Þjóðviljinn - 13.03.1987, Síða 8
Ítalía
Stjómarkreppa í hagsæld
Valdatafl Craxis ogAndreottis sem reynir að mynda ríkisstjórn. Tveir ólíkir menn
takastá um œðstu metorð
Cossiga forseti hefur veitt
Nestor ítalskra stjórnmála, Gi-
ulio Andreotti, umboð til að að
mynda starfhæfa ríkisstjórn
og koma þar með í veg fyrir
upplausnarástand sem vofir
yfir í ítölskum stjórnmálum.
Upplausn sem kynni að hafa
ófyrirséðar afleiðingar fyrir
efnahag ítala sem nú stendur
með miklum blóma.
Það var á þriðjudag í síðustu
vikúað Bettino Craxi gekk á fund
forsetans og baðst lausnar fyrir
sig og ráðuneyti sitt, samsteypu-
stjórn fimm flokka sem setið
hafði við völd í þrjú og hálft ár.
Orsakir þess að upp úr stjórn-
arsamstarfinu slitnaði virðast
fyrst og fremst vera djúpstæður
ágreiningur tveggja stærstu aðil-
anna, Kristilega Demókrata-
flokksins og Sósíalistaflokksins,
um vegtyllur og valdastóla, ein-
stakiinga og vinnubrögð. Ekki er
að sjá að alvarlega hafi skorist í
odda með þeim út af stefnumál-
um, hvorki í efnahags- né utan-
ríkismálum.
Þegar nýr stjórnarsáttmáli var
samþykktur í sumar, eftir að
minnstu munaði að samstarfið
færi út um þúfur, þá var búið svo
um hnútana að við hálfnað kjör-
tímabil yrðu forsætisráðherra-
skipti, þá viki sósíalistinn Craxi
fyrir fulltrúa kristilegra demó-
krata. Upp úr sauð síðan þegar
ljóst var hverjum kristilegir
myndu tefla fram.
Þeir hafa aldrei farið dult með
þann ásetning sinn að Giulio
Andreotti skyldi hreppa hnossið.
Hann hefur um langt árabil borið
ægishjálm yfir aðra leiðtoga
Kristilega Demókrataflokksins.
Þeim bita gátu sósíalistar ekki
kyngt og hafa borið því við að
hann sé holdgervingur alls þess
sem þeim sé ógeðfellt í ítölskum
stjórnmálum, baktjaldamakks og
spillingar. Þeir hafa bent á tvo
aðra leiðtoga kristilegra sem fýsi-
legri kosti í stól forsætisráðherra
frá sínum bæjardyrum séð, þá
Ciriaco de Mita og Arnaldo For-
lani.
En, sem fyrr segir, Andreotti á
ieik og Craxi bíður átekta. Það
kann svo að fara að framagirni og
metnaður þessara tveggja ólíku
manna dragi dilk á eftir sér og að
efna þurfi til kosninga fyrr en var-
Líbanon
Hótað að
drepa Frakka
Hópur sem nefnir sig „Bylt-
ingarsinnuð samtök fyrir rétt-
læti“ hótuðu í gær að myrða
franskan gísl, er þau hafa í
haldi eftir, fjörutíu og átta
klukkustundir ef ekki fengist
viðunandi skýring á ummæl-
um er Mitterrand, forseti
Frakklands, lét falla á þriðju-
dag um vopnasölu til írak.
Ummæli forsetans voru svo-
hljóðandi:„Frakkar munu halda.
áfram að selja írökum vopn þótt
þeir séu ekki óvinir írana. Frakk-
ar hafa séð írökum fyrir vopnum
síðastliðin ellefu ár.
Það er Jacques Chirac forsætis-
ráðherra sem á að skýra fyrir ír-
ansvinunum í Beirút hvað forseti
sinn hafi verið að fara með þess-
um orðum sem virðast skýra sig
sjálf.
-ks.
ir. Það er því ekki úr vegi að líta
aðeins á feril beggja.
Allar götur frá árinu 1946 hafði
forsætisráðherra Ítalíu verið úr
röðum Kristilega Demókrata-
flokksins þegar sú breyting varð á
árið 1983 að sósíalisti tók við
embættinu.
Flokksmenn hafa ætíð litið svo
á að staðan væri þeirra og hefur
Giulio Andreotti aldrei farið í fel-
ur með þá skoðun sína að það
hafi verið skammtímaráðstöfun
að fela Craxi starfann.
Andreotti hefur setið á ítalska
þinginu í fjörutíu af sextíu og átta
æviárum sínum. Hann þykir
einkar slyngur í allskyns bak-
tjaldamakki og rasar aldrei um
ráð fram!
Hann hefur gegnt embætti for-
sætisráðherra fimm sinnum.
Fyrsta stjórn hans tók til starfa
árið 1972 og var hrein hægri
stjórn, í fyrsta sinn frá stríðslok-
um voru sósíalistar fjarri gamni.
Þriðja stjórnin undir forystu hans
Til harðra átaka kom milli
lögreglu og verkamanna í
bænum Reinosa í Baskalandi
á Spáni í gær.
í fyrradag tóku verkamenn við
Forjas y Aceros verksmiðjuna
fyrrum forstjóra fyrirtækisins í
gíslingu, daginn áður en hann átti
að hefja störf sem vinnumálaráð-
gjafi héraðsstjórnar Baskalands.
Vildu þeir með því örvæntingar-
ráði reyna að afturkalla uppsagn-
ir fjögurhundruð sextíu og þrig-
gja manna sem störfuðu við fyrir-
tækið.
Þegar hann var síðan látinn
laus í gær skarst í odda með fylk-
ingum verkafólks og lögreglu-
manna sem lyktaði með því að
verðir laga og réttar urðu uppi-
skroppa með gúmmíkúlur, sáu
sitt óvænna og gáfust upp.
Þeir fengu að fara leiðar sinnar
var minnihlutastjórn og komst til
valda árið 1976. Hún er einkum
minnisstæð vegna samstarfsins
við Kommúnistaflokk Ítalíu sem
féllust á að verja hana vantrausti,
hina „sögulegu málamiðlun“.
Fjórða stjórn hans var mynduð
árið 1978 og það var á valdaskeiði
hennar að Rauðu herdeildirnar
rændu og myrtu Aldo Moro
fyrrum forsætisráðherra og
flokksbróður Andreottis. Hann
sætti þá töluverðri gagnrýni fyrir
ósveigjanleika í skiptum við
mannræningjana en hann þver-
tók fyrir að ganga til samninga.
Fimmta og síðasta ríkisstjórnin
sem Andreotti hefur stýrt fékk
heldur háðulegan aldurtila, lagði
upp laupana eftir ellefu daga
valdaferil.
Fyrirgreiðslupólitík og hross-
akaup Andreottis hafa margsinn-
is komið honum í klípu og eigi
sjaldnar en tuttugu sinnum hefur
honum verið stefnt fyrir þing-
nefndir til að verja hendur sínar í
en átökin segja sína sögu um
ástand mála á Spáni nú þar sem
allt logar í verkföllum og mót-
mælum vegna harðlínustefnu
stjórnar sósíalista í efnahags- og
atvinnumálum.
Verkamenn í meira en fjörutíu
borgum ætla að leggja niður
vinnu og ganga fylktu liði um
stræti og torg á næstu dögum og
vera kann að allsherjarverkfall
skelli á innan skamms. Þegar
hafa margir hópar vinnandi fólks
haft mótmæli í frammi, svo sem
námumenn, bændur og leigulið-
ar, læknar og kennarar.
Þótt ekki blási byrlega hyggst
ríkisstjórnin hvergi hvika frá
áætlunum sínum í peninga- og at-
vinnumálum. Ráðherrar stæra
sig af því að verðbólga hafi lækk-
að úr fjórtán í fimm og hálft pró-
sent á valdaskeiði sínu en þrátt
óþrifamálum en ætíð hefur hann
sloppið fyrir horn.
Hann virðist því ekki hafa færri
líf en þau níu sem kennd eru við
köttinn og nú er það spurning
hvort honum tekst að mynda
sjöttu stjórn sína. Ef sósíalistar
með Craxi í broddi fylkingar
verða ekki mýkri á manninn á
næstunni er næsta ólíklegt að það
takist.
Bettino Craxi skákar í skjóli
mikillar hylli almennings þótt
þær vinsældir komi ekki flokki
hans til góða. í nýrri skoðana-
könnun kemur fram að sextíu og
fimm prósent spurðra kærir sig
ekki um að skipt verði um forsæt-
isráðberra.
Það gustar af honum, hann er
ákveðinn, hávær og harður í horn
að taka. Hann er því alger and-
stæða Andreottis sem gengur um
bakdyramegin og hvíslar svo sem
fæstir heyri ráðabrugg sín.
Craxi tók við formennsku Sósí-
alistaflokksins árið 1976 og lét
fyrir það segja þeir ekkert svig-
rúm vera til launahækkana.
Stjórninni hefur síður en svo
tekist að ráða nokkra bót á hinu
mikla atvinnuleysi í landinu sem
nú er talið vera um tuttugu og tvö
prósent. Þvert á móti hefur það
færst í aukana vegna endurskipu-
verða sitt fyrsta verk að reka
helming starfsliðs flokksins og
kom það ráðslag mörgum í upp-
nám. Hann tók þegar til við það
ætlunarverk sitt að gera flokk
sinn að öxulveldi í ítölskum
stjórnmálum, mitt á milli risa-
veldanna tveggja, Kristilega
Demókrataflokksins og Komm-
únistaflokksins.
Árið 1980 gekk hann til stjórn-
arsamstarfs við kristilega en gekk
svo af þeirri stjórn dauðri árið
eftir þegar í hneykslismálið út af
P-2 frímúrarareglunni var gert
heyrinkunnugt.
I kosningunum árið 1983 fengu
sósíalistar ellefu prósent atkvæða
en kristilegir töpuðu fimm. Þá sá
Craxi sér leik á borði og tregir
létu Andreotti og félagar honum
eftir embætti forsætisráðherra.
Síðan er liðið hálft fjórða ár og
er einsdæmi að ríkisstjórn hafi
setið svo lengi á Ítalíu frá því fas-
istar lutu í duftið við stríðslok.
-ks.
lagningar í iðnaði sem unnið er að
að frumkvæði ráðamanna og hef-
ur í för með sér lokun margra
skipasmíðastöðva og stáliðju-
vera. Hin hörðu viðbrögð verka-
manna stafa ekki síður af fram-
kvæmd þeirrar áætlunar en
lágum launum. -ks.
Skák
Sókolof hvflist
Andrei Sókolof frestaði í
gær áttundu skákinni í einvíg-
inu við Anatólí Karpof í
spænsku borginni Limares, og
verður hún að öllum líkindum
tefld á sunnudag.
Hvor keppandi getur frestað
tvisvar, en það gerist nú fyrsta
sinni. Karpof hefur yfir þegar
einvígið er hálfnað, AVi-lVi, og
þarf aðeins þrjá vinninga úr sjö
skákum til að öðlast rétt til að
reyna sig enn við heimsmeistar-
ann Kasparof. -m
Spánn
Allt logar í stétlaátökum
Verkamenn berjast við lögreglu. Sósíalistastjórnin hyggst
ekki láta undan
8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 13. mars 1987