Þjóðviljinn - 26.03.1987, Síða 6
FLÓAMARKAÐURINN
LANDSBYGGÐIN
Relfthjól
(f. barn/ungling). Raleigh/sport/3
gfra. Vandao og lítið notað. Selst á
aðeins kr. 4.500.-. Uppl. í síma
10282.
Óska eftir sófasettl
og fleiri húsgögnum, helst gefins.
Uppl. í síma 656570, Ragnar.
fsskápur fæst gefins
Upplýsingar í síma 36043 eftir kl.
20.
Fyrlr ungbörn - til sölu
Blindrafélagsvagga og burðarrúm.
Cindiœ-taustóll og magaburðar-
poki. Uppl. í síma 82845.
Fermingarjakkaföt
frá Karnabæ til sölu. Stærð 167.
Lítið sem ekkert notuð. Verð kr.
3.500.-. Uppl. í síma 34685 eftir kl.
13.
Tll sölu
Chevrolet Chevelle, árgerð '68, 8
cyl. 307 krómfelgur, ný dekk. Skipti
möguleg á ódýrari bíl. Á sama stað
fæst biluð Lada árgerð '78 fyrir lítið.
Uppl. í síma 32477.
Erum á götunni
Systkin óska eftir íbúð á leigu sem
fyrst. öruggar mánaðargreiðslur.
Reglusemi heitið. Uppl. í síma
46538.
Síbería
Varst þú í Síberíuvinnu? Átt þú
kannski myndir frá þeim tíma?
Hafðu þá samband við Jón Gunnar
í síma 22439 eftir kl. 16.30.
Glrðingatröppur
Land- og sumarbústaðaeigendur!
Rífið ekki fötin ykkar. Trappa yfir
girðinguna leysir málið. Sterkar og
fúavarðar. Til sýnis. Uppl. f síma
40379 á kvöldin.
Til sölu Volvo 244 GL 1982
Gullfallegur, ekinn 89.000 km,
sumar- og vetrardekk. Verð 400
þúsund. Skipti á ódýrari möguleg.
Uppl. í síma 92-3354 eða 92-4888.
Cortina 1600 XL 74
til sölu á kr. 5 þús. Á sama stað fæst
gefins stór amerískur ísskápur.
Sími 22026 eftir kl. 17.
Commodore 64 k
kassettutæki, stýripinni og rúmlega
100 leikir til sölu. Uppl. í síma 13527
eftir kl. 17.
Barngóð og traust
bamapía óskast fyrir 10 mánaða
stelpu f Vesturbæ, annað slagið
hluta úr degi og ef til vill eitthvað á
kvöldin. Vinsamlegast hringið í
sfma 28257.
Fæst gefins
Gömul hljómflutningstæki fást gef-
ins. Uppl. í síma 10709 eftir kl. 18.
Luxemburg
Til sölu opinn flugmiði aðra leið.
Gildir fram í júní. Selst ódýrt. Uppl. í
síma 19842.
Okkur vantar kanfnubúr
Rúmgott kanínubúr óskast sem
fyrst. Uppl. í síma 21784.
Hjónarúm tll sölu
Massíft furuhjónarúm, stærð
140x200, til sölu. Uppl. í sfma
21784.
Vantar
alls kyns tæki til trésmíða. Hringið í
síma 686798 og biðjið um Guð-
mund, heimasími 78449 á kvöldin.
Tll sölu
jakkaföt á fermingardreng. Verð kr.
3 þúsund. Einnig grár leðurjakki á
kr. 4.500.- (sama stærð). Uppl. í
síma 46447 eftir kl. 16.
Óska eftlr að kaupa
ódýran svalavagn og létta kerru.
Uppl. í síma 611136.
Óska eftlr
PC tölvu 512 K eða meira með tvö-
földum skjá og diskettudrifi. Uppl. í
síma 19842.
Tll sölu
sófasett 3+2+1 og tvíbreiður
svefnsófi, barnavagn, kerruvagn,
hár barnastóll og barna-taustóll.
Uppl. í síma 628748.
Vantar
ódýra en góða þvottavél, litsjón-
varpstæki og háa borðstofustóla.
Hringið í síma 75745 eftir kl. 16.
Tll sölu
vel með farið skrifborð, 20“ svart/
hvftt Philips sjónvarpstæki og Radi-
onette samstæða sem er 26“ svart/
hvítt sjónvarp, útvarp og plötuspil-
ari. Uppl. í síma 75745 eftir kl. 16.
Kassettutækl tll sölu
Sharp GF-9797 kassettutæki til
sölu. Selst á kr. 10.000, er svo til
nýtt. Uppl. í síma 611203 eftir kl. 19.
Notaðu
endurskinsmerki
og komdu heil/l heim.
DJÓÐVIIJINN
49 68 13 33
Tíminn
Z 68 18 66
0 68 63 00
'ðumúla 6
Blaðburður er
BESTA TRIMMIÐ
Blaðbera vantar
víðsvegar /i
um borgina # «■+ / -
Frá skógræktinni f Varmahlíð f Skagafirði. Marta Svavarsdóttir hefur mjög lagt þar hönd að verki.
Skógrœkt
Bændaskógar í augsýn
Tryggjci þarfskógarbœndum tekjur meðan arðurinn er
ókominn
Fyrir Alþingi liggur frumvarp
til laga um skógrækt og skóg-
vernd og var það sent Búnaðar-
þingi tU umsagnar. Enda þótt
(jóst þyki að Alþingi muni ekki
afgreiða frumvarpið að þessu
sinni gerði Búnaðarþing sínar at-
hugasemdir og ábendingar, sem
m.a. felast I eftirfarandi:
Mælst er til þess við landbún-
aðarráðherra að frumvarpið
verði tekið til endurskoðunar og
Búnaðarfélagi íslands gefinn
kostur á að fylgjast með þeim
breytingum, sem kunna að verða
gerðar á því.
Bent er á að löggjöf um ræktun
nytjaskóga marki framgangi
málsins þröngan bás og því hafi
sóst seint að vinna eftir henni.
Hinsvegar hafi viðhorf bænda til
skógræktar breyst mjög hin síðari
árin, einkum eftir að Ijós þótti
hagkvæmni ræktunar nytjaskóga
á vissum svæðum á landinu.
íslenskir blóma- og garðyrkju-
bændur stríða í ströngu vegna
mikils innflutnings á blómum og
trjáplöntum. Þessi innflutta vara
er framleidd í stórum vcrk-
smiðjugróðurhúsum auk þess
sem viðkomandi lönd styðja hana
stórlega til þess að lækka fram-
leiðslukostnaðinn. Hér er því um
að ræða ójafnan leik.
Margir bændur eru þess nú al-
búnir að leggja fram land til rækt-
unar nytjaskóga og að taka skóg-
rækt upp sem búgrein á jörðum
sínum.
En við breytingu á búháttum
þarf að ætla bændum laun við þá
búgrein, sem þeir taka upp. Því
telur þingið að löggjöf um nytja-
skóga þurfi að vera þannig úr
garði gerð, að hún veiti bændum
hvatningu og tryggi þeim jafn-
framt þegar frá upphafi tekju-
möguleika við ræktun nytjaskóg-
anna, enda þótt arðurinn af rækt-
uninni skili sér ekki fyrr en síðar.
Þá telur þingið nauðsynlegt að
samræma þessa löggjöf jarðrækt-
arlögunum með þeim hætti t.d.
að þegar Skógræktin hefur viður-
kennt og gert bundið samkomu-
lag við bændur um ákveðið lands-
svæði, þá njóti skógræktin á við-
komandi býli styrks eftir jarð-
ræktarlögum.
Fyrir Búnaðarþingi lá erindi
frá Búnaðarsambandi Kjalarnes-
þings um að skora á fjármála-
ráðuneytið að fella niður sölu-
skatt af blómum og trjáplöntum,
sem ræktaðar eru hérlendis og
bæta með þeini hætti samkepp-
nisaðstöðu innlendu fram-
leiðslunnar. Búnaðarþing gerði
þessa áskorun að sinni. - mhg.
í framansögðu er hin almenna
umsögn Búnaðarþings fólgin en
auk þess gerði það athugasemdir
við einstakar greinar frumvarps-
ins. Skulu þær ekki tíundaðar hér,
en trúlega verða þær hafðar til
hliðsjónar við endurskoðun
frumvarpsins.
- mhg.
Tímarit
Æskan
- Ég var 5 ára þegar ég komst
fyrst í kynni við fótbolta. Frændi
minn í móðurætt, sem var sjó-
maður og sigldi milli landa, gaf
mér skinnbelg, sem var harð-
fylltur af lofti. Þannig mælir sá
aldni fótboltakappi, Albert Guð-
mundsson, í spjalli við Eðvarð
Ingólfsson í siðasta tbl.
Æskunnar.
Þá er rætt við Helenu Eydal, 14
ára stúlku norður á Akureyri, um
það áhugamál hennar, að safna
veggmyndum. Birt er aukaverð-
launasaga úr smásagnasamkepp-
ni Æskunnar o.fl., Vetrarkvöld,
eftir Sigurbjörgu Þrastardóttur.
Sagt er frá heimsókn blaðsins til
Þórs Jakobssonar á Veðurstof-
una. Þá birtist síðari hluti sög-
unnar Eyvi, eftir Steinunni
Eyjólfsdóttur í Stykkishólmi.
Spjallað er við félaga í sextettin-
um Rauðir fletir. Margvíslegt
annað efni er í blaðinu auk fjölda
ágætra mynda.
- mhg.
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Flmmtudagur 26. mars 1987
Ojafn leikur
Söluskattur afblómum og trjáplöntum falli
niður