Þjóðviljinn - 26.03.1987, Page 4

Þjóðviljinn - 26.03.1987, Page 4
LEIÐARI iðnaðarráðtierra! Sá einstæði atburður í sögu íslenska lýðveld- isins hefur gerst að ráðherra hefur verið knúinn til að segja af sér embætti. Albert Guðmunds- son á ekki lengur sæti í ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar, heldur er hann einungis einn! af þingmönnum Sjálfstæðisflokksins. Það hefur raunar gerst áður, að ráðherra úr Sjálfstæðisflokknum hafi hrökklast úr embætti vegna fjármálaumsvifa, en það var Magnús Guðmundsson árið 1932 og var síðan sýknaður af ákæru með hæstaréttardómi. Að sögn Þorsteins Pálssonar er þetta mál siðferðilegur mælikvarði á Sjálfstæðisflokkinn. Flest bendir tii að Sjálfstæðisflokkurinn fái ekki ýkjamörg stig út úr þeirri siðferðismælingu. Þetta mál Alberts hefurveriðtil umræðu mán- uðum saman. Það hefur valdið ótvíræðum trún- aðarbresti án tillits til þess, hvort Albert hefur gerst sekur um ólöglegt athæfi eða ekki. Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra hefur þvegið hendur sínar af þessu máli með því að skjóta ábyrgðinni yfir á fjármálaráðherrann Þorstein Pálsson sem er formaður Sjálfstæðis- flokksins. Þorsteinn hefur látið málið dankast von úr viti - alla vega fram yfir landsfund Sjáif- stæðisflokksins þar sem honum sjálfum var vottað traust með rússneskri kosningu. Ef til vill hefur Þorsteinn allan þennan tíma verið að leita að hinum siðferðilega mælikvarða Sjálfstæðis- flokksins, sem nú loksins virðist vera kominn í leitirnar þótt laskaður sé. Siðferðisvitund þjóðarinnar hefur lengi verið látin bíða eftir lausn þessa máls. En nú líður að kosningum og hagsmunir Sjálfstæðisflokksins þola enga bið. Og þá er loks kominn tími til að draga siðferðismælikvarðann fram í dagsljósið - ef hægt er að tala um dagsljós í þessu sam- bandi. í myrkustu Afríku er gjarna gripið til þess ráðs þegar gera á hallarbyltingu að bíða færis uns höfðinginn bregður sér af bæ. Formaður Sjálf- ; stæðisflokksins greip tækifærið til að láta til skarar skríða gegn Albert Guðmundssyni þegar iðnaðarráðherrann þurfti að bregða til sér til Kaupmannahafnar: Valhallarafbrigðið af afr- íska gambítnum! Hin siðferðilega reglustika var hafin hátt á loft og höggið látið ríða. Albert Guðmundsson var í einu vetfangi sviptur ráðherradómi eftir heimkomu sína frá Kaupmannahöfn. Og nú lítur formaður Sjálfstæðisflokksins á handaverk sín og segir: - Það sem þurfti að gera hefur verið gert! Þótt ótrúlegt megi virðast er það ætlun for- manns Sjálfstæðisflokksins að bjóða íslending- um upp á það sem siðferðilega réttláta og heiðarlega niðurstöðu þessa máls, að Albert Guðmundsson hafi orðið uppvís að því að hafa ekki nægjanlegan siðferðisþroska til að vera ráðherra nema rúm 90% af kjörtímabilinu og heldur ekki nægan þroska til að verða ráðherra aftur; sömuleiðis er fólki ætlað að lesa það af siðferðismælikvarða Sjálfstæðisflokksins, að Albert hafi þrátt fyrir allt kappnógan siðferðis- þroska til að vera fyrsti maður á framboðslista flokksins í Fteykjavík! Þetta er lausn Sjálfstæðisflokksins á málinu. Og þessi lausn sýnir siðferðisþroska Sjálfstæð- isflokksins - hinn pólitíska siðferðisþroska. En við hverju er svo sem að búast af hálfu formanns Sjálfstæðisflokksins? Starfsþrek hans þessa dagana fer í að skipuleggja ein- hverja undarlegustu uppákomu sem um getur og er fólgin í því að jarðsyngja hinn syndum hlaðna iðnaðarráðherra Albert Guðmundsson og bjóða um leið velkominn til starfa fyrir Sjálf- stæðisflokkinn hinn trúa þjón Albert Guð- mundsson frambjóðanda í fyrsta sæti á fram- boðslista flokksins í Reykjavík. í miðjum þessum pólitíska harmleik - eða revíu - er ekki von að Þorsteini Pálssyni fjár- málaráðherra gefist tími til að sinna smámálum eins og kennaraverkfalli eða yfirstandandi verk- föllum og lokun sjúkrahúsa. I fjármálaráðuneytinu er vitaskuld enginn friður til að vinna, því að þar hafa búið um sig skólanemendur, sem vilja mótmæla því að skólar landsins skuli vera lokaðir. En fjármála- ráðherrann hlýtur að koma auga á hina snjöllu lausn á því máli: Til að fá vinnufrið fyrir launa- þrefi og mótmælaaðgerðum færir hann sig ein- faldlega um set og sest við sitt nýja skrifborð í iðnaðarráðuneytinu. Það hefur engin breyting orðið á siðferðinu í Sjálfstæðisflokknum með þessum grátbroslega skrípaleik, að minnsta kosti ekki til hins betra. Þó hefur sú breyting orðið að við höfum fengið nýjan iðnaðarráðherra. Hann heitir Þorsteinn Pálsson og hefur áður tekið við ráðherraemb- ætti af Albert Guðmundssyni. - Þráinn KUPPT OG SKORIÐ Alberti Að morgni dags er blaðað í blöðum og reynt að ráða í þann óttalega leyndardóm: hvers vegna er Albert Guðmundsson siðferðilega óhæfur til að vera ráðherra, en um leið hæfur til að vera flaggskip Sjálfstæðisflokks- ins á framboðslista í Reykjavík? Þetta þykir mörgum skrýtið og Albert sjálfur spyr landsmenn með þjósti úr sjónvarpsstól: hvað er eiginlega að gerast? Við skulum leyfa okkur að svara með því, að það sé í raun- inni ekkert sérstakt að gerast. Allt við hæfi Þetta er allt eins og það á að vera. Siðferði markaðshyggjuflokks- ins er nefnilega akkúrat eins og Albertsmálið. Annarsvegar verður að virða vissar formlegar kröfur, sem tengjast lögfræði og annarri kerfisvarðveislu borgar- anna. Þess vegna verða menn að ræskja sig tvisvar þegar heildverslun Alberts gleymir að telja fram afsláttargreiðslur eða eitthvað í þá veru. Og í framhaldi af því verður Albert að segja af sér ráðherraembætti. En á hinn bóginn er það vitanlega fyrir neð- an allar hellur að þessi sömu formlegheit séu að setja stól fyrir dyr athafiiamanna. Morgunblað- ið lét þess rækilega getið þegar Hafskipsmál voru efst á baugi, að heimur viðskiptanna væri svo flókinn, að ekki væri nokkur leið að vita lengur hvað væri rétt og hvað rangt. Þess vegna má ekki höggva tvisvar á dag í sama knér- unn hinnar sælu einstaklings- hyggju, svo vitnað sé til Þorsteins Pálssonar. Og þess vegna er rétt að halda uppi siðferðiskröfum í' hófi. Taka mið af díalektík nátt- úrunnar. Um leið og formlegur syndari, Albert ráðherra, leggur niður rófuna burt rekinn, þá kemur félagsbróðir allra athafna- manna, Albert þingmaður, fram í sviðsljósið og hneigir sig bros- andi. Og segir sem svo: Er ekki allt í lagi strákar? Einn er friðhelgur Á þessari stundu verður ekki betur séð en Albert hafi svín- beygt Sjálfstæðisflokkinn og Morgunblaðið. Leiðari blaðsins f gær er fullur með feginleika og þakklæti í garð Alberts fyrir það að hann hafi látið svo lítið að 'kljúfa ekki flokkinn út af tittlingaskít eins og framtalsg- leymsku fjármálaráðherra. Hon- um er í mun að varðveita einingu Sjálfstæðisflokksins, segir þar. Hann færi einingunni þá miklu fórn að hlusta ekki á mestu æðik- ollana í hópi stuðningsmanna. Og einmitt í þessari ókristilegu umhyggju fyrir mesta bákni landsins, Sjálfstæðisflokknum, sameinast þeir á ljúfan og þokka- fullan hátt, Morgunblaðsrit- stjórar og Albert Guðmundsson. Þegar Albert lék sinn einleik á sjónvarp í fyrrakvöld talaði hann einmitt um þann EINA sem ekki mætti særa. Þessi eini var Sjálf- stæðisflokkurinn. Við sem ein- staklingar munum hljóta hjarta- sár grimm,sagði þar, missa svefn um nætur, biðja guð um að okkar sterku bein brotni ekki. En allt er það í lagi ef Flokkurinn má lifa. Siðgæði hvað? Og siðgæði - ja hvað er það eiginlega? Erum við ekki allir syndugir menn og skattsvikarar, fcpyr almenningur. Og enginn í Sjálfstæðisflokknum treystir sér til þess að svara einu eða neinu um þá „jafnaðarstefnu and- skotans“ í siðferðismálum sem Albertar heimsins vilja fljóta á - og fljóta oftast nær fivað sem smærri eða stærri syndaflóðum líður. I Albertsleiðara Morgunblaðs- ins í gær var taiað um það, að fjölmiðlar væru farnir að skapa „mikið návígi". Þar segir líka: Miskunnsemin „Stjórnmálabaráttan hér á ís- landi er orðin afar miskunnar- laus“. Við látum það allt vera. Og eigum þá ekki aðeins við það að Alberti hafi verið sýnt mikið um- burðarlyndi í Sjálfstæðisflokkn- um. Við eigum fyrst og fremst við „návígið“ ífjölmiðlunum. Samtal sjónvarpsfréttamanna við Albert á þriðjudagskvöldið var eins langt frá „miskunnarleysi“ og hugsast getur. Sjónvarpsmenn lögðu sig báðir tveir í líma við að gera veg Alberts sem mestan. Þeir máttu vart vatni halda fyrir hrifningu af hans styrkleika, áræðni og umsvifum í fortíð og nútíð. Þeir voru eins og ósjálfrátt komnir inn á þá albertslínu að „allir eru vondir við mig“. Ef að reynt var að stynja upp aumlegri athugasemd um hagsmunaá- rekstra þurfti ekki annað en Al- bert setti upp ærlegan svip og þar með hafði spyrillinn lyppast nið- ur og sást varla eftir það. Því verr því betra Víkverji Morgunblaðsins var að skrifa um það í gær að það væri verðugt viðfangsefni að skoða framgöngu fréttamanna í Al- bertsmáli. Það er alveg rétt. Ekki aðeins vegna þess hve sjónvarps- menn og fleiri hafa í raun og veru verið óendanlega miskunnsamir við samnefnara íslenskra synda- sela, Albert Guðmundsson. Heldur og vegna þess, að ekki verður betur séð en eina leiðin til þess að fjölmiðlar eins og sjón- varp sýni stjórnmálamanni sóma sé sú, að hann verði uppvís að vafasömu athæfi. Svo mikið er víst, að þeir stjómmálamenn sem hafa verið svo ólánssamir að gera og segja eitthvað af viti eru fyrir- fram dæmdir út leik og mega þakka fyrir ef þeim er ekki slátr- að af fréttafólum með illkvittinni athugasemd um að þeir séu bara andstyggilega og leiðinlega má- lefnalegir og þar með ekki í hús- um hæfir. Því verr þeim mun betra. -áb þJGÐVILJINN Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis og verkalýðshreyfingar Útgefandi: Útgáfufólag Þjóðviljans. Ritatjórar: Ámi Bergmann, Þráinn Bertelsson, össur Skarphéðinsson. Fróttastjóri: Lúðvík Geirsson. Blaðamenn: Garðar Guðjónsson, Ingólfur Hjörleifsson, Kristín Ólafsdóttir, Magnús H. Gíslason, MörðurÁrnason, ÓlafurGíslason, Sigurður Á. Friðþjófsson, Stefán Ásgrímsson, Vilborg Davíðsdóttir, Víoir Sigurðsson (íþróttir), Vngvi Kjartansson (Akureyri). Handrita- og prófarkalostur: Elías Mar. Ljósmyndarar: Einar Ólason, Sigurður Mar Halldórsson. Útlitateiknarar: Sævar Guðbjörnsson, Garðar Sigvaldason. Framkvæmdastjóri: Guðrún Guðmundsdóttir. Skrif8tofuatjóri: Jóhannes Harðarson. Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Guðbergur Þorvaldsson. Auglysingaatjórl: Sigriður Hanna Sigurbjörnsdóttir. Auglýslngar: Olga Clausen, Guðmunda Kristinsdóttir. Símvarsla: Katrin Anna Lund, Sigríður Kristjánsdóttir. Húsmóðir: Ólöf Húnflörð. Bflstjóri: Jóna Sigurdórsdóttir. Útbreiðslu-og afgrelðslustjóri: HörðurOddfríðarson. Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pótursdóttir. Innhoimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmoson, ÓlafurBjömsson. Útkeyrsla, afgrelðsla, ritstjórn: Síðumúla 6, Reykjavík, sími 681333. Auglýsingar: Síðumúla 6, símar 681331 og 681310. Umbrotog setning: Prentsmiðja Þjóðvlljanshf. Prentun: Blaðaprent hf. Verð f lausasölu: 50 kr. Helgarblöð: 55 kr. Áskr Jftarverð á mánuði: 500 kr. 4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN .Flmmtudagur 26. mars 1987

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.