er, að Kvennalistinn er að
hasla sér völl um landið. Það
gleður mig mjög, ef þær komast
„Pví miður eru
flokkarnir ekki
ennþá tilbúnir til
að veita konum
jafnrétti, þó þeir
reyni nú aðflíka
sínum konum
mikið, eftir að séð
erað Kvenna-
listinn haslarsér
völl um landið. “
eitthvað áfram í sínum flokkum.
En ég verð því miður að játa, að
sumar þessara kvenna, sem fóru í
framboð til sveitarstjórna á síð-
asta ári hafa þá sögu að segja, að
þeim finnst að þær hafi verið
fengnar til að styðja þessa lista á
röngum forsendum.
Sem sagt: Þær farið á lista, en
að loknum kosningum ekkert
fengið að starfa, hvorki í nefnd-.
um né ráðum, eða á annan hátt
tekið þátt í stjórn eða stefnu mála
í byggðarlaginu. Hvað segir þetta
okkur? Það segir, að konum sé
nauðsyn að standa saman um
framboð víðsvegar um landið, til
þess að koma fram hugmyndum
sínum, og auka þannig áhrif
kvenna í þjóðfélaginu. Konur
hafa ævinlega verið kjölfesta
heimilanna. Þær hafa hugsað um
börn aldraðra, að ógleymdum
eiginmönnum sínum. Þær hafa
borið ábyrgð á fjárhag, fæði og
klæðum handa sínu fólki og æði
oft haft lítið fjármagn handa á
milli, en látið enda ná saman með
óskiljanlegri hagsýslu. Þetta vita
karlar, en virðast ekki vilja vita.
Viljum jafnrétti
Konur verða að ná jafnrétti við
karla. Við þurfum að fá þá til að
skilja, að þeir eru okkur ekkert
fremri né á nokkurn hátt hæfari
til að stjórna í þessu landi. Ég er
öldungis viss um það, að ef
jafnrétti væri náð, þá væri um
margt betur farið en nú er.
Kvennalistakonur myndu raða
forgangsverkefnum þannig, að
mannlegar þarfir væru teknar
fyrir önnur, sem mættu frekar
sitja eftir um stund. Því er vert
fyrir fólk almennt að fara að huga
að því, hvern veg þeirri kynslóð
muni vegna í framtíðinni, sem
hefur verið látin alast upp nánast
á vergangi á undanförnum árum.
Venjulegt launafólk á ekki
annars úrkosta en að vinna baki
brotnu til að hafa í sig og á. Börn-
in þess vegna á flækingi úr einni
vistinni í aðra meðan þau eru of
lítil til að vera alein, en ekki líður
þó á löngu þar til hengdur er lykill
um háls þeira og þau skilin eftir
ein. Eftir það eru þau svo sannar-
lega alein. Þegar foreldrarnir
koma loks heim að loknu dags-
verki eru ótal verk óunnin, þar að
auki allir þreyttir og úrillir og í
besta falli sest fólk fyrir framan
imbakassann og reynir að hvílast.
Er ekki kominn tími til að
breyta um stjórnsýslu í landinu?
Anna María Pálsdóttir
er húsfreyja i Vopnafirði.
FRÁ LESENDUM
Fréttastofa Sjónvarps
Undarleg vinnubrögð
Fréttastofa RUV/Sjónvarps
undir stjórn Ingva Hrafns Jóns-
sonar fréttastjóra lagði á það
gífurlega áherslu í kvöldfréttum
hinn 10. mars sl. að bera til baka
frétt Þjóðviljans um að skatt-
rannsóknadeild ríkisskattstjóra
væri nú að athuga bókhald Hótel
Arkar í Hveragerði.
Aðferðin sem Fréttastofa
RUV/Sjónvarps notaði við að
hvítþvo eiganda hótelsins var að
birta við hann viðtal, þar sem
hann sagði að Þjóðviljafréttin
stæðist ekki.
Ekki var rætt við skattrann-
sóknadeild.
Þetta mál minnir dálítið á til-
raun Fréttastofu RUV/Sjónvarps
fyrir nokkru til að mótmæla frétt
Þjóðviljans um, að afmælishátíð-
ahöldin í Reykjavík hefðu kostað
hátt í hundrað milljónir króna:
Fréttastofa RUV/Sjónvarps kall-
aði þá Davíð Oddsson í viðtal,
þar sem hann sagði að Þjóðvilja-
fréttin stæðist ekki.
Síðar kom á daginn, að borg-
arstjórinn fór ekki með rétt mál.
Kostnaður við afmælishald
Reykjavíkurborgar fór langt yfir
hundrað milljónir. Fréttastofa
RUV/Sjónvarps sá ekki ástæðu
til að fá borgarstjórann til að út-
skýra afhverju fyrri upplýsingar
hans hefðu verið rangar.
Sem einn af eigendum RUV/
Sjónvarps finnst mér hart að
horfa upp á þá þróun að einka-
stöðin, Stöð 2, er hlutlausari
fréttamiðill, en Fréttastofa RUV/
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN
Sjónvarps, sem er sameign allra
landsmanna og á að gæta hlut-
leysis í hvívetna.
Meðan fréttastjórnin hjá
RUV/Sjónvarpi er af þessu tagi
er ekki nema von að illa gangi í
samkeppninni við aðra fjölmiðla.
Einn af eigendum
RUV/Sjónvarps
Einkastöðvarnar
sýnast hlutlausari
fréttamiðlar en
fréttastofa sjón-
varpsins, segir
bréfritari
Glæpur í stað fræðslu
Kári 8 ára hringdi:
Mig langar til að spyrja for-
ráðamenn sjónvarpsins, sem sjá
um að raða niður á dagskrána,
hvort þeir eigi bara unglinga eða
smábörn. Hvers vegna setjið þið
fræðslu- og heimildaþætti síðast á
dagskrána? Ég er einn af þeim
mörgu krökkum sem hefðu haft
gott af því að sjá nýja heimilda-
þáttinn frá BBC „Vestræn ver-
öld“ sl. þriðjudagskvöld. En því
miður þarf ég að fara snemma að
sofa til að vera hress í skólanum.
Hvers vegna eru sakamálaþættir
settir á undan? Við sem erum á
aldrinum 7-12 ára höfum kannski
meiri þörf fyrir svoleiðis efni, eða
hvað?
Að lokum vil ég nefna að uppá-
haldsþáttinn minn „Nýjustu
tækni og vísindi“ er líka búið að
flytja aftur fyrir svefntíma okkar
skólabarnanna. Kári