Þjóðviljinn - 13.03.1987, Síða 16
Aðalsími
681333
Kvöldsími
681348
Helgarsími
681663
þjómnuiNN
Föstudagur 13. mars 1987 60. tölublað 52. örgangur
SAMVINNUBANKI
ÍSLANDS HF.
Elliðaár
Landsvirkjun áhyggjulaus
Skiptar skoðanir um olíutankana við Elliðaár. Guðmundur Helgason, Landsvirkjun: Svartolía, ekki ástœða til
sérstakra ráðstafana. Póroddur Þóroddsson, Náttúruverndarráði: Svartolía erfiðust viðureignar í jarðvegi
Af okkar hálfu eru ekki fyrir-
hugaðar neinar sérstakar var-
úðarráðstafanir gegn olíuleka við
Elliðaártankana, enda ekki
ástæða til. Það verður bara að
koma í ljós hvort okkur verður
gert skylt að gera eitthvað í þá
veruna,“ sagði Guðmundur
Helgason hjá Landsvirkjun.
Þjóðviljinn greindi frá því í gær
að öryggi við olíugeyma Lands-
virkjunar við Elliðaár væri ábóta-
vant og lífríki ánna væri hætta
búin ef til óhapps kæmi.
„Við höfum athugað botninn á
tönkunum reglulega og annað á-
sigkomulag þeirra og þar er ekk-
ert athugavert. Annars er lítil
hætta samfara þessum tönkum.
Þetta eru svartolíutankar og því
allt annað við að eiga en gasolíu
ef leki yrði. Til þess að ná olíu úr
tönkunum þarf að hita olíuna
upp. Þó það kæmi gat á þá, er ég
ekki viss um að það myndi mikið
leka út,“ sagði Guðmundur
Helgason. Aðspurður um
olíubrák sem vart hefur orðið,
sagði Guðmundur að það væru
leifar frá fyrri tíð, er vélamiðstöð
borgarinnar afgreiddi bensín og
gasolíu á þessum slóðum.
Hjá Náttúruverndarráði feng-
ust þær upplýsingar í gær að ráðið
hefði ekki skoðað þetta mál sér-
staklega, en hefði beðið Siglinga-
málastofnun um upplýsingar um
allar olíugeymslur sem ekki upp-
fylla kröfur til slíkra mannvirkja.
„Ljóst er að mjög víða er pottur
brotinn í þessum efnum. Kring-
um svona geyma þarf að vera
þró, annaðhvort úr jarðvegi eða
steypu, sem getur tekið við á-
kveðinni prósentu af rúmmáli
geymisins,“ sagði Þóroddur Þór-
oddsson hjá Náttúruverndarráði.
Vegna ummæla Guðmundar
Helgasonar um að hættan væri
óveruleg þar sem um svartolíu
væri að ræða, sagði Þóroddur að
það mætti til sanns vegar færa að
svartolían væri seigfljótandi, en
þeim mun erfiðari viðureignar ef
hún kæmist í jarðveg. -RK
Heiðurslaun B.I.
Stórkostlegt framtak
Sexfengu úthlutun, m.a. til orgelsmíði,
brunavarna og kvikmyndunar
etta er stórkostlegt framtak af
hálfu fyrirtækisins og til eftir-
breytni, sagði Sævar Bjarnason,
skákmeistari og einn af sex mót-
takendum heiðurslauna Bruna-
bótafélags Islands, sem úthlutað
var í gær.
Heiðurslaunin voru fyrst veitt
árið 1982 á 65 ára afmæli Bruna-
bótafélagsins. Að þessu sinni
bárust á milli 40 og 50 umsóknir.
Eftirtaldir fengu heiðurslaun
fyrir þetta ár auk Sævars: Jó-
hannes Þorkelsson efnaverkfræð-
ingur, í tvo mánuði til þess að
kynna sér nýjungar á sviði
rannsókna á brunasýnum, þegar
grunur leikur á að um íkveikju sé.
að ræða; Ketill Sigurjónsson í tvo
mánuði í því skyni að gera honum
kleift að ljúka smíði á 10 radda
pípuorgeli, sem hann hefur haft í
smíðum og er frumsmíð á íslandi;
María Kristjánsdóttir leikstjóri og
Þórunn S. Þorgrímsdóttir þrjá
mánuði saman til þess að vinna
handrit og undirbúningsstarf
fyrir kvikmynd um Barna-
Arndísi; Sœvar Bjarnason, al-
þjóðlegur skákmeistari, í tvo
mánuði, til þess að auðvelda hon-
um að afla sér stórmeistaratitils.
Ævar Petersen fuglafræðingur í
þrjá mánuði í því skyni að
auðvelda hpnum að ljúka athug-
unum sínum á fuglalífi og skrá-l,
setja örnefni eyjanna.
Verðlaunin nema nú mánaðar-
launum yfirkennara í mennta-
skóla sem eru í kringum 60.000
krónur, að því er fram kom í máli
Inga R. Helgasonar, forstjóra
félagsins. Hann sagði enn frem-
ur: „Við væntum þess að það séu
ekki einungis peningarnir sem
þykja eftirsóknarverðir, heldur
ekki síður viðurkenningin sem
felst í þessum heiðurslaunum."
-hj.
Stjórnarmenn Brunabótafélags islands ásamt heiðurslaunaþegunum sex: Fremri röð frá vinstri: Ævar Petersen
fuglafræðingur, Jóhannes Þorkelsson efnafræðingur, Þórunn S. Þorgrímsdóttir leikmyndateiknari, María Kristjánsdótt-
ir leikstjóri, Sævar Bjarnason skákmeistari og Ketill Sigurjónsson orgelsmiður. Aftari röð frá vinstri: Þórður H. Jónsson,
Andrés Valdimarsson, Ingi R. Helgason forstjóri, Stefán Reykjalín stjórnarformaður, Guðmundur Oddsson, Jónas
Hallgrímsson, Hilmar Pálsson, Pétur Már Jónsson og Friðjón Þórðarson. (Mynd: Sig).
Seljahverfi
Ekkert bólar á athvarfi
Þráttfyrir 3,6 milljóna rekstrarfjárveitingu til unglingaathvarfs erekki
hœgt að hefja rekstur vegna húsnœðisleysis. Ibúar mótmœltu að
athvarfið yrði í húsnæði borgarinnar að Vogaseli5
Byggingarmenn
Tilboð
óskast
Verkfallið virtaffé-
lagsmönnum
Engin lausn er í sjónmáli í deilu
meistara og byggingarmanna. I
fyrrinótt var þýðingarlaus fund-
ur deiluaðila með sáttasemjara.
Að sögn samningamanna bygg-
ingarmanna kom ekkert formlegt
launatilboð fram af hálfu at-
vinnurekenda. Síðdegis í gær
voru deiluaðilar svo boðaðir á
fund hjá sáttasemjara og stóð sá
fundur enn þegar blaðið fór í
prentun.
Þjóðviljinn fékk þær upplýs-
ingar hjá verkfallsvakt trésmiða í
Reykjavík, að félagsmenn virtu
verkfallið í hvívetna og þau fáu
verkfallsbrot, sem uppvíst varð
um á fyrsta degi verkfallsins, hafi
verið stöðvuð.
-RK
Rætt var um málefni unglinga-
athvarfs í Seljahverfi á fundi
félagsmálaráðs í gær en ekkert
var samþykkt scm gæti orðið til
þess að starfsemi sú færi af stað.
Nú eru 3,6 milljónir á fjárhags-
áætlun ætlaðar til þessa unglinga-
athvarfs og heimild fyrir að aug-
lýsa eftir leiguhúsnæði, sem og
hefur verið gert en ekkert fengist.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
lét bóka á fundinum að ef ekki
fyndist leiguhúsnæði hið fyrsta
yrði leitað heimildar til að kaupa
hentugt húsnæði fyrir starf-
semina.
í samtali við Þjóðviljann sagði
Ingibjörg Sólrún að mál þetta
strandaði í rauninni á því að þótt
borgin ætti hús að Vogaseli 5 þar
sem reka hefði átt félagsmiðstöð í
Seljahverfi og unglingaathvarf í
tengslum við hana, hefðu íbúar
hverfisins hefðu mótmælt því að
starfsemin yrði í þessu húsi.
„Nú stendur húsið autt og er í
Istjórn SVR hefur verið lagt til
að strætófarþegar þurfi ekki að
borga í miðbæjarvagninn sem
gengur um miðjan dag niður
Laugaveginn frá Hlemmi á Lækj-
artorg.
Guðrún Ágústsdóttir lagði til-
löguna fram fyrr í vikunni og tel-
ur þetta réttlætismál til mikils
hagræðis fyrir notendur vagnsins
þarsem margir þeirra koma úr
sölu og ekkert gerist í málefnum
unglingaathvarfsins," sagði Ingi-
björg Sólrún. -ing.
strætó á Hlemmi og ætla sér að
halda áfram í strætó eftir miðbæj-
arskreppið, en þurfa nú að nota
skiptimiðann sinn spölinn niður
Laugaveg. Meðan strætóinn
„Hlemmur-Miðbær“ gengur nið-
ur Laugaveginn, frá eitt til sex
virka daga, fara aðrir strætóar
niður Skúlagötuna.
Tillaga Guðrúnar er enn óaf-
greidd hjá strætóstjórn. -m
Tóbakssala
Minnkað um
34 tonn
Píputóbak og
neftóbak á
undanhaldi. Þarfað
fara allt til 1971 til að
finna lœgri tölur
Tóbakssala á íslandi hefur
minnkað um 34 tonn á tveimur
árum og þarf að fara allt aftur til
1971 til að finna minni sölu en I
ár, sé tekið tillit til íbúafjölda.
Heildarsala tóbaks árið 1986
var rúm 502 tonn, 1985 511 tonn
og 1984 536 tonn. Þetta kemur
fram í nýjasta blaði Heilbrigðis-
mála sem Krabbameinsfélagið
gefur út.
Tóbakssalan milli áranna 1985
og 1986 hefur samkvæmt þessu
minnkað um 2,8%. Athyglisvert
er að sala á píputóbaki hefur
minnkað úr 598 grömmum á
hvem fullorðinn landsmann 1970
í 129 grömm 1986. Á sama tíma
hefur neftóbakssala minnkað úr
100 grömmum í 68 grömm. -vd.
Strœtó
Ókeypis í miðbænum?