Þjóðviljinn - 26.03.1987, Qupperneq 14
Núverandi og fyrrverandi formenn FÍK.
Hellas
Árshátíð
Grikklands-
vina
Kjötiðnaðarmenn
Afmælíssýning á Sögu
Um næstu helgi verður haldin
sýning og ráðstefna á vegum Fé-
lags íslenskra kjötiðnaðarmanna.
Sýningin er haldin í tilefni 40 ára
afmælis FÍK. Sýndar verða vörur
og þjónusta, sem tilheyra hjötiðn-
aði. Á ráðstefnunni, sem haldin
er samhliða sýningunni, verða
bæði innlendir og erlendir fyrir-
lesarar, sem koma til með að
f]alla um nýjungar, öryggismál,
merkingar, hollustuvernd o.fl.
Afmælissýningin og ráðstefnan
verða til húsa í nýja ráðstefnu-
salnum á Hótel Sögu, 2. hæð.
Meðal þeirra, sem koma til með
að fjalla um hin ýmsu atriði kjöt-
iðnaðar, verða Hans Kristian Ol-
esen, frá Slagteriskolen í Ros-
kilde, Peer Funk Johannesen,
sem fjallar um hreinlæti í mat-
vælaiðnaði, Jón Gíslason, Holl-
ustuvemd ríkisins, sem talarm.a.
um væntanlega reglugerð um
aukaefni, Guðjón Þorkelsson,
Rannsóknastofnun landbúnaðar-
ins, sem ræðir um kælingu,
meyrnun og geymsluþol kjöts.
Grikklandsvinafélagið Hellas
boðar til aðalfundar á Hótel Esju
á föstudaginn kl. 19.30. Fara þar
fram hefðbundin aðalfundar-
störf.
Að aðalfundi loknum verður
efnt til árshátíðar félagsins á
sama stað og hefst hún um kl.
20.30. Boðið verður upp á gríska
máltíð, en meðal skemmtiatriða
má nefna bráðfyndið atriði úr
gamanleiknum Friðinum eftir
Aristófanes í þýðingu Kristjáns
Ámasonar, sem flutt verður af
Róbert Arnfinnssyni og nemend-
um fjórða bekkjar í Leiklistar-
skóla íslands, þeim Halldóri
Björnssyni, Hjálmari Hjálm-
arssyni, Ingrid Jónsdóttir, Olafíu
Hrönn Jónsdóttur, Stefáni Sturlu
Sigurjónssyni, Valgeiri Skag-
fjörð, Þórarni Eyfjörð og Þórdísi
Árnljótsdóttur. Leikstjóri er
Sveinn Einarsson.
Seinna um kvöldið syngur Sif
Ragnhildardóttir nokkur lög eftir
Mikis Þeódórakis við undirleik
Hilmars J. Haukssonar. Milli
skemmtiatriða og undir borð-
haldi verður leikin grísk tónlist af
snældum og í lokin er ætlunin að
sýna kynningarkvikmynd um
Grikkland af myndbandi.
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Hafnartjörður
Bæjarmálaráðsfundur
Fundur verður í bæjarmálaráði laugardaginn 28. mars kl. 10.00 í
Skálanum, Strandgötu 41.
Fundarefni: 1) Staðan í umhverfis- og náttúruverndarmálum,
Jóhann Guðjónsson formaður gróðurverndamefndar og Erling
Ólafsson fulltrúi í náttúruverndarnefnd reifa málin. 2) Staðan í
bæjarmálunum: Magnús Jón Árnason. 3) Vegamót: Lúðvík
Geirsson. 4) önnnur mál.
Félagar fjölmennið og mætið stundvíslega. - Stjórnin.
Reyðfirðingar
Almennur stjórnmálafundur verður haldinn á Reyðarfirði,
fimmtudaginn 26. mars kl. 20.30.
Björn Grétar Sveinsson ræðir um stöðu launafólks á lands-
byggðinni.
Allir velkomnir.
Alþýðubandalagið.
KOSNINGASKRIFSTOFUR
Alþýðubandalagið Reykjavík
Morgunkaffi
hjá 2. deild
2. deild ABR heldur félagsfund að
Hverfisgötu 105, laugardaginn 28.
mars kl. 11.00. Álfheiður Ingadóttir
mætir á fundinn. Fjölmennum. -
Stjómln.
Jóhanna Guðrún
Alþýðubandalagið Reykjavík
Opið hús á sunnudaginn
Opið hús verður í Kosningamiðstöðinni á Hverfisgötu 105 frá kl.
I4 á sunnudaginn og næstu sunnudaga.
Frambjóðendur G-listans í Reykjavík sitja fyrir svörum og boðið
verður uppá ýmsa skemmtan. Á sunnudaginn situr Guðrún
Helgadóttir alþm. fyrir svörum og kl. I6.00 mun Jóhanna Linnet
söngkona syngja nokkur lög við undirleik Arnar Magnússonar.
Allir velkomnir. ABR.
Alþýðubandalagið Hafnarfirði
Hafnfirðingar!
Opið hús og kosningavinna í Skálanum, Strandgötu 41, á laug-
ardag frá kl. I4.00. Mætum öll og skoðum í kjörskrár - spjall -
kaffi - meðlæti og skemmtun. Fjölmennum. Síminn á skrifstof-
unni er 54171. Stjórnin.
Alþýðubandalag Héraðsmanna
Félagsfundur fimmtudaginn 26. mars nk. kl. 20.30 að Selási 9
Egilsstöðum. Dagskrá: Kosningastarfið. Önnur mál. Mætið vel
og stundvíslega. - Stjórnln.
Alþýðubandalagið
Utankjörfundarkosning
Utankjörfundarskrifstofa Alþýðubandalagsins er að Hverfisgötu
105. Opið frá kl 9 á morgnana og fram eftir á kvöldin. Síminn er
91-22335 og 91-22361. Símsvari 91-623484.
Norðurlandskjördæmi vestra
Hvammstangi: Kosningaskrifstofan er að Spítalastíg 16.
Opið virka daga frá kl. 20.30 - 21.30 og um helgar frá kl. I5 -18.
Síminn er 95-1460. Lítið inn eða hafið samband.
Blönduós: Kosningaskrifstofan er á Aðalgötu 1 sími 95-4561.
Opin frá kl. 15 -18 alla daga nema laugardaga. Starfsmaður er
Þorleifur Ingvarsson.
Norðurlandskjördæmi eystra
Aðalkosningaskrifstofan er á Akureyri í Lárusarhúsi, Eiðsvalla-
götu 18. Opið alla virka daga frá kl. 9-12 og 13-18. Síminn er
96-25875 og-27413. KosningastjórierGunnarHelgason. Fra-
mlögum veitt móttaka á skrifstofunni og á tékkareikning nr.
8790 í Alþýðubankanum Akureyri.
Suðurland
Aðalkosningaskrifstofan er að Sigtúni 1 Selfossi (gamla Iðn-
skólanum). Opnunartími er alla virka daga kl. 14-19. Síminn er
99-1006. Kosningastjóri er Guðvarður Kjartansson. Alla laugar-
daga fram að kosningum er opið hús í kosningamiðstöðinni kl.
14-17. Frambjóðendur verða á staðnum.
VESTMANNAEYJAR: Kosningaskrifstofan er á Bárugötu 9
(Kreml). Fyrst um sinn verður skrifstofan opin sunnudaga-
mánudaga og föstudaga frá kl. 16-18. Síminn er 98-1570.
Vestfirðir
Kosningaskrifstofan í Hæstakaupstað, Aðalstræti 42, Isafirði, er
opin allan daginn. Sími: 94-4242 og -4298. Kosningastjóri er
Gísli Þór Guðmundsson. Alltaf heitt á könnunni.
Kosningamiðstöðin
Reykjavík
Kosningamiðstöðin er að Hverfisgötu
105. Þar er opið alla virka daga til kl.
22.00 á kvöldin. Á laugardögum kl.
10 -18 og ásunnudögum kl. 14 -18.
Síminn er 17500.
Kíkið inn og fáið ykkur kaffi og styrkið
kosningastarfið með kaupum á
happdrættismiðum.
Vesturland
Aðalkosningaskrifstofa Alþýðubandalagsins á Vesturlandi er í
Rein á Akranesi. Skrifstofan verður opin fyrst um sinn mánu-
daga kl. I5 -19, þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga frá kl.
16-19, föstudaga frá kl. 15 -19 og laugardaga frá kl. 13 -17.
Slminn er 93-3174 og -3175.
G-listinn á Vesturlandi
Kosningaskrifstofan í Rein
Aðalkosningaskrifstofa Alþýðubandalagsins á Vesturlandi
verður í Rein á Akranesi. Skrifstofan verður opin fyrst um sinn
mánudaga kl. 15-19, þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga
kl. 16-19, föstudaga kl. 15-19 og laugardaga kl. 13-17. Siminn
er 3174 og 3175.
Austfirðir
Aðalskrifstofa Alþýðubandalagsins í Austurlandskjördæmi er
á Reyðarfirði, Heiðarvegi 22, neðri hæð. Opið alla virka daga frá
kl. 10-18 og á kvöldin frá kl. 20-22. Um helgar fyrst um sinn frá.
kl. 14-17. Síminn er 97-4361. Kosningastjóri er Jóhanna III-
ugadóttir, heimasími: 97-4377. Alltaf heitt á könnunni.
FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR: Kosningaskrifstofan er á Búðavegi 6.
Sími 97-5444. Opið á fimmtudagskvöldum frá kl. 20.00 fyrst.um
sinn.
Neskaupstaður: Kosningaskrifstofan er að Egilsbraut 11.
Sími: 97-7571 og -7804. Opið milli 15-17 fyrst um sinn.
Kosningastjóri er Lilja Huld Auðunsdóttir.
Egilsstaðir: Kosningaskrifstofan er að Selási 9. Sími 97-
1425. Skrifstofan er opin milli kl. 20 - 22 um helgar.
HÖFN I HORNAFIRÐI: Kosningaskrifstofan er á Hafnarbraut
26 (neðri hæð). Opið frá kl. 17-19.30 og 20-22 virka daga og
13-19 um helgar. Síminn er 97-81426.
G-listinn Reykjanesi
Aðalkosningaskrifstofa G-listans í Reykjaneskjördæmi er í
Þinghóli, Hamraborg 11, Kópavogi. Þar er opið alla virka daga
frá kl. 10.00-19.00. Alltaf heitt á könnunni og starfsmennirnir
Valþór, Asdís, Helgi og Unnur til þjónustu reiðubúin. Símarnir
eru 41746 og 46275.
Þá hefur einnig verið opnuð kosningaskrifstofa í Keflavík, að
Hafnargötu 34. Síminn þar er 92-4286. - G-listinn Reykjanesi.
Hafnarfjörður: Kosningaskrifstofan er í Skálanum, Strand-
götu 41. Opið alla virka daga frá kl. 17.00 og um helgar frá kl.
I4.00. Síminn er 54171.
Keflavík - Suðurnes: Kosningaskrifstofan er að Hafnargötu
34 í Keflavík. Síminn er 92 -4286.
14 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Flmmtudagur 26. mars 1987