Þjóðviljinn - 26.03.1987, Side 2
Sigurlaug Björnsdóttir:
Mór finnst það. Það á að gilda
sami mælikvarði á siðferði allra
þegna þjóðfélagsins, og tekur þá
bæði til framboða og ráðherra-
dóms.
Auður Gná Ingvarsdóttir,
nemi í M.R.:
Mér finnst það eigi að gilda það
sama. Albert hefði bæði átt að
víkja af listanum og úr ráðherr-
astólnum ef hann er sekur.
Grétar Guðbergsson, hjá
Pósti og síma:
Já, mér finnst það. Ef Albert er
rekinn úr embætti ráðherra á rétt-
um forsendum, þá ætti hann líka
aö víkja af listanum.
—SPURNINGIN—
Á sami siðgæðis-
mælikvarði að gilda
fyrir ráðherra og
frambjóðendur?
Björn Ófeigsson, nemi í
Hóiabrekkuskóla:
Hiklaust. Þessvegna finnst mér
gæta ósamkvæmni í máli Alberts
Guðmundsson.
Guðmundur Stefánsson
verslunarmaður:
í þessu tilfelli ekki nauðsynlega.
Málið er þess eðlis. Að Albert
sem yfirmaður skattamála skuli i
vera staðinn að verki við svona
lagað, það gengur náttúrlega
ekki.
FRÉTTIR
Ólafsvík
300 áraafmæli
Ólafsvík, elsti löggilti verslunarstaður landsins. Sérstök afmælisvika
15. -23. ágúst ísumar. Forseti íslands kemur íopinbera heimsókn.
Útvarp Ólafsvíkur útvarpar alla afmœlisvikuna
í dag eru rétt 300 ár liðin frá
því að verslun hófst í Ólafsvík, en
það var 26. mars 1687 og er stað-
urinn elsti löggilti verslunarstað-
ur landsins.
Afmælisins verður minnst með
hátíðardagskrá í kvöld, sem hefst
með sérstökum hátíðarfundi í
bæjarstjórn Ólafsvíkur. Að hon-
um loknum verður sérstök af-
mælisdagskrá þar sem m.a. verða
afhent verðlaun vegna afmælis-
merkis sem gert hefur verið í ti-
Iefni afmælisins og opnuð verður
sögusýning í Grunnskóla Ólaf-
svíkur.
Hápunktur hátíðahaldanna
verður dagana 15.-23. ágúst í
sumar. Hefjast þau með opin-
berri heimsókn forseta íslands,
frú Vigdísar Finnbogadóttur, til
Ólafsvíkur 15. og 16. ágúst.
Þessa átta daga verður ýmis-
legt til skemmtunar. Verður m.a.
opnuð útvarpsstöð Ólafsvíkur
sem mun útvarpa á meðan afmæl-
isvikan stendur yfir. Til loka árs-
ins verður síðan í hverjum mán-
uði eitthvað til skemmtunar og
fróðleiks sem minnir á afmælið.
Meðal þess sem áformað er að
halda er t.d. siglingakeppni í júlí,
afmælismót í skák í september/
október með þátttöku innlendra
sem erlendra skákmeistara, í okt-
óber verður minnst 100 ára af-
mælis bamafræðslu í bænum og í
nóvember verður haldið hátíð-
legt 20 ára afmæli Ólafsvíkur-
kirkju, jafnframt því sem stefnt
er að útgáfu 1. bindis af sögu Ól-
afsvíkur sem Gísli Ágúst Gunn-
laugsson sagnfræðingur ritar.
Afmælisfagnaðinum lýkur svo
um áramótin með tilheyrandi
flugeldasýningu og brennu.
-grh.
Þeir eru að vonum kampakátir og brosleitir forráðamenn Ólafsvíkurkaupstaðar, enda geta ekki allir státað af því að
stjórna elsta löggilta verslunarstað landsins. Þeir eru f.v.: Kristján Pálsson bæjarstjóri og bæjarfulltrúarnir Kristófer
Þórisson og Herbert Hjelm.
£
morgun
er reyklausi
dagurinn.
Herstöðvaandstœðingar
Barattufundur
á sunnudag
38 ár liðinfrá inngöngunni í NA TO.
Fjölbreytt baráttudagskrá á Borginni
Samtök herstöðvaandstæðinga
efna til baráttufundar á Hótel
Borg kl. 15. á sunnudag til að
minnast þess að mánudaginn 30.
man n.k. eru 38 ár liðin frá því
að ísland var gert að aðila að
hernaðarbandalaginu NATO og
um leið horfið frá þeirri hlut-
leysisstefnu sem þjóðin markaði
sér er hún fékk fullveidi árið
1918.
Á fundinum munu flytja ávörp
þau: Ingibjörg Haraldsdóttir,
formaður SHA, Vigfús Geirdal
og Birna Gunnlaugsdóttir há-
skólanemi. Bubbi Morthens,
Guðrún Hólmgeirsdóttir og
Hjörleifur Valsson flytja tónlist,
Aðalsteinn Bergdal leikari verð-
ur með upplestur og Þorvaldur
Öm Árnason stjórnar fjölda-
söng. Fundarstjóri verður Jón
Múli Ámason.
-*g-
Bifreiðar
Endurskoðun á
verkstæði
eir bifreiðaeigendur sem fá
grænan miða i framrúðuna
við skoðun geta nú farið á sér-
staklega löggilt verkstæði og feng-
ið hvíta miðann, eða fullnaðar-
skoðun, en þurfa ekki að mæta til
endurskoðunar þjá Bifreiðaeftir-
litinu.
Að sögn Guðna Karlssonar,
forstöðumanns Bifreiðaeftirlits-
ins, nær þessi tilhögun til allra
venjulegra einkabifreiða, en ekki
atvinnubifreiða af neinu tagi.
Þessi tilhögun var reynd á síðasta
ári á Akureyri og gafst vel og því
var ákveðið að láta hana ná til alls
landsins.
Verkstæði geta sótt sérstaklega
um löggildingu og hafa menn frá
Bifreiðaeftirlitinu og Bflgreina-
sambandinu undanfarið ferðast
um og skoðað verkstæði og hafa
40 fengið þessa löggildingu.
-sá.
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Flmmtudagur 26. mars 1987